Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 39

Tíminn - 16.10.1977, Blaðsíða 39
Sunnudagur 16. október 1977. 39 flokksstarfið Miðstjórnarfundur S.U.F. Miðstjórnarfundur Sambands ungra Framsóknarmanna verður haldinn föstudaginn 18. nóv. og laugard. 19. nóv. næstkomandi að Hótel Heklu. Dagskrá: Föstudagur 18. nóv. Kl. 16.00 Setning. Kosning fundarstjóra og fundarritara. Kl. 16.10 Skýrsla stjórnar. Umræður. Kl. 18.00 Mál lögð fyrir þingið Kl. 20.00 Nefndarstörf. Laugardagur 19. nóv. Kl. 9.30 Nefndarstörf. Kl. 13.00 Afgreiðsla mála. Kl. 16.00 Fundarslit. Suðurlandskjördæmi Kjördæmisþing framsóknarmanna á Suðurlandi verður haldið laugardaginn 29. október að Eyrarvegi 15, Selfossi og hefst kl. 10.00 árdegis. Dagskrá: 1. Venjuleg þingstörf. 2. Framboðsmál. 3. ólafur Jóhannesson, dómsmálaráðherra, ræðir stjórnmála- viðhorfið. 4. önnur mál. Stjórnin. SUF-arar Hádegisverðarfundur verður á þriðjudag að Hótel Heklu. Um- ræðuefni: Kjaradeila opinberra starfsmanna. SUF Freyjukonur, Kópavogi Aðalfundur Freyju kvenfélags framsóknarkvenna i Kópavogi verður haldinn að Neðstutröð 4, fimmtudaginn 20. október kl. 20.30. Mætið vel og stundvislega. Stjórnin „Opið hús#/ Flateyri Framsóknarfélag önundarfjaröar verður með opið hús i sam- komuhúsinu Flateyri á þriðjudagskvöldum kl. 20.30-23.30. Leikið verður af plötum, spilað, teflt, myndasýningar. Allir velkomnir. Árnesingar Aðalfundur FUF i Arnessýslu ver sunnudaginn 16. október kl. 21.00 Eyrarvegi 15 Selfossi. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjör- dæmisþing. Avarp flytur Þráinn Valdimarsson, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins. önnur mál. — Stjórnin Kjósverjar Aðalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu verður haldinn þriðjudaginn 18. október i Aningu Mosfellssveit kl. 21.00 stund- vislega. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Stjórnin Formannafundur Ákveðið hefur verið aö efna til fundar með formönnum kjör- dæmasambandanna, og þeim öðrum sem framkvæmdastjórn flokksins ákveður i samræmi við lög flokksins. Fundurinn verður haldinn að Hótel Heklu Kauðarárstíg 18 dag- ana 3. og 4. desember. Nánar tilkynnt með bréfi. Rangæingar Aðalfundur framsóknarfélaganna i Rangár- vallasýslu verður haldinn i Hvoli, Hvolsvelli, mánudaginn 17. október kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing. Halldór E. Sigurðsson, ráðherra ræðir stjórnmála viðhorfið. Stjórnin | Almennur fundur Framsóknarfélag Reykjavikur heldur al- mennan fund á Hótel 17. Á fundinum verður fjallað um stjómmála- viðhorfið. Ræður flytja Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður, og Einar Ágústs- son, ráðherra. Fundurinn er öllum opinn. Stjórnin Útifimdur BSRB HsSaiÉiÉfcs- leiðtogar vérkfallsmanna héldu ræöur og skýrðu frá gangi mála og hver væri stað- an i væntanlegum samninga- umleitunum, en semvkunnugt er hafa ekki verið boðaðir samningafundir með deilu- aðilum. Bandalag starfsmanna rikis og bæja efndi til útifundar á Lækjartorgi I gær, laugardag. Hófst fundurinn kl. 13,30, en þar sem Timinn fór i prentun fyrir þann tima var ekki mögulegt aö skýra frá fundin- um, hvorki i máli né myndum. Vel leit út meö veður fyrir fundinn og var búizt við að fjölmenni sækti hann enda er verkfall BSRB eitt hið viðtæk- asta sem efnt hefur veriö til hérlendis. A fundinum stóö til að helztu Esju mánudaginn október kl. 20.30. Matur og hreyfing Orkuþörf manns fer eftir þvi hvað hafter fyrir stafni. í hvild brennur að jafnaði 1 hitaeining á hverrri minútu eða sem svar- ar 1400 til 1500 hitaeiningum á sólarhring. Aukin ! lifsþægindi hafa gert stóran hluta Vestur- landabúa að kyrrsetufólki með þeim afleiðingum, að orkuþörf- in er oft á tiðum ekki miklu meiri en þessu nemur. En eftir þvi sem maður hreyfir sig meira vex orkuþörfin að sama skapi. Þannig brenna um fimm hitaeiningar á mlnútu á göngu og um tiu á rólegu hlaupi. Fyrir kyrrsetufólk er góð hreyfing sannarlega gulls igildi. Reglubundin hreyfing hefur t»éttbýli — Hvernig er að fá varahluti og annað efni sem þú þarft á aö haldá? — Við erum mjög vel i sveit sett og segja má að möguleiki sé á að fá alla hluti sem maður þarf frá Reykjavik eða Akur- eyri, daginn eftir að þeir eru pantaðir. — Hvað lifa margar fjöl- skyldur af þeirri starfsemi sem þú ert meö.hé i Viðigeröi? — Það eru fjórar fjölskyldur, sem lifa á þessari starfsemi. Þá er ég alltaf með hugmyndir um aö auka starfsemina hér enn meira og t.d. hef ég hug á að setja hér á fót einhvers konar piastiðnað. Slikur iðnaður gæti auðveldlega skapað fjórum til sex mönnum vinnu. — Nú ert þú kominn með þennan rekstúr hér, og hér við hliöina er saumastofan Viðihlið. Telur þú lfkur á að hér verði all- stór þéttbýliskjarni i framtið- inni? — Ég sé ekkert, sem mælir á móti þvi að svo veröi. Hér er all- gott byggingarsvæði fyrir íbúðarhús og hefur svæðið þegar veriö skipulagt. Ég tel það lika mjög mikilvægt fyrir sveitarfélagiö aö hér risi all- nokkur þéttbýliskjarni. Slikt tryggir búsetuna i sveitinni, eflir félagslifið og hefur góð áhrif á fjölmörgum sviöum. Til aö stuöla að þessari þróun væri mjög eðlilegt aö sveitarfélagið ' byggði hér leiguibúðir. Hér vantar húsnæði, enda er það forsenda þess aö unnt sé að fá hingaö fleira fólk til starfa. margvisleg áhrif til góðs svo sem: að auka andlega og likamlega velliðan auka matarþörfina og þar meö likurnar á þvi að öll nauðsýnleg næringarefni fáist úr fæðunni. aö koma á betra jafnvægi milli orkubrennslu og matarlystar að vinna gegn offitu að vinna gegn æöakölkun og hjartasjúkdómum Matur og hreyfing. Eitt kiló af fituvef jafngildir um 7000 hitaeiningum. Sá, sem ætlar að léttast um eitt kiló á viku verður þvi að brenna 1000 hitaeiningum á dag umfram það, sem hann fær 1 fæðinu. Hann getur auðvitað valiö hvort hann ætlar að auka hreyfingu eða minnka viö sig mat. Ef hann velur fyrri kostinn verður hann að ganga (eða hlaupa) tiu eða synda tvo kilómetra daglega. Flestir kjósa þó aö fara ein- hvern milliveg, boröa minna og auka jafnframt hreyfingu hóf- lega. I þættinum „A VOGARSKALUM” var mælt með 1200 hitaeininga fæöi og aukinni hreyfingu sem nemur 100 hitaeiningum. Þessi aukna hreyfing samsvarar 20 minútna göngu, 10 minútna hlaupi eða leikfimi eða 200 metra sund- spretti. Hvernig hreyfing. Mestu skiptir að byrja strax, enaö byrja rólega.Ef farið er of geyst af stað getur maöur hæg- lega ofreynt vöðva og liðamót, auk' þess sem oft reynir mikið • á hjartaö. Harðsperrur geta orðið til þess aö draga Ur áhuga á áframhaldandi Iþróttaiökun. Með þvi að fara hægt af staö verður þessara byrjunarein- kenna litið vart og þau hverfa ” auk þessfljótlega. Aður en langt um líður er likaminn betur und- ir frekari áreynslu búinn. Mikilvægt, er að velja sér iþróttagrein, sem veitir ánægju og einnig er æskilegt að stunda hana i góöum félagsskap, t.d. með fjölskyldunni eða I vina- hópi. Ef iþróttin er skemmtileg eru meiri likur á þvi, að hún verði aö vana. Fyrir þá sem stunda kyrr- setustörf er æskilegt að miöa að þvi að geta æft sig þrisvar sinn- um i viku, hálftima i senn. En ef þetta er óframkvæmanlegt er samtsem áður engin ástæða til þess að leggja árar i bát. Oll likamsrækt er til bóta jafnvel þótt aðeinssé æftt.d. einu sinni i viku. Leiðrétting frá Kjartani Þórólfssyni í Timanum i gær er stutt viötal sem blaðamaður átti við mig á föstudag vegna atkvæðagreiðslu um samninga borgarstarfs- manna. Þar er það eftir mér haft, að ég haldi, aö btrgin hafi að mestu ráðið ferðinni i þessum samningamálum. Þetta er al- rangt.Hvað sem um samninginn má segja vil ég undirstrika þá skoðun mina, að ég tel, að einlæg- ur vilji og gagnkvæmur skilingur hafi ráðið ferðinni i samningavið- ræðunum, og með engri sanngirni verði sagt, að annar aðilinn hafi beitt hinn ofriki. Kjartan Þórólfsson Rólegt hjá lögreglunni SSt-Rvk. Að sögn lögreglunnar viða um land hefur fátt borið til tiöinda nú um helgina og veriö venju fremur rólegt. Gætir þar að sjálfsögðu verkfallanna. 1 Reykjavik bar ekkert til tið- inda og það litla sem kom upp á, svo sem ölvun I heimahúsum og á almannafæri, skipti hún sér ekki af, enda hefur hún fyrirmæli um að sinna aðeins brýnustu öryggis- gæzlu. Eitthvað var þó um inn- brot og smástuldi. Sömu sögu hafði logreglan á Akureyri að segja, þar var allt með róog spekt. Að visu hafði eitt slys boriö aö höndum, er maður höfuðkúpubrotnaði á vinnustað. Var hann við vinnu á Malar og steypustöðinni á Akureyri, er verkfæri sprakk og járnstykki þeyttist i höfuð honum með fyrr- greindum afleiðingum. tiu i gær,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.