Tíminn - 16.10.1977, Side 15

Tíminn - 16.10.1977, Side 15
Sunnudagur 16. október 1977. 15 3Ínn einasti kvenmaður standa. Bréf streymdu til blaö- anna i striðum straumum og af- staöa hennar var sögð „fárán- leg” og „hættulegt skref aftur til hinna myrku miðalda”. Barbara hefur ekki látið um- talið á sig fá. „Mér finnst gam- an þegar konur ráðast aö mér. Ég hef rétt fyrir mér I grund- vallaratriðum og það vita þær,” segir hún. „Þess vegna hata þær mig. Mér er ekki sama hvernig þær spilla unglings- stúlkum og hvetja þær til að týna meydómnum. Ég veit hversu miklir hálfvitar sextán ára stúlkur eru. Ast er andlegs eðlis, og að sofa hingað og þang- að kemur niður á stúlkunum þó siöar verði. Ef þær þurfa aö sofa hjá ættu þær að selja sig hærra veröi, ekki bara að láta bjóða sér út að borða.” Þó bækur Barböru séu aöal- lega ætlaðar konum, og hún hiki ekki við að mæla fyrir munn allrar kvenþjóðar, þá er hún enginn vinur kvenréttinda- hreyfingarinnar. Hún segir lika án þess að hika að henni hafi aldrei fallið vel við konur. „Ég þoli ekki ljótar konur sem sitja eins og hrúgur og biða eftir þvi að spila bridge. Mér hafa alltaf þótt karlmenn dálitið sérstakir. Ég kýs fremur að vera i návist daufdumbs karlmanns en gáfaðrar konu.” Ef Barbara er eins og hún sjálf segir „eins konar glæsilegur enskur erföagripur” þá hefur verðgildi hennar á markaði hækkað i hlutfalli við aldurinn. I siðasta mánuði var hún talin einhver stærsta féþúfan i brezk- um skemmtanaiðnaði. Banda- riskur kvikmyndaframleiðandi keypti réttinn til að gera kvik- myndir eftir öllum sögum henn- ar. jafnt útgefnum sem óskrif- uðum. Ekki er uppvist um verð- ið, en talið er að Barbara sé mun rikari eftir. Eins og söguhetjurnar var Barbara hrein mey þegar hún giftist hinum vellauðuga Alex- ander McCorquodale i kirkju heilagrar Margrétar i West- minster, árið 1927. „Við vorum allar svo saklausar þá” segir hún. „Þá var ekkert til sem hét Pillan. Munurinn á hefðarkonu og skækju var óskaplegur”. Gifting Barböru fór fram samkvæmt Hollywood forskrift- inni. Frændi brúðgumans.Hugo McCorquodale sá Barböru i fyrsta skipti við athöfnina, og að sögn Barböru varö hann yfir sig ástfanginn af henni. Hjóna- bandið var gjörsamlega mis- heppnað. Hún sótti um skilnað fimm árum siðar, og þá kvað Alexander Hugo frænda sinn bera ábyrgð á uppátæki konu sinnar. Barbara kallar þetta „lymskulegt bragð” af Alex- anders hálfu. Barbara syrgir enn þrjá menn sem voru henni nákomnir. Fað- ir hennar var spilltur sonur fjármálamanns. Hann var mik- ill pólóleikari og dó i keppni 1918. Bræður hennar tveir dóu árið 1940 við Dunkirk. Fjórum áratugum siðar talar Barbara enn um bróður sinn Ronald, sem yndislegasta mann sem hún hefur kynnzt. Ronald var efni- legur stjórnmálamaöur i ihalds- Barbara og hundarnir á stóru spænsku himnasænginni. Þrem árum eftir skilnaðinn við fyrsta manninn, giftist hún Hugo McCorquodale, sem var eins og frændi hans fram kvæmdastjóri alþjóölegrar bókaútgáfu. Þau bjuggu i hamingjusömu hjónabandi i 27 ár þar til Hugo dó 1963. Barbara hefur haft fleira á prjónunum en bækur, og hún sat niu ár i sýslunefnd Hertford- sýslu. flokknum. Hann var fyrsti þing- maðurinn sem drepinn var i orustu i seinni heimsstyrjöld- inni. Cartland-fjölskyldan var ætt- stór, en heldur félitil, en leit þó ávallt á sig sem yfirstéttarfólk. Barbara telur aö fjárhags- örðugleikar fjölskyldunnar hafi hvatt hana til að reyna að öölast frægö og frama. Hún hætti skólagöngu átján ára, og varð snemma þátttakandi i skemmtanalifi broddborgara i London. Hún varð skjólstæöing- ur Beaverbrooks lávaröar sem var blaðaútgefandi af kana- disku bergi brotinn. Hannkynnti Barböru fyrir Lloyd-George, Winston Churchill og H.G. Wells. Að auki skrifaði Barbara slúðurdálka fyrir Daily Express (sem var i eigu Beaverbrooks). „Hann kyssti mig aldrei þó hann væri mjög ástfanginn af mér. Hann var giftur” segir hún um lávarðinn. „Nútimafólk trú- ir ekki að svona hafi þaö veriö. Þetta var góð byrjun fyrir mig sem rithöfund.” Þegar Barbara var 22 ára kom út fyrsta bók hennar „Púsluspil”. A þeirri bók er frásagnarstill sem átti eftir að endast henni allan rit- höfundarferilinn. „Bækur min- ar eru eiginlega framhald hver af annarri”, segir hún. „Min var beðið 49 sinnum áður en ég gekk i hjónaband og hundruö manna hafa lagt á mig ástar- hug. Ég er öllum hnútum kunn- ug. Ég vinn eins og blaöamaöur og segi frá orðum þeirra og æði”. Nú býr Barbara I húsi frá Viktoriutimanum, en i þvi eru 23 svefnherbergi, og miklar lendur fylgja eigninni. Synir Barböru hjálpa henni dyggilega, Ian sem er 39 ára er viðskiptalegur ráöu- nautur móður sinnar. Hann dvelur allar helgar á litlu sveitabýli sem er á landareign- inni. Glen er 37 ára og ógiftur. Hann býr i húsi móöur sinnar. hjálpar til við skriftirnar og er feröafélagi hennar. Dótturina Raine átti Barbara meö Alex- ander. Hún skildi nýlega viö Barbara ásamt sonum og sonarsyni. Dartmouth lávarð til að giftast Spencer lávarði. „Frá einum jarlinum til annars” segir móðirin stolt. Barbara reynir að halda sér sem bezt. „Ég er 76 ára og reyni að lita út fyrir að vera 48 ára” segir hún hlæjandi, en hún seg- ist vera of önnum kafin viö ritun ástarsagna til að hafa nokkurn tima aflögu til að lenda sjálf i ástaræfintýrum. Auövitaö, bæt- ir hún við, hafa henni borizt til- boð, en „ég vil ekki byrja aftur. Auk þess er ég svo ástfangin af eigin persónuleika, og þaö ætti að nægja. Mennirnir eru allir ungir og ákaflega spennandi — og ég kann svo sem tökin á þeim ennþá”. (þýttSKJ) Hópur vélritara vinnur við frágang handrita. Framkvæmdastofnun ríkisins auglýsir hér með lausa stöðu við vélritun og önnur skrifstofustörf. Framkvæmdastofnun rikisins, lánadeild Rauðarárstig 31, simi 2-51-33. Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsia Þann 17. október n.k. flyt ég lækningastofu mina að Laugavegi 43. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka alla virka daga eftir kl. 1 e.h. Simi 2-11-86. Haukur Jónasson læknir. Nýjung hér á /andí úr steinsteyptum einingum Ný framleiðsla okkar gerir ykkur kleift að byggja hagkvæmt atvinnuhúsnæði, hlöð- ur, verkfærageymslur og aðrar stærri byggingar, sem kalla á lofthæð. Einnig er rétt að minna á framleiðslu okk- ar hin hefðbundnu ibúðarhús og bilskúra o.fl. Áratuga reynsla i byggingu einbýlis- húsa. Gerið pantanir timanlega og komið með óskir ykkar. EININGAHÚS H.F. Hraunhólum 3 — Garðabæ —Simi 5-21-44 — Kvöldsimi milli kl. 8-9 4-29-17 _ Box 142.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.