Tíminn - 16.10.1977, Side 30

Tíminn - 16.10.1977, Side 30
30 u us - kemur beint frá lifrinni - Ræflarokkiö hefur nú á þessu ári látið meir til sin taka en nokkru sinni áður þó rekja megi tildrög þess nokkuð langt aftur i timann. T.d. er Lou Reed talinn guðfaðir þess og var upp á sitt bezta á sjötta áratugnum. Tónlist þessi hef- ur verið mjög umdeild og kannski fæstir feng- ist til að kalla hana tónlist. Hinir eru þó til, sem fullyrða að. tónlistarmennirnir eigi eftir að hlaupa af sér hornin og gerast fágaðri spá- menn framtiðarinnar. En allt um það, hér að ofan er viðtal við einn helzta frumherja þessar- ar tónlistar i Englandi i dag, Johnny Rotten. Viðtalið birtist i norsku blaði og fullyrða má, að i þvi gæti meiri hreinskilni og hlutlægni en nokkurn tíma gæti orðið útkoman i viðtali ensks poppblaðs við þennan hataða Englend- ing. Eitt rautt ljós og einn takki t dag tilheyra stereohljóm- tæki hiisbiinaði flestra manna. A markaönum er aö finna ótal merki og samkeppnin er gif- urleg og fáir auglýsa meira i dagblööum hér á landi en einmitt hljómtækjaseljendur. Þá eru tækin og einkum magnararnir biínir ótal tökk- um og hnöppum og ljósum. t „bransanum" segja þeir „hafiröu takka framyfir keppinaut ertu gulltryggöur”. En þá geröist undrið. Ein- faldur stereomagnari með einum takka og einu rauðu ljósi er skyndilega útnefndur „bezti magnari veraldar” af óháöu bandarísku neytenda- blaði, „Audio Critics”. Og þessi magnari er ekki jap- anskur, ekki ameriskur, hann er norskur! Þaö tók mörg ár að hanna þennan magnara. Þrir Oslobú ar fengu þá flugu f kollinn að tæknilegir möguleikar sem aðeins nýttust mælitækjum en ekki mannlegum eyrum hefðu enga þýöingu. Það voru eyr- unsem skiptu máli, þau átti aö gleðja. Af þessum þremur var einn popptónlistarmaöur, einn lærður Utvarpsverkfræðingur og hinn þriðji einfaldlega sjálfmenntaður. Þeim til að- stoöar var norskur Utvarps- maöur, hann var eyrun sem heyrðu og mátu, og hann var auk þess sérfræðingur i stereotækni. 1 sumar stóðu þremenn- ingarnir í stappi við banda- riska auöhringi sem tryggja vildu sér einkaleyfi á fram- leiðslunni. en vegna greinar- innar i „Audio Critics” snerist þremenningunum hugur oig á kváðu að standa sjálfir að .framleiðslunni og það heima i Noregi. Pantanir streyma til þeirra og innan skamms hætt- irþaö kannskiað skipta meira ' máli að hafa nógu marga takka til að stilla vitlaust og það sem eyrað heyrir verður ofan á. Nútimanum er ekki kunnugt um hvaö þessi undramagnari heitir, en kannski það komi brátt i ljós og einhver fari að auglýsa hann hér heima. Þá er eins gott að hann standi undir hólinu. Þremenningarnir norsku sem hönnuðu nýjan, einfaldan og að þvi er sagt er frábæran stereomagnara. —--------------------------- popper eíTThvað sem ung- lingur úr okkar umhverfi hefur enga tilfinningu fyrir lengur. Svo er því líka spillt af gamlingjum sem lifa við krásir og hafa að sjálfsögðu enga möguleika á að skynja við hvað ungt fólk af verka- mannastétt býr við í dag. Fyrir þá var í eina tíð þýðingarmest að öðlast eins konar millistéttar- frelsi, sem á sjötta ára- tugnum fólst í að ganga með blóm í hárinu. Við upplifum vonleysið miklu kröftuglegar. — Þýðir þetta að aðeins ungt fólk af enskri verka- mannastétt skilji og hafi tilfinningu fyrir ræfla- rokki? — Það held ég ekki. Ég mundi telja að ungt fólk úr öðrum þjóðfélagsstétt- um finni einnig til ófrels- isins og skilji þess vegna hvað við erum að fara. Hins vegar held ég að að- eins fólk úr verkamanna- hverfunum upplifi von- leysið nógu kröftuglega til þess að geta leikið ræflarokk af þeirri til- finningu sem sannfærir áheyrendur um að þeir meina það sem þeir eru að fara með. — Hvað með haka- krossinn a skyrtunni þinni. Er hann nauðsyn- legur? — Hvenær hefur nokk- ur skipt sér af því hvað er nauðsynlegt fyrir mig. Það er * ekki nokkur ástæða fyrir mig að láta það vera að traðka á gröfum þeirra. Auk þess hef ur hakakrossinn enga persónulega þýðingu fyr- ir sjálfan mig. Það er tónlistariðnað- urinn sem er rotinn — ekki ég, segir ræfilsrokk- arinn (púnkrokkarinn) Johnny Rotten. „Þessi iðnaður vill stjórna öllum tónlistarmönnum sem hann einu sinni nær til, en gagnvart okkur veit hann ekki hvernig hann á að bera sig að. Og við mun- um sjá til þess að erfið- leikarnir verði nægir. Enginn okkar er upp- næmur fyrir stjörnutil- verunni. Þessvegna erum við heldur ekki sárir út I iðnaðinn. Þann dag sem þetta breytizt, hættum við". Ræf lahljómsveitin „Sex Pistols" var í sumar á hl jómleikaferð um meginland Evrópu. Bæði til að breikka áheyranda sviðið og eins vegna þess að á Englandi hafa þeir hvergi orðið aðgang að hl jómleikasölum né klúbbum. Hljómsveitin er kunn að því að gera yfir- leitt allt sem hún getur „kerfinu" til miska, „prumpar á samfélag- ið", eins og Johnny Rotten einhverntíma orðaði það, og móðgar Sex Pistols landa sína við öll hugsan- leg tækifæri. Og það hef- ur þeim tekizt. Þeir geta ekki farið nema örfáa metra á götu í Lundúnum áður en svívirðingunum rignir yfir þá (útlitið ger- ir þeim heldur ekki auð- velt að dyljast). Johnny Rotten telur einmitt þetta til marks um óþolandi ástand samfélagsins. — Venjulegt fólk hræk- ir á eftir okkur og plötu- útgáfurnar og fjölmiðl- unin gerir hið sama með því að meina okkur að gera plötur og afbaka allt sem við stöndum fyrir. Alls staðar í þessu þróaða kerfi situr fólk, sem ekki skilur og vill ekki skilja það sem gerizt með ungu fólki í iðnverkahverfum hvarvetna á Englandi. Atvinnuleysið er versta meinið. Við fáum ekki einu sinni tækifæri til að nýta hæfileika okkar eins og millistéttarungdómur- inn, sem á kost á æðra skólanámi, auk alls ann- ars. Ættum við að láta okkur leiðast til dauðans? Ég hef ekki þessa svo- kölluðu „pólitísku með- vitund", og ég hef heldur engan áhuga á að hafa hana, — stjórnmálin eru alveg jafn spillt og fárán- leg og allt hitt. Við erum það raunsæir, að okkur dettur ekki í hug að við getum breytt nokkrum hl"+ með þessu útliti okk- ar né tónlistinni sem við flytjum. En okkur leiðist að minnsta kosti ekki, við græðum peninga og erum ánægðir á meðan það stendur. — Hvað er það sem greinirá milli ræflarokks og annars rokks? — Það er beinskeytt — kemur beint frá lifrinni. Ræflarokkið snýzt ekki um annað. Þetta þróaða Johnny Rotten er höfuð Sex Pistols með öryggisnælur I eyr- unum.Af öllum ræflarokkurum er hann vafalaust umtalaöastur þessa dagana. Nú-Tíminn Ræflarokkið

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.