Fréttablaðið - 02.06.2006, Qupperneq 33
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
GÓÐAN DAG!
Í dag er föstudagurinn
2. júní, 153. dagur ársins
2006.
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 3.20 13.26 23.33
Akureyri 2.30 13.10 23.54
Einu sinni var, barnafataverslun,
stendur fyrir ævintýralegum
tilboðsdögum dagana 31. maí til
3. júní þar sem veittur er 20 pró-
senta afsláttur af öllum vörum.
Nings hefur opnað nýja veitinga-
staði í Kringlunni, Smáralind og
á Akureyri, Wok Bar Nings. Þar
geta viðskiptavinir valið sjálfir
samsetningu á kjöti eða fisk,
grænmeti og sósu. Matreiðslu-
meistari snöggeldar á Wok
pönnu fyrir gesti. Einnig má fá
tilbúnar samsetningar á köldum
réttum og heilsuréttum.
Hagkaup afnemur virðis-
aukaskatt af öllum Prostyle
reiðhjólum í verslunum sínum.
Hjólin eru til í mörgum stærðum
og litum. Tilboðið gildir meðan
birgðir endast.
Nýja Skátabúðin er með tilboð
á stafagöngustöfum á aðeins
2.995 krónur. Einnig eru göngu-
skór úr Karrimor-línunni á tilboði
á 9.797 krónur.
ALLT HITT
[MATUR TILBOÐ]
ANANAS, ÁVÖXTUR
KONUNGA
Ananas er upprunninn í Brasilíu og
Paragvæ en sætt bragð hans og erfið-
leikar við að koma honum til Evrópu
gerðu hann að ávexti konunga á
endurreisnartímabilinu.
MATUR 2
BLÓMLEGT Á
LÖNGUM LAUGARDEGI
Hinn árlegi blómadagur verður
haldinn á Skólavörðustíg á
laugardaginn.
LANGUR LAUGARDAGUR 6
Stefán Svan í Kron Kron hefur ekki eingöngu gott
auga fyrir fallegum fötum heldur er hann einnig
lunkinn við að betrumbæta mataruppskriftir.
„Ég bý einn og vinn mikið og borða því mikið af 1944 réttum
og Daloon rúllum,“ kímir Stefán Svan Aðalheiðarson, versl-
unarstjóri Kron Kron. „ Mér finnst rosalega gaman að elda.
Ég skoða mikið uppskriftir í blöðum og prófa mig áfram.
Maður sér pínu hvað það er við hverja uppskrift sem maður
vill betrumbæta. Ég mæli með því að fólk eldi meira eftir
hendinni, prófi sig áfram en ekki festast í að fylgja upp-
skriftum. Svipað eins og í lífinu sjálfu.“
Aðspurður um sitt mesta eldunarafrek fer Stefán á for-
tíðarflakk. „Einu sinni bjó ég með vinkonu minni sem kunni
ekki að elda og ekki áttum við mikla peninga. Eitt kvöldið
eldaði ég mjög góðan rétt úr eggi, gulum baunum og ritz-
kexi,“ segir Stefán stoltri röddu. „Mér fannst það ákveðið
afrek. Ég kannski reyni við þá uppskrift aftur einn dag-
inn.“
Uppskriftin sem Stefán gefur lesendum er komin alla
leið frá Spáni. „Uppskriftin er orðin einskonar flökkuupp-
skrift og hefur breyst svolítið gegnum árin. Ég tók bara
grunninn að henni og svo bæti ég við eða breyti eftir því
hvernig liggur á mér. En réttinn kalla ég Tuddasalat,“ segir
Stefán sem kann vel að meta öll þau matarboð sem hann
fær. „Ég fer í mörg matarboð og hef gaman af því,“ segir
Stefán og samþykkir að gott matarboð í góðra vinahópi
dragi fram lífsins ljúfu stundir. „Það eru bestu tímarnir, að
borða góðan mat yfir góðum samræðum.“ Uppskrift Stef-
áns má finna á síðu 3. johannas@frettabladid.is
Ritzkex, egg og
gular baunir
Stefán Svan Aðalheiðarson, verslunarstjóri Kron Kron, sveiflar sleifum og spöðum í eldhúsinu og töfrar fram góða
rétti eftir hendinni.FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
2x10
Ekki sneiða
hjá þessum