Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 78
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR46
tonlist@frettabladid.is
ÞÚ ÞARFT EKKI
AÐ VERA STÓR
TIL AÐ BJARGA
HEIMINUM!
SMS
LEIKU
R
Vi
nn
in
ga
r
ve
rð
a
af
he
nd
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
. Þ
ú
fæ
r
5.
m
ín
ti
l a
ð
sv
ar
a
sp
ur
ni
ng
u.9.
hver
vinnur!
Sendu SMS skeytið BTC LKF á 1900.
Þú gætir unnið!
Aðalvinningur er
DVD spilari og litli kjúllinn á DVD
Aukavinningar eru: Litli Kjúllinn á DVD • Pepsi kippur
Fullt af öðrum DVD myndum og margt fleira
Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Ladytron: Witching Hour, Sleater-Kinney:
The Woods, Hot Chip: The Warning, Pet Shop
Boys: Fundamental, Panic at the Disco: A
Fever You Can´t Sweat Out, Zero 7: the
Garden og Radio 4: Enemies Like This.
HOT CHIP RADIO 4
Bandaríska kvennatríóið
Sleater-Kinney heldur tón-
leika á Nasa á sunnudaginn.
Sveitin hefur verið á ferð
um Evrópu og haldið tón-
leika fyrir fullu húsi hvar
sem hún hefur komið. Freyr
Bjarnason ræddi við Corin
Tucker, annan gítarleikara
og söngvara sveitarinnar,
og trommuleikarann Janet
Weiss.
Auk Corin og Janet er Sleater-
Kinney skipuð Carrie Brownstein
sem sér um gítarleik og söng rétt
eins og Corin. Hljómsveitin hefur
síðastliðin tíu ár heillað tónlist-
aráhugamenn út um allan heim.
Þær eru ferskar og hráar frá
norðvesturströnd Bandaríkj-
anna, nánar tiltekið frá Portland í
Oregon-fylki. Alla tíð hefur sveit-
in haldið tryggð við indí-rætur
sínar og er afar virt í þeim tón-
listargeira.
Gifti sig á Íslandi
Corin hlakkar mikið til tónleik-
anna á Íslandi. „Reykjavík hefur
orð á sér fyrir að sjá fólki fyrir
miklu stuði,“ segir hún og reikn-
ar með því að kíkja á frægt næt-
urlíf borgarinnar. Janet er einnig
mjög spennt. „Ég hef aldrei
komið til Íslands og aðeins heyrt
sögur af landinu. Corin gifti sig
aftur á móti þar,“ segir hún.
Upphitun fyrir Pearl Jam
Alls hefur Sleater-Kinney gefið
út sjö plötur og hlaut sú nýjasta,
The Woods, einróma lof gagnrýn-
enda og var ofarlega á listum yfir
bestu plötur síðasta árs. Var plat-
an gefin út af Sub Pop-plötufyrir-
tækinu sem er frægt fyrir að
hafa gefið út fyrstu plötu Nir-
vana, Bleach.
Tónlist sveitarinnar er einföld,
tveir gítarar, raddir og trommur
og þykir sveitin einkar skemmti-
leg á tónleikum. Hitaði hún upp
fyrir Pearl Jam á tónleikaferð
hennar um Kanada á síðasta ári,
sem að sjálfsögðu þykir mikill
heiður í rokkbransanum.
Tónleikaferð Sleater-Kinney
um Evrópu hefur gengið vel að
sögn Janet. „Það er reyndar erf-
itt að vera að heiman þegar veðr-
ið er orðið svona gott þar en tón-
leikarnir í Bretlandi voru
sérstaklega skemmtilegir. Áhorf-
endurnir þar voru mjög æstir og
áhugasamir,“ segir hún.
Þrífast á orku áhorfenda
Corin segir að tónleikar Sleater-
Kinney séu dýnamískir og að þá
sé krafturinn í fyrirrúmi. Janet
bætir því við að uppi á sviði sé
hljómsveitin eins nálægt sínu
eðli og hugsast getur. „Við höfum
mikla ástríðu gagnvart tónlist-
inni okkar og þrífumst á ákefð og
orku áhorfendanna. Það sem við
gefum af okkur og fáum síðan til
baka úr salnum skiptir öllu máli á
tónleikum,“ segir hún. „Við erum
síbreytilegar og ófeimnar við að
prófa nýja hluti þegar okkur
gengur vel.“
Í verslunarmiðstöð á Ítalíu
Hvað varðar undarlegustu tón-
leika sveitarinnar nefnir Corin
tónleika á Ítalíu fyrir nokkrum
árum. „Við spiluðum einu sinni í
verslunarmiðstöð á Ítalíu. Þetta
var um kvöld og mömmur voru að
ýta börnunum sínum áfram í kerr-
um framhjá búðunum á meðan við
spiluðum,“ segir hún og minnist
tónleikanna greinilega með hryll-
ingi.
Janet man vel eftir tónleikum
sem sveitin hélt í Denver. „Við
töpuðum veðmáli við vini okkar í
upphitunarbandinu The Gossip og
spiluðum tónleikana með andlits-
málningu á okkur. Það var dálítið
erfitt fyrir okkur að taka hverja
aðra alvarlega á þeim tíma-
punkti.“
Sleater-Kinney er kvennatríó
en þrátt fyrir það þvertekur Corin
fyrir að hafa eitthvað á móti strák-
um. „Ef við værum strákahljóm-
sveit, myndir þú spyrja okkur
hvort við hefðum eitthvað á móti
stelpum? Ég efa það.“ Janet er
sama sinnis: „Þú hlýtur að vera að
grínast með þessari spurningu?,“
spyr hún og hefur að sjálfsögðu
rétt fyrir sér.
Martsch og Mozart í uppáhaldi
Eftir tónleikana á Íslandi, sem
verða þeir síðustu í tónleikaferð
sveitarinnar um Evrópu, halda
þær stöllur heim á leið til Portland
til að njóta sumarsins en þær
eru reyndar frá Olympia í Wash-
ington.
Í ágúst er sveitin síðan bókuð á
Lollapalooza-hátíðina í Chicago og
verður þar innan um fjölda ann-
arra þekktra sveita, þar á meðal
Red Hot Chili Peppers, Queens of
the Stone Age og Sonic Youth, en
Sleater-Kinney hefur m.a. verið
líkt við síðastnefndu sveitina.
Einnig spilar á hátíðinni indí-
rokksveitin Built To Spill, sem
Corin hefur miklar mætur á. Nefn-
ir hún forsprakka sveitarinnar,
Doug Martsch, sem einn af uppá-
haldstónlistarmönnunum sínum.
Janet lítur aftur á móti mest upp
til austurríska tónskáldsins Wolf-
gangs Amadeus Mozart.
Miðasala á tónleikana á Nasa,
sem hefjast klukkan 21.00, fer
fram á midi.is og í verslunum Skíf-
unnar og BT. Miðaverð er 2500
krónur auk miðagjalds. Hljóm-
sveitirnar Skakkamanage og
Jakobínarína sjá um upphitun. ■
Dýnamískur kraftur
SLEATER-KINNEY Kvennatríóið Sleater-Kinney heldur tónleika á Nasa á sunnudaginn.
PLÖTUR SLEATER-KINNEY
The Woods (2005)
One Beat (2002)
All Hands on the Bad One (2000)
The Hot Rock (1999)
Dig Me Out (1997)
Call the Doctor (1996)
Sleater-Kinney (1995)
1. WOLFMOTHERDIMENSION
2. MEWTHE ZOOKEEPERS BOY
3. SNOW PATROLYOU´RE ALL I HAVE
4. PLACEBOINFRA-RED
5. THE RACONTEURSSTEADY AS SHE GOES
6. EDITORSALL SPARKS
7. TOOLVICARIOUS
8. ARTIC MONKEYSTHE VIEW FROM THE AFTERNOON
9. FLAMING LIPSYEAH YEAH YEAH SONG
10. DR. MISTER & MR. HANDSOMEIS IT LOVE?
X-DÓMÍNÓSLISTINN
TOPP TÍU LISTI X-FM
WOLFMOTHER Hljómsveitin Wolfmother
heldur toppsæti X-Dómínóslistans með
laginu Dimension.
Hljómsveitin Dikta kemur fram á
Spot-tónlistarhátíðinni í Árósum í
Danmörku í kvöld og annað kvöld.
Mugison mun einnig troða upp á
hátíðinni.
Dikta mun jafnframt spila við
opnun nýrrar verslunar 12 Tóna í
Kaupmannahöfn í vikunni þar á
eftir. Plata Dikta, Hunting For
Happiness, er nýkomin út í Dan-
mörku og hefur fengið ágætar við-
tökur í danska ríkisútvarpinu.
Eftir tónleikana í Danmörku
heldur Dikta til Englands þar sem
hún mun spila á nokkrum tónleik-
um. Að þeim loknum liggur leiðin
til Færeyja á Jóansvökuhátíðina.
Dikta spilar
í Danmörku
DIKTA Hljómsveitin Dikta spilar í Danmörku
í kvöld og annað kvöld. MYND/ÁRNI TORFASON
Íslenski tónlistarmaðurinn
Baldvin Ringsted hefur gefið út
fyrstu smáskífu sína undir
nafninu Bela. Baldvin er búsett-
ur í Glasgow og hefur verið
duglegur við spilamennsku í
Skotlandi undanfarið. Hann
mun hafa vakið nokkra athygli
fyrir tónlist sína og spila-
mennsku og um miðjan júní
kemur fyrsta breiðskífa Bald-
vins út í Bretlandi og á Íslandi.
Baldvin naut aðstoðar bæði
íslenskra og breskra tónlistar-
manna við gerð plötunnar en
tónlist hans er að mestu borin
uppi af kassagítar. Smáskífan
Ticket for a Train er fáanleg til
niðurhals á itunes.com, karmad-
ownload.com og tonlist.is.
Vekur athygli í Skotlandi
> Plata vikunnar
Gnarls Barkley: St. Elsewhere
„Frumraun Gnarls Barkley er nánast hin
fullkomna poppplata. Ætti ekki að svíkja
nokkurn mann. Svona á að gera popp!“
- BÖS