Fréttablaðið - 02.06.2006, Qupperneq 87
FÖSTUDAGUR 2. júní 2006 55
FRIDAY 2 JUNE 2006 / FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2006:
09:30-19:00 Team Events and Mixed Doubles. Liðakeppni og tvenndarkeppni.
SATURDAY 3 JUNE 2006 / LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2006:
09:00-17:00 Team Events, Singles and Doubles Liðakeppni, einliða- og tvíliðaleikur.
16:45-18:00 Semi-final and Final: Mixed Doubles. Undanúrslit og úrslit í tvenndarkeppni.
SUNDAY 4 JUNE 2006 / SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2006:
10:00-10:45 Semi-final: Men’s and Women’s Doubles. Undanúrslit í tvíliðaleik karla og kvenna.
10:45-11:30 Semi-final: Men’s and Women’s Singles. Undanúrslit í einliðaleik karla og kvenna.
11:30-12:15 Final: Men’s and Women’s Doubles. Úrslit í tvíliðaleik karla og kvenna.
12:15-13:50 Final: Men’s and Women’s Singles. Úrslit í einliðaleik karla og kvenna.
13:00-14:00 Winners Ceremony. Verðlaunaafhending.
Norður Evrópumótið
í borðtennis 2006
TBR ÍÞRÓTTAHÚSINU við GNOÐARVOG
2006 North European Table Tennis Championships
Reykjavík, Iceland, 2-4 June TBR SPORT CENTER – GNODARVOGUR 1
Gudmundur E. Stephensen
North European Table Tennis Champion 2004.
What happens 2006 ?
Tekst Guðmundi að verja titla sína?
�������
����������������
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
FÓTBOLTI Sem fyrr kemur hið veg-
lega blað Fótboltasumarið út í
upphafi knattspyrnuvertíðar. Það
er óvenju glæsilegt í ár eða 164
síður og stútfullt af upplýsingum
og fróðleik um íslenska fótboltann
og Landsbankadeildirnar. Blaðið
er einnig veglega myndskreytt
með stórum myndum.
Einnig er að finna í blaðinu
samantekt um dómgæslu og dóm-
arana sem dæma í Landsbanka-
deildinni. Svo eru rifjuð upp
áhugaverð atvik í boltanum á síð-
ustu árum og svo ryðjast nokkrir
pistlahöfundar fram á ritvöllinn
og tjá sig um boltann og íslenskt
knattspyrnulíf.
Blaðið er gefið út í 25 þúsund
eintökum og því er dreift frítt í
útibúum Landsbankans sem og
hjá félögunum í Landsbankadeild-
unum.
Fótboltasumarið 2006:
Fullt blað
af fróðleik
FÓTBOLTASUMARIÐ 2006 Aldrei verið
veglegra.
FÓTBOLTI Reykjavík sigraði á skóla-
móti höfuðborga Norðurlandanna
sem fram fór í Helsinki í Finn-
landi. Liðin voru skipuð strákum
fæddum 1992. Reykjavíkurúrval-
ið vann heimamenn 4-1 í gær og
tryggði sér þar með sigur á mót-
inu. Rúrik Andri Þorfinnsson úr
Fram skoraði þrennu í leiknum en
fyrr um daginn gerði liðið 1-1 jafn-
tefli gegn Stokkhólmsliðinu og
skoraði Ingólfur Sigurðsson úr Val
eina mark Íslendinga.
Á fyrri degi mótsins unnu
Íslendingar Óslóarliðið 5-1 og þá
burstuðu strákarnir liðið frá Kaup-
mannahöfn 12-2. Reykjavík varð í
fyrsta sæti á betri markatölu en
Stokkhólmur en í jafnteflisleikn-
um milli liðanna höfðu reykvísku
strákarnir mikla yfirburði og voru
óheppnir vinna ekki leikinn.
- egm
Skólamót Norðurlandanna:
Sigur hjá
Reykjavík
NBA Leikmenn Detroit Pistons
sýndu að þeir eru hvergi nærri
hættir og ekki enn farnir að hugsa
um komandi sumarfrí. Þeir lögðu
Miami Heat í fyrrinótt, 91-78, á
heimavelli í fimmtu viðureign lið-
anna í úrslitum austurdeildarinnar.
Tayshaun Prince fór mikinn í
liði Detroit og skoraði 29 stig en
eftir jafnan fyrri hálfleik, þar sem
staðan var 47-43, tók Detroit að
sigla fram úr í þeim síðari. Miami-
liðið missti dampinn og fór illa að
ráði sínu í lokaleikhlutanum þar
sem aðeins voru skoruð þrettán
stig, og brenndi liðið meðal annars
af níu síðustu skotum sínum í leikn-
um.
Ekki er hægt að segja að sagan
sé á bandi Detroit, því lið sem hafa lent 3-1 undir í átta liða- og undan- úrslitum NBA á undanförnum árum
hafa tapað slíkum einvígjum í 40 af
síðustu 43 skiptum – og þar af þeim
16 síðustu í röð.
„Við mættum bara dýrvitlausir
til leiks eins og við vorum búnir að
lofa,“ sagði Chauncey Billups hjá
Detroit eftir leikinn. „Nú er press-
an að færast aðeins yfir á þá, því
þeir vilja auðvitað tjalda öllu til í
næsta leik – enginn vill koma hing-
að í oddaleik,“ sagði Billups, en
Dwayne Wade, stigahæsti maður
Miami í leiknum með 23 stig, var
ekki alveg sammála.
„Það er engin pressa á okkur.
Við viljum auðvitað klára dæmið á
heimavelli, en pressan er öll á þeim
– það eru þeir sem eru tvöfaldir
austurdeildarmeistarar,“ sagði
Wade. - hþh
Detroit Pistons heldur enn í vonina eftir að það minnkaði muninn gegn hinu sterka liði Miami Heat:
Detroit Pistons neitar að leggjast niður og gefast upp
EINKENNANDI Myndin sýnir James Posey reyna sig gegn feikisterkri vörn Detroit, sem
Miami átti í stökustu vandræðum með. NORDICPHOTOS/AFP