Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 4
4 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR ��������������������������������������������������������������������� ������������� ������������ ������������������ ������������������������������������������������������������������ ���� ����� ���� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� SAMKEPPNISMÁL „Það er ekkert til í þessum orðum Halldórs og við höfnum þeim alfarið,“ segir Jóhannes Ingi Kolbeinsson, fram- kvæmdastjóri Kortaþjónustunnar, vegna ummæla Halldórs Guð- bjarnarsonar, forstjóra Visa Ísland, um að húsleit sem gerð var hjá fyrirtækinu í fyrradag eigi upptök sín hjá keppinautnum PBS, sem Kortaþjónustan hefur umsýslu fyrir á Íslandi. Jóhannes segist vita til þess að einstök fyrirtæki hafi kvartað yfir Visa Ísland til Samkeppniseftir- litsins og telur það geta verið ástæðu rannsóknarinnar nú. „Visa Ísland býður upp á lánastarfsemi á borð við raðgreiðslur sem við gerum ekki. Og þeir neita að veita okkar viðskiptavinum kost á slík- um raðgreiðslum nema þeir færi öll sín viðskipti til sín. Samkvæmt samkeppnislögum er bannað að skilyrða kaup á einu við kaup á öðru og hugsanlega er Samkeppnis- eftirlitið að skoða það út frá kvört- unum fyrirtækja.“ Kortaþjónustan selur þjónustu danska fyrirtækisins PBS, sem er í eigu danskra banka og sparisjóða, á Íslandi. PBS hefur verið í sam- keppni við Visa Ísland og Kredit- kort frá árinu 2002 um færsluhirð- ingu sem snýst um uppgjör á kortafærslum. Tekið er á móti kortafærslum úr posum fyrir- tækja, færslan gerð upp og greitt inn á reikning viðkomandi fyrir- tækis. Þóknanir eru síðan ákveðin prósenta af hverri færslu. Visa Ísland og Kreditkort greiða fyrir- tækjum um mánaðamót eftir lok kortatímabils og PBS borgar tveim dögum eftir að færslan berst. Visa Ísland og Kreditkort stunda ekki færsluhirðingu á kort- um hvors annars og eru því ekki í samkeppni. Ný lög um fjármála- fyrirtæki, sem voru innleidd gegn- um EES árið 2002, gerðu PBS kleift að koma inn á íslenskan markað og annast færsluhirðingu vegna korta frá bæði Visa Ísland og Kreditkortum. Að sögn Jóhannesar hefur Visa Ísland stundað mjög harða sam- keppni og sýnt mun harkalegri vinnubrögð en Kreditkort. „Hvar mörkin eru á því hvað er lögmæt, hörð samkeppni og hvað er mis- notkun er hugsanlega nú í skoðun hjá Samkeppniseftirlitinu.“ Samkeppniseftirlitið gefur ekki upp hvort rannsóknin komi í kjöl- far einstakra kvartana eða kæru. Að sögn starfsmanns getur stofn- unin tekið slíkar rannsóknir upp að eigin frumkvæði. sdg@frettabladid.is Segir fyrirtæki hafa kvartað yfir Visa Framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar segir PBS ekki eiga hlut að máli í rann- sókn Samkeppniseftirlitsins á Visa Ísland. Hann telur kvartanir fyrirtækja hugsanlega ástæðu og segir Visa beita harkalegum vinnubrögðum í samkeppni. UNDIRSKRIFT Á GREIÐSLUKORT Kortafærsla er eins og rafræn ávísun. Kaupmenn senda kortafærslur til fyrirtækja sem greiða upphæðina inn á reikninga kaupmanna og taka ákveðna þóknun í sinn hlut. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL. LÍFEYRISMÁL Helgi Vilhjálmsson, eigandi sælgætisverksmiðjunnar Góu, boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem hann kynnti niður- stöður nýrrar rannsóknar er kann- aði viðhorf fólks til málefna lífeyr- issjóðanna. Rannsóknin var kostuð af Helga en unnin af IMG Gallup. Þar kemur fram að rúm 48 pró- sent aðspurðra telja að hlutverk lífeyrissjóða eigi að vera að byggja hjúkrunarrými eða þjónustuíbúð- ir fyrir aldraða sjóðsfélaga sína. Þegar niðurstöður rannsóknar- innar eru skoðaðar vekur athygli að þeir sem vilja að lífeyrissjóðir bæði byggi og reki hjúkrunar- heimili eða þjónustuíbúðir fyrir aldraða eru flestir í yngsta aldurs- hópnum, 16 til 24 ára, og þeim elsta, 55 til 75 ára. Aðspurður hvers vegna Helgi hafi ákveðið að láta gera þessa rannsókn segir hann það tilkomið eftir að hafa séð vistarverur föður síns á dvalarheimilinu þar sem hann bjó þegar hann varð áttræð- ur. „Hann deildi þá herbergi með öðrum karli og þar var einn stóll, en ekki einu sinni borð til þess að tefla á,“ segir Helgi. „Þá fór ég að hugsa að það hlyti að vera eitthvað sem þessir digru lífeyrissjóðir gætu gert fyrir gamla fólkið svo að það þyrfti ekki að búa við svona aðstæður.“ - æþe Rúm 48 prósent fólks vilja að lífeyrissjóðir byggi þjónustuíbúðir fyrir aldraða: Unga fólkið mjög jákvætt HELGI VILHJÁLMSSON Í GÓU Sannfærður um að lífeyrissjóðirnir geti gert skurk í öldrunarmálunum. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA SAMGÖNGUR Sturla Böðvarsson samgönguráðherra vígði í gær nýjan ökuhermi sem sérstaklega er hannaður til ökukennslu. Kaup á herminum er samvinnu- verkefni Sjóvá, samgönguráðu- neytisins og Brautar, bindindis- félags ökumanna. Þetta er fyrsti ökuhermirinn sem kemur til landsins, sem sér- staklega er gerður til ökukennslu. Hann verður staðsettur í For- varnahúsi Sjóvá sem fyrirhugað er að opna á næstunni. - æþe Nýr ökuhermir vígður: Sá fyrsti sinnar tegundar ÖKUHERMIR PRÓFAÐUR Þessi unga kona var ein þeirra fyrstu sem fengu að taka í stýrið. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN LAXVEIÐI Landssamband veiði- félaga, í samvinnu við Veiðimála- stofnun, fékk IMG-Gallup til að afla upplýsinga um hugsanlegan meðafla á laxi í veiðum íslenskra fiskiskipa. Gerð var símakönnun meðal sjómanna um áramótin 2005-2006. Af þeim sem svöruðu hafði rúmlega 21 prósent sjó- manna orðið vart við að lax hefði veiðst sem meðafli á skipi sem þeir höfðu verið í áhöfn á undan- farna tólf mánuði. Mest kom fram af laxi í afla stórra uppsjávarskipa sem stund- uðu veiðar með hringnót og flot- vörpu. - shá Lax sem meðafli fiskiskipa: Veiðist með uppsjávarfiski GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 14.6.2006 Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur 75,8 76,16 Sterlingspund 139,59 140,27 Evra 95,27 95,81 Dönsk króna 12,781 12,855 Norsk króna 12,149 12,221 Sænsk króna 10,272 10,332 Japanskt jen 0,6589 0,6627 SDR 111,65 112,31 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 132,4199 Húsleit hjá Kreditkortum hf.: Vísað í ólögmætt samráð SAMKEPPNISMÁL Samkeppnis- eftirlitið gerði húsleit hjá Kredit- kortum hf., sem hefur umboð fyrir Mastercard á Íslandi, á þriðjudag í kjölfar húsleitar stofnunarinnar hjá Visa Ísland. Í dómsúrskurðinum sem full- trúar eftirlitsins höfðu meðferð- is var vísað í 10. grein sam- keppnislaga, sem lýtur að ólögmætu samráði fyrirtækja. Ragnar Önundarson, fram- kvæmdastjóri Kreditkorta, segir að tilefni húsleitarinnar hafi verið tölvupóstur sem fannst við húsleitina hjá Visa Ísland. Að sögn Ragnars takmarkað- ist leitin við hans starfsstöð, fundargerðir stjórnar og afrit- un af tölvupóstkerfinu. - sdg ������������������������������������������������������������������ ������������� ������ ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� �������� ������� ���� ������� �� ���������������� ������������ ��������������� ��������������� ����������������� ��������������� ��������������� ����������� ��������������� ����������� ��������������� ���������������� ����������� �������������� �������������� �������� ������������������� ������������� ��� ���� ������������� ��� ���������������������� ����������� ������ ����� � ����������������������� �� �������������������� ����������������� ��� �� �������������� ���� ���������������������� ������������������������ ������ � ����� ��������� �������������������� ����� ������������������ ������������ ��� ������ � ��� ���������������� �������� ���������������� ��� � ���� ���� �� ����������� ���������� �������������� ���� � �� �������� ������������ ���� ��������������� � ��������������������������������� �������������� ������������������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� �� �� �� �� �� �� �� �� �� � � �� � �� �� �� �� �� �� � � � �� � � � � �� � � �� DÓMSMÁL Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur þess efnis að hafna kröfu verjenda í Baugs- málinu um að sett- ur ríkissaksóknari og dómstjóri beri vitni fyrir dómi. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar, og Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar, fullyrtu að Sigurður Tómas hefði haft afskipti af skipan dómara í málinu, sem hefði orðið til þess að Arngrímur Ísberg var skipaður dómari í stað Péturs Guðgeirsson- ar, sem var dómari í fyrra Baugs- málinu. Sigurður Tómas vísaði því á bug að samskiptin hefðu verið á nokkurn hátt óeðlileg og sagðist einungis hafa bent á tengsl Péturs við eitt vitna málsins. - sh Baugsmálið í Hæstarétti: Hafna kröfu verjendanna SIGURÐUR TÓMAS MAGN- ÚSSON STJÓRNMÁL Á seinustu starfsdög- um Alþingis voru samþykktar breytingar á lögum sem varða reglur um hvíldartíma bílstjóra hópferða- og farmflutningabíla. Meðal breytinga er að eftirlits- menn Vegagerðarinnar hafa nú leyfi til að banna frekari akstur slíks ökutækis meðan beðið er eftir að lögregla komi á staðinn, en áður máttu þeir aðeins stöðva ökutækið ef grunur lá um að ekki væri farið eftir reglum um hvíld- artíma, frágang farms eða heild- arþyngd ökutækis. Fyrir tveimur árum féll dómur í Hæstarétti þar sem bílstjóri vöruflutningabíls var sýknaður af ákæru fyrir brot á reglum um hvíldartíma vegna þess að lögin þóttu ekki nógu skýr. - sþs Lagabreytingar á Alþingi: Hert lög um hvíldartíma BANDARÍKIN, AP Forseti Bandaríkj- anna, George W. Bush, neitaði í gær að loka Guantanamo-fangels- inu á Kúbu, en þar segja mann- réttindasamtök að fari fram pynt- ingar og mönnum sé haldið án dóms og laga. „Mig langar að loka Guantan- amo. Ég vil líka að það sé skýrt að þar geymum við fólk sem er fjári hættulegt,“ sagði forsetinn. „Fyrr eða síðar mun þetta fólk hljóta réttarhöld og lögfræðiaðstoð.“ Um helgina frömdu þrír fang- ar í fangelsinu sjálfsmorð og hávær krafa hefur heyrst þess efnis að fangelsinu verði lokað. - sgj Bush Bandaríkjaforseti: Neitar að loka Guantanamo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.