Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 74
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR50
Verð frá kr. 195.000,-
Sláttutraktorar
12,5 - 18 hö
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Eftirlifandi meðlimir hljómsveitar-
innar goðsagnakenndu The Beach
Boys komu saman í fyrsta sinn
opinberlega í áratug er þeir tóku á
móti viðurkenningu fyrir safnplöt-
una Sounds of Summer. Hefur plat-
an selst í tveimur milljónum ein-
taka, eða í tvöföldu platínuupplagi.
Brian Wilson, Mike Love og Al
Jardine, sem hafa átt í deilum í
gegnum árin, voru allir á staðnum.
Sögðust þeir hafa leyst ágreinings-
mál sín og bætti Wilson því við að
ágætar líkur væru á því að þeir
myndu spila saman á tónleikum í
framtíðinni.
Með þremenningunum við
athöfnina voru gítarleikarinn fyrr-
verandi David Marks og Bruce
Johnston sem spilaði með Mike
Love og The Beach Boys hér á landi
fyrir nokkrum misserum. Við
athöfnina þakkaði Love Wilson
fyrir framlag hans til The Beach
Boys og sagði að ótrúlegir hæfi-
leikar hans hefðu lagt grunninn að
yndislegu lífi þeirra allra.
Love hefur tvisvar sinnum höfð-
að mál gegn frænda sínum Wilson
auk þess sem Jardine kærði fyrrum
félaga sína í The Beach Boys árið
2001 fyrir að meina honum að spila
með þeim á tónleikum. „Það koma
upp ýmis vandamál og þau leysast
með tímanum,“ sagði Jardine.
The Beach Boys sló í gegn á sjö-
unda áratugnum með lögum á borð
við Good Vibrations, I Get Around
og Surfin´ USA. Sveitin lagði opin-
berlega upp laupana árið 1998 eftir
að Carl Wilson, bróðir Brian, lést.
Eftir það öðluðust Love og John-
ston réttinn að nafninu The Beach
Boys og hafa þeir komið fram undir
því nafni allar götur síðan án þeirra
Wilson og Jardine.
The Beach Boys saman á nýjan leik
THE BEACH BOYS Hljómsveitin The Beach Boys hefur gefið út þekkt lög á borð við Good
Vibrations og I Get Around.
Grínhryllingurinn Slither, sem
verður frumsýnd á föstudag, ger-
ist í smábænum Wheesly þar sem
undarleg veira gerir vart við sig
sem breytir íbúunum smám saman
í hin ýmsu skrímsli. Þetta er fyrsta
myndin sem James Gunn leikstýr-
ir en hann samdi handritið að
Dawn of the Dead sem sló ræki-
lega í gegn fyrir tveimur árum.
Með aðalhlutverk í Slither fara
Nathan Fillion, Elizabeth Banks,
Gregg Henry og Michael Rooker.
Banvænar veiru-
sýkingar í smábæ
SLITHER Grínhrollurinn Slither gerist í
smábænum Wheesly.
Í kvikmyndinni Take the Lead fer
hjartaknúsarinn Antonio Bander-
as með hlutverk dansara sem
tekur að sér að kenna vandræða-
unglingum réttu sporin.
Fyrst um sinn fær hann kaldar
móttökur en smám saman vinnur
hann sig í áliti hjá unglingunum.
Myndin er byggð á sannsöguleg-
um atburðum og með hitt aðalhlut-
verkið fer Alfre Woodard. Leik-
stjóri er Liz Friedlander og er
þetta fyrsta kvikmynd hennar.
Hefur hún áður leikstýrt hinum
ýmsu myndböndum og tónlistar-
myndum. Myndin er frumsýnd í
Laugarásbíói á morgun.
Banderas í dansstuði
TAKE THE LEAD Antonio Banderas fer með
aðalhlutverkið í Take the Lead.
Fátt pirrar Íslendinga jafn mikið og sumarveðrið sem nú ríkir hér á landi. Rigning, rok
og kuldi hafa leikið um landann að undanförnu og er þetta farið að hafa veruleg áhrif á
þjóðarsálina. Fréttablaðið fór á stúfana og fann nokkur atriði sem gætu létt okkur lífið á
þessum síðustu og verstu.
Sumarið er tíminn...
■ Breyttu til á heimili þínu: Í
stað þess að liggja úti í beði og
reyta arfa getur þú núna endur-
raðað öllu inni á heimilinu. Mál-
aðu öll herbergi hvít til að ná
fram birtu og keyptu þér potta-
plöntur til að fá smá gróður.
Sumarið kemur að innan en
ekki að utan.
■ Sólarlandaferðir: Allir ættingjarnir hafa verið að býsnast yfir
þeirri vitleysu þinni að fara til útlanda um hásumar. Þú varst hins
vegar sniðugri en allir aðrir og ert á leiðinni til Spánar að drekka
sangría í ermalausum bol.
■ Yfirhöfnin: Flíkin sem þú
keyptir þér fyrir morðfjár í
vetur nýtist þér miklu lengur
og því er um töluverðan sparn-
að að ræða þegar svona viðrar.
Ekki er verra að þú getur einnig
sett upp húfuna en sumarklipp-
ingin er ekki alveg að halda á
þér hita um þessar mundir.
■ Heitir drykkir: Loksins er
komið kærkomið tækifæri
fyrir þá sem vilja prófa
sig aðeins
áfram í heit-
um drykkj-
um. Ná sér í
kakó og
bragðbæta
það jafnvel
með smá
brjóstbirtu.
Hver getur
sagt nei við
írsku kaffi á
gráum
sumardegi?
■ HM í Þýskalandi: Nú
þarf enginn að hafa sam-
viskubit yfir því að horfa
á heimsmeistarakeppn-
ina í sjónvarpinu. Ekki
hægt að fara í göngutúra
eða mála húsið og því
ekkert annað í stöðunni
en að koma sér vel fyrir í
sófanum með allri fjöl-
skyldunni og útskýra
fyrir henni rangstöðu-
regluna og þar fram eftir
götunum. Fjölskyldan
getur jafnvel valið sér
lið, farið í næstu íþrótta-
verslun og keypt bún-
inga á alla.
■ Sumarbústaðaferð: Fátt er
jafn rómantískt og róandi eins
og ferð upp í sumarbústaðinn
með fjölskyldunni. Kveikja á
kertum, setja rólega djasstónlist
á og grilla á pallinum enda ættu
nokkrir dropar ekki að pirra
grillarann. Þjóðarráð væri síðan
að láta renna í heita pottinn og
njóta þess að horfa á stjörnurnar
fjarri borgarljósunum.
„Já, þetta hlýtur að vera í tísku
fyrst maður er með þetta,“ segir
fótboltamaðurinn Gylfi Einarsson
og hlær. Hann og Grétar Rafn
Steinsson voru gestir í fótbolta-
þættinum 4-4-2 í byrjun vikunnar
og margir áhorfendur tóku eftir
stórum armbandsúrum sem þeir
félagar báru. Gylfi kippti sér ekki
mikið upp við þetta þegar Frétta-
blaðið ræddi við hann í gær, var að
slappa af uppi í sumarbú-
stað og bjóst ekki við að
fólk hefði tekið eftir
armbandsúri sínu í
þættinum.
Hann hélt þó
að þeir
Grétar
gengju með
svipaðar
týpur.
„Þetta úr heitir U-Boat og ég
fékk það hjá félaga mínum í liðinu,“
segir Gylfi og á þar við Leeds Unit-
ed, félagið sem hann leikur með í
ensku knattspyrnunni. „Hann er
með umboð fyrir þessi úr á Norður-
löndunum en ég hef ekki enn séð
þau hér á landi. Ég var nú einmitt
að spá í að fara að flytja þau inn til
Íslands sjálfur,“ segir Gylfi Einars-
son knattspyrnumaður.
Stór úr í tísku í boltanum
GRÉTAR RAFN STEINSSON Með U-Boat úr
af svipaðri gerð og Gylfi skartar. Það virðist
ljóst hvaða úr verða heitust í sumar.
GYLFI EINARSSON Þetta glæsilega armbandsúr hans heitir U-Boat og virðist ekki fást á
Íslandi. Áhugasamir þurfa þó ekki að örvænta því Gylfi íhugar að flytja úrin inn til Íslands.