Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 10
10 15. júní 2006 FIMMTUDAGUR
AKSTURSÍÞRÓTTIR Framkvæmdir
við kappakstursbraut á Reykja-
nesi fara af stað í september að
öllu óbreyttu, að sögn Vilhjálms
Vilhjálmssonar, framkvæmda-
stjóra Toppsins, sem stendur að
verkefninu. Kappakstursbrautin
er hluti af skipulagi 370 hektara
svæðis við afleggjarann til
Grindavíkur sem mun innihalda
skólasvæði, íbúðir, þjónustu og
verslun. Kappakstursbrautin sjálf
mun þekja 60 hektara og vera 4,2
kílómetrar að lengd, en auk henn-
ar verða minni brautir og aðstaða
fyrir ýmsar aðrar akstursíþróttir.
Mörg erlend stórfyrirtæki
koma að verkinu, þar á meðal
HOK Sport Architecture, sem
hannaði meðal annars Arsenal-
leikvanginn. Talið er að um 300
störf muni skapast kringum starf-
semina, en hún mun hefjast í litl-
um áföngum. Framkvæmdar-
aðilum er gert að uppfylla ákveðin
skilyrði varðandi fjármögnun og
annað til að fá landi úthlutað.
„Reykjanesbær leggur til land í
nokkrum skrefum, eftir því
hvernig framkvæmdaraðilunum
gengur að uppfylla hvert verk-
efni,“ segir Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar. Hann telur
umhverfisrask verða lítið sem
ekkert og hefur ekki áhyggjur af
útblæstri eða ónæði af kappakstr-
inum. „Það er hluti af því sem við
verðum að gæta að og hluti af því
sem hönnun arkitektanna hefur
gengið út á,“ segir Árni.
Von er á umhverfisáhættumati
á næstunni, en á komandi vikum
munu verkfræðingar meta jarð-
veginn. Hins vegar segir Vil-
hjálmur að ekki sé þörf á hefð-
bundnu umhverfismati, því
brautin sjálf þeki svo lítið svæði,
en tekið verði tillit til umhverfis-
þátta, eins og til dæmis nálægðar
við Seltjörn.
Ólafur Guðmundsson, dómari í
Formúlu 1, segir að kappaksturs-
brautin muni duga fyrir allar
minni tegundir kappaksturs og
jafnvel fyrir prófanir á Formúlu 1
bílum og æfingar. „Brautin er
ekki bara keppnisbraut, heldur
fjölnota aksturssvæði. Hana verð-
ur hægt að nota í ökukennslu, bíla-
prófanir, æfingar og þjálfun lög-
reglu.“ Hann sér ekki fyrir sér að
raunhæft verði að keppa í For-
múlu 1 á Reykjanesinu, þar skorti
betri aðstöðu, og það sé alls ekki
markmiðið með brautinni.
„Það er mikið ánægjuefni að
farið sé að sjá fyrir endann á
langri baráttu fyrir því að til verði
kappakstursbraut á Íslandi. Við
erum ein fárra Evrópuþjóða sem
hafa ekki átt kappakstursbraut.“
steindor@frettabladid.is
Kappakstursbraut
við Grindavíkurveg
Áhugamenn akstursíþrótta bíða með óþreyju lagningar kappakstursbrautar á
Reykjanesi. Bæjarstjóri áætlar að brautin valdi litlu ónæði og tillit verði tekið
til umhverfisins. Talið er að 300 manns fái störf við rekstur svæðisins.
TEIKNINGAR AF KAPPAKSTURSBRAUTINNI Á tölvuteikningu af svæðinu má sjá hvernig arkitektar sjá fyrir sér samspil kappakstursbrautar-
innar og annarra framkvæmda.
BÓLIVÍA Minningu byltingarforingj-
ans Che Guevara á að nýta í anda
einkaframtaks og markaðshyggju.
Á heimasíðu Reuters-fréttastof-
unnar er greint frá því að í Bólivíu
ætli frumkvöðlar í ferðamanna-
þjónustu að sækja inn á markað
„vinstri-túrisma“ með því að leggja
vegarslóða sem kenndur verður
við dvöl Guevaras í Bólivíu.
Che ætlaði sér að steypa stjórn
Bólivíu og koma á kerfi svipuðu
því sem hann barðist fyrir á Kúbu,
þegar bandaríska leyniþjónustan
lét Bólivíumenn taka hann af lífi
árið 1967.
Mikil vinstrisveifla ríkir nú í
stjórnmálum Rómönsku Ameríku
og var það eitt fyrsta verk Evo
Morales, nýkjörins forseta Bólivíu
og vinar Fídels Kastró, að hengja
upp gríðarstóra mynd af Che á
skrifstofu sinni. Það eru hins vegar
sjálfstæðir athafnamenn, alls
ótengdir forsetanum, sem ætla sér
að selja ferðamönnum minningu
Guevaras.
Til stendur að sameina ævin-
týralega pílagrímaferð og náttúru-
skoðun um stórskorin einangruð
fjallasvæði sem hafa verið meira
og minna ósnert síðan Che reið þar
um héruð. Einnig skulu endurgerð-
ar herbúðir byltingarmannanna og
farið í skoðunarferðir um fanga-
klefa og hótelherbergi.
Athafnamennirnir segjast ekki
gera þetta af hugsjón, heldur sjái
þeir einfaldlega „glitta í gull ferða-
mannanna“. - kóþ
Bólivíumenn byggja upp ferðaþjónustuna:
Guevara malar gull í Bólivíu
ERNESTO CHE GUEVARA Byltingarmaður-
inn er vinsæll sem aldrei fyrr í Rómönsku
Ameríku. NORDICPHOTOS/AFP
MEXÍKÓ AP Mexíkóskir hermenn
fundu á þriðjudag nærri sjö tonn
af marijúana í tankbíl við
landamæri Bandaríkjanna. Bíllinn
var stöðvaður við venjubundið
eftirlit á þjóðvegi.
Yfirvöld segja að mexíkóskir
eiturlyfjahringir reyni í auknum
mæli að smygla marijúana til
Bandaríkjanna, en eftirspurn
eftir kókaíni í Bandaríkjunum
hefur minnkað vegna aukinnar
innlendrar framleiðslu á
amfetamíni. - kóþ
Mexíkóski herinn fundvís:
7 tonn af grasi
JURTIN FORBOÐNA Mexíkóskir eiturlyfja-
hringar smygla sífellt meira af kannabisefn-
um til Bandaríkjanna. NORDICPHOTOS/AFP
ATVINNULÍF Að frumvarp um
Nýsköpunarmiðstöð Íslands hafi
ekki verið samþykkt á vorþingi
mun ekki hafa áhrif á störf
Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins,
að sögn Smára Þórarinssonar fjár-
málastjóra. Hann segir fjárhags-
lega stöðu sjóðsins vera sterka og
að einn milljarður hafi fengist í
sjóðinn í kjölfar sölu Símans.
Gunnar Örn Gunnarsson lét af
störfum sem framkvæmdastjóri
síðastliðinn febrúar, en í dag verð-
ur auglýst í stöðu nýs fram-
kvæmdastjóra. Sjóðurinn hefur
lítið fjárfest í nýjum fyrirtækjum
undanfarin fjögur ár, en að sögn
Smára verður breyting þar á með
tilkomu aukins fjármagns. - sgj
Afgreiðslu frumvarps frestað:
Engin áhrif á
starfsemina
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli
manns á sextugsaldri fór fram í
gær í héraðsdómi Norðurlands
eystra. Maðurinn var ákærður
fyrir líkamsárás sem átti sér stað
í fjósi í Eyjafjarðarsveit í júní síð-
astliðnum. Hinn ákærði veittist að
manni á fertugsaldri í fjósinu með
því að lemja hann á vanga og á
háls. Fórnarlambið hlaut áverka á
vanga og fann til eymsla á hálsi og
herðum og vöðvar hans voru stífir
og bólgnir.
Ákærði lét sér ekki nægja að
ráðast á manninn heldur greip
hann með sér yfirtengi til stillingar
á aukatæki dráttarvélar á leið út
úr fjósinu.
Þá þingfesti Héraðsdómur í
gær mál á hendur rúmlega
tvítugum manni fyrir líkamsárás
á Sjallanum í nóvember
síðastliðinn. Ákærði skallaði
tæplega tvítugan mann í andlitið
með þeim afleiðingum að nefbein
hans brotnaði og það brotnaði upp
úr framtönn.
Í báðum tilfellum er þess kraf-
ist að hinir ákærðu verði dæmdir
til refsingar.
- gþg
Héraðsdómur Norðurlands eystra tekur fyrir líkamsárásarmál:
Ákærður fyrir árás í fjósi
FJÓS Aðalmeðferð hófst í gær í líkamsárásarmáli sem átti sér stað í fjósi í Eyjafjarðarsveit.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNARMeintur njósnari hálshöggvinn
Pakistanskir vígamenn eru sagðir hafa
hálshöggvið afganskan mann, sem þeir
grunuðu um að njósna fyrir Bandaríkja-
stjórn, og hóta að aðrir sem slíkt geri
hljóti sömu örlög.
PAKISTAN
Aftur til Austur-Tímor Kofi Annan,
aðalritari Sameinuðu þjóðanna, segir
það óumflýjanlegt að sent verði
friðargæslulið til Austur-Tímor, en það
gerist þó ekki næsta hálfa árið.
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
stöðvaði bifreið í venjubundnu
eftirliti aðfaranótt sunnudags.
Undir stýri sat karlmaður sem
talið er að hafi verið undir
áhrifum fíkniefna. Þá fannst við
þetta sama tækifæri ætlað þýfi í
bílnum en það var tölvubúnaður
ýmiss konar.
Maðurinn hefur komið við
sögu lögreglunnar áður. Honum
var sleppt að lokinni yfirheyrslu
en blóð var sent til rannsóknar
svo hægt væri að meta hvort
maðurinn hafi í raun verið undir
áhrifum. - sgi
Umferðareftirlit:
Ók undir áhrif-
um fíkniefna
HÁSKÓLI Metaðsókn er í nám við
Háskóla Íslands á næsta skólaári.
Þegar umsóknarfrestur rann út
hinn 6. júní höfðu yfir þrjú þúsund
stúdentar sótt um skólavist, þar af
um átta hundruð í meistara- og
doktorsnám og viðbótarnám til
starfsréttinda. Umsóknir erlendra
stúdenta voru að auki um fimm
hundruð.
Inntökupróf í læknadeild fara
fram hinn 14. og 15. júní en í ár
óskuðu 290 einstaklingar eftir því
að þreyta prófið, sem er mesti
fjöldi frá upphafi. Þó fá aðeins um
sjötíu þeirra að hefja nám við
Háskólann í haust. - sþs
Mikil aðsókn í HÍ:
Aldrei fleiri
umsóknir
SÆKÝR Í GARÐINUM Þær hafa fengið
óvenjulegan gest, þessar konur í Flórída.
Sækýrin notaði sér tækifærið sem hitabeltis-
stormurinn Alberto veitti, og synti langt á
land upp þegar flóðin urðu þar á þriðjudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDKYNNING Ísland tók þátt í hinni
árlegu Madrídarbókakaupstefnu
sem stóð frá 26. maí til 11. júní.
Kaupstefnan var haldin undir
berum himni og voru íslenskar
bókmenntir kynntar í Norður-
landabásnum. Þetta er tíunda árið
í röð sem íslenskar bækur eru á
boðstólunum á hátíðinni.
Margar íslenskar bækur, þýdd-
ar yfir á spænsku, voru í boði á
kaupstefnunni og má þar til dæmis
nefna Brekkukotsannál eftir Hall-
dór Laxness og Engla alheimsins
eftir Einar Má Guðmundsson. Auk
þeirra voru margar þýddar forn-
sögur til sölu. Árlega sækja um
þrjár milljónir manna hátíðina. - sgj
Bókmenntahátíð í Madríd:
Íslenskar bæk-
ur kynntar
JAFNRÉTTISMÁL Femínistafélagið
hvetur alla til þess að bera eitt-
hvað bleikt næstkomandi mánu-
dag, 19. júní, þegar kvenréttinda-
dagurinn verður haldinn
hátíðlegur.
Fólk er hvatt til að sýna stuðn-
ing sinn í verki, til dæmis með því
að klæðast bleiku, borða bleikan
mat, flagga bleiku, auglýsa tilboð á
einhverju bleiku eða hvað sem er
sem er bleikt.
Aðstandendur átaksins eru
Stígamót, UNIFEM, Kvenréttinda-
félag Íslands, Femínistafélag
Íslands og fleiri. - gþg
Femínistafélagið:
Málum bæinn
bleikan
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri hefur verið ákærður fyrir
líkamsárás og áfengislagabrot en
hann á að hafa að kvöldi 20. maí
kýlt mann sem var að vísa honum
út af veitingastað fyrir ólæti.
Meint árás átti sér stað á veit-
ingastað í Stykkishólmi. Mannin-
um er gefið að sök að hafa verið
með mikinn hávaða og dónaskap
við gesti og starfsfólk, hrækt á
starfsmann veitingahússins og
kýlt mann sem hafi reynt að vísa
honum út með þeim afleiðingum
að hann hlaut bólgur og sár á vör.
Ákærandi krefst 85.000 króna í
bætur og að maðurinn verði
dæmdur til refsingar. - sþs
Ákærður fyrir líkamsárás:
Kýldi mann í
andlitið
HÁSKÓLI ÍSLANDS