Fréttablaðið - 15.06.2006, Blaðsíða 80
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR56
Ármúla 11 - sími 568-1500
Lónsbakka - sími 461-1070
Handsláttuvélar
Bumbubaninn
víðfrægi
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
Flott flæði…
…
fy
ri
r
b
æ
ð
i
HANDBOLTI Íslandsmeistarar Fram
munu taka þátt í Meistaradeild
Evrópu í handbolta á næstu leik-
tíð. Fram þurfa ekki að fara í
umspil eins og íslensk lið hafa
jafnan gert vegna góðs árangurs
íslenskra liða á undanförnum
árum. Þetta er í fyrsta skipti sem
íslenskt lið fær þáttökurétt beint
inn í riðlakeppnina.
Alls eru átta riðlar í Meistara-
deildinni og fjögur lið í hverjum
riðli. 24 lið fá sæti án umspils í
riðlakeppninni, og sextán lið berj-
ast um þau átta sæti sem eftir
eru.
Dregið verður í riðla í Meist-
aradeildinni þann 29. júlí í höfuð-
stöðvum Ólafs Stefánssonar og
félögum hans hjá Ciudad Real,
ríkjandi Evrópumeistara.
Fyrstu leikirnir í riðlakeppn-
inni fara fram dagana 30. sept-
ember til 1. október og sjötta og
síðasta umferðin í riðlakeppninni
fer fram 11.-12. nóvember. Tvö
lið úr hverjum riðli komast svo í
fjórðu umferðina, þar sem sex-
tán lið kljást um átta sæti.
Hin átta liðin fá þátttökurétt í
öðrum Evrópukeppnum.
- hþh
ÞAU 23 LIÐ SEM EIGA FAST SÆTI Í
MEISTARADEILDINNI AUK FRAM
1. BM CIUDAD REAL SPÁNN
2. FC BARCELONA-CIFEC SPÁNN
3. RK CELJE LASKO SLÓVENÍA
4. THW KIEL ÞÝSKALAND
5. MKB VESZPREM UNGVERJALAND
6. MONTPELLIER HB FRAKKLAND
7. HC ZAGREB KRÓATÍA
8. KOLDING IF DANMÖRK
9. PORTLAND SAN ANTONIO SPÁNN
10. RK GOLD CLUB SLÓVENÍA
11. FLENSBURG ÞÝSKALAND
12. PICK SZEGED UNGVERJALAND
13. CHAMBERY HB FRAKKLAND
14. GOG SVENDBORG TGI DANMÖRK
15. GUMMERSBACH ÞÝSKALAND
16. CHEHOVSKI MEDVEDI RÚSSLAND
17. HAMMARBY IF SVÍÞJÓÐ
18. PORTOVIK YUZHNY ÚKRAÍNA
19. KADETTEN SCHAFFHAUSEN SVISS
20. HC BANIK KARVINA TÉKKLAND
21. POVASZKA BYSTRICA SLÓVAKÍA
22. WISLA PLOCK PÓLLAND
23. LIÐ FRÁ SPÁNI SEM EHF VELUR
Íslandsmeistarar Fram spila í Meistaradeild Evrópu í handbolta á næstu leiktíð:
Sleppa við umspil og fara beint inn í riðlakeppnina
ÍSLANDSMEISTARATITLINUM FAGNAÐ Sverrir Björnsson og Þorri B. Gunnarsson með
Íslandsmeistaratitilinn á milli sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓMAR
NBA Dwyane Wade, sem margoft
er ranglega kallaður Dwayne,
bjargaði Miami Heat einn síns liðs
frá því að tapa á niðurlægjandi
hátt fyrir Dallas Mavericks í
úrslitum NBA-körfuboltans í
fyrrinótt. Miami marði 98-96 sigur
á heimavelli sínum og breytti stöð-
unni í einvíginu þar með í 2-1, en
einvígið hefði svo gott sem verið
búið ef Dallas hefði komist í 3-0.
Þetta var fyrsti leikurinn af þrem-
ur sem fram fara í Flórída.
Texas-liðið var sterkari aðilinn
lengst af í leiknum og hafði meðal
annars þrettán stigum yfir í fjórða
og síðasta leikhlutanum. Þá tók
hinn magnaði Wade til sinna ráða
og raðaði niður körfunum.
Hann skoraði 42 stig í leiknum
og hirti þrettán fráköst fyrir
Miami en Þjóðverjinn Dirk
Nowitzki hafði tækifæri til að
jafna leikinn í lokin.
Hann klikkaði á vítaskoti á
ögurstundu og mistókst að jafna
leikinn á meðan Shaquille O´Neal
fór skyndilega að hitta úr sínum,
ótrúlegt en satt.
Staðan í einvíginu breyttist þar
með á svipstundu. Frá því að vera
3-0 undir, niðurlútir og í sárum, er
staðan nú 2-1 og leikmenn Miami
eflaust fullir sjálfstrausts eftir
ævintýralegan sigur.
Næstu tveir leiki fara svo fram
í Miami en ef liðið ætlar sér að
fara með 3-2 forystu aftur til Dall-
as verður það að spila betur en í
fyrrinótt og getur ekki treyst um
of á Wade, sem verður að fá meiri
hjálp frá félögum sínum í liðinu
eins og Shaquille O´Neal, sem
getur betur en hann hefur sýnt í
fyrstu leikjunum. - hþh
Miami Heat hélt lífi í úrslitum NBA með dramatískum sigri á Dallas í fyrrinótt:
Dwyane Wade bjargaði Miami
Heat á ævintýralegan hátt
MAÐUR LEIKSINS Dwyane Wade gat heldur betur leyft sér að munda byssurnar eftir leik-
inn gegn Dallas í fyrrnótt. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Andreas Isaksson mun
snúa aftur í markið hjá sænska
landsliðinu fyrir viðureignina
gegn Paragvæ í kvöld. Þessi mark-
vörður hjá Rennes í Svíþjóð lék
ekki með gegn Trínidad og Tóbagó
á laugardaginn vegna þess að hann
fékk heilahristing á æfingu eftir
þrumuskot Kim Källström.
Læknalið sænska liðsins hefur
fylgst grannt með líðan hans að
undanförnu og er hann orðinn heill
heilsu. Þrátt fyrir að Rami Shaaban
hafi ekki gert nein mistök í leikn-
um um síðustu helgi mun Isaksson
að öllum líkindum endurheimta
sæti sitt. - egm
Svíþjóð mætir Paragvæ:
Isaksson aftur
í markið
ÞRUMUSKOT Hér sést þegar Isaksson fékk
skotið frá Källström í höfuðið.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Robert Kovac segir að það
engin hætta hafi stafað af Ronaldo
þegar Brasilía og Króatía gerðu
markalaust jafntefli í fyrsta leik
sínum á HM í fyrradag. Króatinn
sterki gaf lítið fyrir Ronaldo, sem
virðist ekki vera í góðu formi um
þessar mundir.
„Ég veit ekki hvað kom fyrir
hann. Ronaldo hljóp ekkert og var
bara fyrir framan okkur, hann hlýt-
ur að hafa verið þreyttur þar sem
hann snerti varla boltann í leikn-
um. Það gerði okkur mjög auðvelt
fyrir. Ég hef spilað á móti honum
áður og það var mjög erfitt en hann
virtist heillum horfinn í leiknum,“
sagði Kovac.
„Ég vil gjarnan sjá tölfræði yfir
það hversu langt hann hljóp. Hann
tók þrjá eða fjóra tíu metra spretti
eða svo,“ sagði Joe Didulica, vara-
markmaður Króata af bekknum en
þrátt fyrir allt hefur Ronaldo verið
lofað sæti í byrjunarliðinu í næsta
leik. - hþh
Króatinn Robert Kovac hefur ekki mikið álit á Ronaldo:
Hvað kom fyrir Ronaldo?
EKKERT MÁL Kovac átti ekki í neinum vand-
ræðum með arfaslakan Ronaldo í leiknum
í fyrradag. NORDICPHOTOS/AFP
GOLF Tiger Woods er mættur aftur
eftir níu vikna hvíld frá golfi sem
hann notaði til að jafna sig á and-
láti föður síns. Woods hefur ekki
keppt á neinu móti síðan á Mast-
ers en faðir hans lést skömmu
síðar. Opna bandaríska meistara-
mótið fer fram um helgina og
byrjar í dag og Woods segist vera
tilbúinn í slaginn á ný.
„Ég er kominn hingað til þess
að vinna þetta mót og mun gefa
allt sem ég á til að sigra. Faðir
minn hefði viljað það. Það hefur
verið erfitt að byrja aftur en marg-
ar af mínum bestu minningum af
föður mínum eru tengdar golfvell-
inum,“ sagði Tiger á blaðamanna-
fundi í gær en hann játaði af hafa
ekki snert kylfu í heilan mánuð.
„Þegar maður tekur sér langt
frá þarf maður að byrja á að æfa
grunnatriðin aftur til að fá tilfinn-
inguna. Það var erfiðara en ég átti
von á að byrja aftur að spila.“
Þrátt fyrir að hafa ekki spilað í
níu vikur er Woods samkvæmt
veðbönkum líklegastur til að
sigra. - hbg
Tiger Woods:
Snýr aftur á
völlinn
TIGER WOODS Tekur þátt í US Open.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES