Fréttablaðið - 15.06.2006, Side 22
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR22
fréttir og fróðleikur
Svona erum við
25,7 ára
20
00
20
05
Al
du
r
19
95
26,7 ára
28,4 ára
FRÉTTAVIÐTAL
BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON
bjorn@frettabladid.is
Ný borgarstjórn Reykja-
víkur kom saman til fyrsta
fundar síns á þriðjudag.
Sólin skein og bjart var
yfir borgarfulltrúum, í það
minnsta þeim átta sem sitja
í meirihluta. Jafnréttismál
komust óvænt á dagskrá
fundarins.
Borgarfulltrúar tíndust í Ráðhús-
ið einn af öðrum rétt áður en fund-
ur hófst klukkan eitt. Þeir röðuðu
sér til sætis við skeifuborðið í
borgarstjórnarsalnum eftir flokk-
um; Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar, settist við
annan enda þess og við hlið hans
aðrir fulltrúar flokksins og í fram-
haldinu Vinstri græn og Ólafur F.
Magnússon, Frjálslynda flokkn-
um. Þá kom að meirihlutanum;
Björn Ingi Hrafnsson Framsókn-
arflokki sat við hlið Ólafs og
honum á vinstri hönd sjö borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokks.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
stýrði fundi í upphafi í krafti þess
að hann er starfsaldursforseti
borgarstjórnar. Byrjaði hann á að
bjóða borgarfulltrúa velkomna til
starfa, sagði daginn fallegan og
hvatti fólk til að njóta hans. Þá las
hann upp bréf yfirkjörstjórnar í
Reykjavík þar sem kjör borgar-
fulltrúa er staðfest. Bréfinu lýkur
á undirskrift yfirkjörstjórnarfull-
trúans Vilhjálms H. Vilhjálmsson-
ar og lagði Vilhjálmur Þ. sérstaka
áherslu á H-ið þegar hann las nafn
nafna síns. Að því búnu var Hanna
Birna Kristjánsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki, kjörin forseti borgarstjórn-
ar og Vilhjálmur var formlega
kjörinn borgarstjóri eins og lög og
reglur segja til um. Komu þau sér
fyrir við háborðið og losnaði þar
með um tvö sæti við skeifuborðið.
Við það þjappaði meirihlutinn sér
saman og myndaðist tveggja sæta
gjá milli meiri- og minnihlutans.
Gjáin sú er táknræn fyrir væntan-
leg átök fylkinganna á kjörtíma-
bilinu og hafi einhver velkst í vafa
lýsti Ólafur F. Magnússon því yfir
að stjórnarandstaðan ætlaði að
veita nýkjörnum borgarstjóra
kröftugt málefnalegt aðhald.
Vilhjálmur Þ. lét hins vegar
flokkadrætti lönd og leið í stuttu
ávarpi og sagðist ætla að vera
borgarstjóri allra Reykvíkinga og
þjóna borgarbúum á skilvirkan
hátt með kurteisi og tillitssemi að
leiðarljósi.
Nokkur fjöldi fólks fylgdist
með fundinum af pöllunum og
mátti kenna þar varaborgarfull-
trúa og aðra áhugamenn um
stjórnmál.
Næst tók við kjör í fjölda
nefnda, ráða og stjórna og gekk
það að mestu snurðulaust fyrir
sig, utan hvað fresta þurfti kosn-
ingum í nokkur hverfaráð þar sem
í ljós kom að meirihlutinn tilnefndi
fulltrúa til starfa sem ekki eru
borgar- eða varaborgarfulltrúar,
en slíkt er skilyrði fyrir setu í
hverfaráðum. Þá kom til hlutkest-
is um annan varamann í almanna-
varnanefnd þar sem tveir hlutu
jafn mörg atkvæði. Hafði Sam-
fylkingin heppnina með sér og
verður Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, fyrrverandi borgarstjóri,
annar varamaður í almannavarna-
nefnd Reykjavíkur næstu fjögur
árin. Einnig þurfti forseti tvívegis
að hringja bjöllu sinni þar sem
borgarfulltrúar Samfylkingar
voru frammi á gangi þegar greiða
átti atkvæði.
Að atkvæðagreiðslum loknum
lét Samfylkingin bóka að bakslag
væri komið í jafnréttismál borg-
arinnar með vali meirihlutans á
fólki í nefndir og ráð. Í bókuninni
segir: „Það skiptir máli að sjónar-
mið beggja kynja heyrist í öllum
fagráðum borgarinnar og að jafn-
vægi milli kynja ríki þegar litið er
til formennsku. Hér ríkir forn-
eskjan ein af hálfu B og D lista og
hlýtur að kalla á hörð viðbrögð
kvennahreyfinga og annarra jafn-
réttissinna. 13. júní 2006 verður
minnst sem sorgardags í sögu
Reykjavíkur.“
Sjálfstæðismenn svöruðu og
sögðu 29 konur sitja sem aðal- og
varamenn fyrir hönd meirihlutans
í níu aðalnefndum borgarinnar.
Það væru rúm fjörutíu prósent
þeirra staða sem meirihlutinn
skipaði í. „Að kalla þessa skipan
svartan dag í sögu jafnréttis eru
slík öfugmæli og ber slíkan keim
pólitískra upphrópana, að það er
ekki svaravert. Óskandi er að
Samfylkingin í borgarstjón velji
sér betri málefnagrunn þegar hún
biður sér næst hljóðs hér í borgar-
stjórn.“ Þessu var svo svarað og
það sagt lýsa bágri málefnastöðu
meirihlutans að hann þyrfti að
telja varamennina með.
Hvort sem fólk lítur á þriðju-
daginn síðasta sem svartan eða
ekki í jafnréttismálum tala tölurn-
ar sínu máli. Í níu aðalnefndum
borgarinnar situr samtals 61 full-
trúi. 37 þeirra eru karlar, 24 konur.
Meirihlutinn hefur 35 sæti til
umráða. Í þeim sitja 22 karlar og
13 konur. Minnihlutinn hefur 26
sæti til umráða. Í þeim eru 12 karl-
ar og 14 konur.
Að sama skapi er 61 varamaður
í þessum níu nefndum. Meirihlut-
inn hefur sín 35 sæti og í þeim
sitja 19 karlar og 16 konur. Í 26
sætum minnihlutans sitja hins
vegar 15 karlar og 11 konur.
Samtals er því 41 karl á vegum
meirihlutans aðal- eða varamaður
í þessum níu nefndum en 29 konur.
Á vegum minnihlutans eru 27 karl-
ar og 25 konur. Konur eru formenn
þriggja nefnda, fjögurra þegar
óstofnað leikskólaráð tekur til
starfa, en það hefur ekki verið
mannað að öðru leyti en því að
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir verð-
ur formaður.
Eftir þennan fyrsta fund
borgarstjórnar eftir kosningar
kynntu Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son og Björn Ingi Hrafnsson
helstu mál sem þeir ætla að koma
í framkvæmd en aðrir borgarfull-
trúar gengu út í sumarið, sem
hvarf daginn eftir jafn skyndilega
og það kom.
Brosandi meirihlutinn sagður
forneskjulegur í jafnréttismálum
SÉÐ YFIR SAL BORGARSTJÓRNAR REYKJAVÍKUR Jafnréttismál komust óvænt á dagskrá á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningar og sakaði Samfylkingin meirihlutann um forneskjuleg
viðhorf. Því var umsvifalaust vísað á bug. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HLÝTT Á NÝJAN BORGARSTJÓRA Samfylkingarmennirnir Dagur B. Eggertsson, Steinunn
Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein hlusta á Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í pontu.
Í ár hafa óvenjumargar umsóknir
borist til Norræna félagsins á
Íslandi frá ungu fólki á Norður-
löndunum um vinnu hér á landi í
sumar. Alma Sigurðardóttir er verk-
efnastjóri hjá Norræna félaginu.
Hvað er Nordjobb?
Nordjobb er vinnumiðlun fyrir
ungt fólk á alrinum 18-28 ára og
þetta er verkefni sem miðar að því
að kynna fyrir ungu fólki hversu
auðvelt það er að flytjast á milli
Norðurlandanna. Krakkarnir fá
sumarvinnu í öðru norrænu landi
og dveljast þannig sumarlangt og
verkefnið sér um að útvega hús-
næði og skipuleggur tómstunda-
dagskrá.
Af hverju þessi mikli fjöldi til
Íslands núna?
Talan er komin upp í 147 sem
eru ráðnir hérna á Íslandi en það
virðist vera skortur á vinnuafli og
vinnuveitendur hafa tekið rosalega
vel í það að taka þátt í verkefninu,
það hefur gengið ofsalega vel að
finna störf fyrir krakkana hérna.
Hve margir Íslendingar fara út?
Samtals eru að fara út frá Íslandi
36 en sú tala hefur lækkað svolítið.
Það má alveg búast við því að
þessi tala hækki þó vegna þess að
það eru margir Íslendingar sem
fara til Danmerkur og þar gerast
hlutirnir aðeins hægar.
SPURT & SVARAÐ
Nordjobb
ALMA SIGURÐARDÓTTIR
VERKEFNASTJÓRI
Í gær var gengið frá kaupum á knattspyrnu-
manninum Eiði Smára Guðjohnsen til Barce-
lona en hann hefur undanfarin sex ár leikið
með Englandsmeisturunum í Chelsea.
Hvenær var knattspyrnufélag Barcelona
stofnað og af hverjum?
Félagið var stofnað árið 1899. Fremstur í flokki
frumkvöðla þar var Svisslendingurinn Joan
Gamper. Hann kom við í Barcelona að hitta
frænda sinn sem bjó þar en Joan var sjálfur á
leið til Afríku þar sem hann ætlaði að taka þátt í
því að koma upp fyrirtækjum sem versla myndu
með sykur. Hann varð reyndar svo heillaður af
þessari höfuðborg Katalóníu að hann settist þar
að. Hann lék fjölmarga leiki með félaginu og var
mikill markahrókur. Hann varð forseti félagsins
árið 1908 og gegndi því starfi nær sleitulaust
þar til 1925. Þá var hann rekinn frá Spáni þar
sem hann var sakaður um að vera með áróður
fyrir sjálfstæði Katalóníu en áhangendur félags-
ins höfðu baulað á spænska þjóðsönginn fyrir
kappleik en að sama skapi klappað fyrir þeim
breska. Hann hélt til síns heimalands þar sem
hann síðar féll fyrir eigin hendi.
Hver er staða félagsins í dag?
Barcelona er Evrópu- og Spánarmeistari enda
spila þar margir af bestu leikmönnum heims
eins og Brasilíumaðurinn Ronaldinho og Kam-
erúninn Samuel Eto‘o. Forsvarsmenn félagsins
segja að leikmenn þess leiki einungis fyrir
félagið og samfélagið tengt því og þess vegna
eru engar auglýsingar á liðsbúningnum, enn
sem komið er.
Hvað heitir leikvangur félagsins?
Leikvangur félagsins heitir Nou Camp og stærsti
knattspyrnuleikvangur í Evrópu en hann tekur
um 98 þúsund áhangendur.
FBL GREINING: FC BARCELONA
Félag stofnað af Svisslendingi
SIGURSTUND Skærasta stjarna Barcelona, brasilisíki
galdramaðurinn Ronaldinho, horfir löngunar-
augum á Evrópubikarinn.
> Meðalaldur kvenna við stofnun sambúðar.
Heimild: Hagstofa Íslands
�����������������������������
�� ���������������������������
������ ���������
�������
����������������