Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 24
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR24
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
ICEX-15 5.356 -1,72% Fjöldi viðskipta: 810
Velta: 6.273 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 62,40 -0,95% ... Alfesca
3,48 -6,20%... Atorka 5,70 +0,00% ... Bakkavör 43,90 -3,52%
... Dagsbrún 5,50 -2,14% ... FL Group 17,40 -3,33% ... Flaga 3,91
+0,00% ... Glitnir 17,00 -2,30% ... KB banki 731,00 -0,95% ...
Landsbankinn 20,00 -2,91% ... Marel 68,60 -1,15% ... Mosaic
Fashions 14,70 -1,01% ... Straumur-Burðarás 17,10 -1,16% ... Össur
105,00 -3,67%
MESTA HÆKKUN
Atlantic Petroleum +0,69%
MESTA LÆKKUN
Alfesca -6,20%
Össur -3,67%
Bakkavör -3,52%
LPE1 A – 1.000.000.000 kr. – útgefið við skráningu 280.000.000 kr.
LPE1 B – 1.000.000.000 kr. – útgefið við skráningu 280.000.000 kr.
LPE1 C – 2.000.000.000 kr. – útgefið við skráningu 370.000.000 kr.
LPE1 D – 1.500.000.000 kr. – útgefið við skráningu 250.000.000 kr.
Heildarnafnverð útgáfunnar er 5.500.000.000 kr., þar af er útgefið við skrán-
ingu 1.180.000.000 kr. að nafnverði.
30. júní 2005
LPE1 A 1. júní 2012 - 9,42%
LPE1 B 1. júní 2013 - 9,36%
LPE1 C 1. júní 2014 - 9,29%
LPE1 D 1. júní 2014 - 9,44%
Vextir bætast við höfuðstólinn einu sinni á ári, í fyrsta sinni 1. júní 2006, en
höfuðstóll bréfanna, að viðbættum uppsöfnuðum vöxtum, er endurgreiddur í
einu lagi á lokagjalddaga (kúlubréf).
LPE1 A í fyrsta lagi 1. júní 2007 án uppgreiðslugjalds
LPE1 B í fyrsta lagi 1. júní 2008 án uppgreiðslugjalds
LPE1 C í fyrsta lagi 1. júní 2009 án uppgreiðslugjalds
LPE1 D í fyrsta lagi 1. júní 2009 án uppgreiðslugjalds
Verði innköllunarheimild nýtt ber að innkalla flokkinn í heild sinni og þá
reiknast ekki vextir á bréfin frá innköllunardegi. Tilkynna verður um innkölluna
með tveggja mánaða fyrirvara.
Kauphöll Íslands hf. mun taka bréfin á skrá þann 19. júní 2006.
Umsjón með skráningu skuldabréfanna í Kauphöll Íslands hefur Fyrirtækja-
ráðgjöf Landsbanka Íslands, Hafnarstræti 5, 155 Reykjavík. Skráningarlýsingu
og önnur gögn sem í er vitnað í lýsingunni er hægt að nálgast hjá Landsbanka
Íslands.
FLOKKAR:
NAFNVERÐ ÚTGÁFU:
ÚTGÁFUDAGUR:
LOKAGJALDDAGI OG
VEXTIR:
INNKÖLLUNARHEIMILD:
SKRÁNINGARDAGUR:
UMSJÓNARAÐILI:
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
31
24
0
6/
20
06
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
31
24
0
6/
20
06
Skráning skuldabréfa í Kauphöll Íslands
Óverðtryggð skuldabréf Landsbanki Private Equity 1
MARKAÐSPUNKTAR...
Aðild Føroya Banka P/F að
Kauphöll Íslands varð virk í gær
og er þess vænst að viðskipti með
færeysk bréf aukist í kjölfarið.
Kauphallaraðilar eru orðnir 25, þar
af fimm erlendir.
Jyllands Posten og Politiken hafa
valið nafnið 24tímar á fríblað sitt
sem keppa á við danska Fréttablað-
ið. Blaðið verður einnig með vef á
slóðinni 24timer.dk.
Í gær fór fram útboð á nýjum flokki
ríkisbréfa til tveggja ára, RIKB 08,
hjá Lánasýslu ríkisins. Alls bárust
36 tilboð í flokkinn samtals að
nafnvirði 14 milljarðar króna.
Tekið var tilboðum fyrir 5 milljarða
að nafnverði með 11,6 prósenta
meðalávöxtun.
Atvinnuleysi var 1,3 prósent í síð-
asta mánuði og er það óbreytt frá
mánuðinum á undan. Alls voru
47.418
atvinnuleys-
isdagar
skráðir á
landinu öllu
en það jafn-
gildir því að
2.062 manns
hafi verið á
atvinnuleys-
isskrá í maí en 158.000 manns á
vinnumarkaði, samkvæmt upplýs-
ingum Vinnumálastofnunar.
Atvinnuleysi stendur nánast í
stað á höfuðborgarsvæðinu en
lækkar lítillega á landsbyggðinni.
Á höfuðborgarsvæðinu eykst þó
atvinnuleysi kvenna lítilsháttar.
- jab
Atvinnuleysið
helst óbreytt
IÐNAÐARMENN Atvinnu-
leysi var 1,3 prósent í maí
og breyttist ekki á milli
mánaða.
Eftir nokkurt hlé var tilkynnt um
útgáfu krónubréfa í byrjun vik-
unnar. Þá jók þýski þróunarbank-
inn KfW við útgáfu sína um fimm
milljarða króna.
Samkvæmt upplýsingum grein-
ingardeildar Glitnis banka er þýski
bankinn þá kominn í 59 milljarða
króna útgáfu og með ríflega fjórð-
ung af allri útgáfu krónubréfa.
Heildarútgáfa krónubréfa
stendur nú í 234 milljörðum króna.
„Fremur lítið hefur verið um
krónubréfaútgáfu að undanförnu
en síðast var útgáfa 10. maí síðast-
liðinn og var það 2 milljarða króna
útgáfa af hálfu KFW,“ segir á síðu
Glitnis og er þar talið líklegt að
áfram verði lítið um slíka útgáfu.
„Ekki síst þar sem þrengt hefur að
möguleikum bankanna til fjár-
mögnunar á móti skiptasamning-
um til grundvallar útgáfunni. Einn-
ig eru fjárfestar smeykir við kaup
á krónubréfum eftir þá útreið sem
margir hafa fengið.“
Greiningardeildin segir hins
vegar ekki hægt að líta fram hjá
því að krónubréfakaup séu marg-
falt betri fjárfestingarkostur
núna en þegar þau voru mest.
„Ástæðan er bæði staða krónunn-
ar en hún hefur veikst mikið frá
því að útgáfan var í mestum
blóma og skammtímavextir hafa
hækkað.“ - óká
Krónubréf sjást aftur
Hreinsað til í OR
Nýr meirihluti í Reykjavík ætlar að „hreinsa til í
borginni“. Hlýtur það að vekja athygli að í nýrri
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, eins stærsta fyrirtækis
landsins, skuli engin kona taka sæti. Mikið
hefur verið rætt um rýran hlut kvenna
í stjórnun almenningshlutafé-
laga og ráðum og nefndum
á vegum opinberra aðila.
Hlýtur þessi ákvörðun
borgarstjórnarflokkanna
að teljast sérstakt innlegg
í þessa umræðu, enda
hafa stjórnmálamenn oft
gagnrýnt viðskiptalífið fyrir
„kvenmannsleysið“. Í eldri
stjórn OR sátu einmitt tvær
konur, Sigrún Elsa Smáradóttir
og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
sem gefa eftir sæti sín til karla.
Munur á kjöti og nauti
Landssamband kúabænda áréttar um þessar
mundir að á vef sambandsins, naut.is, sé ekki að
finna neinar uppskriftir, þótt þar megi finna ýmsar
upplýsingar um landbúnað, nautgriparækt og
mjólkurframleiðslu. Áréttingin er þó ekki
að ástæðulausu sett fram því glöggur
kjötkaupandi hafði samband við
Landssambandið og benti á að
á umbúðum Íslandsnauts kjöt-
vara væri vísað á uppskriftir
á naut.is. Landssamband
kúabænda segir hins vegar að
nautakjötsuppskriftirnar sé að
finna á vefnum www.kjot.is
og segir framleiðanda Íslands-
nauts, Ferskar kjötvörur, munu
breyta umbúðum sínum.
Peningaskápurinn ...
HÖFUÐSTÖÐVAR KFW Í FRANKFURT Þýski bankinn KfW gefur út krónubréf og er í hópi
stórtækustu útgefenda slíkra bréfa. MYND/KFW
Frá því að Úrvalsvísitalan náði
hæsta gildi frá upphafi þann 15.
febrúar hefur hún lækkað um rétt
tæp 23 prósent. Lokagildi vísitöl-
unnar var 5.356 stig í gær en hæst
fór hún í 6.925 stig. Frá áramótum
er lækkunin ekki nema 3,23 pró-
sent en vísitalan hækkaði skarpt á
fyrstu vikum ársins.
Heildarverðmæti félaga í
Kauphöll Íslands var 2.350 millj-
arðar þann 15. febrúar, sam-
kvæmt tölum frá Kauphöll
Íslands, en það samsvaraði um
tvöfaldri landsframleiðslu síðasta
árs. Við lokun markaðarins í gær
hafði verðmætið lækkað niður í
1.873 miljarða króna eða um 477
milljarða.
Hafa ber í huga að heildarverð-
mæti Kauphallarfélaga stóð í
1.850 milljörðum um áramótin
þannig að mikil verðmæti urðu til
á mjög skömmum tíma. Hlutfalls-
leg lækkun heildarvirðis frá því
um miðjan febrúar er aðeins
minni en lækkun sjálfrar Úrvals-
vísitölunnar þar sem nokkur félög
hafa aukið hlutafé á þessum tíma
en aðeins eitt fyrirtæki (Kögun)
verið afskráð.
Um miðjan febrúar má segja
að bjartsýnin hafi verið hvað mest
á hlutabréfamarkaði en þá „topp-
uðu“ stærstu fjármálafyrirtækin,
KB banki, Glitnir banki, Lands-
bankinn og Straumur-Burðarás.
FL Group fór í hæsta gengi um
svipað leyti.
Hlutabréf í FL Group og Lands-
bankanum hafa fallið meira en
önnur frá hæsta gengi á árinu, FL
Group um 37 prósent en Lands-
bankinn einu prósenti minna. Níu
Kauphallarfélög hafa lækkað um
fimmtung eða meira eftir að gengi
þeirra náði hæsta gildi á árinu og
sextán félög yfir tíu prósent.
Nýherji er eina félagið sem
hefur staðið í stað af þeim félög-
um sem könnun Fréttablaðsins
nær til, en hafa ber í huga að
nokkur fyrirtæki hafa litla veltu á
bak við sig.
Úrvalsvísitalan hefur lækkað
hratt í vikunni eftir að erlend
hlutabréf tóku að falla vegna ótta
fjárfesta um að líklegar vaxta-
hækkanir drægju úr hagvexti í
heiminum. Vísitalan lækkaði um
1,1 prósent á mánudaginn, um 2,5
prósent á þriðjudaginn og um 1,7
prósent í gær. Um tíma í viðskipt-
um gærdagsins hafði lækkunin
náð þremur prósentum.
eggert@frettabladid.is
Hlutabréf lækka um 480
milljarða frá toppnum
Úrvalsvísitalan hefur fallið um rúman fimmtung frá því hún náði hæsta tindi
um miðjan febrúar. FL Group og Landsbankinn hafa lækkað langmest allra
félaga frá toppnum.
MESTA LÆKKUN FÉLAGA FRÁ
HÆSTA GENGI Á ÁRINU
Lækkun frá hæsta gengisbreyting
Félag gengi á árinu frá áramótum
FL Group -37,2% -8,9%
Landsbanki -36,3% -20,9%
Atlantic Petroleum -27,6% 34,6%
KB banki -26,8% -2,0%
Avion Group -25,1% -25,1%
Mosaic Fashions -25,0% -21,8%
Glitnir -24,8% -1,7%
Bakkavör -22,0% -13,8%
Dagsbrún -21,4% -8,3%
Straumur -19,7% 7,5%
Alfesca -18,9% -14,7%
Atorka Group -17,4% -11%
Flaga Group -15,2% -15,2%
TM -13,0% 48,1%
Icelandic Group -12,0% -12,5%
Össur -11,0% -7,9%
Marel -9,7% 5,5%
Vinnslustöðin -8,0% -3,6%
Actavis -7,0% 25,3%
HB Grandi -0,4% 31,9%
Nýherji 0% 2,9%
HEILDARVERÐMÆTI FÉLAGA Í
KAUPHÖLL
(upphæðir í milljörðum króna)
Dagsetning Heildarvirði
1.1. 2006 1.816
15.2. 2006 2.350
1.6. 2006 2.005
14.6. 2006 1.873