Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 70
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR46
bio@frettabladid.is
Mikil eftirvænting ríkti í
kringum frumsýningu Da
Vinci lykilsins enda hafði
bók Dan Brown slegið öll
met á vinsældarlistum um
allan heim. Gagnrýnendur
voru hins vegar ómyrkir í
máli sínu um myndina og
telja Tom Hanks engan veg-
inn hafa passað í hlutverk
Roberts Langdon.
Leikstjórinn Ron Howard hefur
verið þó nokkur vandi á höndum
þegar hann tók að sér að leikstýra
kvikmyndinni. Langdon er um
fimmtugt og er lýst sem Harrison
Ford í tweed-jakka.
Tom Hanks var fenginn í hlut-
verkið. Leikarinn er meðal þeirra
virtustu í kvikmyndaheiminum en
fjölmargir aðdáendur bókarinnar
settu stórt spurningamerki við
ráðningu hans í hlutverkið. Það
kom líka á daginn að spennan á
milli Hanks og Audrey Tatou er
akkúrat engin en þar sem þau tvö
deila hvíta tjaldinu nánast alla
myndina verður hún fyrir vikið
hálf getulaus. Aðdáendur myndar-
innar geta vafalítið mótmælt þess-
ari fullyrðingu og sagt að milli
þeirra hefði átt að ríkja samband
föður og dóttur en þar sem það
tekst ekki einu sinni hljóta að
vakna efasemdir um ágæti Hanks
í hlutverkinu.
Howard hefur ekki getað talað
fyrir því að Harrison Ford myndi
taka hlutverkið að sér enda sjá
flestir hann fyrir sér í Indiana-
Jones hlutverkinu. Ford hefði
heldur ekki getað látið hárið vaxa
svona sítt eins og Tom Hanks gerði
með eftirminnilegum hætti.
Leikarar af þessari kynslóð eru
af skornum skammti. Russell
Crowe, sem lék undir stjórn How-
ards í A Beautiful Mind og Cinder-
ella Man, er of mikill ólátabelgur
og slagsmálahundur til að geta
túlkað lærðan fræðing í fornum
táknum. Þótt honum hafi tekist vel
til í áðurnefndri mynd auk The
Insider kæmi Crowe aldrei til
greina. Enginn myndi trúa því að
Crowe léti litla, franska snót flýja
með sig á litlum bíl.
Þegar horft er yfir sviðið í heild
sinni má sjá að ef Da Vinci Code
hefði verið gerð fyrir þrjátíu árum
síðan hefði Robert Redford verið
ráðinn á staðnum. Redford er ein-
hver allra besti „venjulegi“ leikari
sögunnar og hefði plumað sig vel í
hlutverki Langdons, hvort sem
ríkja átti föðurleg ást eða kyn-
ferðisleg spenna á milli hans og
Sophie.
Sá leikari sem hefði að öllum
líkindum passað eins og flís við
ras í hlutverkið er Jeff Bridges.
Hann er einhver allra besti skap-
gerðarleikari seinni tíma en líður
fyrir að hafa ekki leikið í nægjan-
lega nógu mörgum smellum. Að
öllum líkindum treysti Howard
Hanks langbest í þetta hlutverk.
Þeir eru miklir félagar og Hanks
er auðvitað frábær leikari. Hann á
hins vegar betur
heima einn á
eyðieyju, með
eyðni eða í
hlutverki vitl-
eysings heldur
en í hlutverki
Roberts
Langdon.
- fgg
Hver gat leikið Langdon?
HEFÐI HANN GETAÐ ÞETTA? Russell Crowe
hefur vissulega sýnt að hann getur leikið
menntamenn en hefði það verið trúverð-
ugt að sjá Crowe flýja undan munki?
ER ÞETTA EKKI LANGDON? Jeff Bridges
hefði að öllum líkindum verið hárréttur
maður í hlutverkið en skortur hans á
stórsmellum hefur vafalítið komið í veg
fyrir það.
FYRIR ÞRJÁTÍU ÁRUM Robert Redford hefði
verið ráðinn á staðnum ef Da Vinci hefði
verið gerð fyrir þrjátíu árum. Ekki er á allt
kosið.
HARRISON FORD Dan Brown lýsti Langdon
sem Harrison Ford í tweed-jakka. Hins
vegar hefði verið ómöglegt fyrir aðstand-
endur Da Vinci Code að ráða leikarann
í hlutverkið enda sjá hann flestir sem
Indiana Jones eða Han Solo.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
LANGDON Í DAG
Tom Hanks þykir
einkar litlaus
í hlutverki Lang-
don en sagan
ein á eftir að
dæma um
hvort valið á
honum hafi
verið rétt.
RÉTT VAL? Ron
Howard kann
að hafa gert
mistök með
því að velja
góðvin
sinn Tom
Hanks í
hlutverk
Roberts
Langdon.
Eftirlætis kvikmynd:
Ég á mjög erfitt með að nefna
uppáhaldskvikmynd eða gera topp
fimm lista. Pulp Fiction er hins
vegar sú mynd sem kemur oftast
upp í hugann á mér en ég fór á
sérstaka forsýningu áður en hún
hafði slegið í gegn á sínum tíma.
Þetta var mögnuð upplifun og ég
leyfi mér að efast um að Tarantino
eigi eftir að gera jafn góða mynd.
Swingers með Vince Vaughn og
Raising Arizona eftir Coen-bræður
eru líka í miklu uppáhaldi.
Eftirminnilegasta atriðið: Þegar
John Travolta stingur adrenalín-
sprautinni í brjóstið á Umu Thur-
man í Pulp Fiction. Magnað atriði
sem situr lengi í manni.
Eftirlætis leikstjóri Quentin
Tarantino er í miklu uppáhaldi auk
Spike Jonze og Alexander Payne.
Ég hef líka alltaf verið mikill aðdá-
andi Cohen-bræðranna og gömlu
meistaranna Martin Scorsese og
Woody Allen auk Michael Winter-
bottom.
Besta íslenska myndin: Friðrik Þór
Friðriksson og myndir hans, Börn
náttúrunnar og Englar alheimsins
eru alveg frábærar. Þá finnst mér
verkin hans Róberts Douglas mjög
skemmtileg og Íslenski draumurinn
var hálfgerð tímamótamynd.
Mesta hetja hvíta tjaldsins:
Ofurmennið hlýtur að vera mesta
hetjan. Hann getur flogið og í raun
gert allt. Það blikna allar persónur í
samanburði við Ofurmennið.
Mesti skúrkurinn: McDonalds
í kvikmyndinni Supersize Me og
Níhílistarnir í Big Lebowski.
Hvaða persóna fer mest í
taugarnar á þér: Allar Jim Carrey
persónur þar sem leikarinn fær að
leika lausum hala. Óþolandi að
horfa á einn mann geifla sig og
gretta í níutíu mínútur.
Ef þú værir kvikmyndastjarna
og fengir að velja kvikmynd,
mótleikara og leikstjóra,
hvernig liti myndin út: Ég
myndi gera mynd sem
gerðist á Íslandi á .com-
tímabilinu þegar allt var að
verða geðveikt. Ég væri
verðbréfasali á daginn
og næturklúbbaeigandi á
kvöldin. Jennifer Aniston
yrði forstjóri deCode og
drottning næturlífsins.
Við ættum í samkeppni
en það væru líka ástríður
kraumandi undir. Quentin
Tarantino myndi
síðan að sjálfsögðu
leikstýra.
KVIKMYNDANJÖRÐUR VIKUNNAR: ÍSLEIFUR B. ÞÓRHALLSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
Tarantino í miklu uppáhaldi
Jessica Simpson verður seint sökuð
um að vera einhver mannvits-
brekka ef marka má fréttavefinn
Contactmusic.
com. Leik- og
söngkonan var
stödd í teiti með
nokkrum fræg-
um einstakling-
um og skemmti
sjálfri Pamelu
Anderson
konunglega með
hálfasnalegri
spurningu.
Hinar barmgóðu
ljóskur stóðu og
ræddu málin þegar Simpson
spurði stöllu sína hvernig hún
færi eiginlega að því að hlaupa
svona hægt en
eins og frægt er
orðið voru það
meðal vinsæl-
ustu atriðanna í
Baywatch.
Anderson sýndi
Simpson þó
mikla hjálpsemi
og útskýrði
fyrir henni sjón-
varpstæknina á
bak við þetta
allt saman.
Ljóskan Simpson
JESSICA SIMPSON Var mjög undrandi á því
hvernig Pamelu Anderson og félögum hennar
í Baywatch tókst að hlaupa svona hægt.
„I love the smell of napalm in
the morning. You know, one
time we had a hill bombed, for
12 hours. When it was all over,
I walked up. We didn’t find one
of ‘em, not one stinkin’ dink
body. The smell, you know that
gasoline smell, the whole hill.
Smelled like... victory. Someday
this war’s gonna end...“
Hershöfðinginn Kilgore útskýrir fyrir hermanni þennan
yndislega morgunilm í Víetnam - mynd Francis Ford
Coppola, Apocalypse Now.
Robin Williams fer með aðalhlut-
verkið í gamanmyndinni RV sem
nú er sýnd í íslenskum kvikmynda-
húsum. Fjallar hún um vinnualkann
Bob Munro (Williams), sem fer með
fjölskyldu sína í ferðalag til Color-
ado eftir að hafa hætt við að fara
með hana til Hawaii. Er ekið til
Colorado í lítilli rútu við litlar vin-
sældir eiginkonunnar og barnanna.
Allt fer úrskeiðis í ferðinni sem
úrskeiðis getur farið og á Munro í
hinum mestu vandræðum með að
hafa stjórn á hlutunum. Óhöppin ná
á endanum að þjappa fjölskyldunni
betur saman og gera hana nánari
en nokkru sinni fyrr.
Cheryl Hines, sem leikur í sjón-
varpsþáttunum Curb Your Enthusi-
asm, leikur eiginkonu Munro en
Jeff Daniels, sem fór á kostum í
Dumb and Dumber, fer einnig með
hlutverk í myndinni.
Leikstjóri er Barry Sonnenfeld,
sem á að baki Men in Black-
myndirnar, Get Shorty og tvær
fyrstu myndirnar um Addams-
fjölskylduna.
Vandræði í rútuferð
RV Kvikmyndin RV fjallar um fjölskyldu sem
ferðast í rútu til Colorado.
AF HVÍTA TJALDINU
> FREYR GÍGJA GUNNARSSON
Al Pacino sem Han Solo?
Að velja í hlutverk getur reynst leikstjórum erfitt. Aðalhlutverkið þarf að vera
vel mannað af leikara sem kvikmyndahúsagestinum finnst vera trúverðugur í
hlutverkinu. Peter Jackson reyndist vera snjall þegar hann réð Viggo Mortensen
í hlutverk Aragorns. Írski leikarinn Stuart Townsend hafði hins vegar verið í föru-
neytinu í fjóra daga sem hinn aðalsborna hetja áður en Jackson gerði sér grein
fyrir að leikarinn þyrfti að vera eldri.
Eflaust finnst flestum ómöglegt að sjá einhvern annan en Marlon Brando í
hlutverki guðföðurins Don Vito Corleone. Engu að síður vildi kvikmyndaverið fá
Frank Sinatra í hlutverkið. Taldi hann geta trekkt betur að. Þeir fengu því hland fyrir
hjartað þegar Francis Ford Coppola stakk upp á ólíkindatólinu Brando sem var
þekktur fyrir sérvisku og gat tekið upp á hverju sem var á meðan á tökum stóð.
Þegar horft er á Guðföðurinn er hálf asnalegt að sjá einhvern annan fyrir sér
en Brando í því hlutverki. Leikarinn tróð bómull upp í kjaftinn á sér og náði fram
svipbrigðum og túlkun sem eiga vafalítið ekki eftir að sjást aftur á hvíta tjaldinu.
Harrison Ford var klæðskerasniðinn fyrir Han Solo-hlutverkið í Stjörnustríðs-
myndunum fyrri en það varð upphafið að glæstum ferli hans sem Hollywood-
stórstjarna. Nánast ómögulegt er fyrir mig að sjá einhvern annan í hlutverki þessa
flugstjóra sem reif kjaft við allt og alla og var hundeltur af óþjóðalýð í sólkerfinu.
George Lucas vildi hins vegar ekki vinna með einhverjum sem hafði leikið í
kvikmynd eftir hann áður og Ford var því útilokaður í fyrstu vegna
hlutverks síns í American Graffiti.
Lucas bauð leikurum á borð við Kurt Russell, Nick Nolte,
Christopher Walken og Al Pacino að leika Han Solo. Leikstjórinn
íhugaði meðal annars að gera Han Solo svartan og hafði nánast
ráðið Glynn Turman í hlutverkið. Lucas hætti hins vegar við allt
saman og fékk Harrison Ford til að fljúga með Chewbacca,
Luke Skywalker og prinsessuna Leiu. Hvort Stjörnustríðið
hefði orðið eitthvað verra ef Al Pacino hefði hlaupið undan
stormsveitarmönnununm með Alec Guiness verður hins
vegar aldrei skorið úr um.