Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 81

Fréttablaðið - 15.06.2006, Page 81
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006 FÓTBOLTI Óvíst er hvort marka- kóngur Evrópumótsins 2004, Milan Baros, geti spilað með tékk- neska landsliðinu á heimsmeist- aramótinu. Þessi 24 ára sóknar- maður meiddist á fæti í æfingaleik gegn Trínidad og Tóbagó rétt fyrir mót. Hann var ekki með í fyrsta leik Tékklands á mótinu, sem var 3-0 sigurleikur gegn Bandaríkjun- um. „Bati hans hefur verið hægari en við höfðum vonast til. Það er mjög slæmt að vera án Baros, sér- staklega í ljósi þess að Jan Koller fór meiddur af velli í fyrsta leikn- um og er ekki alveg heill,“ sagði Karel Brückner, þjálfari tékk- neska liðsins. Næsti leikur Tékk- lands er gegn Gana hinn 17. júní. - egm Meiðsli hjá Tékkum: Óvíst hvort Baros spili MEIDDUR Milan Baros er tæpur vegna meiðsla. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Hægri kantmaðurinn knái Daniel Alves hefur mikinn hug á því að ganga til liðs við Liverpool. Brasilíumaðurinn sló í gegn með Sevilla á tímabilinu og var lykilmaður í liði UEFA-meist- aranna. Rafael Benítez vonast til að tryggja sér hægri kantmann og í það minnsta einn sóknarmann í sumar og er Alves efstur á óska- listanum. „Við viljum ekki selja hann en leikmaðurinn vill fara og við getum ekki neytt hann til að vera hér áfram. Hann sagði okkur frá því að hann vildi fara til Liverpool en það setur ekki neina pressu á okkur,“ sagði Jose Maria del Nido, forseti Sevilla. Liverpool hefur í tvígang boðið í Alves, sjö og átta milljónir punda, en báðum tilboðunum var hafnað. Sevilla vonast til að fá allt að tólf milljónir fyrir Alves en liðið verða að ná samkomulagi um kaupverð- ið áður en málið getur farið lengra. - hþh Daniel Alves: Vill fara til Liverpool FÓTBOLTI Thierry Henry er bjart- sýnn á gott gengi Frakklands á heimsmeistaramótinu þrátt fyrir að liðið hafi byrjað illa og gert aðeins jafntefli gegn Sviss í sínum fyrsta leik. „Ég hef engar áhyggj- ur. Það hefði vissulega verið betra að byrja á sigri en mér finnst ósanngjarnt að við höfum ekki náð þremur stigum, við áttum meðal annars að fá vítaspyrnu í leiknum. Við þurfum að eiga betri leik gegn Suður-Kóreu á sunnudag en sá leikur verðir ekki auðveldur,“ sagði Henry. Henry var langt frá sínu besta í leiknum gegn Sviss og það sama má segja um margar aðrar stjörn- ur í liðinu, til dæmis Zinedine Zidane. „Ég tók eftir því að völlur- inn var vökvaður eftir leik þrátt fyrir að það væri enginn leikur á eftir. Mér finnst að FIFA eigi að sjá til þess að vellirnir séu bleyttir fyrir leiki,“ sagði Henry. - egm Thierry Henry er bjartsýnn: Sýnum okkar rétta andlit VONBRIGÐI Henry náði sér ekki á strik gegn Sviss. NORDICPHOTOS/AFP LANGAR ÞIG Í EINTAK? Sendu SMS skeytið BTC KEF á númerið 1900 Þú gætir unnið! Vinningar eru: • Keane - Under The Iron Sea • Keane - Live Recordings 2004 EP • Keane - Strangers DVD • Pepsi kippur • DVD myndir • Fullt af öðrum geisladiskum og margt fleira SM S LE IKU R Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já B T S m ár al in d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S k lú bb . 1 49 k r/ sk ey tið . 10. hver vinnur! NFL Ben Roethlisberger, leikstjórn- andi NFL-meistara Pittsburgh Steelers, er á góðum batavegi eftir að hafa lent í slæmu mótorhjóla- slysi en hann hefði skaðast mun minna hefði hann borið hjálm, sem hann gerði ekki. „Hann er vaknaður og við með- vitund. Hann er ekki lengur í lífs- hættu heldur er ástand hans stöðugt,“ sagði í yfirlýsingu frá spítalanum sem Roethlisberger, sem oftast er kallaður Stóri Ben, liggur á. Stóri Ben gekkst undir sjö tíma skurðaðgerð en bæði kjálki og nef hans brotnaði og svo brákuðust kinnbein og annað. Hann losnar væntanlega af spítal- anum strax eftir helgi. Roethlisberger lenti á bílrúðu bíls sem keyrði veg fyrir hann. Slysið gæti haft áhrif á samning hans við Steelers en í honum kom fram að hann gæti orðið af fjár- munum ef hann slasaði sig á mótorhjólinu án hjálmsins. - hbg Betur fór en á horfðist hjá leikstjórnanda Steelers: Stóri Ben lenti í slæmu mótorhjólaslysi MEISTARI Roethlisberger varð í janúar síðastliðnum yngsti leikstjórnandi sem hefur unnið Super Bowl. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.