Fréttablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 83
FIMMTUDAGUR 15. júní 2006 59
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
12 13 14 15 16 17 18
Miðvikudagur
■ ■ SJÓNVARP
12.30 HM stúdíó á Sýn.
12.50 HM í fótbolta á Sýn. Bein
útsending frá leik Ekvador og Kosta
Ríka í A-riðli.
15.00 HM stúdíó á Sýn.
15.50 HM í fótbolta á Sýn. Bein
útsending frá leik Englands og
Paragvæ í B-riðli.
18.00 HM stúdíó á Sýn.
18.50 HM í fótbolta á Sýn. Bein
útsending frá leik Trinidad og
Svíþjóðar í B-riðli.
21.00 4-4-2 á Sýn. HM-uppgjör
dagsins.
22.00 Landsbankadeildarmörkin
á Sýn. Mörk kvöldsins sýnd.
A-riðill:
ÞÝSKALAND-PÓLLAND 1-0
1-0 Oliver Neuville (90.).
H-riðill:
SPÁNN-ÚKRAÍNA 4-0
1-0 Xabi Alonso (13.), 2-0 David Villa (17.), 3-0
David Villa (víti, 48.), Fernando Torres (81.).
TÚNIS-SÁDI-ARABÍA 2-2
1-0 Ziad Jaziri (23.), 1-1 Al Kahtani (57.), 1-2 Sami
Al Jaber (84.), 2-2 Rhadi Jaidi (90+1.).
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Í kvöld klárast sjöunda
umferð Landsbankadeildar karla
með fjórum leikjum. Umferðin
hófst á mánudagskvöldið þegar
Fylkir vann Keflavík 2-1 en þeim
leik var flýtt vegna þátttöku Kefl-
víkinga í Evrópukeppninni. Ólafur
Kristjánsson, fyrrverandi þjálfari
Fram, spáði í leiki kvöldsins fyrir
Fréttablaðið og býst hann við
heimasigri í þremur af leikjunum
fjórum.
Íslandsmeistarar FH eru með
góða forystu í deildinni en þeir
taka á móti ÍBV í Kaplakrikanum.
„Eyjamenn koma af krafti en það
dugar ekki til. ÍBV hefur fínt tak á
KR-ingum í Vestmannaeyjum en
það er allt annað að leika gegn FH
í Kaplakrikanum. FH-ingar mæta
einbeittir eftir vonbrigðin í síðasta
leik og taka þetta,“ sagði Ólafur.
ÍA fékk loks sín fyrstu stig í
sumar gegn Keflavík í síðasta leik
sínum en Skagamenn fá Breiða-
blik í heimsókn. „Það var gott
fyrir Skagamenn að ná sigri gegn
Keflavík í síðasta leik og ég held
að þeir sigri Breiðablik. Í sögu-
legu samhengi hefur ÍA líka alltaf
haft yfirhöndina gegn Blikum á
Skaganum.“
Þess má geta að Skagamenn
unnu sinn stærsta sigur á Íslands-
móti þegar þeir unnu Breiðablik
10-1 árið 1973. Þá skoraði Teitur
Þórðarson sex mörk fyrir ÍA en
Teitur mun í kvöld stýra læri-
sveinum sínum í KR gegn Víkingi.
„Víkingsliðið inniheldur nokkra
gamla KR-inga og því er þessi
leikur athyglisverður. Fyrst leik-
urinn er vestur í bæ held ég að KR
vinni þann leik, heimavöllurinn
ræður úrslitum,“ sagði Ólafur.
Viðureign Grindavíkur og Vals
reyndist Ólafi erfið og gaf hann
sér góðan tíma í að spá fyrir hana.
„Þetta er snúinn leikur. Ég sá
Grindvíkinga keppa við Víking um
daginn og það var ekki gott. Vals-
menn tóku Fylki örugglega en þeir
ná ekki sigri gegn jafntefliskóng-
unum í Grindavík og liðin skipta
milli sín stigunum,“ sagði Ólafur.
- egm
Ólafur Kristjánsson spáir í leiki dagsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu:
Heimavöllurinn mun ráða úrslitum í Vesturbænum
SIGRA Í KVÖLD Ólafur Kristjánsson spáir því að KR nái sigri á heimavelli í kvöld. Rógvi
Jacobsen fagnar hér marki gegn Breiðabliki fyrir skemmstu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Radhi Jaidi, leikmaður
Bolton, bjargaði stigi fyrir Túnis
sem gerði 2-2 jafntefli gegn Sádi-
Arabíu í gær. Þegar tvær mínútur
voru komnar fram yfir venjulegan
leiktíma skoraði hann með skalla
en varnarmenn mótherjanna sváfu
illa á verðinum. Liðin skiptu því
stigunum á milli sín í H-riðlinum.
Zaid Jaziri skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Túnis en það var
Yasser Al Kahtani sem jafnaði
metin með snyrtilegu marki þegar
rúmar tíu mínútur voru liðnar af
stórskemmtilegum seinni hálfleik.
Sádar héldu síðan að þeir hefðu
tryggt sér sigurinn þegar vara-
maðurinn Sami Al Jaber skoraði
sex mínútum fyrir leikslok en svo
var aldeilis ekki.
„Það er svekkjandi að hafa
fengið þetta mark á sig í viðbótar-
tímanum. Þetta eru þó engin enda-
lok því stig er alltaf stig og von-
andi náum við að leggja Úkraínu í
næsta leik,“ sagði Al Jaber, marka-
hæsti leikmaður Sádi-Arabíu frá
upphafi, sem byrjaði á bekknum í
leiknum þar sem hann hefur verið
að glíma við meiðsli. Túnis olli
nokkrum vonbrigðum í leiknum í
gær en liðið saknaði sinnar skær-
ustu stjörnu, Dos Santos, sem á
við meiðsli að stríða. - egm
Jafnt hjá Túnis og Sádi-Arabíu:
Túnis jafnaði í
viðbótartíma
JAFNTEFLI Leikurinn var ansi fjörlegur.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Það verður dómaratríó
frá Danmörku á leik kvennalands-
liða Íslands og Portúgals næsta
sunnudag. Leikurinn er hundrað-
asti A-landsleikur Íslands í
kvennaflokki. Dómarinn heitir
Marianne Svendsen en eftirlits-
maður á leiknum er Sheila Begbie
frá Skotlandi, sem var einmitt í
skoska landsliðinu sem lék gegn
Íslandi í fyrsta A-landsleiknum
fyrir 25 árum.
Ísland-Portúgal á sunnudag:
Danskt tríó í
Laugardalnum