Fréttablaðið - 15.06.2006, Qupperneq 86
15. júní 2006 FIMMTUDAGUR62
Föstudagstónleikar
Á föstudag mun hljómsveitin Todmobile
halda tónleika á Nasa og Jet Black Joe
spilar á Gauki á Stöng. Þeir sem hafa
ekki gaman af útitónleikum geta því
fengið sinn tónleika-
skammt á 16. júní.
Tónleikar á
Arnarhóli
Á 17. júní
munu Nylon,
Ampop, Á
móti sól og Dr.
Spock meðal ann-
arra koma fram
á tónleikunum
á Arnarhóli sem
hefjast kl. 18.00
og lýkur 22.00.
Bíó
Geimverumyndin Slither
kemur í kvikmyndahúsin
á föstudag. Þeir sem vilja
meira léttmeti gætu haft
gaman af mynd-
inni Take
the Lead
þar sem
Antonio
Band-
eras
tekur
nokkur
dansspor.
Thorsplan
Í Hafnarfirði verða
tónleikar og skemmtun
á Thorsplani á 17. júní
frá 20.00 til 24.30.
Helga Braga, Love Guru, Björgvin Franz
og Nylon eru meðal þeirra sem ætla að
skemmta þjóðhátíðargestum.
Landsleikur í handbolta
Ef veðrið er leiðinlegt er kjörið að fagna
17. júní með því að horfa á landsleik
Íslands og Svíþjóðar á laugardag.
Leikurinn hefst kl. 17.15 og má búast við
æsispennandi leik miðað við fyrri leik
liðana.
Kósí sunnudagur
Eftir hátíðahöldin á 17. júní er ágætt að
slappa vel af á sunnudag, sérstaklega
ef veðrið er landanum ekki hliðhollt.
Fréttablaðið mælir með eplakökunni í
blaðinu í dag og heitu kakói með.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Nýr humar, grillpinnar
sólþurrkaður saltfiskur
opið alla laugardaga 11-14
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
Sími: 565-5566R
e
yk
ja
ví
ku
rv
e
g
u
r
6
4
,
H
af
n
ar
fj
ö
rð
u
r.
E
k
k
i
d
ó
n
a
le
g
u
r…
LÁRÉTT 2 mett 6 klaki 8 sæ 9 fugl
11 bardagi 12 vondur 14 fást við
16 í röð 17 æðri vera 18 utan 20
guð 21 faðmlag.
LÓÐRÉTT 1 smáfiskur 3 mann-
þyrping 4 áræðinn 5 leikföng 7
fíkinn 10 fæða 13 sarg 15 megin
16 töf 19 á líðandi stundu.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 södd, 6 ís, 8 sjó, 9 lóa, 11
at, 12 illur, 14 garfa, 16 hi, 17 guð,
18 inn, 20 ra, 21 knús.
LÓÐRÉTT: 1 síli, 3 ös, 4 djarfur, 5
dót, 7 sólginn, 10 ala, 13 urg, 15
aðal, 16 hik, 19 nú.
HRÓSIÐ
...fær Eiður Smári fyrir að ganga í
raðir besta knattspyrnuliðsins í
Evrópu.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Hanna Birna Kristjánsdóttir.
2 Barcelona.
3 Modern Times.
„Ég ætlaði ekki að taka þetta verk-
efni að mér því ég hef merkilegt
nokk verið duglegur við að segja
nei við auglýsingum. Svo fannst
syni mínum, sem er átta ára, það
vera hræðilegt að sleppa þessu
þannig að ég gat ekki sagt nei.
Hann uppskar líka treyju Heiðars
Helgusonar sem allir landsliðs-
mennirnir árituðu,“ segir leikar-
inn Ari Matthíasson, sem fer á
kostum í nýrri auglýsingu Ice-
landair. Í auglýsingunni fer Ari
með hlutverk fótboltaáhugamanns
sem heima í stofu lætur sig
dreyma um að hann sé ein af hetj-
unum sínum, sjálfum landsliðs-
mönnum Íslands í knattspyrnu.
Óhætt er að fullyrða að auglýsing-
in hafi vakið mikla athygli enda er
hún sýnd grimmt meðan á HM í
knattspyrnu stendur.
Ari er einn af þekktari leikur-
um þjóðarinnar en hann starfar þó
ekki sem slíkur í dag. Hann hóf
störf sem framkvæmdastjóri hjá
SÁÁ fyrir þremur mánuðum. „Ég
reif mig upp úr leiklistinni og fór í
MBA-nám við Háskólann í Reykja-
vík. Þetta er hefðbundin stjórnun-
arstaða hjá SÁÁ, fullt starf svo
maður hleypur ekki mikið frá,“
segir Ari, sem er greinilega þegar
kominn vel inn í málin og upplýsir
blaðamann um ágæti þess starfs
sem SÁÁ vinnur: „Við gerðum
könnun um daginn þar sem þrjú
þúsund svör fengust. Í ljós kom að
86 prósent svarenda þekktu ein-
hvern sem á við áfengis- eða vímu-
efnavanda að stríða. Það er því
ekki seinna vænna fyrir ríkið að
hysja upp um sig brækurnar
og endurnýja þjónustusamn-
inginn við SÁÁ sem er runn-
inn út. Annars er mikil
hætta á því að meðferðin
sem í boði er verði ekki
jafn góð og
örugg.“
Icelandair-auglýsingin var tekin
upp á æfingasvæði knatt-
spyrnufélagsins QPR í Lond-
on. Ari segir að það hafi
verið mjög gaman að eyða
heilum degi með lands-
liðsmönnun-
um.
Hann viðurkennir líka fúslega að
hann hafi ekki þurft að hafa allt of
mikið fyrir leik sínum: „Já, þessi
gæi er nokkuð nálægt mér. Maður
hugsar stundum um það að ef aðrir
hlutir hefðu ekki farið að glepja
mann í menntaskóla væri maður
kannski einn af þessum drengjum.
Þá væri maður kannski með dem-
antslokk í eyrunum,“ segir Ari
hlæjandi. Ari æfði fótbolta með
KR á sínum yngri árum og situr nú
í stjórn KR-sports. Ari er að lokum
spurður hvort hann hafi virkilega
getað eitthvað í fótbolta þegar
hann var ungur. „Mér fannst það.
Við skulum svo bara setja punkt-
inn þar. Nei, nei, Ég var alla vega
ekkert svo lélegur.“
hdm@frettabladid.is
ARI MATTHÍASSON: SLÆR Í GEGN Í NÝRRI AUGLÝSINGU ICELANDAIR
Er ekkert lélegur í fótbolta
FRÁBÆR AUGLÝSING Ari Matthíasson í hlutverki sínu með íslenska landsliðinu í fótbolta.
ARI MATTHÍASSON Þykir fara á kostum sem fótboltaáhugamaður í nýrri auglýsingu Ice-
landair. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTIR AF FÓLKI
Mikil leynd hvílir yfir því hvaða unga leikkona verði í hlutverki
fjallkonunnar á hátíðarhöldunum
vegna 17. júní. Venja er að því sé haldið
leyndu hver fjallkonan verður og þannig
er málum einnig háttað nú. Sú unga
leikkona sem hefur verið mest áberandi
á árinu er án alls efa Ágústa Eva
Erlendsdóttir, sem farið hefur mikinn í
hlutverki Silvíu Nætur.
Ágústa mun þó ekki
vera fjallkonan í ár.
Benóný Ægisson hjá
Hinu húsinu staðfesti
við Fréttablaðið að
hvorki Ágústa Eva
né Silvía Nótt
kæmu fram á
17. júní hátíð-
arhöld-
unum í
Reykjavík.
Í fyrra var Þrúður Vilhjálmsdóttir í hlutverki fjallkonunnar og árið áður
var það Brynhildur Guðjónsdóttir.
Þar á undan stigu Inga María Valde-
marsdóttir og Nína Dögg Filippus-
dóttir á stokk. Margir spá því að Elma
Lísa Gunnarsdóttir komi sterklega til
greina þetta árið. Fjölmargar leikkon-
ur af hennar kynslóð, ef horft er til
útskriftarárganga
úr Leiklistarskól-
anum, hafa verið
fjallkonur og það
gæti verið góður
kostur fyrir Benóný
og félaga að fá Elmu
til verksins. Það
myndi að líkindum
marka endalok
hennar kynslóðar
í hlutverki fjall-
konunnar.
Benóný og hans fólk gætu þó vel ákveðið að þegar væri kominn tími
á kynslóðaskipti. Þá er til þess að horfa
að óvenjumargar leikkonur á aldrinum
25-30 ára hafa gert sig gildandi síðustu
ár. Þar á meðal má nefna Ilmi Kristj-
ánsdóttur, Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur,
Maríönnu Clöru Lúthersdóttur og nú
síðast Höllu Vilhjálmsdóttur. Aðrar
sem nefndar hafa verið til sögunnar eru
Esther Talía Casey,
Sólveig Guðmunds-
dóttir og Unnur
Ösp Stefánsdótt-
ir. Flestir veðja þó
á að þetta árið sé
Álfrún Örnólfs-
dóttir líklegust
til að verða
í hlutverki
fjallkon-
unnar á
laugardag-
inn. - hdm
„Þetta eru náttúrlega enn þann dag
í dag skemmtilegustu menn þjóð-
arinnar. Ef hægt væri að líkja þeim
við einhverja þá væru það bara
Frank Sinatra, Dean Martin og
Sammy Davis jr. Það er þess vegna
bara heiður fyrir okkur ef við
færum að vinna saman,“ segir
Einar Bárðarson hjá Concert þegar
hann er spurður um þrálátan orð-
róm þess efnis að Sumargleðin ætli
sér að koma aftur saman í sumar.
Þekktustu nöfn Sumargleðinnar
eru þeir Hemmi Gunn, Þorgeir
Ástvalds og Raggi Bjarna og þeir
hafa fundað með Einari um þetta
mál. „Við höfum átt nokkra fundi
og á milli hláturskastanna hefur
Sumargleðin komið til tals á þeim
fundum. Meira get ég ekki sagt um
málið enda ekkert enn verið ákveð-
ið í þeim efnum,“ segir Einar.
Auk þeirra sem áður voru
nefndir komu fjölmargir við sögu
hjá Sumargleðinni þegar hún var
upp á sitt besta á áttunda og níunda
áratugnum. Þar má meðal annarra
nefna Ómar Ragnarsson og Bessa
heitinn Bjarnason. Yfir tuttugu ár
eru síðan Sumargleðin fór síðast
um landið en Einar telur ólíklegt
að þessar kempur hafi nokkru
gleymt. Fari svo að Sumargleðin
verði endurvakin má líklegt telja
að það verði gert í kringum versl-
unarmannahelgina. - hdm
Sumargleðin saman aftur?
SUMARGLEÐIN ‘82 Eitt af fjölmörgum góðum árum Sumargleðinnar. Þarna má meðal
annarra greina Ragnar Bjarnason, Ómar Ragnarsson og Þorgeir Ástvaldsson.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
Helgin okkar...