Fréttablaðið - 17.06.2006, Side 8
8 17. júní 2006 LAUGARDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
1 Hvað heitir nýr iðnaðar- og við-skiptaráðherra?
2 Hver verður söngvari Stuðmanna í sumar?
3 Með hvaða liði lék Sinisa Kekic?
SVÖR Á BLS. 54
ELDSVOÐI Töluverður eldur kom
upp við olíubirgðastöð Olís við
Hafnargötu á Akranesi á tíunda
tímanum í fyrrakvöld, við stóran
tank er innihélt tvö til þrjú hundr-
uð lítra af tjöruhreinsi.
Að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar á Akranesi skapaðist mikið
hættuástand vegna nálægðar elds-
ins við ýmis eldfim efni sem
geymd eru á svæðinu.
Lögreglan telur líklegt að um
íkveikju hafi verið að ræða og
liggja nokkrir undir grun. - æþe
Eldur við Akraneshöfn:
Íkveikja olli
hættuástandi
Landsmót á Vindheimamelum í Skagafirði 26. júní – 2. júlí
Fjölskylduhátíð hestamanna
– takið vikuna frá
26. JÚNÍ – 2. JÚLÍ 2006
VINDHEIMAMELUM
www.landsmot.is
Landsmót er stærsta mót í heimi þar sem íslenskir hestar koma saman.
Komdu og sjáðu öll bestu hross landsins í fjölbreyttri gæðingakeppni, tölti,
kappreiðum og kynbótasýningum.
Farðu á www.landsmot.is og fáðu nánari upplýsingar
um Landsmót hestamanna, einstakan viðburð
og fjölskylduskemmtun.
Í S
L E
N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A
S T
O
F A
N
/ S
I A
. I
S
H
E S
3
2 8
9 1
0 6
/ 2
0 0
6
Frábær aðstaða
Bestu hestar og knapar landsins
Helstu dagskrárliðir á aðalvelli
1.600 manna áhorfendastúka
Fjölbreytt skemmtiatriði og dansleikir
Miðaverð á LM 2006:
Forsala: Selt í hliði:
Vikupassi 9.000 kr. 10.000 kr.
Helgarpassi (lau.-sun.) 7.500 kr. 8.000 kr.
Unglingar (13-16 ára) 2.500 kr. 3.000 kr.
(gildir alla vikuna)
Dagsmiðar (mán.-fös.) 4.000 kr.
Stúkusæti 2.500 kr. 3.000 kr.
Forsala á völdum Esso-stöðvum
um land allt.
Yfirgefa heimili sín Um hálf milljón
manna hefur neyðst til að yfirgefa
heimili sín í norðausturhluta Indlands
seinustu daga vegna gífurlegra flóða.
Monsúnrigningar valda flóðunum og
talið er að þúsundir manna til viðbótar
sitji fastar vegna flóðanna.
INDLAND
68,3%
M
A
Í 2
00
6
JA
N
Ú
A
R
2
00
6
M
A
Í 2
00
6
JA
N
Ú
A
R
2
00
6
M
A
Í 2
00
6
JA
N
Ú
A
R
2
00
6
62,6% 54,3% 50,2% 32,9% 32,4%
8,8% fengu
Morgunblaðið frítt
í könnunarviku
FJÖLMIÐLAR Meðallestur á tölublað
eykst mest á Fréttablaðinu af dag-
blöðum, samkvæmt nýrri fjöl-
miðlakönnun IMG Gallup miðað
við seinustu könnun frá því í jan-
úar.
Rúmlega 68 prósent segjast
lesa Fréttablaðið, sem er 5,7 pró-
sentum meira en í janúar.
Morgunblaðið mælist nú með
rúmlega 54 prósent í meðallestri á
tölublað, sem er aukning um rúm
fimm prósent frá janúarkönnun-
inni. Í framkvæmdalýsingu könn-
unarinnar kemur fram að tæp níu
prósent höfðu frían aðgang að
Morgunblaðinu vikuna sem könn-
unin fór fram, sem þeir hafa ekki
undir venjulegum kringumstæð-
um. Í síðustu könnun var þetta
hlutfall fimm prósent og er því
aukning um tæp fjögur prósent.
Blaðið stendur nánast í stað
milli mælinga og mælist nú með
32,9 prósenta meðallestur á tölu-
blað, sem er aukning um 0,5 pró-
sent.
Þegar uppsafnaður lestur dag-
blaða yfir vikuna er mældur
kemur fram að 90 prósent lesa
Fréttablaðið, 79,1 prósent Morg-
unblaðið og 56,4 prósent Blaðið.
Fleiri konur en karlar lesa
Fréttablaðið og Morgunblaðið
meðan karlar eru í meirihluta les-
enda Blaðsins. Af lesendum
Fréttablaðsins eru 91,8 prósent
konur en 88,2 prósent karlar. Les-
endur Morgunblaðsins eru 80,4
prósent konur og 77,8 prósent
karlar og lesendur Blaðsins eru
58,4 prósent karlar á móti 54,4
prósentum kvenna.
Við samanburð á meðallestri á
tölublað í flokki tímarita er Birta,
tímarit Fréttablaðsins, með mestan
lestur. Í könnuninni nú mælist Birta
með 54,2 prósent, sem er 4,3 pró-
sentum meira en það tímarit sem
hefur næstmestan meðallestur.
Mælingin var gerð dagana 18.
til 24. maí. Endanlegt úrtak var
1.333 og svarhlutfall 46,4 prósent.
sdg@frettabladid.is
Fréttablaðið
bætir við sig
Mesta aukning á lestri tölublaða er hjá Fréttablað-
inu samkvæmt nýrri fjölmiðlakönnun IMG Gallup.
Birta, tímarit Fréttablaðsins, er mest lesna tímaritið.
UMHVERFISMÁL Framtíðarlandið,
félag áhugafólks um framtíð
Íslands, verður stofnað í hádeginu
í dag í Austurbæ. Félagið verður
þverpólitískt með fólk af öllum
sviðum atvinnulífsins sem ekki
styður stóriðjustefnu ríkisstjórn-
arinnar.
„Við ætlum að verða hugmynda-
veita og þrýstiafl sem styður
stjórnvöld til góðra verka. Ísland
liggur á teikniborðinu og ákvarð-
anir verða teknar á næstu mánuð-
um. Við viljum komast að teikni-
borðinu áður en möguleikar lands
og þjóðar verða þrengdir meira en
orðið er,“ segir María Ellingsen
leikkona.
Stofnfundur verður haldinn í
dag og verður strax byrjað á því að
safna liði. María
segir að félagarnir
muni svo vinna
markvisst í því að
koma hugmyndum
sínum á framfæri.
„Stjórnvöld
svara ekki kalli
fólksins og því þarf
öflug samtök um framtíðarmál til
að eftir því verði tekið. Við ætlum
að safna liði í sumar og koma sterk
inn í umræðuna með haustþing,“
segir hún og segir að framboð verði
skoðað ef nauðsyn krefji.
Þrjátíu manna hópur hefur hist
síðustu tvo mánuði til að undirbúa
stofnfundinn og hefur níu manna
bráðabirgðastjórn verið skipuð.
ghs@frettabladid.is
MARÍA ELLINGSEN
Áhugafólk um framtíð Íslands stofnar þrýstiafl í dag:
Ætla að safna liði í sumar
DÓMSMÁL Jónas Kristjánsson og
Mikael Torfason, fyrrverandi rit-
stjórar DV, voru í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær dæmdir til að
greiða Gunnari Hrafni Birgissyni
sálfræðingi 1,5 milljónir króna í
miskabætur vegna umfjöllunar
blaðsins um hann, auk 940 þúsund
króna í máls- og birtingarkostnað.
Jónas og Mikael voru sýknaðir af
refsikröfu stefnanda.
Upphaf málsins er umfjöllun
DV um Gunnar sem hófst í mars
2005 og var fram haldið í október
sama ár. Dómurinn dæmdi tíu til-
tekin ummæli í blaðinu ómerk, að
kröfu Gunnars Hrafns. Jónas og
Mikael sögðu fyrir dómi að öll
ummælin hefðu verið innan leyfi-
legra tjáningarmarka fjölmiðils
og studdar heimildum. Í dóms-
niðurstöðum segir: „Margsinnis
er klifað á ósönnuðum fullyrðing-
um um að stefnandi hafi fengið á
sig 150 klögumál. Endurtekin
framsetning ummælanna er til
þess fallin að fá lesendur blaðsins
til að trúa að um sannleika sé að
ræða. Þá er umfjöllunin í DV í
júní 2005 efnislega röng og sett
fram á sérstaklega meiðandi
hátt.“
Héraðsdómur sýknaði hins
vegar 365 prentmiðla ehf. af kröf-
um Gunnars Hrafns.
- jss
RITSTJÓRAR Jónas Kristjánsson og Mikael
Torfason, fyrrverandi ritstjórar DV.
Héraðsdómur felldi dóm í máli Gunnars Hrafns Birgissonar gegn DV:
Dæmdir til greiðslu miskabóta
BÍLASÝNING Lögreglan á Akureyri
hefur hert eftirlit með hraðakstri
í og við bæinn vegna sportbíla-
sýningar sem fara á þar fram
um helgina. Sportbíla af öllum
stærðum og gerðum tók að
streyma til bæjarins á fimmtu-
daginn með tilheyrandi
hraðakstri.
Sigurður Pétur Hjaltason lög-
reglumaður segir embættið
verða áþreifanlega vart við
komu sportbílaeigenda til bæj-
arins. Mikill hraðakstur sé
stundaður í bænum og menn séu
jafnvel að spyrna sín á milli
innan um almenna umferð. „Við
mældum einn á 105 kílómetra
hraða í bænum í gær og marga
aðra höfum við mælt á svipuðum
hraða sem við höfum ekki náð í
skottið á,“ segir Sigurður Pétur.
Tjaldstæði skáta við Þórunnar-
stræti er lokað núna um helgina
vegna sýningarinnar. Ásgeir
Hreiðarsson, framkvæmdastjóri
tjaldstæðanna á Akureyri, segir
að vegna biturrar reynslu og af
tillitssemi við nágranna svæðis-
ins hafi verið ákveðið að hafa
tjaldsvæðið lokað. „Hér hafa safn-
ast saman í gegnum tíðina um
sýningarhelgina helstu tryllitæki
landsins með tilheyrandi reyks-
póli og græjupumpi, sem passar
engan veginn inn í íbúðahverfi.“
Verðlaun verða veitt á sport-
bílasýningunni um helgina fyrir
öflugasta bílahljóðkerfið.
- æþe
Sportbílasýning á Akureyri laðar til sín fjölda fólks:
Lögreglan eltist við
ökumenn sportbíla
SKIPULAGSMÁL Fljótsdalshérað
hefur skilað frummatsskýrslu til
Skipulagsstofnunar vegna mats á
umhverfisáhrifum efnistöku við
Eyvindará á Fljótsdalshéraði.
Heildarflatarmál fyrirhugaðr-
ar efnistöku er 260.000 fermetrar
og gert ráð fyrir um 400.000 rúm-
metra efnistöku á næstu þrjátíu
árum. Efnisnám hefur farið fram
á svæðinu í nokkurn tíma en stefna
Fljótsdalshéraðs er að loka öllum
öðrum námum í sveitarfélaginu
sem ekki hafa framkvæmdar-
leyfi.
Allir geta kynnt sér tillöguna og
lagt fram athugasemdir til Skipu-
lagsstofnunar fram til 26. júlí. - sdg
Frummatsskýrslu skilað:
Ætla að loka
öllum námum