Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 43
15
FUNDIR
LAUGARDAGUR 17. júní 2006
ATVINNA
Meiraprófsbílstjóri óskast
AÐFÖNG óska eftir meiraprófsbílstjóra.
Viðkomandi þarf að hafa próf á vörubifreið með
eftirvagn. Unnið er á vöktum við útkeyrslu á
vörum í verslanir Haga.
Umsóknareyðublöð má fá í móttöku Aðfanga að
Skútuvogi 7, 104 Reykjavík.
einnig er hægt að sækja um á www.adfong.is
Upplýsingar gefur Ársæll í síma 693-5620
Tannlæknastofa
Hafnarfjörður
Tanntæknir / aðstoðarmanneskja óskast á tannlæknastofu
í Hafnarfirði. Um er að ræða framtíðarstarf, hálfan daginn,
kl. 13-17. Menntun / reynsla er æskileg, en ekki skilyrði.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf í ágúst. Umsóknir skulu
berast á tannlæknastofuna fyrir 19. júní.
Tannlæknastofan Reykjavíkurvegi 62, 220 Hafnarfjörður.
Einar Kristleifsson, tannlæknir.
Guðmundur Rúnar Ólafsson, tannlæknir.
Vélstjóri óskast
til afleysinga á togbát
Upplýsingar hjá
skipstjóra í síma 898-1103.
Aðalfundur
Félags landeigenda í Vaðnesi
Aðalfundur F.L.Í.V. árið 2006 verður haldinn að Borg í
Grímsnesi, laugardaginn 1. júlí 2006, kl. 14:00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá.
Aðalfundur Hitaveitu Vaðness verður haldinn eftir kaffihlé.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og ræða málefni
félagsins. Nýir félagar eru hjartanlega velkomnir.
Stjórn Félags landeigenda í Vaðnesi
Aðalfundur:
Aðalfundur Húsnæðissamvinnufélagsins Búseta á
Akureyri verður haldinn í samkomsalnum í Alþýðu-
húsinu Skipagötu 14, 4. hæð, fimmtudaginn 29. júní
2006 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórn Búseta hsf. á Akureyri.
IKEA Holtagörðum, 104 Reykjavík
Sími: 520 2500 │Netfang: ikea@ikea.is│Vefsíða: www.IKEA.is
Viltu vera í okkar liði?
IKEA er ein stærsta húsgagnakeðja í heiminum og rekur 235 verslanir í 34 löndum. Síðan IKEA var stofnað í Svíþjóð
árið 1943 hefur fyrirtækið mótað árangursríka hugmyndafræði sem grundvallast á tengslum við sænskan uppruna
IKEA og hugsjónir stofnandans, Ingvar Kamprad. Í dag er IKEA vörumerkið eitt af stærstu og þekktustu vörumerkjum
á heimsvísu.
Hugmyndafræði IKEA er að gera daglegt líf fólks þægilegra. Það er gert með því að bjóða upp á breitt úrval af vel
hönnuðum og hagnýtum húsbúnaði á svo lágu verði að allir hafi efni á að kaupa hann.
IKEA á Íslandi hefur starfað frá árinu 1981 og vaxið síðan þá í að vera ein stærsta húsgagnaverslun á landinu.
Fyrirtækið er enn að vaxa og í haust flytjum við í nýtt og stærra húsnæði við Urriðaholt í Garðabæ. Þess vegna
þurfum við að bæta við okkur starfsfólki í framtíðarstörf.
Hjá IKEA vinna nú yfir 200 manns í fjölbreyttum störfum og býður fyrirtækið upp á starfsumhverfi fyrir skapandi fólk,
þar sem möguleiki er til að þróast og vaxa. Hvort sem unnið er sjálfstætt eða saman, þá er tekist á við ábyrgð og
starfsfólki gefið tækifæri á að vaxa með IKEA í góðu starfsumhverfi.
Umsóknum skal skila á þar til gerðu umsóknareyðublaði á vefsíðu, á netfangið magnus@ikea.is eða á þjónustuborð
IKEA. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 18 ára. Sé sótt um ákveðið starf skal tilgreina það í umsókninni.
Nánari upplýsingar veita Magnús Auðunsson í starfsmannahaldi og Róbert Valtýsson, starfsmannastjóri IKEA.
Fjölbreytt störf í boði og sveigjanlegur vinnutími:
• Sölufulltrúar í Smávörudeild/Húsgagnadeild
starfið felst meðal annars í ráðgjöf, almennri sölu og
aðstoð við viðskiptavini
• Ræstingafólk
starfið felst meðal annars í þrifum í verslun og
skrifstofum, vaktavinna
• Umsjón barna í Smálandi
starfið felst meðal annars í umsjón, skráningu
og móttöku barna ásamt eftirliti og gæslu,
aðeins 25 ára og eldri koma til greina
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
34-43 Smáar 16.6.2006 15:43 Page 11