Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 16
 17. júní 2006 LAUGARDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 N† VÖRU- OG fiJÓNUSTU- SKRÁ Á VISIR.IS/ALLT ... sem flig vantar í n‡ja húsnæ›i› Mest lesna viðskiptablaðið AUGLÝSINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLAÐINU ALLA MIÐVIKUDAGA Sa m kv æ m t fj ö lm ið la kö n n u n G al lu p o kt ó b er 2 00 5. Samkvæmt þjóðskrá eru Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur ennþá til þótt stjórnmálaflokkarnir sem gegndu þessum nöfnum séu löngu horfnir yfir móðuna miklu. Þessar gamalgrónu alþýðuhreyfingar hafa umbreyst í eignarhaldsfélög sem stofnuð voru utan um eignir og skuldir flokkanna sálugu til þess að Samfylkingin gæti hafið ævi sína óspjölluð í fjármálum. Það getur hent bestu flokka að daga uppi og verða að eignarhalds- félagi. Á hinn bóginn er það nýjung að flokkur umbreyti sér í eignar- haldsfélag samhliða því að hann heldur stjórnmálastarfi áfram, tekur þátt í kosningum, á fulltrúa á þingi og jafnvel í ríkisstjórn líka. En sú þróun virðist eiga sér stað þessa dagana varðandi Framsókn- arflokkinn. Flokkurinn sem eitt sinn hét þessu nafni virðist vera að gufa upp, en í staðinn er komið eignarhaldsfélagið Exbé, sem snýst ekki um stjórnmálastarf heldur hagsmunagæslu fyrir eign- ir og ítök flokksins. Þessu til sönnunar er tilhlýði- legt að nefna nokkur dæmi og byrja á þeim einföldustu. Í fyrsta lagi er stjórnmálaflokkur banda- lag fólks sem deilir sameiginleg- um hugsjónum eða í það minnsta skoðunum. Það liggur því í hlutar- ins eðli að stjórnmálaflokkar manna stöður og þingsæti með fólki sem hefur tekið virkan þátt í starfi flokksins, en ekki aðkeyptu vinnuafli utan úr bæ. Öðru máli gegnir um eignarhaldsfélagið Exbé. Það er eins og hvert annað knattspyrnufélag sem getur feng- ið til liðs við sig leikmenn úr öðrum liðum (t.d. Hjálmar Árna- son eða Kristinn H. Gunnarsson) eða efnilega unga leikmenn úr utandeildarfélögum (t.d. Björn Inga Hrafnsson eða Steingrím S. Ólafsson). Í öðru lagi er það eðli stjórn- málaflokka að ákveðin festa ríkir í hugsjónum þeirra, jafnvel þegar þeir bregðast við nýjum aðstæð- um. Öðru máli gegnir um eignar- haldsfélög sem geta ákveðið að selja öll hlutabréf sín í tilteknum bissness og fjárfesta í einhverju allt öðru. Áratugum saman var Framsóknarflokkurinn til dæmis þjóðlegur flokkur sem stóð dyggan vörð um íslenskan landbúnað. Einnig var til flokkur sem vildi ganga í Evrópusambandið og hafa álver í hverjum firði. Það var Alþýðuflokkur Jóns Baldvins Hannibalssonar og Jóns Sigurðs- sonar. Eignarhaldsfélagið Exbé hikar ekki við að varpa 90 ára arf- leifð Framsóknarflokksins fyrir róða og leggur nú allt kapp á að sölsa undir sig reytur gamla Alþýðuflokksins. Jafnframt van- rækir það sín hefðbundnu for- gangsmál sem eru falin lítt metn- um einstaklingum innan flokksins, mönnum eins og Guðna Ágústs- syni, sem ekki hefur til þess verið treyst fyrir öðru en landbúnaðar- ráðuneytinu. Skýrasta dæmið um það hvernig Framsóknarflokkurinn hefur umbreyst og er nú orðinn að eignarhaldsfélagi er þó það sem gerðist þegar formaður flokksins, Halldór Ásgrímsson, ákvað að víkja úr sæti. Í stjórnmálaflokki myndi umræðan um arftaka Hall- dórs þegar í stað hafa beinst að því hver ætti mest pólitískt bak- land. Er það Guðni sem talsmaður hefðbundinna dreifbýlissjónar- miða eða vill unga fólkið á mölinni kannski fremur veðja á Siv? Hverjum gekk best í seinustu kosningum, hver hefur mestan styrk í sínu kjördæmi o.s.frv.? Í eignarhaldsfélaginu Exbé gerðist ekkert slíkt. Þess í stað er leitað til hluthafanna, mannanna sem reka digra sjóði flokksins. Fyrsti val- kostur Halldórs var sjálfur kjöl- festufjárfestir eignarhaldsfélags- ins, Finnur Ingólfsson. Af einhverjum ástæðum fékkst Finn- ur ekki til þess, en þá var leitað til Jóns Sigurðssonar seðlabanka- stjóra, manns sem aldrei hefur setið á þingi og á sér þar af leið- andi ekkert pólitískt bakland. Í hópi hluthafa eignarhaldsfélags- ins Exbé er hann hins vegar lykil- maður. Eins og hann hefur sjálfur verið óragur við að benda á, þá hefur hann iðulega tekið að sér mikilvæg verkefni í helminga- skiptum eignarhaldsfélagsins við aðrar valdaklíkur, mannað hina og þessa bitlinga sem flokknum hafa stoðið til boða. Val á slíkum manni sem ráðherra hlýtur að vekja furðu þeirra sem líta ennþá á Exbé sem stjórnmálaflokk. Það er hins vegar fullkomlega rökrétt ef við horfumst í augu við það að Exbé er ekki flokkur heldur bandalag um eignir og hagsmuni. Þannig verður líka framganga oddvita Exbé-listans í Reykjavík skiljanlegri, mannsins sem sat sallarólegur við hlið nýs borgar- stjóra nú á dögunum og hlustaði á hann skammast út í fyrrverandi meirihluta sem þó sat einnig í skjóli eignarhaldsfélagsins. Eignar- haldsfélagið Exbé er einfaldlega búið að selja hlutabréf sín í félags- hyggjunni og hefur þess í stað fjárfest í mislægum gatnamótum og einkavæðingu almannaþjónust- unnar. Með því er hann ekki að svíkja neina stefnu. Eignarhalds- félög hafa nefnilega ekki aðra stefnu en þá að hámarka gróða fjárfestanna. Eignarhaldsfélagið Exbé Í DAG FRAMSÓKNAR- FLOKKURINN SVERRIR JAKOBSSON Framsóknarflokkurinn virðist vera að gufa upp, en í staðinn er komið eignarhaldsfélagið Exbé, sem snýst ekki um stjórnmálastarf heldur hags- munagæslu fyrir eignir og ítök flokksins. Þjóðhátíðardagur Íslendinga er í dag og hann er hátíðlegur haldinn um land allt í tilefni af lýðveldisstofnuninni á Þing-völlum árið 1944. Lýðveldið íslenska er því ungt að árum, miðað við mörg önnur ríki, og það er kannski þess vegna sem við skiljum betur en margar aðrar þjóðir hvað í því felst að hljóta fullkomið sjálfstæði. Við skiljum betur aðrar þjóðir í sjálfstæðis- baráttu þeirra eins og dæmin sanna og er þar ekki síst að minn- ast baráttu Eystrasaltsríkjanna fyrir sjálfstæði sínu. Á dögun- um sýndum við líka hug okkar í verki til þess lands sem síðast hlaut sjálfstæði - Svartfjallalands. Íbúar þess hafa háð áralanga baráttu fyrir sjálfstæði sínu og eru þeir síðustu í fyrrum Júgó- slavíu til að hljóta sjálfstæði. Viðurkenning okkar á sjálfstæði Svartfellinga hefur vakið verðuga athygli þar í landi og nú er það okkar að fylgja viðurkenningunni eftir og rækta sambandið við þetta nýlýðfrjálsa land. En það er ekki aðeins hér á landi sem Íslendingar halda upp á þjóðhátíðardaginn, því víða erlendis þar sem Íslendingar búa er þetta einn mesti sameiginlegi hátíðisdagur þeirra. Hans er þá minnst með ýmsum hætti á sjálfan þjóðhátíðardaginn eða næsta frídag á eftir. Íslendingar koma þá saman með íslenska fána og treysta böndin hver við annan. Íslensk sendiráð eru þá gjarnan opin fyrir gestum og gangandi og þangað koma framámenn við- komandi landa, bæði úr opinbera geiranum og svo líka þeir sem eiga samskipti við Ísland og Íslendinga á sviði viðskipta og menn- ingar. Þá koma oft hingað til lands í tengslum við þjóðhátíðardag- inn sendimenn erlendra ríkja sem ekki hafa fasta búsetu hér. Allt þetta minnir á okkur og tilveru þessa 300 þúsund manna sjálf- stæða ríkis með eigið tungumál sem á síðustu misserum hefur látið æ meira að sér kveða á erlendum vettvangi. Tilvera okkar vekur sífellt meiri athygli á alþjóðavettvangi og fleiri og fleiri beina sjónum sínum að okkur. Þetta á að hvetja okkur til þess að halda fast í það sem íslenskt er og varðveita eftir mætti, ekki aðeins tungumálið, sem er eitt af því dýrmætasta sem við eigum, heldur þjóðarauðinn og ekki síst náttúruna sem við búum við. Þjóðhátíðardagurinn á að verða til þess að við hugum að upp- runa okkar og rótum og við eigum að minna ungu kynslóðina á lýðveldisstofnunina, því senn fer að fenna í spor þeirra sem upp- lifðu hana rigningardaginn á Þingvöllum árið 1944. Þá voru við- sjár í heiminum. Bandaríkjamenn höfðu komið auga á mikil- væga landfræðilega stöðu landsins og voru fljótir til að viðurkenna sjálfstæði okkar. Allt fram á þennan dag hafa verið sterk bönd á milli þessara tveggja þjóða, en nú bendir ýmislegt til þess að eitthvað slakni á þeim böndum vegna þess að sam- band þeirra verður ekki eins náið og áður, ef fram fer sem horf- ir varðandi varnarsamstarfið. Það verða nýir fulltrúar sem minnast þjóðhetjunnar Jóns Sig- urðssonar í höfuðborginni í dag, þegar nýkjörinn forseti borgar- stjórnar leggur blómsveig á leiði hans í kirkjugarðinum við Suðurgötu og nýorðinn forsætisráðherra flytur ávarp við hátíðar- höldin á Austurvelli. Þannig verður það líka víðar á landinu, þar sem nýir valdhafar hafa tekið við eftir sveitarstjórnarkosning- arnar í síðsta mánuði. Allir þessir valdhafar ættu að hafa í huga það sem sagt hefur verið um Jón Sigurðsson sem fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð fyrir 195 árum, en það er að hann hafi verið alinn upp við iðjusemi, nákvæmni og hirðusemi og kennt að bjarga sér sjálfur. Þetta er maðurinn sem með réttu hefur verið nefndur: „Óskabarn Íslands, sómi þess, sverð og skjöld- ur.“ Okkur ber skylda til að halda minningu hans á lofti, ekki síst með því að hlúa að fæðingarstað hans og hvetja til uppfræðslu um hann - störf hans og stefnu. Þetta eigum við að hafa í huga á þjóðhátíðardaginn, því hann er miklu meira en fánar og blöðrur. SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON 17. júní Flokksbindin Ráðherrar mættu auðvitað í sínu fínasta pússi á ríkisráðsfundinn á fimmtudag- inn. Það hefur löngum verið venja að stjórnmálamenn klæðist litum sinna flokka eins og þekkist hjá klíkum víða um heim. Valgerður Sverrisdóttir bar af í flottri grænni dragt og var auðvitað glæsileg. Magnús Stefánsson og Jón Sigurðsson voru með fagurgræn bindi. Þá mátti sjá Sturlu Böðvarsson, Árna M. Mathiesen, Geir H. Haarde og Björn Bjarnason með blá bindi. Svo virðist sem aðrir ráðherrar hafi ekki klætt sig sérstaklega í litum sinna flokka við þetta tilefni. Jómfrúarræðan Fimm ráðherrar mættu til starfa í nýjum ráðuneytum í gær. Heilsuðu þeir upp á nánasta samstarfsfólk áður en haldið var á fyrsta ríkisstjórnarfundinn sem Geir H. Haarde stýrði. Í dag flytur hann sína fyrstu ræðu sem forsætisráðherra á Austurvelli í tilefni af þjóðhátíðardeg- inum. Verður án efa hlustað af athygli á ræðu Geirs með það fyrir augum að kortleggja áherslumál ríkisstjórnarinnar undir hans forsæti. Hann hefur þó ekki fengið mikinn tíma til að undirbúa ræð- una vegna anna síðustu daga. Á meðan nýrri ríkisstjórn var púslað saman komst skriður á kjaraviðræður með innkomu ríkisvaldsins. Í gærmorgun ræddi forsætisráðherra svo við framkvæmdastjóra Nató ásamt Valgerði Sverris- dóttur utanríkisráð- herra. Þetta eru líka tvö af hinum stóru viðfangsefnum nýrrar ríkisstjórnar. Aðstoðarmenn Kópavogsbúinn Jón Kristinn Snæhólm hefur verið nýjum borgarstjóra Reyk- víkinga, Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, til halds og trausts undanfarnar vikur. Fyrir kosningar var hann ráðinn á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins til að aðstoða Vil- hjálm í baráttunni. Hann var í kringum borgarstjórann þegar nýr meirihluti í Reykjavík var myndaður. Svo mátti sjá hann í sal borgarstjórnar á fyrsta fundinum á þriðju- daginn. Hefur þetta orðið til þess að margir reikna með að Jón Kristinn, sem hefur verið tíður gestur á Hrafna- þingi Ingva Hrafns Jónssonar á NFS, verði sérstakur aðstoðarmaður borgar- stjóra í Ráðhúsinu. bjorgvin@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.