Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 24
 17. júní 2006 LAUGARDAGUR24 timamot@frettabladid.is Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og sendu samúðarkveðjur við andlát elskulegrar eiginkonu og móður okkar, Margrétar Einarsdóttur Maddý, Barðastöðum 7. Af öllu hjarta þökkum við öllum þeim sem voru við útför hennar 9. júní sl. og kunnum við ykkur öllum bestu þakkir fyrir virðingu og yndislegt viðmót. Kærar kveðjur færum við starfsfólki og Kjartani Magnússyni lækni á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir ómetanlegan tíma og frábæra umönnun. Guð blessi ykkur öll. Jón Árnason Ásta Gunnarsdóttir Oddur Halldórsson Jóna Gunnarsdóttir Valdís Gunnarsdóttir Eyrún Gunnarsdóttir Trausti Kristjánsson Therese Grahn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þorleifur Jónsson (Bói) Vallarbarði 3, Hafnarfirði, andaðist 15. júní á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi. Útförin verður auglýst síðar. Jón Þorleifsson Sigrún Pálsdóttir Gunnar Árni Þorleifsson Theodóra Sif Pétursdóttir Sigurður Unnar Þorleifsson Ingibjörg Aðalsteinsdóttir Kolbrún Þorleifsdóttir Harry Samúel Herlufsen Símon Þorleifsson Dorthe Möller Thorleifsson Harpa Þorleifsdóttir Gestur Már Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Sautjándi júní er fyrir margar sakir merkilegur dagur. Áður en lýðveldið var stofnað var hann stundum valinn fyrir stór tímamót, eins og árið 1941 þegar Sveinn Björnsson var kjörinn ríkisstjóri Íslands. Sveinn tók þar við skyldum Danakonungs eftir að Dan- mörk hafði verið hertekin af Þjóðverj- um. „Embætti og verksvið ríkisstjóra var formlega eins og konungs með sömu skyldum og sama valdi,“ segir Helgi Skúli Kjartansson, prófessor við Kennaraháskóla Íslands. Hann segir að þó hafi orðið breyting á hlutverki þjóðhöfðingjans því Sveinn Björnsson hafi verið innlendur stjórnmálamaður sem beitti sér meira en konungur hefði nokkurn tíma gert. „Sérstaklega átti þetta við um stjórnarmyndanir, ekki bara myndaði hann einu utanþings- stjórn Íslandssögunnar heldur var hann miklu virkari leiðtogi við aðrar stjórnarmyndanir en konungur hafði verið áður.“ Sveinn Björnsson gegndi embætti ríkisstjóra í slétt þrjú ár og var kjörinn forseti lýðveldisins þennan sama dag árið 1944. Að sögn Helga urðu engar skyndilegar breytingar á stjórnun Sveins þegar hann skipti um embætti. „Hann þokaðist kannski í þá áttina að beita sér ekki jafn ákveðið gagnvart stjórnmálaforingjunum. En það gerð- ist ekkert sérstaklega við það að hann tók við forsetaembættinu.“ Helgi segir enga tilviljun hafa ráðið því að sautjándi júní var valinn fyrir ríkisstjórakjörið. „Afmælisdag- ur Jóns Sigurðssonar hafði áður verið valinn fyrir hátíðleg tilefni, til dæmis fyrir stofnun Háskóla Íslands árið 1911. Hann var ekki orðinn formlegur þjóðhátíðardagur, en í Reykjavík voru alltaf hátíðahöld, skrúðganga íþrótta- manna, íþróttamót, og stúdentar útskrifaðir frá Menntaskólanum. Árið 1941 var 17. júní síðasti starfsdagur Alþingis. Kjör ríkisstjóra fór fram á sérstökum hátíðarfundi að viðstödd- um boðsgestum, og síðan var athöfn við leiði Jóns Sigurðssonar áður en nýkjörinn ríkisstjóri sleit Alþingi.“ SAUTJÁNDI JÚNÍ: 65 ÁR FRÁ KJÖRI RÍKISSTJÓRA Ekki formleg þjóðhátíð SVEINN BJÖRNSSON RÍKISSTJÓRI ÁSAMT GÍSLA SVEINSSYNI, FORSETA ALÞINGIS Myndin er tekin að morgni 17. júní 1944, daginn sem þriggja ára ríkisstjóra- tímabili Sveins lauk og hann varð forseti lýðveldisins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR MYNDASAFNI MERKISATBURÐIR 1886 Afmælis Jóns Sigurðssonar er minnst í fyrsta sinn. 1911 Háskóli Íslands er settur. 1918 Loftskeytastöðin á Melun- um í Reykjavík er tekin í notkun. 1940 Háskólabyggingin við Suð- urgötu í Reykjavík er vígð. 1944 Stofnun íslenska lýðveld- isins er formlega lýst yfir á þingfundi á Lögbergi á Þingvöllum. 1980 Ísbjarnarblús, fyrsta plata Bubba, kemur út. 1994 Fimmtíu ára afmælis lýðveldisins er minnst á Þingvöllum. 2000 Þjóðhátíðarskjálftinn. Þetta var sterkasti skjálfti hér á landi í 88 ár. THOMAS KUHN (1922-1996) LÉST ÞENNAN DAG. „Bæði beint og óbeint hefur maður sem er orðinn vanur að finna upp linsur gengist undir byltingarkenndar breytingar á sjóninni.“ Bandaríski fræðimaðurinn Thomas Kuhn skrifaði mikið um heimspekina sem liggur að baki vísindunum. Aðaldansari rússneska Kirov-ball- ettsins, Rudolf Nureyev, braust úr öryggisgæslu rússneska sendiráðsins á flugvelli í París þennan dag árið 1961 og bað um hæli í Frakklandi. Hinn 23 ára dansari hljóp í gegnum öryggishlið og hrópaði, „ég vil vera frjáls“. Talið er að tveir rússneskir öryggis- verðir hafi komið á tal við Nureyev, sem var á leið til London á þessum tíma ásamt Kirov-balletthópnum. Þeir eiga að hafa sagt honum að hann ætti að fljúga aftur heim til Rússlands í stað þess að fylgja hópnum til Englands. Þegar þeir ætluðu að fylgja honum að vélinni lagði Nureyev á flótta. Honum var þegar í stað veitt bráða- birgðahæli og á innan við viku frá brotthlaupinu var hann kominn á samning í París. Hann sneri aldrei aftur til Rússlands heldur settist að á Vesturlöndum og varð heims- frægur. Hann er af mörgum álitinn besti karlballettdansari tuttugustu aldarinnar. Á áttunda áratugnum kom Nureyev fram í nokkrum kvikmyndum og árið 1983 var hann ráðinn stjórnandi Óperuballettsins í París. Nureyev lést í janúar 1993 úr alnæmistengdum sjúkdómi. Að eigin ósk var hann grafinn í rússneska kirkjugarðinum í nágrenni Parísar. ÞETTA GERÐIST: 17. JÚNÍ 1961 Rússneskur ballettdansari leitar hælis RUDOLF NUREYEV BÝFLUGAN LIFIR GÓÐU LÍFI Þessi bandaríska býfluga gerir sig líklega til að byrja góða máltíð í safaríku blómi. Stofnsystur hennar hérlendis eru ekki eins heppnar með tíðar- farið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Alþjóðadagur flóttamanna er haldinn um allan heim hinn 20. júní. Í dag, 17. júní, munu Rauði kross Íslands og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna halda sameiginlega upp á alþjóða- daginn. Þykir vel við hæfi að nota þjóðhátíðardaginn til að vekja athygli á mál- efnum flóttamanna og hælisleitenda hérlendis sem vegna stríðsátaka, ofsókna eða ofbeldis hafa neyðst til að yfirgefa heim- ili sín, fjölskyldu og ætt- jörð. Vilja Rauði krossinn og Flóttamannastofnun Sam- einuðu þjóðanna halda á lofti þeirri staðreynd að flóttamenn eru ekki aðeins fórnarlömb, heldur koma með mikinn mannauð og lífga upp á menningu þeirra landa þar sem þeir setjast að. Fulltrúi Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, Kristina Rodriguez, er stödd hér á landi í tilefni þess að dag- urinn er haldinn hátíðlegur hér í fyrsta sinn og mun hún kynna starfsemi stofn- unarinnar. Boðið verður upp á ljós- myndasýningu, leiki og fræðsluefni í sérstöku tjaldi í Mæðragarðinum í Lækjargötu milli klukkan 14 og 18 í dag. Flóttamenn á 17. júní ÚR FLÓTTAMANNABÚÐUM Í SÚDAN Um allan heim neyðist fólk til að yfir- gefa heimili sín, fjölskyldu og ættjörð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Í dag eru liðin tólf ár frá því að samningur um varnir gegn eyðimerkurmyndun var samþykktur. Markaði samningurinn tímamót í alþjóðlegri umhverfisvernd- arlöggjöf og er einn þriggja stórra samninga sem á rætur sínar að rekja til umhverfisráðstefnunnar í Ríó árið 1971. Samningurinn tók gildi hér á landi árið 1997. Eyðimerkurmyndun er vandamál sem er að finna um gjörvallan heim, ekki bara í þróunarlöndunum heldur einnig meðal annars í Norður-Ameríku og Eyja- álfu. Talið er að um fimmti hver jarðarbúi í að minnsta kosti 110 þjóðlöndum verði fyrir beinum áhrifum af stækkunum eyðimarka og að landsvæði á stærð við Íslands breytist í eyðimörk á hverju ári. Eyðimörkunum fylgir að jafnaði mikill vatnsskortur og er því mikið í húfi fyrir jarðarbúa að snúa þróuninni við. Í samningnum er lögð mikil áhersla á þjálfun og menntun fólksins sem býr þar sem eyðimerkur mynd- ast svo það geti tileinkað sér sjálfbæra nýtingu auðlinda. Þó er tekið fram að ekki náist árangur nema til komi sterkar stofnanir sem séu studdar af íbúunum. Heimild: www.land.is Eyðimerkur um allan heim EYÐIMÖRK Í JÓRDANÍU Eyðimerk- urmyndun er mikið vandamál í heiminum í dag. HELGI SKÚLI KJARTANSSON PRÓFESSOR Að sögn Helga var haldinn sérstakur hátíðarfundur til að kjósa Svein ríkisstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.