Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 66
17. júní 2006 LAUGARDAGUR50
11
36
.5
0
F a s t e i g n a f é l a g i ð S t o ð i r h f . e r s t æ r s t a f a s t e i g n a f é l a g l a n d s i n s m e ð u m 3 1 0 . 0 0 0 f e r m e t r a í s i n n i e i g u o g s é r h æ f i r s i g í ú t l e i g u f a s t e i g n a t i l t r a u s t r a l e i g u t a k a t i l l a n g s t í m a .
K r i n g l u n n i 4 - 1 2 1 0 3 R e y k j a v í k S í m i 5 7 5 - 9 0 0 0
Verslunarhúsnæði til leigu
Til leigu verslunarhúsnæði við hlið nýrrar Bónusverslunar að Ögurhvarfi 3 í Kópavogi, um 425 m2.
FÓTBOLTI Knattspyrnudeild FH
sendi frá sér yfirlýsingu vegna
kynþáttahaturs í garð Andrew
Mwesigwa, leikmanns ÍBV, í gær.
Yfirlýsinguna má lesa í heild inni
hér fyrir neðan.
„Í leik FH og ÍBV í Lands-
bankadeildinni í knattspyrnu, sem
fram fór í Kaplakrika þann 15.
júní, höguðu nokkrir stuðnings-
menn FH sér með þeim hætti að
ekki verður við unað. Skiptir þá
engu máli hversu margir þeir voru.
Stjórn Knattspyrnudeildar FH for-
dæmir orðbragð sem lýsir kyn-
þáttafordómum. Stjórnin vill
minna á að FH mun hvorki líða
slíkt orðbragð eða önnur ókvæðis-
orð sem kunna að falla um mót-
herja FH. Stjórnin mun funda með
þvi fólki sem hagaði sér með þess-
um hætti og taka á málinu af festu.
Það verður ekki liðið að nafn FH
eða einstakir mótherjar félagsins
verði ataðir auri með þessum
hætti. Stjórn Knattspyrnudeildar
FH biður Andrew Mwesigwa
afsökunar og óskar honum alls
hins besta. Virðingarfyllst, Jón
Rúnar Halldórsson formaður Kd.
FH“
Knattspyrnudeild FH:
Biður Andrew
afsökunar
FÓTBOLTI Stuðningsmenn FH sendu
einnig frá sér yfirlýsingu vegna
málsins í gær, og lesa má hana í
heild sinni hér fyrir neðan.
„Við sem stöndum að stuðn-
ingsmannaklúbb FH viljum koma
eftirfarandi á framfæri vegna
framkomu ákveðinna stuðnings-
manna á leik FH og ÍBV í Lands-
bankadeild karla í gærkvöldi. Við
sem stöndum að stuðningsmanna-
klúbbnum fordæmum þessa hegð-
un á leiknum við Eyjamenn þar
sem ákveðnir aðilar kölluðu
ókvæðisorðum að Andrew Mwe-
sigwa leikmanni ÍBV. Boðað verð-
ur til aðalfundar stuðningsmanna-
klúbbsins þar sem þetta verður
tekið fyrir í næstu viku og slík
framkoma mun vonandi ekki sjást
né heyrast aftur á leikjum FH. Við
biðjum ÍBV og Andrew Mwesigwa
innilegrar afsökunnar á þessu. f.h.
Stuðningsmannaklúbbsins Árni
Rúnar Karlsson”
Stuðningsmenn FH:
Fordæmum
þessa hegðun
FÓTBOLTI Lítill hópur stuðnings-
manna FH var með kynþáttafor-
dóma í garð Andrew Mwesigwa,
leikmanns ÍBV, í leiknum á
fimmtudaginn en hann er frá
Úganda og dökkur á hörund. Mwe-
sigwa sjálfur varð sjálfur ekki var
við athæfið, að því er Fréttablaðið
kemst næst, en ljót orð voru
hrópuð inn á völlinn oft á tíðum
þegar Mwesigwa snerti eða var
nálægt boltanum.
„Við urðum mjög mikið varir
við þetta, sérstaklega aðstoðar-
dómari tvö sem var á línunni fyrir
framan stúkuna, við heyrðum
þetta allir ítrekað,“ sagði Magnús
Þórisson, sem dæmdi leikinn, við
Fréttablaðið í gær.
„Það sem hefur ekki komið
fram er ótrúlegur dónakjaftur á
FH-ingum í garð okkar dómara. Í
þau ár sem ég hef verið dómari
hef ég aldrei nokkurn tímann
heyrt annað eins orðbragð. Þetta
var alveg skelfilegt. Ég hef skráp
fyrir þessu og kippi mér ekki
mikið upp við þetta, enda ýmsu
vanur, en það versta við þetta var
þegar maður leit upp í stúku og sá
krakkana þarna inni á milli með
öll þessu orð fljúgandi fram og
aftur. Þetta var svakalegur sóða-
kjaftur,“ sagði Magnús og tók
nokkur dæmi sem ekki eru birt-
ingarhæf.
Leikir í deildum Evrópu hafa
nokkrum sinnum verið flautaðir
af vegna kynþáttafordóma en
Magnús segir að það hafi ekki
hvarflað að honum. Hann til-
kynnti að sjálfsögðu um atvikið
til KSÍ. „Við settumst niður með
eftirlitsmanni leiksins. Hann
skrifaði skýrslu og ég skrifaði
svo aukaskýrslu um kynþáttafor-
dómana. Því fara tvær skýrslur
til KSÍ frá okkur enda á þetta alls
ekki að líðast,“ sagði Magnús
Þórisson.
Knattspyrnudeild FH hefur
þegar tekið hart á málinu, en hún
sendi frá sér yfirlýsingu í gær sem
lesa má hér til hliðar. „Við teljum
okkur vita hverjir þetta eru, þessir
örfáu menn. Ég hef ekki fengið
þetta tæmandi en þetta eru þrír
eða fjórir menn. Þetta eru örfáir
svartir sauðir inni á milli. Ég skal
ekki segja hvort þeir verði bann-
aðir frá vellinum okkar í sumar en
við munum taka hart á þessu máli,“
sagði Jón Rúnar Halldórsson, for-
maður knattspyrnudeildar FH, við
Fréttablaðið í gær.
Stuðningsmenn FH hafa tekið
málinu mjög illa en mikið er rætt
um málið á spjallsíðum á netinu.
Sumir yfirgáfu stúkuna í leikn-
um þar sem þeim var svo misboð-
ið og aðrir segjast skammast sín
fyrir að vera stuðningsmenn FH,
eftir atburðina. Stuðningsmanna-
félag FH sendi einnig frá sér
yfirlýsingu sem sjá má hér til
hliðar.
„Þetta hlýtur bara að fara í
ákveðinn farveg. FH-ingar hafa
haft samband við okkur og beðist
afsökunar. Þeir reyna eflaust að
koma vitinu fyrir sitt fólk. Þeir
eru eflaust verstir út í sitt fólk en
við köllum ekki eftir neinni sér-
stakri refsingu. Ég reikna með því
að KSÍ blandi sér í málið á eðlileg-
an hátt og hvað kemur út úr þessu
verður að koma í ljós,“ sagði Viðar
Elíasson, formaður knattspyrnu-
deildar ÍBV í gær.
Hver refsing FH verður á eftir
að koma í ljós. „Við hörmum að
þetta skuli hafa gerst en við bíðum
eftir skýrslunni frá dómaranum
og eftirlitsmanni KSÍ. Fyrr getum
við ekkert aðhafst í málinu en það
verður aganefndin sem mun
ákvarða refsinguna, ef svo fer,“
sagði Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, í gær en ekki
eru fordæmi fyrir slíku máli á
Íslandi. hjalti@frettabladid.is
FH harmar kynþáttahatrið
Knattspyrnudeild FH harmar mjög hegðun stuðningsmanna liðsins sem voru
með kynþáttahatur í garð Andrew Mwesigwa, leikmanns ÍBV, í leik liðanna á
fimmtudaginn. FH gæti átt yfir höfði sér refsingu frá KSÍ vegna málsins.
FÓRNARLAMB KYNÞÁTTAHATURS Úgandamaðurinn Andrew Mwesigwa, leikmaður ÍBV,
fékk að heyra ýmislegt miður gott úr stúkunni í Krikanum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
14 15 16 17 18 19 20
Laugardagur
■ ■ SJÓNVARP
12.30 HM stúdíó á Sýn.
12.50 HM á Sýn. Bein útsending
frá leik Portúgal og Íran í D-riðli.
15.00 HM stúdíó á Sýn.
15.50 HM á Sýn. Bein útsending
frá leik Tékklands og Gana í E-riðli.
15.50 Handbolti á RÚV. Bein
útsending frá leik Íslands og
Svíþjóðar í undankeppni HM.
18.00 HM stúdíó á Sýn.
18.50 HM á Sýn. Bein útsending
frá leik Ítala og Bandaríkjamanna
í E-riðli.
21.00 4-4-2 á Sýn.
22.00 PGA meistaramótið á Sýn.
Bein útsending frá mótinu.
01.30 Box á Sýn. Bein Útsending
frá bardaga Jermain Taylor og Winky
Wright.
C-riðill:
ARGENTÍNA-SERBÍA/SVARTFJ.LAND 6-0
1-0 Maxi Rodriguez (6,), 2-0 Esteban Cambi-
asso (31.), 3-0 Maxi Rodriguez (41.), 4-0 Hernan
Crespo (78.), 5-0 Carlos Tevez (84.), 6-0 Lionel
Messi (88.).
HOLLAND-FÍLABEINSSTRÖNDIN 2-1
1-0 Robin van Persie (23.), 2-0 Ruud van Nistel-
rooy (26.), 2-1 Bakari Kone (38.).
D-riðill:
MEXÍKÓ-ANGÓLA 0-0
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
HRESS Þessi geðþekka kona frá Mexíkó
skemmti sér konunglega á leik Mexíkó og
Angóla á Heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu í gær. Leikurinn var þó lítið fyrir
augað og lauk með markalausu jafntefli.
NORDICPHOTOS/AFP