Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 65
LAUGARDAGUR 17. júní 2006 49
Þú gætir auðveldlega unnið ferð til Evrópu og fullt af öðrum
frábærum vinningum ef þú tekur þátt í Allt leiknum. Skelltu þér
inn á www.allt.is og svaraðu fimm laufléttum spurningum sem
þú finnur á síðu 351 í bókinni.
Svörin eru öll í Allt bókinni. Meðal vinninga eru: Ferð út í heim með
Iceland Express, Vodafone Live! Nokia 6101 símar,
Fríkort á Grensásvídeó og Pizzur frá Villson’s Pizza.
ALLT er ný vöru- og þjónustuskrá á netinu á www.allt.is, í síma
1850 og núna í handhægri bók sem dreift hefur verið á öll heimili.
Bókin er sneisafull af upplýsingum og skemmtilegu efni, allt frá
húsráðum og handhægum mælieiningum til næringarupplýsinga og
götukorta. Þú finnur allt sem þig vantar í ALLT bókinni.
ALLT VÖRU- OG ÞJÓNUSTUSKRÁIN
ER KOMIN Í ÖLL HÚS Á LANDINU
Taktu þátt í skemmtilegum leik
KÖRFUBOLTI „Nú er þetta orðið að
alvöru einvígi,“ sagði tröllið
Shaquille O´Neal eftir að Miami
Heat gerði úrslit NBA-körfu-
boltans spennandi á nýjan leik.
Dallas vann fyrstu tvo leikina
mjög sannfærandi á heimavelli
sínum, en nú hefur Miami komið
til baka og jafnað metin eftir 98-74
sigur á heimavelli sínum í fyrri-
nótt.
Miami stefnir á að verða þriðja
liðið í sögu lokaúrslita NBA-deild-
arinnar til að vinna meistaratitil-
inn eftir að lenda undir 2-0 en ein-
vígið, sem flestir héldu að væri
búið, er nú orðið æsispennandi og
ljóst er að allt getur gerst.
Öfugt við þriðja leikinn, þar
sem gestirnir misstu niður for-
ystu sína í lokin og töpuðu, var
Miami með tögl og haldir allan
leikinn í fyrrinótt en það var Dwy-
ane Wade sem fór enn og aftur
fremstur í flokki hjá Miami og
skoraði 36 stig. Shaq skoraði sautj-
án stig en Jason Terry var eini
leikmaðurinn sem spilaði á pari í
liði Dallas og skoraði sautján stig,
líkt og Shaq.
Dallas setti vafasamt NBA-met
í leiknum með því að skora aðeins
sjö stig í fjórða leikhlutanum, en
það er það lægsta sem nokkurt lið
hefur skorað í einum leikfjórðungi
í lokaúrslitum.
„Þeir voru betri á öllum sviðum
körfuboltans í leiknum og ávallt
skrefinu á undan. Við erum ekki
að taka nándar nærri nógu mörg
fráköst og við þurfum greinilega
að laga okkar leik fyrir þriðja leik-
inn hér í Flórída,“ sagði Avery
Johnson, þjálfari Dallas, eftir leik-
inn.
Næsti leikur fer fram í Miami á
sunnudagskvöld, en svo fara þeir
leikir sem eftir verða fram í Dall-
as. Sjónvarpsstöðin Sýn verður
með alla leiki í úrslitaeinvíginu í
beinni útsendingu og nú styttist í
að krýndir verði nýir NBA-meist-
arar, því hvorugt þessara liða
hefur komist svo mikið sem í úrslit
áður. - hþh
Spennan magnast enn í úrslitum NBA-körfuboltans eftir fjóra leiki:
Miami Heat jafnaði metin gegn
slöku liði Dallas Mavericks
ÞUNGBÚINN Dirk Nowitszki var ekkert sérstaklega ferskur undir lok leiksins í Flórída í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Keflavík mun mæta liði
Dungannon Swifts frá Norður-
Írlandi í Evrópukeppninni í dag
klukkan fimm en þetta er fyrri
leikur liðanna. „Það er alltaf
gaman að að spila í Evrópukeppn-
inni. Þetta fer inn í reynslubank-
ann og gott tækifæri fyrir leik-
menn að sýna sig og sanna enda
verða örugglega einhverjir njósn-
arar sem munu fylgjast grannt
með,“ sagði Guðmundur Steinars-
son, fyrirliði Keflavíkur.
„Guðmundur Mete tilkynnti
það að leikurinn yrði líklegast
hans síðasti fyrir Keflavík því
hann væri pottþétt að fara að
skrifa undir hjá Newcastle eftir
helgi,“ sagði Guðmundur og hló en
njósnari frá Newcastle mun mæta
á leikinn. Ef Keflavík kemst í
næstu umferð mætir liðið Lille-
ström frá Noregi í næstu umferð
og ef sigur næst þar verður úrvals-
deildarlið Newcastle næsti
mótherji.
„Mér skilst það að einhverjir
meðlimir Hafnarfjarðarmafíunn-
ar ætli að leggja trommusveitinni
okkar lið. Það er bara gott mál og
vonandi verður hörkustemning á
leiknum. Það verða bara 1.100
miðar í boði þar sem það má bara
selja í sæti í Evrópukeppninni,“
sagði Guðmundur, sem var sáttur
við að liðið gæti spilað á Keflavík-
urvelli eftir að hafa þurft að spila
á Laugardalsvelli í fyrra. - egm
Keflavík í Evrópukeppninni:
Newcastle er í
sjónmáli
GLEÐI Keflvíkingar stóðu sig vel í Evr-
ópukeppninni í fyrra en hér fagna þeir í
Lúxemborg.
FÓTBOLTI Það er óhætt að segja að
Argentína sé lið heimsmeistara-
keppninnar til þessa en í gær
vannst ótrúlegur sigur á Serbíu/
Svartfjallalandi 6-0 í C-riðli keppn-
innar. Argentínumenn léku á als
oddi og sýndu það og sönnuðu að
þeir geta vel farið alla leið í keppn-
inni. Þá var þessi leikur sögulegur
fyrir þær sakir að þetta var í
fyrsta sinn í sögu heimsmeistara-
keppninnar sem allir þrír vara-
mennirnir sem koma inn á ná að
skora.
Maxi Rodriguez, leikmaður
Atletico Madrid á Spáni, skoraði
tvö mörk í fyrri hálfleik og Este-
ban Cambiasso, sem spilar með
Inter á Ítalíu, skoraði eitt. Argent-
ína byrjaði seinni hálfleikinn
rólega en setti aftur í fluggírinn á
seinasta stundarfjórðunngum og
skoraði þrjú mörk til viðbótar. Þar
voru að verki þeir Hernan Crespo,
Carlos Tevez og Lionel Messi.
Óhætt er að segja að Argent-
ínumenn byrji mótið á sannfær-
andi hátt en í fyrsta leik sínum
unnu þeir Fílabeinsströndina í
hörkuleik. Það er ótrúlegt að hugsa
til þess að Serbía/Svartfjallaland
fékk aðeins eitt mark á sig alla
undankeppnina en ekki stóð steinn
yfir steini í varnarleik liðsins í
gær. Spurning er hvort fjarvera
Nemanja Vidic hafi svona mikið
að segja en hann meiddist á æfingu
og spilar ekkert með í keppninni.
„Þetta var frábær frammistaða
hjá mínum mönnum og ég er í
skýjunum. Það skyggir þó aðeins
á gleðina að Lucho Gonzalez þurfti
að yfirgefa völlinn vegna meiðsla.
Allir stóðu sig frábærlega og ég á
erfitt verkefni fyrir höndum þegar
ég þarf að velja byrjunarliðið
fyrir leikinn gegn Hollandi. Ég
ætla þó ekki að fara að huga að því
strax, ég vil fá smá tíma til að
fagna þessum sigri,“ sagði Jose
Pekerman, þjálfari argentínska
landsliðsins. - egm
Stórsigur hjá Argentínumönnum í C-riðlinum í gær:
Argentína fór á
kostum gegn Serbíu
GÓÐ INNKOMA Lionel Messi kom inn sem varamaður í gær og náði að skora auk þess sem
hann lék vel og lagði upp mark. Allir þrír varamenninrnir sem komu inn á fyrir Argentínu í
gær skoruðu, en það er í fyrsta skipti í sögu HM sem það gerist. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Hollendingar unnu Fíla-
beinsströndina 2-1 á Heimsmeist-
aramótinu í Þýskalandi í gær og
eru þar með öruggir áfram úr riðli
sínum ásamt Argentínu. Dauða-
riðillinn reyndist ekki vera jafn
spennandi og margir bjuggust við
en það mátti ekki tæpara standa
fyrir Hollendinga.
Robin van Persie kom þeim yfir
með þrumuskoti beint úr auka-
spyrnu sem markmaður andstæð-
inganna átti klárlega að verja.
Ruud van Nistelrooy kom Hol-
landi í 2-0 áður en Bakari Kone
minnkaði muninn með glæsilegu
marki rétt fyrir hálfleikinn.
Didier Zokora skaut í þverslána
fyrir Fílabeinsströndina en bæði
lið fengu tækifæri til að bæta við
mörkum. Það tókst ekki og 2-1
sigur Hollendinga staðreynd.
- hþh
Heimsmeistaramótið í gær:
Hollendingar
komnir áfram
SIGRINUM FAGNAÐ Leikmenn Hollands
gátu leyft sér að fagna með stuðnings-
mönnum sínum eftir leikinn.
NORDICPHOTOS/AFP