Fréttablaðið - 17.06.2006, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 17. júní 2006 3
Í henni Ameríku er víst frekar
sjaldgæft að fólk leggist í það
ævintýri að keyra beinskipta
bíla. Hér á Fróni telst það hins
vegar svo sjálfsagt mál að við
höfum ekki einu sinni þann
valkost að læra á sjálfskipta
bíla, sem þó er lenska vestan-
hafs. Já, hann er skrítinn Kan-
inn, á því leikur enginn vafi.
Einn skrítinn ættbálkur fyrir-
finnst þó hér á landi sem þekk-
ist varla í Ameríku og það eru
Snuðararnir.
Snuðararnir eru leynileg
fjölþjóðasamtök sem hafa það
að höfuðmarkmiði að eyði-
leggja kúplingar. Þeir leynast
úti um allt og virðast við fyrstu
sýn vera ósköp venjulegt fólk.
Kannski vinir þínir, fjölskyldu-
meðlimir, yfirmaðurinn í vinn-
unni eða stelpan á kassanum í
10-11. Þau gætu öll verið Snuð-
arar – án þess að þig svo mikið
sem gruni það.
Þegar enginn sér til ráðast
Snuðararnir til atlögu. Á rauðu
ljósi í brekku snuða þeir kúpl-
inguna til þess að halda bílnum
kjurum, í stað þess að stíga á
bremsuna. Þegar þeir taka af
stað nota þeir hálfa götuna til
að snuða kúplinguna með því að
slaka henni löturhægt saman á
meðan vélinni er haldið á full-
um snúningi. Já - þeir svífast
sko einskis!
Í seinni tíð hefur borið á enn
fólskulegri árásum. Eitt af því
allra svæsnasta er að láta
vinstri fótinn hvíla létt á
kúplingspedalanum á meðan
ekið er. Þannig er unnið mark-
visst að því að slíta kúpling-
unni, meira að segja á ferð. Sé
ekið yfir holu hossast fóturinn
á pedalanum og Snuðarinn
skorar aukastig. Þá er góður
dagur fyrir Snuðara, en svartur
dagur fyrir heimsbyggðina.
Náskyldir Snuðurunum, og
með mjög lík genamengi, eru
Hraðsnuðararnir. Þeir þekkjast
einna helst á því að þeir eru
alltaf blankir, enda kostaði upp-
gerð á kúplingu svipað og viku-
löng skíðaferð til Austurríkis
síðast þegar ég gáði. Hraðsnuð-
urunum finnst gaman að spyrna
á bílunum og til að spara tíma í
gírskiptingum er kúplingspe-
dalanum sleppt með því að
renna fætinum til hliðar og
leyfa honum að skjótast upp
sjálfum.
Kæru Íslendingar, nú er nóg
komið. Tökum höndum saman
og stöndum vörð um hag kúpl-
inganna okkar! Með sameigin-
legu átaki getum við komið í
veg fyrir snuð.
Ekki meiri kúplingslykt,
ekki meira snuð!
Stöndum á bremsunni í
brekkum, kúplum hratt en þó
mjúkt, höfum vinstri fótinn á
gólfinu og syngjum öll saman
eins og þau gera í Ameríku;
„snuð snuð snuð, snuð eru fyrir
börn, dúmm dí dúmm da dí dí
da...“
Hinir alræmdu Snuðarar
Hinn nýi ofursportbíll Brim-
borgar, Ford GT, verður sýndur
almenningi dagana 19. til 24.
júní í sýningarsal Brimborgar.
Ford GT er sannkallaður ofur-
sportbíl, búinn 5,4 lítra, 8 strokka
vél sem skilar 550 hestöflum. Bíll-
inn sem Brimborg sýnir var sér-
smíðaður fyrir umboðið hér á
landi og kostar yfir 30 milljónir
króna, kominn á götuna.
Meðan sýningin stendur gefst
gestum í sýningarsal Brimborg-
ar kostur á að taka þátt í happa-
potti Brimborgar, þar sem þátt-
takendur geta unnið margvíslega
vinninga, þar á meðal bíltúr í
sportbílnum. Einnig er væntan-
leg í loftið sérstök vefsíða á vef
Brimborgar, þar sem gestir síð-
unnar geta tekið þátt í léttri get-
raun og unnið bíltúr í GT-bíln-
um.
Unga kynslóðin fær að gjöf
risastórt veggspjald með sögu-
legri mynd af GT á Akureyrar-
flugvelli þar sem Arngrímur
Jóhannsson flýgur yfir á listflug-
vél sinni, TF-ABJ.
GT frumsýndur í Reykjavík
Frá reynsluakstri Ford GT á Akureyrarflugvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Um helgina verður viðamikil
heimskynning á Mercedes
Benz GL á Íslandi. Um 400
erlendir blaðamenn verða á
staðnum.
Um helgina verður haldin heims-
kynning á nýja Mercedes Benz GL
jeppanum hér á landi. Um 400
erlendir blaðamenn ætla að
reynsluaka bílnum en þetta mun
verða einn af stærri blaðamanna-
viðburðum sem haldinn hefur
verið hér á landi.
Kynntur verður nýr stór jeppi
frá DaimlerChrysler, Mercedes
Benz GL-Class en auk hans verður
kynnt sérstaklega ný dísilvél í
Mercedes Benz ML-jeppann. Um
er að ræða fimm til sjö manna
jeppa sem býr yfir góðum akst-
urseiginleikum.
Nýi Mercedes Benzinn verður
fáanlegur með mörgum öflugum
vélargerðum, bæði bensín- og dís-
ilvélum, sem ná allt að 400 hestöfl-
um. Um 70 bílar verða á kynning-
unni.
Á heimskynningunni fá blaða-
menn tækifæri til að hitta hönnuði
nýja bílsins, tæknimenn og ýmsa
af stjórnendum Mercedes Benz,
ásamt því að fá að reynsluaka bíln-
um. Blaðamönnunum er skipt í sjö
hópa sem hver um sig fær tveggja
daga kynningu og reynsluakstur.
Íslenskir blaðamenn verða í fyrsta
hópnum sem byrjar á sunnudag-
inn.
Fyrirtækið Pegasus hefur séð
um undirbúning þessa viðburðar
en bílaumboðið Askja, sem er
umboðsaðili fyrir Mercedes Benz,
mun hefja sölu á bílnum í lok sum-
ars. Nú þegar liggja fyrir nokkrar
pantanir á bílnum .- jóa
Heimskynning á Mercedes Benz GL
Nýi jeppinn frá Mercedes Benz verður
kynntur hér á landi um helgina.
Áfram veginn
Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar