Fréttablaðið - 17.06.2006, Qupperneq 52
Ég stend mig oft að því að grobba við útlendinga
um land og þjóð. Ég segi að þetta litla land sé
með heila sinfóníuhljómsveit í fyrsta klassa, tvö
jafnhæf og skemmtileg
leikhús og sömuleiðis
fullt af litlum leikhóp-
um. Einnig er mikil
gróska í tónleikahaldi
hér á landi. Því má
segja að ég sé stoltust
af listmenningarlífi litla
Íslands sem slær út
mörg stærri ríki.
Ég er stoltust af
tungumálinu. Það
er fátt skemmti-
legra en að kljást
við okkar ástkæra,
ylhýra, tjáningar-
ríka, glaðbeitta og
öfugsnúna
móðurmál. Það er
í senn fornt og
lifandi, síkvikt og
kveikir í mér á
hverjum degi.
Það er auðvelt að telja það upp sem
ég er stoltust af: Landafundirnir
sjálfir - Ísland, Grænland og
Ameríka - eru hluti af heimssög-
unni. Stofnun Alþingis 930 og
upphaf réttarríkis var merkilegt
framlag til stjórnmálasögu jarðar-
búa. Fornbókmenntirnar, Snorri og
hinir nafnlausu höfundar Íslend-
ingasagna eru einn af tindunum í menningarsögu Evrópu. Og
hvað fleira, Nóbelsverðlaun í bókmenntum og ein af tíu bestu
skáldsögum seinustu aldar. Kannski má nefna að hafa brotist úr
örbirgð til allsnægta á tiltölulega skömmum tíma við erfið
skilyrði. Kannski aðrar þjóðir geti lært eitthvað af því. Höfum
við lagt einhverjum lið, sem þurftu á hjálp að halda? Jú, kannski,
Eystrasaltsþjóðunum, en erum við ekki neðst á listanum yfir
þróunarhjálp ríkra þjóða við snauðar? En kannski var helsta
afrek genginna kynslóða ekkert af þessu, heldur það eitt að hafa
lifað af sjö dimmar hunguraldir við örbirgð, kulda, eymd og
volæði. Það segir fátt af þeim, sem ekki lifa af.
17. júní 2006 LAUGARDAGUR36
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
MARKISUR
www.markisur.com
VILTU SKJÓL Á
VERÖNDINA?
Þjóðhátíðardagurinn er genginn í garð og í tilefni dagsins minna landsmenn sig á hvað þeir hafa sér til ágætis. Fréttablaðið fór á
stúfana og spurði nokkra Íslendinga hvað hreyfði við þjóðarstolti þeirra.
Það er kominn 17. júní
Siggi Hall matreiðslumaður
Frábær matur
Þjóð, tunga og saga. Ég
held að þetta þrennt
nái vel yfir það sem ég
er stoltastur af. Ég er
mjög þjóðernissinnað-
ur maður í besta
skilningi þess orðs.
Síðan er ég líka
ánægður með staðsetn-
inguna því ég er svo
heitfengur. Það er
ágætt að vera í
kuldanum.
Pétur Gunnarsson rithöfundur
Lífsbarátta sem fáir skilja
Í hvert skipti sem ég heyri þjóðsönginn kemst ég við.
Þjóðarstolt? Nei, meira eins og þakklæti til þeirra sem
voru hér á undan okkur og stóðu í lífsbaráttu sem fáir
skilja í dag og þarf orðið BA-próf í sögu og þjóðhátta-
fræði til að gera sér í hugarlund. Í stuttu máli: ég finn
mig standa í þakkarskuld.
Það eru þessir „basic“ hlutir;
harðfiskur, hangikjöt, útrás,
Bubbi Morthens, malt og
appelsín og Eiður Smári.
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
Listalífið
Ragnar Páll Steinsson, tónlistarmaður og smiður
Hafnarfjörður
Bryndís Schram fyrrverandi ráðskona í sendiráðum
Að lifa af
Oddný Sturludóttir rithöfundur
Tungan
Sigurjón Kjartansson tónlistarmaður
„Basic“ hlutir
Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur
Gott að vera í kuldanum
Ég verð að segja að ég
sé stoltastur af Hafnar-
firði. Bærinn er
sannkölluð náttúruperla
Evrópu og höfuðborg
heimsins. Ég ólst upp
þar og hef margar
góðar og slæmar
minningar þaðan. Hef
reyndar ekki búið þar í
tíu ár en eitt sinn
Hafnfirðingur, alltaf
Hafnfirðingur.
Ég er stoltastur af því hvað við
Íslendingar erum frábærir í
matvælaframleiðslu. Einu sinni
þótti ekki fínt að vera fiskveiði-
þjóð og allir voru í staðinn
uppteknir af iðnaðinum, en ég er
svo stoltur núna því við erum
líklegast með bestu matvælafram-
leiðslu í heimi. Þegar við erum
búin að framleiða þessi matvæli í
gegnum aldirnar hljótum við að
verða orðin góð, rétt eins og
vínbændur í Bordeaux, parma-
skinkumenn í Parma og stáliðnað-
armenn í Svíþjóð.