Fréttablaðið - 17.06.2006, Side 54
17. júní 2006 LAUGARDAGUR
Ég keypti mér íbúð
um daginn. Hugsið
ykkur, nú er dágóð-
ur tími síðan gengið
var frá þeim kaup-
um og ég hef hrein-
lega steingleymt
að segja ykkur
þessar stórmerki-
legu fréttir.
Frá því ég fyrst viðr-
aði þá hugmynd við vini og vand-
aða menn að ég hygðist kaupa mér
íbúð hefur mér verið sagt að núna
sé vondur tími til að kaupa. Við
frekari fyrirspurnir kom í ljós að
allir sem ég þekki og eiga fasteign
keyptu hana á vondum tíma. Sem
sagt, frá árinu 1950 hefur verið
vondur tími til fasteignakaupa. Ég
reiknaði mér það til að í dag væri
ekki versti tíminn til að kaupa og
ákvað bara að skella mér í herleg-
heitin.
Ég leitaði lengi og skoðaði
margar íbúðir en get ekki sagt að
ég hafi orðið ástfangin af neinni,
kannski skotin, en gat ekki séð
fyrir mér neina framtíð. Svo kom
að því einn daginn að ég labbaði
inn í íbúð sem ég vissi að væri
íbúðin mín. Ást við fyrstu sýn og
ég vissi að ég var komin heim.
Helst langaði mig til að henda
manninu sem átti íbúðina og öllu
hans hafurtaski út með því sama
en maður eignast víst ekki íbúð
þannig. Þannig að ég fór í gegnum
allt leiðindaferlið, skrifaði undir
blöð, reifst við bankann, fékk knús
frá Íbúðalánasjóði, skrifaði undir
fleiri blöð á línuna SKULDARI og
fékk svo lykla að launum.
Þannig að nú er það eitt eftir að
flytja inn. Ekki að það taki langan
tíma enda á ég ekki mikið til að
setja inn í elsku íbúðina mína. Ég
mæti því á svæðið með sex glös,
saltstauk, tannbursta, gamalt
bollastell og kaffivél. Og um helg-
ina mun ég sitja hamingjusöm á
stólalausu gólfinu í nýju fínu íbúð-
inni minni drekkandi kaffi með
salti úr bláu hvítvínsglasi. Ég er
búin að sjá það að allt sem maður
þarf í lífinu er vænn skuldabaggi
og góð kaffikanna. Ég er þó komin
heim. Og við vitum öll að heima er
gott að vera. Gleðilega þjóðhátíð
og góða helgi.
STUÐ MILLI STRÍÐA Lífið er kaffikanna
JÓHANNA SVEINSDÓTTIR ER FORMLEGUR SKULDARI.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Má ég fara frá
borðinu?
Ertu
viss?
Ef þú ferð frá borðinu
færðu engan eftirrétt. Æi.
En hvernig
væri ef matur-
inn færi bara af
borðinu?
Ég finn
lykt af
kjöti!
Já, steiktu
kjöti! Fjárinn
Ég hef á tilfinningunni að
sumarleiðinn sé byrjaður.
Úff!
Ef ég hefði litið svona út
þegar þú sást mig fyrst,
hefðir þú samt farið
heim með mér? Auð-
vitað!
Kvöldið sem ég sá þig fyrst
var ég svo drukkinn að
ég hefði farið heim með
hverju sem er!
Þú veist að
þú mátt
sleppa mér
núna!
Af hverju held-
ur þú að ég
haldi ennþá?