Fréttablaðið - 17.06.2006, Síða 56
17. june 2006 SATURDAY40
menning@frettabladid.is
!
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
��������������������������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
�������������� �����������������
������������������������������
�������������� �����������������
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Félagsheimili
Patreksfjarðar
18. júní
Miðasala í síma 456-1688
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
Opnum kl.17 fyrir matargesti
17. júní dansleikur
Hljómsveitin Karma
í kvöld
Í dag verður opnuð í Ný-
listasafninu sýning þar
sem tungumálið esperanto
leikur lykilhlutverkið og
er meðal annars notað sem
innblástur við pylsugerð.
Í tilefni af sýningu listamannanna
Olof Olsson og Daniels Salomon í
Nýlistasafninu við Laugaveg verð-
ur nýtt alþjóðlegt pylsufyrirtæki
sett á laggirnar í Reykjavík.
Að sögn Daniels mun það fram-
leiða pylsur í hæsta gæðaflokki.
„Með því að nota aðeins lífrænt
ræktað íslenskt lambakjöt sem
hráefni í pylsurnar geta viðskipta-
vinir úr öllum trúarbrögðum notið
þeirra. Þetta verða sem sagt pylsur
án landamæra,“ segir Daniel.
„Þessi atburður mun valda þátta-
skilum í pylsumenningu og sögu
pylsugerðar. Um langt árabil hefur
pylsan verið í undanhaldi og
skyndibitar eins og hamborgarar,
pizzur, kjúklingar og sushi hafa
lagt undir sig heiminn,“ segir
Daniel hlæjandi. „Við vissum að
pylsur eru þjóðarréttur Íslendinga
en hugmyndin er sú að búa til espe-
ranto-pylsur og þannig breyta
þjóðarrétti í fjölþjóðlegan rétt“.
Daniel undirstrikar að enda
þótt þessi hugmynd með pylsurnar
sé ansi skondin, þá búi að baki
alvarlegur undirtónn sem varðar
til dæmis sjálfsmynd þjóða,
árekstra milli menningarsvæða
nær og fjær, vaxandi þjóðernis-
hyggju og vandmál innflytjenda
svo fátt eitt sé nefnt. „Að þessu
leyti má segja að verk okkar feli í
sér ákveðna pólitíska sýn, án þess
að við rekum áróður þar um. Við
erum fyrst og síðast listamenn.“
Að sögn Daniels verður sérstakt
pylsubrauð bakað fyrir esperanto-
pylsurnar og einnig verður sérstök
sósa búin til en uppistaðan í henni
er enn hernaðarleyndarmál. Hann
lofar þó gestum sýningarinnar,
sem fá að gæða sér á pylsunum,
góðum gæðum og ljúfu bragði.
Hið alþjóðlega tungumál espe-
ranto er grundvöllurinn að öllu
listastarfi þeirra félaga og yfir-
færa þeir það með ýmsu móti í
gjörningum sínum.
Listasamstarf sitt kalla þeir La
Loko, sem Daniel útskýrir að þýði
the Place á ensku eða Rýmið á
íslensku. „Ástæðan fyrir því að
við köllum okkur þessu nafni er sú
að við viljum skapa rými, ekki
endilega í hlutlægum skilningi eða
efnislegum, heldur fremur hug-
lægum, þar sem ekki er tekið tillit
til einnar menningar frekar en
annarrar,“ segir Daniel og bætir
við að tungumálið sé mjög gott
dæmi um rými sem staðsetur fólk
þá og þegar innan ákveðins skiln-
ings og skynjunar á veruleikan-
um. „Ólík tungumál temja okkur
ólíkan hugsunarhátt,“ áréttar
Daniel. Að mati listamannsins
tengjum við ýmis sýnileg fyrir-
bæri í umhverfinu við tiltekna
menningu og tungumál. „Þegar ég
hugsa til dæmis á bandarískri
tungu sé ég fyrir mér feita ham-
borgara og stórar bíladrossíur.
Franskt tungumál vekur aftur á
móti upp mynd í huganum af ljúf-
fengum mat og víni. Esperanto er
hins vegar tungumál sem hefur
enga sérstaka vísun í myndmál
menningar og fyrir okkur gerir
það málið einstaklega áhugavert.“
Sýningin og stofnun pylsugerð-
arfyrirtækisins Kolbasoj sen
Limoj fer fram í Nýlistasafninu,
Laugavegi 26, laugardaginn 17.
júní, klukkan 15.00. Listamennirn-
ir munu halda ræðu klukkan 16.30
og í framhaldi af því mun fólki gef-
ast kostur á að smakka pylsurnar.
Sýningin stendur til 9. júlí.
Þáttaskil í pylsumenningu
SVÍINN OLOF OLSSON OG DANINN DANIEL SALOMON Listamennirnir sýna búningana sem
þeir létu hanna sérstaklega fyrir Esperanto fótboltafélag.
Kl. 16.00
Jóel Pálsson og Flís Tríóið leika djass
á veitingastaðnum Jómfrúnni við
Lækjargötu. Tríóið skipa þeir Davíð
Þór Jónsson á píanó, Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson á kontrabassa og
Helgi Svavar Helgason á trommur.
Tónleikarnir standa til 18.00 og leikið
verður utandyra ef veður leyfir.
Aðgangur er ókeypis.
Stofutónleikaröð verður haldin á Gljúfra-
steini alla sunnudaga út ágúst. 11. júní síð-
astliðinn voru fyrstu tónleikarnir haldnir
og voru það nemendur tónlistarskóla Mos-
fellsbæjar sem stigu fyrstir á stokk.
Tónleikadagskráin er afrakstur stefnu-
mótunarvinnu sem nýverið var kynnt á
Gljúfrasteini og er tónleikahald mikilvæg-
ur liður í uppbyggingu Gljúfrasteins sem
menningarseturs. „Það virðist vera mikill
áhugi meðal fólks fyrir þessum uppákom-
um og erum við ánægð með það enda skip-
aði tónlist stóran sess hér á Gljúfrasteini,“
segir Þröstur Sverrisson, upplýsingafull-
trúi Gljúfrasteins.
Halldór Laxness var mikill áhugamaður
um tónlist og tónlistarflutning. Hann var
prýðilegur píanisti sjálfur og rómaður fagur-
keri á sviði tónlistar. Johann Sebastian Bach
var hans uppáhaldstónskáld. Halldór var
iðinn við tónleikahald í stofunni hjá sér og
bauð hann útvöldum að njóta tónlistarinnar
með sér.
Á morgun leikur Halldór Haraldsson
píanóleikari í stofunni og hefjast þeir það
klukkan 16. - áp
Stofutónleikaröð á Gljúfrasteini
GLJÚFRASTEINN
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
> Ekki missa af...
fjölþjóðlegum tónleikum á Café
Cultura þar sem leikin verður
búlgörsk, grísk og tyrknesk
tónlist. Tónleikarnir fara fram
28. og 29. júní næstkomandi.
Hljómsveitin Narodna Musika
heldur uppi fjörinu en klarínett-
og saxófónleikarinn Haukur
Gröndal leiðir sveitina. Boðið
verður upp á tyrknesk hlaðborð.
gjörningi bresku listakonunnar
Clare Charnley í Nýlistasafninu,
í dag en hann fer fram klukkan
16.00. Nefnist hann TALA en
um langtímaverkefni er að ræða
þar sem Clare fæst við yfirráð
enskrar tungu í alheimssamfé-
lagi nútímans og því samblandi
af valdi og fáfræði sem þeir
sem hafa ensku að móðurmáli
eru settir í.