Fréttablaðið - 17.06.2006, Blaðsíða 70
17. júní 2006 LAUGARDAGUR54
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á bls. 8
1 Jón Sigurðsson.
2 Birgitta Haukdal.
3 Grindavík.
Frumsýning 29. júní – Uppselt
30. júní
1. júlí – Uppselt
6. júlí
7. júlí
9. júlí
Miðasalan er í síma 568 8000
www.borgarleikhus.is
www.minnsirkus.is/footloose
ALLT SEM fiIG VANTAR
ER Á VISIR.IS/ALLT
n‡ vöru- & fljónustu-
skrá á visir.is
LÁRÉTT 2 teikniblek 6 belti 8 auð 9
tangi 11 fyrirtæki 12 hagnýta 14 frá-
rennsli 16 tveir eins 17 spil 18 drulla
20 til 21 gefa frá sér reiðihljóð.
LÓÐRÉTT 1 langdregið hljóð 3 utan 4
land 5 skilaboð 7 losaður 10 stykki
13 kk nafn 15 púla 16 efni 19 tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 túss, 6 ól, 8 tóm, 9 nes, 11
ms, 12 nytja, 14 skólp, 16 tt, 17 níu, 18
aur, 20 að, 21 urra.
LÓÐRÉTT: 1 sónn, 3 út, 4 sómalía, 5
sms, 7 leystur, 10 stk, 13 jón, 15 puða,
16 tau, 19 rr.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Áttunda september næstkomandi verður frumsýnd ný heimildarmynd
um Jón Pál Sigmarsson
heitinn. Kraftakarlinn
Hjalti „Úrsus“ Árnason
er maðurinn á bak við
myndina, sem verður
sýnd í öllum
bíóum lands-
ins. Margir
bíða
spennt-
ir eftir
þessari
mynd,
enda var Jón
Páll gríðarlega vinsæl
persóna sem gekk í
gegnum ýmislegt á
sinni stuttu ævi.
Listamaðurinn og sjósundskapp-
inn Benedikt Lafleur stingur sér
enn á ný til sunds á Vestfjörðum í
sumar en hann synti yfir alla
Vestfirðina í fyrrasumar að
Jökulfjörðunum undanskildum.
Um helgina mun sundkappinn
taka þátt í bryggjudögum á Súða-
vík og synda frá Súðavíkur-
bryggju í dag, 17. júní, yfir á
smábátabryggjuna. Þannig er
Vestfjarðasundinu alls ekki lokið
því Benedikt hyggst taka þátt í
fleiri sumarhátíðum fyrir vestan
í sumar.
Uppátækinu er ætlað að vekja
athygli á náttúrugersemum Vest-
fjarða og fjölbreytilegum og líf-
legum uppákomum íbúa sem þar
búa en nánari upplýsingar um
þetta átak má fá á heimasíðunni
www.vestfjardasund.net.
Sund helgarinnar er einnig hin
besta þjálfun fyrir Benedikt, sem
hyggst synda yfir Ermarsund
seinna í sumar, nánar tiltekið
dagna 30. ágúst - 5. sept-
ember svo honum veitir
ekki af því að fara að
hita upp.
Fjöldi manna syndir
árlega yfir sundið en
enn sem komið er hefur
enginn Íslendingur náð yfir.
Benedikt er nýkomin að utan þar
sem hann kynnti sér aðstæður og
leist honum bara vel á. - snæ
Undirbúningurinn hafinn
SYNDIR ÚT UM ALLT Benedikt syndir á
Súðavík í dag en ætlar að reyna við Erma-
sundið seinna í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HRÓSIÐ
...fær Ólöf Arnalds fyrir metnað-
arfullt lokaverkefni í tónsmíðum
og nýmiðlun.
Algjört HM-æði hefur gripið landann að undanförnu og eru flestir
vinnustaðir með sjónvarpsskjái þannig
að öruggt er að enginn missi af því sem
fer fram í Þýskalandi. Fjölmargir hafa
gripið til þess ráðs að hafa „veðbanka“
og gera leikinn þar með enn meira
spennandi. Veðbankinn Betsson hefur
verið vinsæll hér á landi og nýttu sér
ófáir þjónustu hans þegar Eurovision
var sem vinsælast en nú hefur HM tekið
við svo um munar. Almennt séð er
mest veðjað þegar stóru þjóðirnar eru
að spila en veðbankarnir tapa mestu
þegar þær standa sig sem best. Flestir
eru sammála um að fá óvænt úrslit hafi
litið dagsins ljós á þessari keppni og því
hefur verið óvenju hagkvæmt að veðja.
Þá hafa fá jafntefli litið dagsins ljós en
veðbankar græða einnig á þeim. Reynd-
ar má segja að Betsson hafi fagnað
þegar Svíar gerðu jafntefli við Trínidad
og Tóbagó og þegar Frakkarnir náðu ekki
að skora gegn sterkri vörn Sviss. Eflaust
hafa aðstandendur Betsson haldið niðri
í sér andanum
á fimmtu-
dagskvöld-
inu þegar
Svíum ætlaði
ekki að takast
að hafa sigur
gegn Paragvæ
en Svíinn Freddie
Ljungberg eyði-
lagði hins vegar allt
þegar hann skoraði
með skalla á síðustu
mínútu. Einhverjir
hafa hins vegar hopp-
að hæð sína af kæti.
„Ég er mjög vonsvikinn út í
íslensku þjóðina fyrir að skilja
ekki samfélagsádeiluna sem á sér
stað í verkum mínum,“ segir
danski listamaðurinn Kristian
Hornsleth, en dónalegar myndir
hans af íslenskum fegurðardrottn-
ingum með klúrum myndatextum
hafa kallað fram sterk viðbrögð og
hefur sýningin tvívegis verið tekin
niður.
Sýningin átti að eiga sér stað á
Sólón en forráðamenn staðarins
ákváðu að draga boð sitt til baka
þegar þeir sáu verkin. Því næst
sneri umboðsmaður Hornsleth sér
til eigenda Ari í Ögra eða Q bar
eins og staðurinn heitir núna og
var sýningin sett upp þar um síð-
ustu helgi en var tekin niður á mið-
vikudaginn. „Mér datt ekki í hug
að myndirnar myndu fá svona
mikla neikvæða athygli. Tilgang-
urinn með verkunum er að horfa
25 ár fram í tíman og fylgjast með
þróun heimsins í auglýsingum.
Bæði textar og myndir verða klúr-
ari og klámvæðingin rís hærra
með hverju árinu. Ég er í rauninni
bara að sýna fólki hvað ég haldi að
eigi eftir að gerast eftir nokkur
ár,“ segir Hornsleth.
Kristian er þriggja barna faðir í
Kaupmannahöfn en auk þess að
vera listamaður er hann menntað-
ur arkitekt og kvikmyndagerðar-
maður og nýverið gaf hann út bók
um verkin sín. Að sögn eiganda Q
bars var sýningin tekin niður
vegna áskorana frá stelpunum og
foreldrum þeirra. „Ég ákvað að
nota stelpurnar úr fegurðasam-
keppninni á Íslandi vegna þess að
þær eru staðalmyndir hugtaksins
fegurð og að mínu mati ákveðin
söluvara fegurðar. Ísland er þekkt
fyrir fallegt kvenfólk og hefur
auglýst sjálft sig fyrir það.“
Hornsleth hefur tvisvar komið
til landsins áður og hreifst mjög af
landi og þjóð. Hann er vinur Ólafs
Elíassonar listamanns og kannast
vel við íslenska list. Hann er mikill
aðdáandi tónskáldsins Jóns Leifs
og segir Gullfoss og Geysi fallegar
náttúruperlur sem Íslendingar
verða að fara vel með.
„Þetta er allt spurning um að
hafa húmor fyrir sjálfum sér. Mér
var sagt að Íslendingar væru mjög
afslappaðir en af atburðarás síð-
ustu daga að dæma sýnist mér þið
taka ykkur of alvarlega,“ segir
Kristian Hornsleth að lokum.
Aðstandendur sýningarinnar hér á
landi eru að leita að nýjum stað til
að sýna verkin og þess má geta að
Hornsleth seldi þrjú verk meðan á
sýningunni stóð, sem var aðeins í
fjóra daga. alfrun@frettabladid.is
KRISTIAN HORNSLETH: VONSVIKINN ÚT Í LAND OG ÞJÓÐ
Íslendingar hafa ekki
húmor fyrir sjálfum sér
HUGTAKIÐ FEGURÐ Myndirnar hafa vakið
mikla athygli en þrjú verk selst.
HORNSLETH AÐ STÖRFUM Fjölskyldufaðir sem skilur ekki lætin í Íslendingum og vill ekki
láta ritskoða list sína. Tilgangur hans var einungis að vekja fólk til umhugsunar um hina
fallvöltu fegurð.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
NÚNA
Treflar og vettlingar
Það er miklu meira hipp og kúl að skarta fínni húfu
eða hatti, treflum og vettlingum heldur en að frjósa úr
kulda í ótímabærum sumarfatnaði.
SKYRTUR OG BLÚSSUR
Skyrtur eru auðvitað klassískur karlmanns-
fatnaður en í dag er einnig mikið um
stutterma- og langermaskyrtur fyrir konur. Hægt að
finna bæði flottar skyrtur í vinnuna og
fínni silkiblússur á djammið í hvítu og
svörtu og allt þar á milli.
APPELSÍNUGULUR
Augnskuggar eða varalitir með appelsínugulum tón eru
málið í dag.
NÚNA BÚIÐ
ÞJÓÐARREMBA
Þjóðarstolt er inni, sérstaklega í dag, en öllu má ofgera.
Gleymum ekki að þó við teljum okkur hafa fallegasta kven-
fólkið, sterkustu karlmennina og fallegustu náttúruna þá
sýnist sitt hverjum og þjóðarrembingur fellur aldrei í kramið
hjá fólki frá öðrum löndum.
GEISLASPILARI
Ipod og aðrir MP3-spilarar eru málið í dag.
Geislaspilarinn verður útdauður innan
skamms.
VÍÐAR BUXUR
Mjög útvíðar buxur fóru úr tísku fyrir löngu en núna eru
buxur sem eru beinar niður eða víðar að falla í ónáð.