Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 4
4 16. júlí 2006 SUNNUDAGUR GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 14.7.2006 Bandaríkjadalur 74,68 75,04 Sterlingspund 137,57 138,23 Evra 94,59 95,11 Dönsk króna 12,679 12,753 Norsk króna 11,96 12,03 Sænsk króna 10,274 10,334 Japanskt jen 0,6444 0,6482 SDR 110,21 110,87 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 130,9663 Gengisvísitala krónunnar SVÍÞJÓÐ Átján manns voru fluttir á sjúkrahús með níu sjúkrabílum í Gautaborg í Svíþjóð í gær, eftir árekstur tveggja rússíbana í Lise- berg-skemmtigarðinum skömmu eftir hádegi í gær. Þrjú börn voru meðal hinna slösuðu. Áreksturinn varð þegar farþeg- ar voru að fara úr einni vagnalest- inni við innganginn í tækið. Eitt- hvað fór úrskeiðis hjá annarri vagnalest sem var að hefja túr sinn, því hún rann aftur á bak og skall á þeirri sem fólkið var að fara úr, að sögn Lasse Zagai, yfirmanns garðs- ins. „Það er auðvitað áfall þegar svona nokkuð hendir,“ sagði Zagai í samtali við sænska fjölmiðla. Vagnalestin hafði rétt hafið ferð- ina upp fyrstu löngu brekkuna þegar hún skyndilega nam staðar og rann svo aftur á bak með fyrr- greindum afleiðingum. Þó hraðinn hafi ekki verið mikill, þá varð skell- urinn samt sem áður töluverður, að sögn Zagai. Alls voru um 40 farþegar um borð í vagnalestunum tveim, en þeir sem voru að fara úr stöðvuðu lest- inni meiddust mest. Tíu hinna slösuðu voru Norð- menn og ellefu Svíar. Enginn þeirra sem fluttir voru á sjúkrahús var illa slasaður, að sögn Staffan Sellberg hjá sænsku lögreglunni, og þykir mikil mildi að ekki fór verr. Fólkið var með bak- og höfuðáverka, og sumir höfðu fengið áfall. Flestir fengu að fara heim í gærkvöld. Garðinum var lokað eftir slysið og unnu starfsmenn hans hörðum höndum við að rannsaka upptök slyssins. Liseberg er stærsti skemmti- garður Svíþjóðar og eru laugardag- ar jafnan annríkustu dagarnir í garðinum, en þá er hann opnaður klukkan ellefu. Rússíbaninn, sem er úr stáli, var byggður árið 1987 og er einn sá stærsti í Svíþjóð. Hann er 1.400 metra langur og geta vagnalestirn- ar ferðast á allt að 80 kílómetra hraða á klukkustund. Fimm vagna- lestir ganga í honum samtímis. Samtals hafa 30 milljón manns keyrt í rússíbananum, en þetta er í fyrsta sinn sem alvarlegt slys sem þetta verður. Rússíbananum hefur verið lokað þar til gengið hefur verið úr skugga um að öryggi gesta sé tryggt. smk@frettabladid.is Rússíbanar rákust á í Liseberg-garðinum Mikil mildi þykir að ekki fór verr en raun bar vitni þegar tveir rússíbanar rákust á í stærsta skemmtigarði Svíþjóðar í Gautaborg í gær. Tuttugu og einn slasaðist, þar af þrjú börn, en enginn illa. RÚSSÍBANINN Níu sjúkrabílar voru kallaðir til þegar slys varð í rússíbananum í Gauta- borg í gær. NORDICPHOTOS/AFP KONU SINNT Sjúkraliði sinnir konu sem slasaðist þegar tveir rússíbanar skullu saman í Liseberg-skemmtigarðinum í Gautaborg í gær. NORDICPHOTOS/AFP SJÓNVARP Sjónvarpsréttur næstu Evrópukeppni landsliða í knatt- spyrnu, sem fram fer í Austurríki og Sviss árið 2008, er laus. Þýska fjölmiðlafyrirtækið Sport- Five hefur réttinn frá UEFA til útdeilingar en EBU, Samtök evr- ópskra sjónvarpsstöðva, sem tryggði Sjónvarpinu sýningaréttinn að næstu heimsmeistarakeppni í fót- bolta, varð undir í útboði. Sjónvarpið þarf því hugsanlega að taka þátt í almennu útboði á opnum markaði ef stofnunin vill tryggja sér réttinn. Hins vegar gætu ýmis ákvæði í sölu á sýningaréttinum, svo sem kvaðir um að sýna keppnina í opinni dag- skrá og svo framvegis, fælt áskrifta- stöðvarnar frá því að taka þátt. Sjónvarpið hefur haft sýninga- réttinn að keppninni undanfarin ár og að sögn Bjarna Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Sjónvarpsins, verður reynt að tryggja að svo verði áfram. „Ég geri ráð fyrir því að við tökum þátt í að kaupa sýningaréttinn að Evrópukeppninni til að gera sem flestum kleift að sjá keppnina,“ segir Bjarni. Ari Edwald, forstjóri 365, segir menn þar á bæ alltaf á höttunum eftir vinsælu sjónvarpsefni og að sjálfsögðu veki sýningarétturinn á keppninni áhuga þeirra. „Sýn lætur engin slík útboð fram hjá sér fara,“ segir Ari. Svar Magnúsar Ragnarssonar, sjónvarpstjóra Íslenska sjónvarps- félagsins, var á svipuðum nótum. „Þetta er áhugavert efni og hugsan- lega munum við sýna því áhuga,“ segir Magnús. Alls óvíst er hvenær SportFive býður sýningaréttinn til sölu og er það ákvörðun fyrirtækisins hvenær það verður. Eitt er þó víst að um vin- sælan sjónvarpsviðburð er að ræða og hart varður barist bæði innan vallar sem utan í aðdraganda keppn- innar. - æþe Sjónvarpsrétturinn á Evrópukeppninni í knattspyrnu árið 2008 er á lausu: Stöðvarnar munu berjast um réttinn EVRÓPUKEPPNIN Í FÓTBOLTA 2004 Líklegt verður að teljast að sjónvarpstöðvar landsins keppi um sýningaréttinn að næstu Evrópukeppni í fótbolta. Ranglega var sagt í Fréttablaðinu í gær að Jónína Bjartmarz væri félagsmálaráð- herra. Jónína er umhverfisráðherra. Beð- ist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTTING HOLLAND, AP Listunnendur flykktust í gær til Hollands til að halda upp á það að 400 hundruð ár eru liðin frá fæðingu málarans Rembrandt Van Rijn. Hátíðarhöldin fóru fram í fæð- ingarbæ málarans, Leiden, og í Amsterdam þar sem hann málaði mörg af sínum frægustu verkum. Stytta af málaranum var heiðruð með fjölmennri göngu aðdáenda að styttunni í Leiden og söngleikur byggður á ævi Rembrandts var frumsýndur í Amsterdam. Rembrandt var uppi á gullaldar- tímabili hollenskrar málaralistar og talinn fremsti maður þar í flokki. Hann varð frægur fyrir að ná vel skilum ljóss og skugga í myndum sínum. - áp Hátíðarhöld í Hollandi: 400 ára afmæli Rembrandts MÁLARI SUNGINN Söngleikur um ævi Rembrandts var frumsýndur í gær. PERÚ, AP Læknir í Perú var ákærð- ur nýverið fyrir að selja börn til barnlausra Evrópubúa. Í íbúð hans og á læknastofu fundust sex börn á aldrinum sex mánaða til tíu ára. Læknirinn, sem er 61 árs, segist faðir þeirra allra og neitar sök. Lögregla telur að hann hafi greitt konum, sem komu til hans í leit að fóstureyðingu, fyrir að fæða börnin, og selt Evrópubúum þau svo fyrir sem samsvarar 400.000 til 750.000 krónum. Yfir- völd rannsaka nú með DNA-próf- um hvort hann sé faðir barnanna. Verði læknirinn fundinn sekur, getur hann átt von á allt að tólf ára fangelsi. - smk Læknir handtekinn í Perú: Grunaður um að selja börn Norðurlandabúar í slysi Langferða- bíll með hóp Norðurlandabúa innan- borðs valt í Egyptalandi í gærmorgun. Fólkið slapp ómeitt úr slysinu. Lögreglan rannsakar nú orsakir slyssins. EGYPTALAND LÖGREGLUMÁL Ökumaður á sjötugs-aldri ók ógætilega á Ólafsfjarðar- vegi frá Akureyri til Dalvíkur og missti stjórn á bílnum neðan við bæinn Hátún. Bíllinn fór út af veg- inum, fór nokkrar veltur og end- aði á hliðinni skorðaður í skurði. Ökumaðurinn var einn á ferð og kalla þurfti til sjúkrabíla og tækja- bíl til að losa hann úr bílnum. Mað- urinn slasaðist, en ekki alvarlega og grunur leikur á að hann hafi verið ölvaður undir stýri. - sgj Ökumaður ók gáleysislega: Bíllinn valt og endaði í skurði AFGANISTAN, AP Hernámsliðið og her Afganistans drápu yfir fjöru- tíu manns í suðurhluta Afganist- ans í gær, þar á meðal tíu í stór- felldri loftárás á eyðimerkurbæ, sem var talinn vera undir stjórn talibana, að sögn hersins. Meira en 300 fallhlífarhermenn réðust inn í bæinn Sangin til að stöðva hundruð talibana sem herinn sagði að væru að skipuleggja árásir. Yfir 700 manns hafa látist vegna átakanna í landinu síðan um miðjan maí. - sgj Ofbeldisbylgja í Afganistan: Tugir dóu í að- gerðum hersins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.