Fréttablaðið - 16.07.2006, Side 6

Fréttablaðið - 16.07.2006, Side 6
6 16. júlí 2006 SUNNUDAGUR www.lyfja.is - Lifið heil VIRKAR Á ÖLLUM STIGUM FRUNSUNNAR - ALDREI OF SEINT! Vectavir FÆST ÁN LYFSEÐILS Vectavir krem er áhrifaríkt lyf til meðferðar á frunsum af völdum Herpes Simplex. Vectavir virkar á öllum stigum frunsunnar frá sting eða æðasláttar til blöðru. Í Vectavir er virka efnið penciklóvír sem stöðvar framgang veirunnar. Vectavir er ætlað fullorðnum og börnum eldri en 12 ára. Berið Vectavir á frunsusvæðið á 2 klst. fresti í 4 daga. Berið á rétt fyrir svefn og um leið og vaknað er. Dæmigert er að frunsa komi fram við ofreynslu, kvef eða inflúensu eða í mikilli sól (t.d. á skíðum). Ekki á að nota lyfið ef að áður hefur komið fram ofnæmi fyrir penciklóvír, famciklóvír eða öðrum innihaldsefnum. Með Vectavir grær frunsan hraðar, verkir minnka og smittími styttist. Vectavir kremið 2 g fæst án lyfseðils. Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. ÍS L E N S K A A U G L † S IN G A S T O FA N /S IA .I S LY F 3 3 4 7 1 0 6 /2 0 0 6 Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni - Egilsstöðum - Höfn Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði - Borgarnesi - Grundarfirði Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd Selfossi - Laugarási HÚSAFRIÐUN Menntamálaráðherra hefur ákveðið friðun fjögurra mannvirkja að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar ríkisins. Þetta eru heilsuverndarstöðin við Bar- ónsstíg í Reykjavík, rjómabúið að Baugsstöðum, Dalatangaviti og gamla sundlaugin að Seljavöllum í Rangárvallasýslu. Fyrirtækið Mark-hús ehf. keypti heilsuverndarstöðina af ríki og borg í nóvember á síðasta ári og hefur nú auglýst bygginguna til sölu eða leigu. Að sögn Markúsar Árnason- ar, framkvæmdastjóra Mark-húsa, eru viðræður í gangi við nokkra aðila en ekki liggur fyrir hvað verð- ur um bygginguna. Heilsuverndarstöðin er með merkustu opinberu byggingum í Reykjavík og jafnframt ein sú óvenjulegasta út frá sjónarhóli byggingarlistar. Friðun hennar nær til ytra borðs, ásamt aðalanddyri og stigahúsi, anddyrum við Barónsstíg og Egilsgötu auk tilheyrandi fastra innréttinga, gólfefna og frágangs. Höfundar eru arkitektarnir Einar Sveinsson og Gunnar H. Ólafsson og er húsið fyrsta sérhannaða heilsugæslubygging landsins. Varðveislugildi rjómabúsins að Baugsstöðum, sem er skammt frá Stokkseyri, felst einkum í menning- arsögu og fágæti þess ásamt ein- stakri varðveislu alls þess sem kemur starfseminni við. Friðunin nær til ytra borðs ásamt tækjum og tólum, lausum og föstum. Dalatangaviti, milli Seyðisfjarð- ar og Mjóafjarðar, er elsti uppi- standandi viti landsins, byggður af Otto Wathne, kaupmanni og útgerð- armanni á Seyðisfirði. Veggirnir eru hlaðnir úr grjóti en þak er klætt bárujárni. Friðunin nær til ytra og innra borðs. Gamla sundlaugin að Seljavöll- um í Rangárvallasýslu er elsta steinsteypta sundlaug landsins. Veggirnir eru úr steinsteypu á þrjá vegu en fjórða hliðin snýr hallandi að klettavegg með náttúrulegum heitum uppsprettum. Friðunin nær til laugarinnar, mannvirkja við hana og nánasta umhverfis sem nær tíu metra umhverfis laugina til suður, norðurs og austurs. Klettaveggur- inn að vestan er allur friðaður. Þorsteinn Gunnarsson, formað- ur húsafriðunarnefndar, segir algera samstöðu hafa verið um frið- un þessara mannvirkja. „Það kemur fyrir að eigendur geri athugasemd- ir þegar á að friða eitthvert mann- virki og það er yfirleitt tekið tillit til þess. En engar slíkar bárust núna.“ Hlutverk húsafriðunarnefndar er að varðveita íslenska byggingar- arfleifð sem hefur menningarsögu- legt gildi. Fyrir kemur að nefndinni berast ábendingar um hvaða mann- virki skuli friða en yfirleitt verða tillögur til á vettvangi nefndarinnar að sögn Þorsteins. sdg@frettabladid.is HEILSUVERNDARSTÖÐIN VIÐ BARÓNSSTÍG Var byggð á árunum 1949 til 1955 og er höfund- arverk Einars Sveinssonar og Gunnars H. Ólafssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Mannvirki með sögulegt gildi friðuð Heilsuverndarstöðin við Barónsstíg, rjómabúið að Baugsstöðum, Dalatangaviti og gamla sundlaugin að Seljavöllum hafa verið friðuð af menntamálaráðherra, samkvæmt tillögum frá húsafriðunarnefnd. BLÓÐBANKINN Nýr vefur á vegum Blóðbankans, www.stofnfrumur.is, var opnaður á föstudag en á honum er hægt að fræðast um stofnfrumur og framgöngu stofnfrumurann- sókna hér á landi og erlendis. Á for- síðu vefsins munu birtast daglegar fréttir af gangi mála og umræðunni um stofnfrumur. Verkefnið er stutt af OgVodafone, sem hefur styrkt Blóðbankann undanfarin ár. Vefurinn á að vera fræðandi fyrir almenning jafnt sem heilbrigð- isstarfsfólk, segir í fréttatilkynn- ingu Blóðbankans. Von bankans er að fagfólk leggi lóð sitt á vogarskál- arnar til að styðja síðuna. - sgj Blóðbankinn opnar vef: Stofnfrumur í brennidepli MENNING Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari fór heim með þrenn verðlaun í alþjóðlegu Johann Sebastian Bach- tónlistarkeppn- inni í Leipzig. Auk þess að hljóta fyrstu verðlaun fyrir fiðluleik og verð- laun fyrir að vera yngsti keppandinn fékk Elfa Rún sérstök áhorfendaverð- laun í fiðluleik. Að sögn Lilju Hjaltadóttur, fiðlu- leikara og móður Elfu Rúnar, bætt- ust áhorfendaverðlaunin óvænt við á verðlaunaathöfninni sem haldin var í gær. Elfa Rún er 21 árs og hefur stundað nám í fiðluleik í Freiburg undanfarin þrjú ár. - at Bach-keppnin í Leipzig: Hlaut þrenn verðlaun ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR ÞORSTEINN GUNNARSSON STJÓRNMÁL Nýr meirihluti í borginni ætlar að bíða eftir skoðun Sam- keppniseftirlitsins á kvörtun fyrri meirihluta. Kvörtunin var vegna ákvörðunar Landsvirkjunar að leggja Laxárvirkjun í stað hlutafjár inn í nýtt smásölufyrirtæki hennar, Orkubús Vestfjarða og RARIK sem heitir Orkusalan. Það hefur enn ekki verið gert en ákvörðunin liggur fyrir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri segir að hann hafi þó alltaf verið sannfærður um að með því að leggja virkjunina í Orkusöluna skerðist hagsmunir Reykvíkinga síður en svo. „Þegar við seljum okkar hlut í Landsvirkjun, verður virkjunin uppi á borði eins og hver önnur verðmæti í þessu fyrirtæki. Þannig að staða okkar veikist ekki hvað það varðar, enda sýndi enginn fram á það,“ segir Vilhjálmur. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að styttist í niðurstöðuna. Reykjavík- urlistinn kvartaði til Samkeppnis- eftirlitsins þar sem hann taldi að verðmat á virkjuninni væri ekki raunhæft og eignir borgarinnar því rýrðar. Þess var einnig krafist að Samkeppniseftirlitið athugaði hvort stofnun og rekstur Orkusölunnar samrýmdust ákvæðum samkeppnis- og raforkulaga. - gag Reykjavíkurborg bíður álits Samkeppniseftirlitsins þrátt fyrir nýjan meirihluta: Álítur ekki að eignin rýrist VILHJÁLMUR Þ. VILHJÁLMSSON Borgarstjórinn bíður svars Samkeppniseftir- litsins við spurningum Reykjavíkurlistans. KJÖRKASSINN Hefurðu smakkað hrefnukjöt? Já 76% Nei 24% SPURNING DAGSINS Í DAG Finnst þér dagskrárgerð í íslensku sjónvarpi vönduð? Segðu skoðun þína á Vísi.is SÞ, AP Aðildarríki Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna samþykktu einróma ályktun síðdegis í gær þar sem fordæmdar eru tilraunir Norður-Kóreumanna með eld- flaugar fyrr í þessum mánuði. Jafnframt er þess krafist að Norð- ur-Kóreumenn gefi eldflaugaáætl- un sína upp á bátinn. Sinni Norður-Kórea ekki þess- ari ályktun, verður gripið til refsi- aðgerða. Öryggisráðið hefur fundað um málið í tíu daga, en Kínverjar og Rússar hafa sett sig gegn því að ráðið beiti Norður-Kóreu of mikl- um þrýstingi. - smk Öryggisráð SÞ: Norður-Kóreu verður refsað ÖRYGGISRÁÐIÐ Frá fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMGÖNGUR Borgarfulltrúar Vinstri grænna hafa óskað eftir umræðu um málefni Strætó bs. á næsta borgarráðsfundi. Vilja þeir endurskoða aðild Reykjavíkur að byggðasamlaginu sem rekur Strætó bs. þar sem ljóst sé að sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu eigi ekki samleið í mál- efnum almenningssamgangna. Nýkjörin stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að hefja ekki á ný akstur á 10 mínútna tíðni á stofn- leiðum eins og var í síðustu vetr- aráætlun. Stofnleið S5 verður enn fremur lögð niður en breytingar gerðar á þjónustutíma leiðar 19 til mótvægis. Þessar aðgerðir eru ætlaðar til að taka á rekstrarvanda Strætó bs. og stöðva 360 milljóna króna halla- rekstur að því er segir í fréttatil- kynningu. Þar kemur einnig fram að sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu, eigendur Strætó bs., munu ekki leggja fram meira fé til að rétta af reksturinn og viðhalda taprekstri. Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir hækkandi eldsneytiskostn- að, aukna verðbólgu, launahækk- anir, gengisþróun, en fyrst og fremst fækkun farþega, samfara sívaxandi fjölda bifreiða í einka- eign, vera lykilþætti í erfiðum rekstri fyrirtækisins að undan- förnu. - sdg BIÐ EFTIR STRÆTÓ Það er vissara að vera vel búinn ef biðin dregst á langinn. Ákveðið hefur verið að hætta með ferðir á 10 mínútna fresti. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Aðgerðum Strætó bs. ætlað að stöðva 360 milljóna króna hallarekstur: Fækkun farþega og fjölgun einkabíla veldur erfiðleikum Þriggja bíla árekstur Þrír bílar lentu í árekstri á Borgarfjarðarbrú á þriðja tímanum í gær. Um aftanákeyrslu var að ræða og urðu engin slys á fólki. Fékk golfkúlu í hausinn Maður sem lék golf á golfvelli við Ísafjörð í gær varð fyrir því óláni að fá golfkúlu í höfuðið. Læknisskoðun leiddi í ljós að mannin- um hefði ekki orðið meint af og hélt hann því leiknum ótrauður áfram. LÖGREGLUFRÉTTIR ELFA RÚN KRISTINSDÓTTIR HLEMMUR Framkvæmdastjóri Strætó segir hækkandi eldsneytiskostnað, launahækkanir og fækkun farþega vera lykilþætti í erfiðum rekstri fyrirtækisins. LÖGREGLUMÁL Lögreglumenn í Reykjanesbæ handtóku sex manns í fyrrakvöld. Fólkið var statt í húsi í bænum og gerðu lögreglumenn húsleit. Við húsleitina fundust 415 e-töflur. Einnig fundust 15 grömm af fíkniefnum sem lögregla telur vera amfetamín og smáræði af kókaíni. Fólkið var allt látið gista í fangageymslum yfir nóttina. Þeim var sleppt í gær að loknum yfir- heyrslum. Málið telst upplýst að sögn varðstjóra lögreglunnar í Reykjanesbæ. - sdg Fíkniefni í Reykjanesbæ: Sex teknir með 415 e-töflur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.