Fréttablaðið - 16.07.2006, Page 8
8 16. júlí 2006 SUNNUDAGUR
VEISTU SVARIÐ?
1Hvar á landinu er hlutfall þeirra sem stunda kynlíf í 10. bekk hæst?
2 Hvaða menn voru fyrirrennarar Eiðs Smára Guðjohnsen í treyju
númer 7 hjá liði Barcelona?
3Fyrir hvern er lengsta sjónvarpsaug-lýsing landsins gerð?
SVÖR Á SÍÐU 38
ÞRÓUNARAÐSTOÐ Framkvæmda-
stjóri Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna UNICEF, Ann Veneman,
skrifaði á föstudag undir framtíð-
arsamning við UNICEF á Íslandi.
Með samstarfssamningnum skuld-
bindur íslenska landsnefndin sig
til að halda áfram að afla fjár til
verkefna UNICEF og fylgja stöðl-
um samtakanna.
Eftir tveggja ára starf UNICEF
á Íslandi hefur landsnefndin náð
þeim árangri að safna að meðaltali
12,5 bandaríkjadölum á hvern
íbúa. Það er hlutfallslega meðal
hæstu framlaga innan lands-
nefnda UNICEF.
UNICEF vinnur í 157 löndum
og byggir starf sitt á Þúsaldar-
markmiðum Sameinuðu þjóðanna
um þróun, en þau miða meðal ann-
ars að því að draga úr fátækt og
tíðni ungbarnadauða og auka
menntun fyrir árið 2015. Í því
starfi treystir UNICEF eingöngu á
frjáls framlög einstaklinga, fyrir-
tækja og ríkisstjórna.
Veneman segir meginmarkmið
UNICEF sé að skapa eins góð skil-
yrði og hægt er fyrir börn til að
eiga gott og heilbrigt líf. „Um 10,5
milljónir barna undir fimm ára
aldri deyja árlega vegna sjúkdóma
sem auðvelt er að koma í veg fyrir
eða lækna. Og hungur stuðlar að
um helmingi þessara dauðsfalla.“
Veneman fundaði með Valgerði
Sverrisdóttur utanríkisráðherra á
föstudaginn þar sem rætt var um
fjárframlög Íslands til verkefna
UNICEF sem hafa stóraukist á
seinustu árum í samræmi við
aukin fjárframlög Íslands til þró-
unaraðstoðar. Valgerður segir fyr-
irséð að íslensk stjórnvöld muni
styrkja UNICEF um 30 milljónir í
ár. „Í því felst meðal annars að
aðstoða börn í Mið-Afríku sem
hafa sinnt hermennsku og aðlaga
þau að venjulegu lífi á nýjan leik.
Einnig verða tveir íslenskir ung-
liðar styrktir til verkefna á vegum
UNICEF í Kenía og á Indlandi.“
Veneman segir Íslendinga geta
lagt sitt af mörkum til þróunar-
hjálpar. „Enn eru milljarðar í
heiminum sem lifa á minna en 150
krónum á dag og mikilvægt að
fólk geri sér grein fyrir því. Við
getum hjálpað með fjárhagsstuðn-
ingi gegnum samtök á borð við
UNICEF. Það vakti einnig athygli
mína í samtalinu við utanríkisráð-
herrann að hér eru sérvið, á borð
við fiskiðnað og jarðvarma, þar
sem Íslendingar geta miðlað af
kunnáttu sinni til að skapa efna-
hagtækifæri í þróunarríkjum.
Landsnefndir, á borð við þá
sem er á Íslandi, eru í 37 löndum.
Flest Evrópulönd hafa landsnefnd
ásamt fleiri löndum sem sjá að
mestu leyti um fjáröflun fyrir
starfsemi UNICEF en kostnaður
er tvær til tvær og hálf milljón
króna árlega.
Veneman segir íslensku lands-
nefndina standa sig afar vel. „Hún
jók fjárframlög sexfalt milli
áranna 2004 og 2005 og mun auka
þau enn meir núna milli áranna
2005 og 2006.“ sdg@frettabladid.is
ANN VENEMAN FRAMKVÆMDASTJÓRI UNICEF Veneman tók við embætti 1. maí árið 2005
og varð þar með fimmti framkvæmdastjóri UNICEF í 60 ára sögu samtakanna.
Framlög Íslendinga
meðal þeirra hæstu
Framkvæmdastjóri UNICEF hefur undirritað framtíðarsamning við íslensku
landsnefndina. Framlög landsnefndarinnar eru hlutfallslega meðal þeirra
hæstu innan landsnefnda UNICEF. Framlög ríkisins hafa stóraukist síðustu ár.
PÓLLAND, AP Jaroslaw Kaczynski
sór á föstudag embættiseið sinn
sem forsætisráðherra Póllands.
Ráðherrar í ríkisstjórn hans gerðu
slíkt hið sama, en þeir voru flestir
í ríkisstjórn fyrrverandi forsætis-
ráðherra, Kazimierz Marcinki-
ewicz.
Kaczynski er tvíburabróðir for-
seta Póllands, Lech Kaczynski.
Ekki er búist við miklum breyt-
ingum á stefnu stjórnarinnar, þar
sem nýi forsætisráðherrann er
jafnframt formaður hins íhalds-
sama stjórnarflokks og hafði sem
slíkur töluverð áhrif á stefnu fyrri
stjórnar. - gb
Stjórnarskipti í Póllandi:
Tvíburinn tók
við stjórninni
JAROSLAW KACZYNSKI Sór embættiseið
sinn á föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRETLAND Rúmlega eitt hundrað
þúsund ólöglegum hnífum var
skilað til bresku lögreglunnar á
fimm vikum, kemur fram á frétta-
vef breska ríkisútvarpsins, BBC.
Breska lögreglan hóf nýverið
herferð gegn ólöglegum hnífum
og öðrum vopnum, og lofaði að
spyrja hvorki spurninga né ákæra
fólk sem skilaði hnífum inn til
þeirra í fimm vikna átaki sem lauk
30. júní.
Varð árangurinn framar
vonum, og segjast lögregluyfir-
völd vonast til þess að hann endur-
spegli breyttan hugsanahátt gagn-
vart eggvopnum.
Hnífsblöðin voru endurunnin í
endurvinnslustöð í Hertfordshire
á föstudag. - smk
Breska lögreglan:
100.000 hníf-
um skilað inn
HNÍFUR Bretar hafa verið duglegir að skila
inn hnífum.
MINJAVERND Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri afhjúpaði
á föstudag upplýsingaskilti þar
sem fræðast má um tilurð og sögu
Grímsstaðavararinnar við Ægi-
síðu í Reykjavík en hún var ein af
sjö vörum við Skerjafjörð og sú
þeirra sem lengst var róið frá.
Þetta er gert í tilefni þess að
Reykjavíkurborg hyggst varð-
veita minjar um útgerð í Gríms-
staðavör.
Vilhjálmur segir grásleppu-
skúrana við Ægisíðu vera minnis-
varða um útgerð grásleppubát-
anna og þá vösku trillukarla sem
þar sóttu sjóinn.
Kjartan Magnússon borgar-
fulltrúi segir grásleppuskúrana í
því ástandi að það þurfi að taka
ákvörðun um það hvort á að halda
upp á þá eða rífa þá. „Skúrarnir
liggja undir skemmdum en það er
mín skoðun að það eigi að varð-
veita þessar minjar og verja
skúrana fyrir skemmdum.“
Kjartan segir varðveislu
skúranna bjóða upp á þann mögu-
leika að í framtíðinni verði hægt
að standa fyrir sýningum við
skúrana um fiskverkun og útgerð
frá fyrri tíð.
Á skiltinu sem afhjúpað var í
gær segir meðal annars að þó svo
Grímsstaðavörin hafi verið þekkt-
ust fyrir útgerð grásleppubáta
síðustu áratugina hafi áður fyrr
ekki síður verið gert út á þorsk og
ýsu. Þegar mest var voru sextán
bátar gerðir út frá vörinni en það
var Björn Guðjónsson sem síðast-
ur gerði út frá Grímsstaðavör allt
til ársins 1998.
- hs
Borgarstjóri afhjúpaði upplýsingaskilti um útgerð í Grímsstaðavör við Ægisíðu:
Grásleppuskúrarnir fá að lifa
FRÆÐSLUSKILTIÐ AFHJÚPAÐ Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri og Björn Guð-
jónsson afhjúpa fræðsluskiltið um útgerð í
Grímsstaðavör.
Aðgerðir gegn mávum Bæjaryfir-
völd í Hafnarfirði hafa ákveðið að fara í
átak gegn mávum sem sagðir eru angra
bæjarbúa og vekja ótta hjá hafnfirsk-
um börnum eftir að skólpútrásum við
Herjólfsgötu í Hafnarfirði var lokað. Þar
með eru bæjaryfirvöld að fylgja í fótspor
sjálfstæðismanna í Reykjavík sem einnig
eru í svipuðu átaki.
NÁTTÚRA
VIÐSKIPTALÍF Hannes Hilmarsson
tekur við stöðu forstjóra Air Atl-
anta Icelandic af Hafþóri Haf-
steinssyni sem
verður stjórnar-
formaður félags-
ins.
Hannes, sem
er 41 árs við-
skiptafræðing-
ur, hefur verið
framkvæmda-
stjóri fjarmála-
sviðs og aðstoð-
arforstjóri
fyrirtækisins frá því um áramót.
Hann hefur starfað við flugrekst-
ur í 16 ár, þar af 14 ár í stjórnenda-
stöðum hjá Icelandair bæði hér-
lendis og erlendis.
Air Atlanta Icelandic var stofn-
að árið 1986 og er leiðandi á sviði
þjónustuleigu flugvéla í heimin-
um. - áp
Breytingar hjá Atlanta:
Hannes sest í
forstjórastól
HANNES
HILMARSSON
FLUGSAMGÖNGUR Talsverðar tafir
urðu á flugi vélar Iceland Express
til Friedrichshafen í gærmorgun.
Bilun mun hafa komið upp í loku í
hjólabúnaði vélarinnar. Þegar
vélin var komin í loftið fóru hjólin
upp með eðlilegum hætti en lok
búnaðarins féll ekki að. Ákveðið
var að lenda vélinni aftur í Kefla-
vík til að gera við lokuna.
Eftir viðgerðina var vélinni
flogið í stutt reynsluflug og að því
búnu gengu farþegar um borð á
ný. Vélin lenti síðan í Friedrich-
shafen í gærmorgun og var um
klukkustund á eftir áætlun. - áp
Vél Iceland Express tafðist:
Bilun kom upp
í hjólabúnaði
ICELAND EXPRESS Flugvélar Iceland
Express, Ásinn og Tvisturinn, koma saman
til Keflavíkur í fyrsta sinn.
Rúta af vegi Rúta með fjörutíu tékk-
neska ferðamenn innanborðs fór út af
vegi og festist í Lundarreykjardal í gær.
Engan sakaði.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Urðun að Strönd Skipulagsstofnun
hefur borist frummatsskýrsla Sorps-
töðvar Rangárvallasýslu um mat á
umhverfisáhrifum stækkunar móttöku-,
flokkunar- og urðunarsvæðis að Strönd
í Rangárþingi ytra. Allir geta lagt fram
athugasemdir við tillöguna.
SKIPULAGSMÁL
LÖGREGLUFRÉTTIR Ökumaður drátt-
arbíls ók á hæðarslá á leið sinni
inn í Hvalfjarðargöng í fyrrdag,
en sinnti ekki viðvöruninni og hélt
áfram inn í göngin. Reyndust þau
of þröng og bíllinn festist. Loka
þurfti göngunum í tvo klukkutíma
meðan unnið var að því að losa
stífluna og hreinsa til.
Dráttarbíllinn var með gröfu á
pallinum og því nokkuð yfir leyfi-
legum hæðartakmörkunum í göng-
in. Kalla þurfti til slökkvilið til að
þrífa upp smurolíu sem lak úr
bílnum. Lögregla segir það gerast
oft í viku að ökumenn virði ekki
hæðartakmarkanir og sýni með
því ótrúlegt kæruleysi. - sgj
Hvalfjarðargöng stífluðust:
Stórir bílar
festast ítrekað
VÍSINDI, AP Þótt ekki sé óalgengt að
dýr kenni ungum sínum að veiða,
er sjaldgæft að villt dýr leggi sig
jafn mikið fram við það og jarð-
kettir gera, að því er kemur fram í
nýrri rannsókn háskólans í Cam-
bridge á Englandi. Oftast fylgist
ungviðið bara með eldri dýrum og
lærir þannig, en hér er um raun-
verulega kennslu að ræða, að sögn
Alex Thornton, eins vísindamann-
anna sem tóku þátt í rannsókninni.
Þrátt fyrir nafnið eru jarðkettir
ekki kattardýr, heldur lítil rándýr
af mongús-flokknum. Þeir eru
spendýr sem búa í Suður-Afríku og
éta meðal annars eitraða sporð-
dreka, köngulær og eðlur, sem erf-
itt er fyrir afkvæmin að með-
höndla. Rannsóknin sýndi að
fullorðnu dýrin byrja á því að sýna
ungviðinu dauða bráð, kenna því
svo hvernig ber að fara með lifandi
bráð sem þeir fullorðnu hafa
lemstrað aðeins, og hvetja það loks
til að veiða sjálft. Fullorðnu dýrin
fjarlægja meira að segja broddinn
af sporðdrekum áður en kettling-
arnir fá þá í loppurnar.
„Mig grunar að miklu meira sé
um eiginlega kennslu en við höfð-
um áður haldið,“ sagði Thornton,
og bætti við að sérstaklega teldi
hann að þetta ætti við dýrategund-
ir sem nota flóknar veiðiaðferðir.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru birtar í vísindatímaritinu Sci-
ence á föstudag. - smk
Athyglisverðar niðurstöður í rannsókn á jarðköttum í Suður-Afríku:
Kettlingarnir í veiðiskóla
JARÐKÖTTUR MEÐ KETTLING Jarðkettir
kenna ungviðinu handtökin á bráðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP