Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 63

Fréttablaðið - 16.07.2006, Blaðsíða 63
SUNNUDAGUR 16. júlí 2006 31 410 4000 | landsbanki.isTryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 35 03 07 /2 00 6 Í SL EN SK A AU G LÝ SI N G AS TO FA N /S IA .I S L BI 3 35 03 07 /2 00 6 sun. 16. júlí kl. 20:00 mán. 17. júlí kl. 20:00 þri. 18. júlí kl. 19:15 þri. 18. júlí kl. 19:15 þri. 18. júlí kl. 19:15 þri. 25. júlí kl. 19:15 þri. 25. júlí kl. 19:15 þri. 25. júlí kl. 19:15 þri. 25. júlí kl. 19:15 FH - Valur KR - ÍA ÍBV - Breiðablik Víkingur - Keflavík Grindavík - Fylkir Valur - Fylkir Stjarnan - Þór/KA Keflavík - KR FH - Breiðablik 10. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA 11. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA FÓTBOLTI Forráðamenn félaganna fjögurra sem dæmd voru fyrir aðild sína að hneykslismálinu sem nú skekur Ítalíu, eru allir mjög ósáttir við refsingu sérstaks dóm- stóls ítalska knattspyrnusam- bandsins. Juventus, Lazio og Fior- entina voru send niður í Serie-B deildina en refsingarnar má sjá í heild sinni hér til hliðar. Forsaga málsins er sú að sam- tölum á milli Luciano Moggi, þáverandi stjórnarformanns Juventus og háttvirts manns innan ítalska knattspyrnusam- bandsins var lekið í fjölmiðla. Maðurinn sem Moggi var að ræða við raðaði niður dómurum á leiki í Serie-A deildinni og óskaði Moggi eftir að fá ákveðna dómara á leiki Juventus. Eftir að samtölin láku út fór boltinn að rúlla og saksókn- arar í Tórínó, Napóli og Rómaborg settu mikla rannsókn af stað sem leiddi ýmislegt merkilegt í ljós. Rannsóknin sýndi að Moggi var ekki sá eini seki en öll stjórn Juventus sem og ítalska knatt- spyrnusambandsins sagði af sér eftir að flett hafði verið ofan af mönnunum. Lazio, Fiorentina og AC Milan voru öll viðriðin málið en fengu þó ekki jafn mikinn skell og Juventus sem fékk þyngsta dóminn. Öll félögin hafa staðfest að þau muni áfrýja dómunum sem þau fengu. 30 stig verða tekin af Juventus sem þýðir að mjög erfitt verður fyrir liðið að komast upp um deild, sér í lagi ef þeir missa megnið af stórstjörnum liðsins. Auk þess verða nokkur sterk lið í deildinni, þeirra á meðal Lazio og Fiorent- ina en af þeim verða þó líka tekin stig. „Liðsmenn Juve eru mjög ósáttir með refsinguna. Félagið mun ekki taka þessu enda er skrýtið að refsa félaginu þegar nokkrir fyrrum starfsmenn þess eru viðriðnir málið. Við munum áfrýja og gera allt sem í okkar valdi stendur til að breyta dómn- um,“ sagði Gilli og stjórnarfor- maður Jean-Claude Blanc tók í sama streng. „Við bjuggumst við því að jafn- vægi yrði í dómnum en augljós- lega voru þær vangaveltur okkar ekki réttar. Juventus fékk mun þyngri refsingu en hin félögin. Við skiljum ekki af hverju við fáum langsamlega hörðustu refs- inguna þegar málin virðast vera svipuð að gerð,“ sagði Blanc. AC Milan sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem félagið lýsir yfir furðu sinni á dómnum. „AC Milan telur að úrskurðurinn sé alls ekki sanngjarn og að honum verði að breyta. Við munum áfrýja um leið og kostur gefst til í þeirri trú að þessum fáránlega dómi verði breytt,“ sagði í yfirlýsing- unni. Forráðamenn Fiorentina sendu einnig frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þetta kom fram. „Fior- entina hefur borist úrskurður aganefndarinnar, úrskurður sem er algjörlega fáránlegur. Með það fyrir augliti, undirstrikar Fiorent- ina andúð sína á hegðun fyrrver- andi stjórnarmanna félagsins. Af virðingu við borgina, stuðnings- mennina og þá sem tengdir eru málinu, mun Fiorentina berjast fyrir rétti sínum.“ Forseti Lazio, Claudio Lotito, sem hefur verið bannaður frá öllum afskiptum af knattspyrnu, segist ætla að hreinsa mannorð klúbbsins. „Þetta er úrskurður sem við bjuggumst alls ekki við að heyra þar sem við stöndum í þeirri trú að við höfum ekki farið í bága við lögin, enda var það aldrei ætl- unarverk okkar. Það er augljóst að nokkrir dómarar sem dæmdu leiki sem við spiluðum eru viðriðnir málið en það segir ekki alla sög- una. Lazio mun ekki sætta sig við dóminn og ef þörf krefur förum við fyrir Mannréttindadómstól Evrópu,“ sagði Lotito. hjalti@frettabladid.is Mikil óánægja með dóminn á Ítalíu Þrjú félög voru send niður í Serie-B deildina á Ítalíu fyrir aðild sína að hneykslismálinu sem nú er að leys- ast eftir miklar rannsóknir. Forráðamenn félaganna sætta sig ekki við refsingarnar og ætla að áfrýja. GIGLI Nýr forseti Juventus, Giovanni Cobollo Gigli, á blaðamannafundi þar sem hann fordæmdi niðurstöðu dómsins. VONBRIGÐI Þessi svipur á David Trezeguet, leikmanni Juventus, lýsir því vel hvernig öllum sem tengjast félaginu líður eftir að liðið var dæmt niður um deild.NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Forráðamenn AC Milan hafa ekki gefið upp alla von um að spila í Evrópukeppni á næstu leik- tíð. Eftir að hafa verið fundið sekt í Ítalíuskandalnum svokallaða, var félagið rekið úr Meistaradeildinni en 44 stig voru tekin af AC Milan fyrir síðustu leiktíð. Það þýðir að liðið var einu stigi á eftir Empoli sem fékk sæti í UEFA bikarkeppn- inni en forráðamenn Milan eru ekki á eitt sáttir. „Empoli hefur ekki leyfi til að spila í UEFA bikarkeppninni. Fresturinn til að fá leyfi til þess er runninn út og því gæti AC Milan enn verið með í keppninni,“ sagði í yfirlýsingu frá ítalska liðinu í gær. Hvort það er einhver sárabót fyrir stórstjörnur ítalska liðsins verður að koma í ljós en UEFA keppnin er ekki ýkja hátt skrifuð hjá flestum. - hþh AC Milan: Vill spila í UEFA bikarnum FÓTBOLTI Roberto Mancini, stjóri Juventus, fer fram á það að Inter Milan fái Ítalíutitilinn frá síðasta ári eftir úrskurð aganefndarinnar. Titlar tveggja síðustu ára voru teknir af Juventus auk þess sem 44 stig voru tekin af AC Milan. Inter yrði því efst með 76 stig. „Það er rétt að enginn á að fá titilinn fyrir tveimur árum en sá síðasti ætti að koma til Inter. Ef lið vinnur með því að svindla er sann- gjarnt að veita þeim sem var á eftir þeim á sanngjarnan hátt titil- inn,“ saði Mancini. Líklegast þykir þó að titlar síð- ustu tveggja ára verði einfaldlega gerðir ógildir. - hþh Roberto Mancini, stjóri Inter: Vill fá titilinn REFSINGAR FÉLAGANNA Juventus: Sent niður í Serie-B deildina, 30 stig tekin af þeim á næsta tímabili. Tveir síðustu titlar hrifsaðir af þeim Fær ekki þátttökurétt í Meistaradeildinni 2006. Luciano Moggi, fyrrverandi stjórnarformað- ur, fær fimm ára bann frá knattspyrnunni. Antonio Giraodo, fyrrverandi stjórnarmaður fær fimm ára bann frá knattspyrnunni. AC Milan: 15 stig tekin af þeim á næsta tímabili. Fær ekki þátttökurétt í Meistaradeildinni 2006. Adriano Galliano, varaforseti félagsins, fær eins árs bann frá knattspyrnunni. Leoanardo Menai, stjórnarmaður, fær þriggja ára og sex mánaða bann frá knattspyrnunni. Fiorentina: Sent niður í Serie-B deildina, 12 stig tekin af þeim á næsta tímabili. Fær ekki þátttökurétt í Meistaradeildinni 2006. Andrea Della Valle, forseti félagsins, fær fimm ára og sex mánaða bann frá knatt- spyrnunni. Diego Della Valle, heiðursforseti, fær fimm ára og sex mánaða bann frá knattspyrnunni. Lazio: Sent niður í Serie-B deildina, 7 stig tekin af þeim á næsta tímabili Fær ekki þátttökurétt í Uefa-keppninni. FÓTBOLTI Talið er líklegt að margir leikmenn muni fara frá Juventus nú þegar orðið er ljóst að liðið verð- ur líklega ekki í Serie-A deildinni næstu tvö árin. Liðið var fellt niður um deild auk þess sem 30 stig voru tekin af liðinu og verður því erfitt fyrir félagið að koma sér aftur upp á meðal þeirra bestu. Lazio og Fiorentina munu lík- lega missa sína bestu menn, en einna helst er þar að nefna Luca Toni sem er líklega á leiðinni til Inter. Ekki er talið að AC Milan muni selja sína menn þrátt fyrir að félagið verði ekki með í Meistara- deildinni á tímabilinu. Sömu sögu er ekki að segja af Juventus. Fabio Capello er þegar farinn og má leiða líkur að því að hann fari í sitt gamla félag og sæki nokkrar stórstjörnur til Real Madr- id. Arsenal og AC Milan hafa sýnt einum besta og dýrasta markverði heims áhuga, Gianluigi Buffon en líklegt er talið að hann haldi sig á Ítalíu. Forráðamenn Juventus segja þó að þeir vilji alls ekki selja neina leikmenn, en það gæti reynst þeim erfitt. „Ég vona að einhverjir af leikmönnum okkar verði áfram hjá okkur. Augljóslega verður erfitt fyrir einhverja af þeim að fara ekki en það er klárt mál að það verður að greiða fullt verð fyrir mennina,“ sagði Giovanni Cobolli Gilli, forseti Juventus en félagið hefur tapað miklum fjármunum enda hefur liðið hrapað niður á hlutabréfa- markaðnum á Ítalíu. - hþh Leikmenn Juventus flykkjast líklega frá félaginu: Hverjir eru á lausu? LEIKMENN JUVENTUS Zlatan Ibrahimovic, Gianlugi Zambrotta, Adrian Mutu og David Trez- eguet eru líklega allir að fara frá Juventus.NORDICPHOTOS/AFP HEITUSTU BITARNIR Gianluigi Buffon, Patrick Vieira, Cristiano Zanetti, Robert Kovac, Emerson, Zlatan Ibra- himovic, Pavel Nedved, Mauro Camoranesi, David Trézéguet, Gianluca Zambrotta, Lilian Thuram, Fabio Cannavaro.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.