Fréttablaðið - 16.07.2006, Qupperneq 66
16. júlí 2006 SUNNUDAGUR34
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
FÓTBOLTI Barcelona hefur brotið
blað í sögu félagsins en þeir munu
í fyrsta skipti bera auglýsingar á
búningum sínum á næstu leiktíð.
Barcelona hefur gert fimm ára
samning við UNICEF, Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna, og munu
þeir vera í forsvari fyrir munað-
arlaus börn, þá sér í lagi þau sem
eru með HIV/AIDS sjúkdóminn.
Barcelona hafa aldrei auglýst
áður á búningum sínum en þeir
voru nálægt því að skrifa undir
samning þess efnis við ríkisstjórn
Kína um að auglýsa Ólympíuleik-
ana þar í landi árið 2008. Barce-
lona ákvað aftur á móti að halda
áfram stefnu sinni í góðgerðarmál-
um en þeir hafa einnig ákveðið að
gefa 0,7 prósent af heildarveltu
sinni á árinu til góðgerðarmála.
Stolt Katalóna við Barcelona er
gríðarlegt og litu menn þar svo á
að það jaðraði við helgispjöll að
auglýsa á búningum liðsins. Með
þessu framtaki eru þó á allir eitt
sáttir og munu Eiður Smári og
félagar því bera skilaboð frá
UNICEF framan á búningum
sínum næstu fimm árin. - hþh
Barcelona auglýsa á búningum sínum í fyrsta skipti:
Skilaboð frá UNICEF
á treyjum Börsunga
AUGLÝSA Í FYRSTA SKIPTI Samuel Eto´o og félagar fá auglýsingar á búningana sína.
FÓTBOLTI Úkraínski sóknarmaður-
inn Andriy Shevchenko vonast til
að byrja með látum í ensku úrvals-
deildinni eftir komu sína til Chel-
sea. Margir bíða spenntir eftir því
að sjá hvernig þessi magnaði
markaskorari hefur leik en fyrsti
stórleikur Chelsea verður gegn
Liverpool í hinum árlega leik um
góðagerðarskjöldinn 13. ágúst.
„Ég vonast til að skora mörk
fyrir Chelsea og hjálpa liðinu að
vinna stórleikina,“ sagði Shev-
chenko.
„Ég hef unnið marga titla í
gegnum árin og fengið mörg ein-
staklingsverðlaun en ég hef feng-
ið að kynnast því að mesta umbun-
in er þegar liðinu gengur vel.“
- hþh
Andriy Shevchenko:
Ætlar að byrja
með látum
FÓTBOLTI Norðmaðurinn Ole
Gunnar Solskjær skoraði tvö mörk
fyrir Manchester United þegar
liðið vann 4-0 sigur á liði Orlando
Pirates frá Suður-Afríku í æfinga-
leik í gær. Solskjær er 33 ára og
hefur nánast ekkert spilað sein-
ustu tvö tímabil vegna meiðsla.
Kieran Richardson skoraði eitt í
gær en hitt markið var sjálfs-
mark.
United lék í nýjum búningum í
leiknum sem notaðir verða á kom-
andi leiktíð en þeir voru gerðir í
tilefni þess að fimmtíu ár eru liðin
síðan Busby Babes unnu sinn
fyrsta meistaratitil. - egm
Æfingaleikur Man. Utd.:
Solskjær með
tvö mörk
SCHOLES Paul Scholes spilaði leikinn í gær
og tók sig vel út í nýja búningnum.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Þegar Ramon Calderon
var krýndur sigurvegari í forseta-
kosningum Real Madrid í byrjun
mánaðarins var nánast ljóst að
Fabio Capello yrði næsti aðalþjálf-
ari liðsins. Capello hefur náð
undraverðum árangri á sínum
þjálfaraferli og gerði Juventus að
meisturum á síðustu tveimur tíma-
bilum en þeir titlar hafa reyndar
verið teknir af félaginu í kjölfar
Ítalíuhneykslisins. Það efast eng-
inn um færni Capello en hann
stýrði Real Madrid til meistaratit-
ils árið 1997 og er hann því nú snú-
inn aftur til félagsins.
Capello er einn virtasti þjálfari
heims og margar stærstu stjörnur
heims vilja spila undir hans stjórn.
Nú þegar allt er komið í bál og
brand í ítalska fótboltanum er
búist við því að Real Madrid muni
sækja hart að stærstu stjörnunum
hjá þeim liðum sem flækt eru í
Ítalíumálið. Þar er Kaka talinn
hvað líklegastur en þessi brasil-
íski snillingur hefur þroskast
mikið sem knattspyrnumaður í
herbúðum AC Milan og ætti að
geta gengið inn í öll félagslið
heims.
Þá er varnarmaðurinn Fabio
Cannavaro, einn besti leikmaður
heimsmeistaramótsins, ofarlega á
óskalista Real. Cannavaro er í her-
búðum Juventus en spænska stór-
liðið vill einnig fá liðsfélaga hans,
þá Gianluca Zambrotta og Emer-
son. Hollenski vængmaðurinn
Arjen Robben er einnig á óskalista
félagsins sem og Cristiano Ron-
aldo hjá Manchester United sem
virðist ekki vita í hvorn fótinn
hann á að stíga þessa dagana.
Hinn stórefnilegi Cesc Fabre-
gas hjá Arsenal var meðal þeirra
leikmanna sem Calderon lofaði
kjósendum sínum að fá til félags-
ins, það er þó hinsvegar þegar
ljóst að hann hefur svikið það lof-
orð því umboðsmaður Fabregas
staðfesti að hann væri ekki á
förum. „Arsenal hefur gert mikið
fyrir Cesc og hann vill þakka
traustið og leggur sig allan fram
fyrir félagið. Ég veit það sjálfur
að hann er ekki til sölu, Arsenal
vill halda honum sama hve hátt til-
boð berst,“ sagði umboðsmaður
Fabregas,
Capello hefur gert tilraun til
endurnýja kynni sín við Cristian
Chivu sem hann þjálfaði þegar
hann var með Roma en sá rúm-
enski vill ekki fara. „Síðustu þrjú
ár hef ég alltaf þurft að svara fyrir
kjaftasögur. Ég er ánægður hjá
Roma og er ekkert á förum. Ég er
stoltur af því að stórt lið eins og
Real Madrid sýni mér áhuga en
stoltastur er ég af því að fá að
klæðast búningi Roma á næsta
tímabili,“ sagði Chivu.
Capello hefur ekki leynt dálæti
sínu á hollenska sóknarmanninum
Ruud van Nistelrooy sem hefur
farið fram á sölu frá Manchester
United, hann mun þó fá samkeppni
um leikmanninn og þá helst frá
þýska liðinu Bayern München.
„Nistelrooy er leikmaður sem
getur blómstrað hjá öllum þeim
liðum sem hann spilar fyrir. Hann
er fæddur markaskorari og þannig
leikmann vil ég hafa í mínu liði,“
sagði Capello. Talið er að Real
Madrid hafi þegar boðið tíu millj-
ónir punda í Nistelrooy en því til-
boði hafi verið hafnað því United
vilji hærri upphæð.
Spennandi verður að fylgjast
með því hvað gerist í leikmanna-
málum Real Madrid en margir eru
á því að félagið hafi loksins stigið
rétt skref í ráðningu að þjálfara.
Ljóst er að það koma nýjar stór-
stjörnur til liðsins áður en tímabil-
ið byrjar en spurningin er hve
margar þær verða.
elvargeir@frettabladid.is
Hvaða stjörnur fær Fabio Capello?
Spænska stórliðið Real Madrid er það félag sem er líklega hvað oftast nefnt þegar verið er að greina frá
hugsanlegum kaupum í fótboltanum. Nú er Fabio Capello tekinn við stjórninni og er í leikmannaleit
Í STJÖRNULEIT Fabio Capello er að skoða leikmannamarkaðinn þessa dagana og hyggst
styrkja sitt lið umtalsvert. NORDICPHOTOS/AFP
FORMÚLA 1 Ferrari ökumennirnir
Michael Schumacher og Felipe
Massa náðu bestu aksturstímun-
um í tímatökunni fyrir kappakst-
urinn sem fram fer á Magny
Cours brautinni í Frakklandi í
dag. Aðeins munaði örfáum sek-
úndubrotum á milli þeirra en
Fernando Alonso mun verða
þriðji í röðinni. Toyota liðið náði
góðum árangri, Jarno Trulli og
Ralf Schumacher voru í fjórða og
fimmta sæti en hinsvegar komust
ökumenn BMW ekki í 10 manna
úrslitaumferðina.
„Þetta er frábært, ekki hægt
að biðja um það betra. Ég á rás-
pólnum og Felipe við hlið mér. Ég
veit eiginlega ekki hvað ég á að
segja því ég bjóst ekki við þessu.
En það er klárt mál að ég stefni á
sigur,“ sagði Schumacher. - egm
Tímatakan í gær fyrir kappaksturinn í Frakklandi:
Ferrarifákar á ráspólnum
FERRARI Í HAM Schumacher náði besta tímanum í gær. NORDICPHOTOS/AFP