Fréttablaðið - 17.07.2006, Page 62
17. júlí 2006 MÁNUDAGUR30
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 gáski 6 persónufornafn 8 horfa á 9
sefa 11 mannþvaga 12 varkárni 14 losti
16 halló 17 drulla 18 pota 20 lík 21
kvenflík.
LÓÐRÉTT
1 titill 3 í röð 4 rýrnun 5 loka 7 kræsing-
ar 10 regla 13 geislahjúpur 15 mannvíg
16 undanhald 19 skammstöfun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 ærsl, 6 ég, 8 sjá, 9 róa, 11 ös, 12
aðgát, 14 girnd, 16 hæ, 17 aur, 18 ota, 20
ná, 21 pils.
LÓÐRÉTT: 1 séra, 3 rs, 4 sjötnun, 5 lás, 7
góðgæti, 10 agi, 13 ára, 15 dráp, 16 hop,
19 al.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nordisk Panorama hefur tilkynnt hvaða myndir verða sýndar á
hátíðinni í Árósum dagana 22. til 27.
september. Þjár íslenskar myndir verða
meðal þátttakenda og
eru það heim-
ildarmyndin Act
Normal eftir Ólaf
Jóhannesson og
stuttmyndirnar
Whatever eftir
Gísla Darra
Halldórs-
son og
Untitled
Short
Film
eftir
Lars Emil Árnason.
Íslenskar konur ættu að fara láta sig hlakka til 18. ágúst en þá koma sjö
dansarar frá Chippendales-flokknum og
halda sýningu á Broadway. Flokkurinn
hefur verið að í 25 ár og er einhver
sá allra frægasti í „erótískum listdansi
karla”. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðs-
ins er reiknað með að
í kringum þúsund
miðar verði í boði
fyrir kroppa-
óðar konur
en lofa má
rosalegri
upplifun
þetta
kvöld því
dans-
ararnir
verða á
sviðinu í
rúma tvo
tíma og ætti kvenþjóðin að fá nóg fyrir
sinn pening.
Patti Smith er væntanleg aftur til landsins í september eftir vel heppn-
aða tónleika hér á landi fyrr á þessu ári.
Smith hreifst mjög af landi og þjóð þegar
hún var hér og var meira en lítið tilbúin
að koma aftur. Tónleikar Smith verða
væntanlega órafmagnaðir og því er þetta
einstakt tækifæri fyrir aðdáendur hennar
að sjá öll hennar
helstu lög í sér-
stökum bún-
ingi.
- fgg
HRÓSIÐ FÆR
...Sturla Jenssen fyrir að opna
veitingastað í Hafnarfirði sem ber
það skemmtilega nafn, Badabing.
Pólska matvöruverslunin Stokrot-
ka hefur fært út kvíarnar og opnað
matsölustað undir sama nafni.
Matsölustaðurinn er til húsa að
Hvaleyrarbraut 35 í Hafnarfirði,
þar sem verslunin var áður, en
hún er flutt í stærra húsnæði að
Reykjavíkurvegi 64.
„Við byrjuðum að bjóða upp á
pólskan mat í febrúar eða mars. Í
upphafi vorum við með þrjú borð
fyrir viðskiptavini en síðan varð
þetta svo vinsælt að við urðum að
flytja búðina,“ segir María Val-
geirsson, eigandi Stokrotka. „Nú
geta fimmtán manns í einu komið
að borða.“
Á matsölustaðnum býður María
upp á hefðbundna pólska matar-
gerð, þar á meðal steiktar svína-
kótilettur í raspi, kjötbollur fyllt-
ar með sveppum, lauk og papriku,
skyrpönnukökur og hálfmána með
ávaxta- eða kjötfyllingu. Dýrasti
aðalrétturinn er frá 600 krónum
en eftirréttirnir eru á um 200
krónur.
María segir Íslendinga jafnt
sem útlendinga koma til að borða
á Stokrotka. „Íslendingar vilja
góðan en ódýran mat sem er svo-
lítið öðruvísi en þessi íslenski.
Síðan kemur hingað fólk frá
Þýskalandi, Tékklandi, Slóvakíu,
Júgóslavíu og svo mætti lengi
telja en pólska eldhúsið er mjög
líkt þeirra.“
Að sögn Maríu er Stokrotka nafn
á litlu villiblómi, líku baldursbrá,
bara örlítið minna. „Matsölustaður-
inn heitir Stokrotka eldhús en ég
ætla að reyna að finna eitthvað
betra nafn fyrir Íslendingana,“
segir María pólska. - kh
Pólsk matargerð vinsæl í Hafnarfirði
MARÍA VALGEIRSSON Hún hefur fært út kvíarnar og opnað matsölustað samhliða matvöru-
versluninni. Með nýju húsnæði verða breyttar áherslur og mun María einnig bjóða upp á
pólska gjafavöru samhliða pólsku matvörunum.
Stórsöngvarinn Ragnar Bjarnason færði Ein-
ari Kristni Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra
eintak af nýju plötunni sinni, Vel sjóað-
ur, sem kom út á þriðjudaginn var. Á
diskinum er að finna fjórtán sjómanna-
lög. „Við ákváðum að gefa út sjó-
mannadisk til að minnast íslenskrar
sjómannastéttar. Tímabilið sem við
áttum allt okkar undir gömlu bátunum
er að líða undir lok og okkur datt í hug
að það væri gaman að minnast þess
með því að gefa út ekta sjómanna-
plötu,“ segir Raggi. „Við stóðum á
öxlunum á sjómönnunum um árabil
og því vert að minnast þeirra.“
Þótt Raggi hafi ekki sjálfur
verið á sjó fékk hann smjörþefinn
af sjómennskunni í kringum síldarævin-
týrin. „Þá áttaði ég mig á því hversu
mikilvægur fiskurinn var okkur.“
Raggi segist einu sinni hafa hitt
gamlan sjómann sem spurði hvort
hann væri ekki Raggi Bjarna.
„Ég játti því og þá sagðist
maðurinn vera kominn með
leið á mér. Ég spurði af
hverju og þá sagði hann
mér að hann hafi einu
sinni staðið úti á
dekki og verið að gera
að í vitlausu veðri um
hávetur. Slorið
var út um allt
og það var
gamall hátalari festur við
mastrið,“ segir Raggi hlæjandi
þegar hann rifjar upp söguna. „Sjó-
maðurinn sagði lagið mitt Ship
og hoj hafa verið spilað og ég
hafi sungið það eins og það
væri ekkert mál að vera úti
á sjó.“ Á Vel sjóaður
syngur Raggi dúett
með Þorvaldi Hall-
dórssyni, Helenu
Ólafsdóttur og Ellý
Vilhjálms. „Við feng-
um leyfi til að taka
sönginn hennar Ellý-
ar út af lagi sem heit-
ir Sumarauki en er
betur þekkt sem
Gullfoss með glæst-
um brag. Þannig
gátum við tekið upp dúettinn okkar,“ útskýrir
Raggi. „Það var ótrúlegt augnablik þegar ég
heyrði útkomuna.“ - kh
Syngur dúett með Ellý Vilhjálms
SÖNGVARINN OG SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Raggi
Bjarna afhenti Einari K. Guðfinnssyni eintak af diskinum
Vel sjóaður. Á diskinum eru samankomnir margir af
bestu söngvurum landsins.
ELLÝ VILHJÁLMS Syngur dúett með
Ragga Bjarna á nýja diskinum.
��������
��� ���� ��� ��� ���
��� �� ��� ��� ������
������ ������ �
�� �� �� �� ��
�� �� �� �� �
���������
�
�
��
���������
�
�
Þrír félagar halda á þriðjudag í
hringferð í kringum landið á reið-
hjólum. Tilgangur ferðarinnar er
að vekja athygli á Spes-samtökun-
um sem styrkja foreldralaus börn
í Afríkuríkinu Tógó. Strákarnir,
sem heita Gísli Hvanndal Ólafs-
son, Guðjón Heiðar Valgarðsson
og Dagbjartur Ingvarsson, ætla að
safna fé fyrir samtökin með ljóða-
lestri og angurværri rokktónlist
en planið er að halda skemmtanir
víðsvegar um landið. Ókeypis
verður inn á uppákomurnar en
gestir eru í staðinn hvattir til þess
að láta fé af hendi rakna í söfnun-
arbauk sem verður með í för.
„Ég hef hjólað mest af okkur
en þó ekki farið í lengri ferðir en
dagsferðir. Líkamlegt form
félaga minna er ekki upp á marga
fiska en annar þeirra er með
áreynsluastma sem lýsir sér
þannig að þegar hann hjólar þá
fær hann mikinn verk í lungun
og byrjar að hósta en hann verð-
ur bara með púst með sér,“ segir
Gísli sem hefur fulla trú á því að
þeir nái að klára hringinn á þrem-
ur vikum en þeir áætla að ljúka
ferðinni um verslunarmanna-
helgina.
Strákarnir ætla að hjóla 50-150
kílómetra á dag og taka þeir tjald
með sér en ef veðrið verður þeim
ekki hagstætt munu þeir leita
húsaskjóls.
„Við viljum hvetja fólk til þess
að kynna sér starfsemi félagsins
á heimasíðunni spes.is og gerast
styrktarforeldrar. Peningarnar
sem við söfnum renna beint til
félagsins en alltof fáir vita af
þessum samtökum.“ Strákarnir
fara suðurleiðina og áætla að
vera á Höfn þann 24. júlí, á Kára-
hnjúkum 28. júlí, á Akureyri 31.
júlí og á Blönduósi 3. ágúst svo
fáeinir áfangastaðir séu taldir
upp.
snaefridur@frettabladid.is
GÍSLI, GUÐJÓN OG DAGBJARTUR: SAFNA FÉ MEÐ NÝSTÁRLEGUM HÆTTI
Hjóla hringinn til styrktar
börnum í Afríku
GÓÐAR SÁLIR Strákarnir nota sumarfríið sitt til að láta gott af sér leiða og safna peningum fyrir Spes-samtökin. Í leiðinni kynna þeir
sjálfa sig sem listamenn en Gísli skrifar ljóð og ætlar að gefa út ljóðabók í haust en Guðjón Heiðar og Dagbjartur eru í hljómsveitinni
Palindrome. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 3