Fréttablaðið - 08.08.2006, Side 2
2 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR
VIÐSKIPTI Marel hefur keypt
danska matvælavélaframleið-
andann Scanvaegt International
á 109,2 milljónir evra, eða sem
nemur tæplega 9,9 milljörðum
íslenskra króna.
Fyrirtækið segir að með kaup-
unum aukist velta þess um yfir
100 prósent á árinu, en Marel
keypti einnig nýverið breska
fyrirtækið AEW Delford.
Marel og Scanvaegt starfa
áfram á markaði sem tvær
aðskildar rekstrareiningar með
sín eigin vörumerki. Hörður
Arnarson, forstjóri Marels, segir
mikla hagræðingarmöguleika
nýtast í fyrirsjáanlegum vexti
starfseminnar og býst ekki við
samdrætti í mannahaldi. „Orð-
spor Scanvaegt er afar gott og
vörur þess framúrskarandi,“
segir hann og kveðst líta á kaupin
sem stórt skref við innleiðingu á
stefnu Marel um að vera í for-
ystu á alþjóðlegum markaði í
þróun og markaðssetningu á sviði
matvælavéla. Í febrúar sagðist
fyrirtækið ætla að þrefalda velt-
una á næstu þremur til fimm
árum.
Með viðskiptunum eignast
Lars Grundtvig, stjórnarformað-
ur Scanvaegt, og fjölskylda átján
prósenta hlut í Marel og verða
þar þriðji stærsti hluthafi. Lárus
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs Marels,
leiðir starfsemi Scanvaegt ásamt
Erik Steffensen, núverandi fram-
kvæmdastjóra.
Hjá Marel samstæðunni starfa
nú yfir 2000 starfsmenn, þar af
um 350 á Íslandi, 795 í Danmörku,
380 í Bretlandi, auk starfsmanna
á yfir 30 söluskrifstofum víða um
heim.
Landsbanki Íslands veitti
Marel ráðgjöf við kaupin Scan-
vaegt International. - óká
Marel hf. kaupir keppinautinn Scanvaegt International í Danmörku:
Starfa undir eigin merkjum
ÁRNI ODDUR OG HÖRÐUR Árni Oddur
Þórðarson stjórnarformaður og Hörður Arn-
arson, forstjóri Marels, gengu frá kaupum á
Scanvaegt í Árósum í Danmörku í gær.
TOLLURINN Sigurður Elísson þarf
að sitja tvo daga í fangelsi borgi
hann ekki 5.000 króna sekt fyrir
að koma með gaskveikjara frá
Aserbaídsjan til landsins. Hann
hyggst ekki borga sektina.
Sigurður keypti kveikjarann,
sem er í byssulíki, í Aserbaídsjan
þar sem hann var með fjölskyldu
sinni og tók hann með sér í far-
angrinum heim. Í Keflavík var
kveikjarinn gerður upptækur og
fékk Sigurður bréf frá sýslumanni
nokkrum dögum seinna með þess-
um afarkostum. „Þetta er eins
kveikjari og hægt er að kaupa í
hundraðatali í Kolaportinu og tób-
aksbúðum. Ég ætla sko ekki að
borga,“ segir Sigurður. - sgj
Maður sætir afarkostum:
Fer í fangelsi
vegna kveikjara
LÖGREGLUMÁL Þrír tæplega tvítug-
ir menn réðust á konu neðarlega á
Laugaveginum aðfaranótt mánu-
dags, slógu hana í andlitið og hrifs-
uðu af henni veski.
Konan, sem er erlendur ferða-
maður í heimsókn hér á landi, leit-
aði aðstoðar á lögreglustöðinni við
Hverfisgötu.
Athugull nágranni tilkynnti um
grunsamlegar ferðir þriggja
manna á horni Njálsgötu og Vita-
stígs til lögreglu nokkrum mínút-
um síðar. Þegar lögregla kom svo
á staðinn voru þar árásarmennirn-
ir þrír sem konan hafði tilkynnt.
Því má segja að þeir hafi verið
gripnir glóðvolgir og fékk konan
alla muni sína til baka og þakkaði
hún lögreglu vel og innilega. - æþe
Þrír menn réðust á konu:
Slegin í andlit-
ið og rænd
SLYS Kona á fertugsaldri lét lífið í
bílslysi á Suðurlandsvegi við
Langastaði í Flóahreppi, um hálf
eittleytið aðfaranótt mánudags.
Konan, sem var ein á ferð, ók
fólksbíl sínum í vesturátt, áleiðis
til Reykjavíkur, þegar hún ók
framan á jeppabifreið sem kom
akandi úr gagnstæðri átt. Jeppa-
bifreiðin valt við áreksturinn og
kviknaði eldur í henni. Þrír karl-
menn sem í henni voru náðu að
forða sér út áður en bifreiðin varð
alelda. Þeir sluppu án teljandi
meiðsla en voru færðir til aðhlynn-
ingar á sjúkrahús á Selfossi. Þeir
voru útskrifaðir samdægurs.
Konan var með lífsmarki þegar
sjúkralið kom á vettvang og var
óskað eftir þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar til að flytja konuna á slysa-
deild. Hún lést áður en þyrlan kom
á slysstað.
Að sögn lögreglu voru aksturs-
aðstæður eins og best verður á
kosið. Tildrög slyssins eru ókunn
en málið er í rannsókn lögreglunn-
ar á Selfossi. Báðar bifreiðarnar
eru taldar gjörónýtar eftir árekst-
urinn.
Ekki er hægt að birta nafn hinn-
ar látnu að svo stöddu. - æþe
Kona á fertugsaldri lést í bílslysi á Vesturlandsvegi í Flóahreppi í fyrrinótt:
Látin áður en þyrlan kom
LÖGREGLUMÁL Um fimm þúsund
manns gistu í Ásbyrgi aðfaranótt
laugardags eftir tónleika Sigur
Rósar. Talsverður erill var hjá lög-
reglunni á Húsavík vegna þessa.
Fimm einstaklingar voru tekn-
ir með fíkniefni í fórum sínum á
tónleikum Sigur Rósar á föstu-
dagskvöldinu. Um svokallaða
neysluskammta var að ræða í
öllum tilfellum; smáræði af hassi,
amfetamín og kókaín.
Lögregla var kölluð til á laugar-
dagsmorgun vegna stympinga
manna á milli á tjaldsvæðinu í
Ásbyrgi og talsverður erill var hjá
lögreglu þann dag vegna tónleika-
gesta sem létu ófriðlega. - æþe
Fíkniefnamál í Ásbyrgi:
Fimm teknir
með fíkniefni
BANASLYS Á SUÐURLANDSVEGI Kona á
fertugsaldri lést í árekstri á Suðurlands-
vegi aðfaranótt mánudags. Aðkoman
var hrikaleg á slysstað.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Egils-
stöðum handtók aðfaranótt mánu-
dags fjórtán mótmælendur sem
farið höfðu inn á vinnusvæði við
Kárahnjúkavirkjun og meðal ann-
ars hlekkjað sig við vinnuvélar og
truflað framkvæmdir. Tveir mót-
mælendanna voru íslenskir en tólf
erlendir. Framkvæmdaraðilar á
svæðinu hafa lagt fram kæru vegna
athæfisins og er það nú í rannsókn
hjá lögreglunni á Egilsstöðum.
Mótmælendunum sem voru hand-
teknir í fyrrinótt var sleppt úr haldi
um miðjan dag í gær.
Þá hefur tjaldbúðum mótmæl-
enda undir Snæfelli verið lokað og
gestir þar verið sendir á brott.
Í tilkynningu frá Lárusi Bjarna-
syni, sýslumanni á Seyðisfirði,
kemur fram að lögreglunni hafi
borist beiðni frá umráðaaðila
landsins sem mótmælendur hafa
hafst við á undanfarið um að þeir
verði fjarlægðir af svæðinu.
„Það er mikilvægt að lögreglan
hagi sér samkvæmt sínum vinnu-
reglum. Þeir hafa bent á mikinn
kostnað við löggæslu á virkjunar-
svæðinu en að okkar mati verður
það að teljast eðlilegur kostnaður
þegar um svona framkvæmd er að
ræða,“ segir Bjarki Bragason,
talsmaður Íslandsvina, sem skipu-
lögðu tjaldbúðirnar undir Snæfelli
í upphafi. Hann segir sjálfsagt að
fólk mótmæli þessum fram-
kvæmdum og að það sé hluti af
tjáningarfrelsi einstaklinga. Hins
vegar hafi mótmælendurnir sem
handteknir voru í fyrrinótt ekki
verið á vegum Íslandsvina heldur
sjálfstæðir einstaklingar.
„Það er spurning hvort yfir-
stjórn lögreglumála í landinu vill
reka lögreglu sem nýtur trausts
borgaranna og hagar sér í sam-
ræmi við almennar lýðræðisvenj-
ur eða hvort lögreglustjórnin vill
láta lögregluna ganga fram án til-
lits til réttinda borgaranna,“ segir
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttar-
lögmaður.
Hann segir að ef vilji sé fyrir
hinu fyrrnefnda verði að fara
fram rannsókn á því sem þarna
gerðist og þeir sem beri ábyrgð
vera dregnir til ábyrgðar.
„Landsvirkjun fer hvorki með
lögregluvald né dómsvald í ríkinu
en lögreglan hlýddi þeim,“ segir
Ragnar. hnefill@frettabladid.is
Lögregla lokaði í gær
búðum mótmælenda
Fjórtán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúkavirkjun í fyrrinótt og
tjaldbúðum mótmælenda við Snæfell hefur verið lokað. Íslandsvinir segja
mikilvægt að lögregla hagi sér samkvæmt sínum vinnureglum.
MÓTMÆLENDUR VIÐ KÁRAHNJÚKA Lögregla handtók fjórtán mótmælendur á vinnusvæði
við Kárahnjúkavirkjum í fyrrinótt en þeim var sleppt úr haldi um miðjan dag í gær. Þá hefur
tjaldbúðum við Snæfell verið lokað. MYND/GUNNAR GUNNARSSON
LÖGREGLUMÁL Töluvert var um
skemmdarverk á Akureyri í fyrri-
nótt. Þá voru rúður brotnar í um
þrjátíu bílum í bænum aðfaranótt
mánudags og rúða í íbúðarhúsi
brotinn.
Hermann Karlsson, varðstjóri
hjá lögreglunni á Akureyri, segir
menn þar á bæ nokkuð sátta við
helgina. Alls komu um sextíu fíkni-
efnamál inn á borð lögreglunnar,
þar sem aðallega var um að ræða
neysluskammta af hassi, amfetam-
íni og kókaíni.
Eitt kynferðisafbrot var kært
til lögreglu og ein líkamsárás þar
sem maður var sleginn í andlitið að
ástæðulausu með þeim afleiðing-
um að hann kinbeinsbrotnaði. - æþe
Helgin á Akureyri:
Um þrjátíu
bílar skemmdir
EFNAHAGSMÁL Credit Suisse telur
ólíklegt að krónan styrkist á næst-
unni vegna ójafnvægis í hagkerfinu,
sem stafar einkum af miklum við-
skiptahalla. Bankinn býst heldur við
lækkun hennar á næstu mánuðum,
eða þar til skýr merki sjáist um við-
snúning til hins betra í hagkerfinu.
Greinendur eru heldur á því að
dragi úr viðskiptahalla á næstunni.
Í greiningunni er reiknað með að
verðbólga haldi áfram að aukast og
fari hæst í tíu prósent vorið 2007.
Býst bankinn við að Seðlabankinn
hækki stýrivexti um 75 punkta á
næstu tveimur vaxtaákvörðunar-
fundum til að stemma stigu við
verðbólgu. Þrátt fyrir tíðar vaxta-
hækkanir hafi raunvaxtamunur við
útlönd farið minnkandi. - eþa
Ný skýrsla frá Credit Suisse:
Styrking krónu
ósennileg
SPURNING DAGSINS
Helgi, er þetta agaleysi
agalega bagalegt?
„Það er verið að sýsla með skattpen-
ingana okkar, þannig að sannast hið
fornkveðna: Aðgát skal höfð í nærveru
opinbers fjár.“
Rúmlega fjórðungur fjárlagaliða fór fram úr
heimildum sínum á síðasta ári. Helgi Hjörvar
þingmaður hefur gagnrýnt þetta og kallað
það agaleysi ríkisstjórnarinnar.
Drepinn vegna mp3-spilara
Ungur Pólverji hefur verið ákærður fyrir
að stinga belgískan dreng til bana, ræna
mp3-spilara sem hann átti og flýja til
Póllands. Morðið vakti óhug í Belgíu en
atvikið náðist á öryggismyndavél.
BELGÍA
Erindreki særist Danskur erindreki
særðist alvarlega þegar ráðist var
á hann og fjölskyldu hans á hóteli
nærri höfuðborg Kenía, aðfaranótt
fimmtudags. Talið er að árásarmennirnir
hafi brotist inn í leit að þýfi.
DANMÖRK
M
YN
D
/EG
ILL B
JA
R
N
A
SO
N