Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 16
8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
„Þetta er fyrir löngu orðinn einn
af föstu punktunum í mínu lífi og
það fær því ekkert breytt; síðustu
helgina í júlí er ég á lundaveiðum
sama hvað tautar og raular,“ segir
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra. Hann tekst allur
á loft á skrifstofu sinni þegar
blaðamaður biður hann að segja
sér frá lundaveiðiferð sem hann
var í síðasta laugardag ásamt
konu sinni Sigrúnu Þórisdóttur og
dóttur sinni Sigrúnu Maríu.
„Þetta er orðin nokkuð áralöng
venja sem við byrjuðum á félag-
arnir þrír, þeir Gunnar Jóhanns-
son, útgerðar- og hrefnuveiði-
maður úr Hólmavík, Magnús H.
Magnússon veitingamaður og ég.
Við byrjuðum þessar veiðar með
álháfa en þegar við komumst
rækilega á bragðið fengum við
Salvar Baldursson bónda í Vigur
til að útbúa fyrir okkur alvöru
lundaháfa en það er jú svo að ef
þú byrjar á þessu verður ekki
aftur snúið. Nú hefur þetta þróast
út í það að verða svona fjölskyldu-
ferð og það hefur fjölgað í hópn-
um, ég er ekki viss hvað það voru
margir að veiðum að þessu sinni
en þegar búið var að gera að og
slegið var upp veislu um kvöldið
geri ég ráð fyrir að þar hafi verið
um 70 til 80 manns.“
Í Vestmannaeyjum er hefðin
sú að konur fái ekki að fara með
til lundaveiða en Einar segir þá
hefð ekki við lýði fyrir vestan.
„Við höfum einmitt mjög gaman
af því að konurnar komi með.
Þetta er ekki eingöngu karlasport
enda eru konurnar ekkert síður
grimmar eins og menn vita,“
segir hann og hlær.
Einar segir það misjafnt eftir
ári hversu margir lundar veiðist
en þegar vel gengur eru þeir um
þúsund. „Svo skiptum við í fjöru
eins og kallað var en þá er öllum
aflanum skipt jafnt niður á háfa.
Þetta er afar sósíalískt kerfi hjá
okkur,“ segir sjálfstæðismaður-
inn með semingi. „Ég var vel
fyrir ofan meðallag að þessu
sinni, sem er alltaf gott svo maður
sé ekki að láta borga með sér.“
Lagt var af stað út í Grímsey
um klukkan níu um morguninn en
í hádeginu drógu menn upp nesti
sín og snæddu saman. Aðrir drógu
þá upp hákarl en í nestisboxi
sjávarútvegsráðherrans var
meðal annars hrefnukjöt.
Einn nýgræðingur kom sér í
þennan eftirsóknarverða félags-
skap í ár og sló hann gömlu félags-
mönnunum ref fyrir rass og
veiddi um 160 lunda eða fleiri en
nokkur annar. „Ég var svo hepp-
inn að mér var hent í land þar
sem ég sá tilsniðinn stað að vest-
mannaeyskum hætti en þar voru
mér kennd tökin af færustu
mönnum,“ segir Samúel Örn
Erlingsson, aflakóngur ferðarinn-
ar, en þetta var í fyrsta sinn sem
hann veiddi í Grímsey. „Það var
alveg dásamlegt að fá að taka þátt
í þessari fjölskylduferð. Konan
mín kom með og skemmti sér hið
besta þó hún hefði getað hugsað
sér margt annað að gera en drepa
lunda.“
Einar hafði sagst með glöðu
geði fresta fundi í Brussel með
háttsettum ráðamönnum ef hann
bæri upp á sama dag og lunda-
veiðiferðin. Fyrst Samúel Örn
hefur nú verið innvígður í félagið
þótti rétt að spyrja hann hvað
hann myndi gera ef lundaveiði-
ferðina bæri upp á sama degi og
úrslitaleikur í heimsmeistara-
keppninni í fótbolta. „Er ekki
ákvæði í stjórnarskrá sem bann-
ar svona spurningar?“ segir hann
og hlær en játar svo líkt og inn-
vígðum lundaveiðimanni ber að
svona ferðir hafi alltaf forgang.
jse@frettabladid.is
Ráðherra léttur í lunda
GERT AÐ FENGNUM Þarna er Jón Magnússon útgerðarmaður frá Patreksfirði að gera að
fengnum ásamt Einari. Um kvöldið svignuðu svo veisluborð undan afrekstri dagsins sem
matreiddur var að hætti Strandamanna.
SAMÚEL ÖRN GERIR AÐ VÆNUM FENG
SÍNUM Fuglar mega vara sig þegar ernir
eru á ferð, sérstaklega ef það er Samúel
Örn, en hann veiddi um 160 lunda, meira
en gömlu kempurnar að vestan. Hér gerir
hann að fengnum.
„Það er bara allt að gerast,“ segir Sveinn Rúnar
Sigurðsson, lagasmiður og tölvunarfræðingur.
„Ég er á leiðinni til Ungverjalands bráðlega í
langan, langan, langan tíma og svo er maður
ávallt með tónlistina á bak við eyrað.“
Sveinn Rúnar er að fara í nám í nokkur ár
til Ungverjalands 28. ágúst næstkomandi og
tímann fram að því ætlar hann að nota til að
ferðast um landið. „Ég ætla að heimsækja
vini og vandamenn til sjávar og sveita og
Eurovision-aðdáendur svo ekki sé minnst á þá,“
segir Sveinn Rúnar.
Um verslunarmannahelgina ætlar Sveinn
Rúnar að verja tíma sínum í Siglufirði á
Síldarævintýrinu. „Ég held að það sama sé
um að vera þar um helgina eins og venjulega,
nákvæmlega ekki neitt, og það er einmitt það
sem mér finnst svo ofboðslega spennandi,“
segir Sveinn Rúnar og hlær. „Ég er alveg vaxinn
upp úr glaumi og gleði, ég vil helst bara fá
kaldan af krana í góðra vina hópi.“
Sveinn Rúnar hefur verið á far-
aldsfæti í ár vegna vinnu sinnar, en
hann starfar sem framkvæmdastjóri
hjá tölvuhugbúnaðarfyrirtæki með
tengsl víða um heim. „Þetta er búið að
vera frábært ár. Ég hef verið að vinna í
Moskvu, Kænugarði og Riga og eftir árið
er ég þeirrar skoðunar að Austur-Evrópa
heilli mig hvað mest,“ segir Sveinn Rúnar.
„Þar vil ég vera og því ætla ég að slá tvær
flugur í einu höggi og læra og semja
þar, í Ungverjalandi.“
Mikið stendur til
hjá Sveini Rúnari
helgina eftir
verslunarmannahelgina. „Vin-
kona mín ætlar að halda
risa Eurovision-hlöðupartí
og hún er búin að bjóða
öllum sem komið hafa
nálægt keppninni hér
á landi í gegnum árin,“
segir Sveinn Rúnar og
tilhlökkunin leynir sér
ekki. „Flestir eru búnir að
boða komu sína, þannig að
það verður án efa mikið stuð
eins og alltaf þegar þessi
hópur kemur saman.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SVEINN RÚNAR SIGURÐSSON LAGASMIÐUR OG EUROVISIONAÐDÁANDI
Austur-Evrópa mest spennandi í dag
„Mér finnst sjálfsagt að hann reyni ef
hann vill þetta á annað borð, en mér
persónulega finnst hann eiga lítið
erindi inn á
þing,“ segir
Andrés Jóns-
son formaður
Ungra jafnaðar-
manna, en
hugsanlegt
framboð Árna
Johnsen, fyrr-
verandi alþing-
ismanns, í
prófkjör Sjálf-
stæðisflokks-
ins í suður-
kjördæmi
hefur verið í
umræðunni
að undan-
förnu.
„Það liggur lítið sem ekkert gott eftir
hann frá hans fyrri þingmannsferli,“
segir Andrés. „Ég öfunda ekki sjálf-
stæðismenn ef þeir ætla að fara að
láta rifja upp öll mál Árna Johnsen og
hvernig var tekið á því á sínum tíma, í
komandi kosningabaráttu í Suðurkjör-
dæmi. Þeir hljóta að vilja að kosninga-
baráttan snúist um eitthvað jákvæðara
en hvernig Árni fékk að leika lausum
hala á ábyrgð ýmissa ráðherra sem
enn sitja í einhverjum tilfellum enn
fyrir Sjálfstæðisflokkinn.“
SJÓNARHÓLL
ÁRNI JOHNSEN AFTUR
Í FRAMBOÐ
Á lítið erindi
inn á þing
ANDRÉS JÓNSSON
Vélhjólaráðherrann
„Verður þá ekki að banna
kraftmikla bíla líka?“
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR HEILBRIGÐIS-
RÁÐHERRA TELUR EKKI AÐ HÆGT
SÉ AÐ BANNA KRAFTMESTU VÉL-
HJÓLIN. FRÉTTABLAÐIÐ, 4. ÁGÚST.
Sölumennska
„Þeir sem gefa félaginu
pening fá sendan penna
sem þakklætisvott. Það eru
skiptar skoðanir um hvort
þetta sé fjársöfnun eða
hvort þetta sé sala.“
JÓN EGILL UNNDÓRSSON HJÁ
FÉLAGINU FÁTÆK BÖRN Á ÍSLANDI
VIÐURKENNIR AÐ ENGINN ENDUR-
SKOÐANDI SJÁI UM BÓKHALDIÐ.
FRÉTTABLAÐIÐ, 4. ÁGÚST.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Í VÍGAHUG Einar K. Guðfinnsson kann
hvergi betur við sig en í Grímsey með háfinn. Hann dró svo upp
hrefnukjöt úr nestisboxi sínu þegar hlé var gert á veiðum.
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur und-
anfarin fimmtán ár farið á lundaveiðar í Grímsey í Stein-
grímsfirði ásamt félögum sínum. Þetta árið kom lands-
þekktur fjölmiðlamaður með í fyrsta sinn og sló gömlu
köppunum ref fyrir rass.