Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 46
 8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR22 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér til hliðar má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. Á þessum degi árið 1974 sagði repúblikaninn Richard Nixon af sér sem forseti Bandaríkjanna vegna þáttar síns í Watergate-hneykslinu. Hinn 17. júní árið 1972 voru fimm menn handteknir fyrir að brjótast inn í Watergate-bygginguna í Washington, höfuðstövar Demókrataflokksins. Fimm- menningarnir, ásamt þeim W. Howard Hunt og G. Gordon Liddy, voru ákærðir fyrir innbrot og hleranir og réttarhöld hófust yfir þeim í janúar árið 1973. Á þeim rúmu sex mánuðum sem liðu frá handtökunum neitaði Nixon því staðfastlega að hann eða nokkur úr hans liði hefði átt aðild að innbrotinu. Á meðan héldu fjölmiðlar, og þá sérstaklega The Washington Post, því gagnstæða fram. Blaðamennirnir Bob Woodward og Carl Bernstein fengu upplýsingar frá innherja sem var kallaður „Deep Throat“. Það var ekki fyrr en á síðasta ári sem upp komst hver maðurinn var en það reyndist vera Mark Felt, aðstoðarforstjóri bandarísku alríkislögreglunnar á þessum tíma. Fimm sakborninganna lýstu sig seka og tveir voru dæmdir af kviðdómi og lýsti einn þeirra, James W. McCord, því yfir við réttarhöldin að forsetaembættið gerði allt sem það gæti til þess að leyna tengslum sínum við innbrotið. Þegar það var orðið ljóst að forsetinn hafði komið að málinu fór Nixon fram á að ný rannsókn yrði gerð. Í apríl lýsti Nixon því yfir að hann tæki á sig ábyrgð vegna gjörða starfsmanna sinna og í desember lét hann af hendi hljóðupptökur frá skrifstofu sinni. Nixon sagði loks af sér í ágúst en þá var löngu ljóst að hann var viðriðinn málið. ÞETTA GERÐIST 8. ÁGÚST 1974 Nixon segir af sér embætti MERKISATBURÐIR 1945 Bandaríkin, Sovétríkin, Bretland og Frakkland skrifa undir London-sam- komulagið sem heimilaði Nürnberg-réttarhöldin. 1963 Lestarránið mikla er framið í Englandi þegar 15 ræn- ingjar stela 2,6 milljónum punda. 1969 Fræg mynd af Bítlunum er tekin og síðar notuð á umslag plötunnar Abbey Road. 1988 Andrés prins og kona hans Sarah Ferguson eignast sitt fyrsta barn. 1992 Íslendingar lenda í fjórða sæti í handknattleik á Ólympíuleikunum í Barcelona en það er besti árangur íslensks landliðs á slíku móti. DUSTIN HOFFMAN FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1937. „Sólskin og kókoshnetumjólk eru þeir tveir hlutir sem eru nauðsynlegir til þess að lifa af.“ Dustin Hoffman er bandarískur leikari. ÚTFARIR 13.00 Jóhann Magnús Guð- mundsson, vélvirki (frá Suðureyri við Súgandafjörð), Hjarðarhaga 30, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju. 15.00 Elín Guðrún Gísladóttir, Sundlaugarvegi 28, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju. AFMÆLI Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) söngkona er 51 árs. Mikael Torfason, rithöfundur og ritstjóri, er 32 ára. Þórhallur miðill snýr aftur í útvarpið í kvöld þegar þáttur hans Lífsaugað hefur göngu sína á útvarpsstöðinni VOICE á Akureyri. Þórhallur hefur búið fyrir norðan síðastliðin átta ár og segir þá breytingu að flytja norður þá bestu sem hann hafi gert í lífinu. „Ég er búinn að vera í kringum fimmtán ár í útvarpi, ég byrjaði fyrst á Bylgjunni í Sigtúni gamla,“ segir Þór- hallur. „Ég gleymi því aldrei að fyrsti viðmælandi minn var séra Sigurjón Guðjónsson og við vorum að tala um guð og það komu innhringingar þar sem sumir voru ekkert sérstaklega hrifnir af því að guðsmaður skyldi vera með miðli í útvarpinu,“ segir Þórhallur og hlær. „Skemmtilegasti þáttur sem ég hafði þarna var viðtal við Ladda þegar Vidgís Finnbogadóttir átti afmæli og þá óskaðu allar hans persónur Vigdísi til hamingju og ég þurfti að beygja mig undir borðið því ég hló svo mikið,“ segir Þórhallur. Hann hefur lengst af starfað á Bylgjunni en færði sig um set og fór á FM um skeið. Þættir Þórhalls voru í sjónvarpinu um tíma og aðspurður segist hann ekki hafa fundið fyrir miklum mun á því að starfa í sjónvarpi eða útvarpi. „Maður gat náttúrlega breytt ýmsu í sjónvarp- inu en það er ekki hægt að klippa út eitt eða neitt í útvarpinu þannig að maður varð að láta slag standa með það sem maður var að segja,“ segir Þórhallur og hlær. „Þetta var mjög skemmtilegur tími og lærdómsríkur, maður er búinn að kynnast mörgum og þetta voru oft mjög tilfinningaþrungnir þættir sem höfðu mikil áhrif á mig og hlustendur,“ segir Þórhallur og bætir við að könnun sem var gerð á meðan þáttunum stóð sýndi að fimmþúsund manns reyndu að ná inn í þáttinn eitt kvöldið. Þórhallur var að vinna í Verslunar- bankanum þar til hann var lagður niður árið 1990 og sneri sér þá alfarið að miðilsstörfum. Hann segir að fólk á öllum aldri og úr öllum stéttum leiti til sín og að hans starf sé að sanna að það sé líf eftir þetta líf. Þegar Þórhallur er spurður að því hvort hann nái alltaf sambandi við fólkið að handan svarar hann því neit- andi. „Ég segi það alltaf að hver fund- ur sé tilraun og ef ég næ ekki sam- bandi er ég bara heiðarlegur og segi bara fólkinu að koma aftur og reyna seinna, ég fer ekki að búa til eitthvað sem ég skynja ekki,“ segir Þórhallur. Þórhallur segir að fólk fái miðils- hæfileikann í vöggugjöf en bætir við að í ættinni sinni sé mikill næmleiki og segir að í fjölskyldu sinni hafi það þótt vera hinn eðlilegasti hlutur að fara á miðilsfund. „Þetta hefur verið eðlileg- asti þáttur í lífi manns og þegar maður fór inn í þessi mál sjálfur og fór að þjálfa sig upp í þessu fékk maður mik- inn stuðning frá foreldrunum,“ segir Þórhallur að lokum. gudrun@frettabladid.is ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON: HEFUR STÖRF Í ÚTVARPINU Á NÝ Líf eftir þetta líf ÞÓRHALLUR GUÐMUNDSSON Segir tímann í útvarpinu hafa verið mjög skemmtilegan og lærdómsríkan og í starfinu hafi hann kynnst fjölmörgu fólki. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORVALDUR Á þessum degi árið 1973 var stjórnmálamanninum Kim Dae-Jung rænt á hóteli í Tokyó af suður-kóresku leyniþjónustinni vegna gagnrýni hans á forsetann Park Chung-hee. Bandaríski sendiherrann ræddi við Park forseta sem varð til þess að Kim bjarg- aðist rétt áður en að honum var drekkt í Japanshafi. Þrátt fyrir að lifa banatil- ræðið af var Kim bannað að skipta sér frekar af stjórn- málum og var dæmdur til fangelsisvistar af stjórn- völdum. Forsetinn dó árið 1979 og Kim fékk uppreisn- ar æru en það stóð stutt yfir því ári síðar var hann dæmd- ur til dauða. Bandarísk stjórnvöld buðu Kim hæli í Bandaríkjunum þar sem hann fékk starf við kennslu í Harvard. Hann sneri heim árið 1985 og bauð sig fram í for- setakosningunum tvisvar en beið lægri hlut í bæði skipt- in. Það var ekki fyrr en árið 1997 sem Kim tókst að vinna kosningarnar og verða for- seti. Árið 2000 hlaut Kim Friðarverðlaun Nóbels fyrir baráttu sína fyrir lýðræði og sáttum á Kóreuskagan- um. Kin Dae-Jung er rænt LÍFIÐ Í SVEITINNI Hundurinn Tara rekur flokk anda áfram en lengi hefur tíðkast að hundar reki áfram kindur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP 85 ára afmæli Arnbjörg Sigurðardóttir er 85 ára í dag. Verður að heiman en vinir og ættingjar velkomnir í kaffi sunnudaginn 13. ágúst eftir kl. 14.00 að Akri við Hvolsvöll. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Áslaugar Jónínu Einarsdóttir Goðabyggð 2, Akureyri, sérstakar þakkir til formanns og félaga íþróttafélagsins Þórs og lækna og hjúkrunarfólks lyfjadeildar FSA. Guð blessi ykkur öll. Haraldur Helgason Inga Ólafía Haraldsdóttir Jón Gunnar Gunnlaugsson Helga Stefanía Haraldsdóttir Kjartan Kolbeinsson Bergljót Ása Haraldsdóttir Sveinn Guðmundsson ömmubörn og langömmubörn. FALLEG FIÐRILDI Þrjú drottningarfiðrildi sjást hér flögra um í garði í Texas á dögunum en þau lifa einkum í Suðurríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.