Fréttablaðið - 08.08.2006, Qupperneq 55
Jennifer Lopez mun ekki leika í
fyrirhugaðri kvikmynd sem byggð
verður á sápuóperunni um Ewing-
fjölskylduna í Dallas. J. Lo átti að
leika hina drykkfelldu Sue Ellen
en John Travolta átti að leika eig-
inmann hennar, olíubaróninn JR
Ewing.
„Jen mun ekki leika í Dallas,“
sagði Leslie Sloane Zelnick, tals-
maður leik- og söngkonunnar, í
samtali við blaðið Star en gaf ekki
nánari útskýringu á því hver
ástæðan væri.
Þær sögusagnir ganga nú fjöll-
um hærra í Hollywood að Jennifer
sé ólétt og eftir að hún hætti við
tónleikaferðalag um Evrópu og
Asíu fékk sá orðrómur byr undir
báða vængi.
Það hefur ekki gengið þrauta-
laust að ráða fólk til starfa í Dallas-
myndina því Robert Luketic hætti
við að taka við leikstýra myndinni.
Hann bar fyrir sig listrænan
ágreining við framleiðendur
myndarinnar. Luketic og Lopez
unnu saman að myndinni Monster-
In-Law.
Gurinder Chadha mun leik-
stýra Dallas en hann leikstýrði
myndinni Bend It Like Beckham
sem skaut Keiru Knightley upp á
stjörnuhimininn.
Kvikmyndaframleiðendurnir
standa því frammi fyrir nokkrum
alvarlegum vanda því Sue Ellen
var ein af burðarásunum í sögu-
þræði hinna vinsælu þátta. Aðdá-
endur þáttanna eru þó flestir mjög
ánægðir með þessa ákvörðun
Jennifer Lopez því fæstir þeirra
gátu séð hana fyrir sér í þessu
hlutverki.
J-Lo leikur ekki Sue Ellen
JENNIFER LOPEZ Leikur ekki
Sue Ellen í kvikmyndinni Dall-
as sem byggð verður á sam-
nefndum sjónvarpsþáttum.
Heyrst hefur að John Travolta
muni leika J.R. Ewing.
Leikkonan Kate Hudson er aug-
ljóslega kominn í stríð gegn ljós-
myndurum og gulu pressunni. Eins
og Fréttablaðið greindi frá hótaði
Hudson lögsóknum gegn þeim ljós-
myndara sem myndi smella mynd
af syni hennar. Nú hefur hún lýst
yfir vanþóknun sinni á birtingu
mynda af Kate Moss að sniffa
kókaín í breska blaðinu The Daily
Mirror í september síðastliðnum.
Moss missti í kjölfarið traust
flestra tískufyrirtæki og hraktist
til Bandaríkjanna þar sem hún tók
mál sín föstum tökum. Þvert á spár
tískuspekingar hefur Moss tekist
að snúa dæminu við.
Hudson heldur því fram að
myndbirtingin stuðli að aukinni
neyslu fíkniefna. „Engin kona
getur klæðst tískuflíkum eins og
hún, þetta er í raun alveg hrika-
legt,“ sagði Hudson. „Þetta er
hugsanlega það heimskulegasta
sem The Daily Mirror gat gert,“
bætti Hudson við. „Myndin var
eins og auglýsing fyrir kókaín: „Ef
þú neytir þessa efnis lítur þú út
svona“. Moss er algjörlega ómót-
stæðileg hvað sem hún gerir, hún
er ótrúlega töff á þessum mynd-
um,“ sagði Hudson.
Ljósmyndin auglýs-
ing fyrir kókaín
KATE MOSS Var gripin glóðvolg með kókaín
í hljóðverinu hjá þáverandi kærasta sínum,
Pete Doherty.
KATE HUDSON Hefur sagt myndbirtinguna
á kókaínneyslu Kate Moss vera frábæra
auglýsingu fyrir fíkniefnið.
Gleðilegar ræstingar
– og farsælan vinnudag!
11.154 kr.
Fred ræstivagninn
Léttur en öflugur ræstivagn með
tveimur 15 lítra fötum og pressu.
8.793 kr.
Spider Max ræstivagninn
Nettur ræstivagn með 15 lítra
tvískiptri fötu og pressu.
21.910 kr.
Arka 21 ræstivagninn
Ræstivagn fyrir gólfhreinsun og
afþurrkun með 28 lítra tvískiptri fötu og pressu,
afþurrkunarfötum og statífi fyrir sorppoka.
Á tilboði í ágúst
2006
Liprir ræstivagna
r
frá Filmop
R
V
62
13
A