Fréttablaðið - 08.08.2006, Síða 62
8. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2 fyrirhöfn 6 í röð 8 rá 9 ósigur 11
sælgæti 12 teygjudýr 14 hani 16
nafnorð 17 forskeyti 18 tunna 20
tveir eins 21 þekkja leið.
LÓÐRÉTT
1 selur 3 fyrirtæki 4 dagatal 5 óhrein-
indi 7 skemmtun 10 samstæða 13
loftþrýstieining 15 æfa 16 lík 19 bar-
dagi.
LAUSN
Bjöllukjóllinn sem Björk
Guðmundsdóttir klædd-
ist í myndbandinu við
lagið Who Is It, af plöt-
unni Medúllu, er til sýnis
í Gallerí Humar og
frægð/Smekkleysubúð-
inni Klapparstíg 25.
Kjólinn, sem er prýddur
ótal mörgum bjöllum, er
hannaður af Björk og
hinum heimsfærga
hönnuði Alexander
McQueen.
„Það er mikið af munum úr
nútíma dægurmenningu í Smekk-
leysubúðinni, þar á meðal þessi
kjóll,- segir Einar Örn Benedikts-
son. „Kjólinn kom til
landsins í byrjun árs en
er nú til sýnis.“
Einar Örn segir að
kjóllinn sé níðþungur og
í raun þurfi ofurmenni
eins og Björk til að bera
hann. „Ég hef mátað
hann og hann fór mér
vel. En ég gat ekki hald-
ið honum uppi - ég varð
móður á því að vera í
honum,“ segir Einar
Örn.
Bjöllukjóll Bjarkar til sýnis
BJÖLLUKJÓLLINN Er til sýnis í Gallerí
Humar og frægð.
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
Björk klæddist kjólnum í myndbandi við
lagið Who Is It sem tekið var upp fyrir
neðan Hjörleifshöfða.
LÁRÉTT: 2 ómak, 6 rs, 8 slá, 9 tap, 11
mm, 12 amaba, 14 krani, 16 no, 17
rað, 18 áma, 20 kk, 21 rata.
LÓÐRÉTT: 1 urta, 3 ms, 4 almanak, 5
kám, 7 samkoma, 10 par, 13 bar, 15
iðka, 16 nár, 19 at.
Á Skólabraut 35 á Akranesi er hús
sem hefur vakið mikla athygli
bæjarbúa enda óvenjulegt í meira
lagi. Appelsínugult með grænum
gluggum og rauðu þaki. Eigendur
hússins eru hjónin Magna F. Birnir,
forstöðumaður deildar gæðamála
og innri endurskoðunar hjá Land-
spítalanum, og Þorkell Guðbrands-
son, yfirlæknir á sjúkrahúsinu á
Akranesi, en þau nýta húsið þegar
vaktir Þorkels eru langar uppi á
Skaga.
„Framkvæmdirnar hófust fyrir
einu og hálfu ári en í fyrstu hélt
fólk að við værum að mála það í
tilefni írskra daga sem haldnir eru
uppi á Skaga ár hvert,“ segir
Magna. „Við höfum ekkert verið
að leiðrétta það enda má fólk túlka
þetta hvernig sem það vill,“ bætir
hún við en til gamans má geta
þess að barnabarn þeirra Mögnu
og Þorkels, Þula Glóð, var valið
„rauðhærðasti ungi Íslendingur-
inn“ á írskum dögum í fyrra.
„Þetta er bara svona þegar tveir
listamenn eru á heimilinu og
mamman er léttgeggjuð,“ útskýrir
Magna og hlær en verkefnið er
unnið í nánu samstarfi við dætur
þeirra tvær sem báðar eru í list-
námi. „Elsta dóttir okka, Jóhanna
Helga, er í meistaranámí við Art
institute of Chicago, og yngsta
dóttirin, Birna Bryndís, stundar
nám í grafískri hönnun við Lista-
háskóla Íslands,“ segir Magna en
auk þess hefur þriðja dóttirin,
Friðrika Björg, samið barnasögu
um húsið. „Heimilisfaðirinn nýtur
þess síðan að fylgjast með okkur
enda er hann mun jarðbundnari
heldur en við, ekki jafn „crazy“,“
segir Magna og hlær. Inni í húsinu
er síðan flest allt í sixties-stíl og
segir Magna að hugmyndin að því
sé komin frá gamalli ljósakrónu
sem var skilin eftir þegar þau
hjónin keyptu húsið.
Fyrir nokkru komu vinir Birnu
úr Listaháskólanum og „gröffuðu“
fallegar myndir utan á húsið í
mexíkönskum stíl. Athæfið vakti
enn meiri athygli á húsinu og í
fyrstu héldu nokkrir að þarna
væru einhverjir óprúttnir náung-
ar að vinna skemmdarverk. „Aum-
ingjans drengirnir þurftu að taka
sér ansi góðan tíma í að sannfæra
þá um að þeir væru listamenn en
ekki glæpamenn,“ segir Magna og
hlær en vildi ekki gefa upp nafn
drengjanna. „Graffarar gefa aldrei
upp nöfnin sín heldur vilja láta
þekkjast af verkum sínum,“ bætir
hún við. freyrgigja@frettabladid.is
HJÓNIN MAGNA OG ÞORKELL: SKREYTA HÚSIÐ Í MEXÍKÖNSKUM STÍL
Léttgeggjuð mamma
og ungir listamenn
MAGNA VIÐ GRAFFIÐ Var yfir sig hrifinn af
verki hinna ungu drengja sem óneitanlega
setti sérstakan svip á húsið.
SVEFNHERBERGIÐ Er alveg ótrúlega
sjarmerandi á sinn skemmtilega hátt.
ALLT Í SIXTIES-STÍL Magna tók mið af gam-
alli ljósakrónu sem skilinn var eftir.
HÚSIÐ FRÆGA „Erum ekkert að leiðrétta þann misskilning að húsið hafi verið málað í
tilefni af írskum dögum,“ segir Magna.
Fréttamaðurinn Logi Bergmann
Eiðsson sneri aftur á skjáinn í síð-
ustu viku eftir að honum og eigin-
konunni Svanhildi Hólm fæddist
dóttir fyrir skemmstu. Talsverða
athygli vakti að Logi Bergmann
skartaði myndarlegu alskeggi
þegar hann las fréttirnar á NFS,
en hann hefur hingað til jafnan
verið snyrtilega rakaður.
„Ég hef aldrei áður farið í
svona langt frí. Þegar ég er í fríi
nenni ég ekki að raka mig og
þegar ég kom til baka ákvað ég að
leyfa þessu að standa,“ sagði Logi
Bergmann þegar Fréttablaðið
náði tali af honum fyrir helgi.
Þessi umskipti á útliti Loga hafa
talsvert verið milli tannanna á
fólki um helgina enda ekkert lítið
mál þegar heimilisgestir upp á
hvert kvöld breyta svona til. Við-
brögðin við þessum óvænta skegg-
vexti Loga hafa um margt minnt á
það þegar Bogi Ágústsson, frétta-
stjóri á Sjónvarpinu, skipti um
hárgreiðslu fyrir skemmstu eftir
hafa í áraraðir skartað sömu
greiðslunni.
„Viðbrögðin hafa verið alla
vega,“ segir Logi Bergmann. „Ég
veit eiginlega ekki hvort ég ætla
að halda skegginu, ég þarf bara að
gera það upp við mig. Vinnufélag-
arnir hafa látið í ljós mjög sterkar
skoðanir og flestir hafa verið
mjög jákvæðir. Ég er í það minnsta
ágætlega sáttur við skeggið,“
segir Logi Bergmann Eiðsson.
- hdm
Logi ágætlega sáttur við skeggið
FLOTTUR MEÐ ALSKEGG Logi Berg-
mann Eiðsson fréttamaður kom
flestum í opna skjöldu þegar hann
sneri aftur á skjáinn í síðustu viku eftir
nokkurt hlé. Kappinn skartaði glæsi-
legu alskeggi sem hann segist ágæt-
lega sáttur við, þó skiptar skoðanir hafi
verið meðal samstarfsmannanna.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/H
Ö
R
Ð
U
R
FRÉTTIR AF FÓLKI
Tónlistarhátíðin Innipúkinn var vel sótt á Nasa um helgina. Hápunktur hátíð-
arinnar að flestra mati var
þegar Mugison steig á stokk
á sunnudagskvöldinu. Einn
þeirra gesta sem varð vitni
að tónleikum Mugisons
var Óskarsverðlaunaleik-
konan Cate Blanchett
sem var stödd hér
á landi með eigin-
manni sínum, Andrew
Upton. Blanchett leit
við á Nasa snemma á
sunnudagskvöldinu en
fór svo á veitingastaðinn
Við tjörnina og snæddi
kvöldverð. Vera hennar
þar vakti mikla athygli
meðal annarra gesta
og starfsfólks staðar-
ins. Að máltíð lokinni
sneru Blanchett og
eiginmaður hennar
aftur á Nasa og
fylgdust með
listamönnum á
borð við Mugison
og Ampop.
Tónleikar hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Television á sama stað
á föstudagskvöldinu munu seint teljast
með þeim eftirminnilegri. Það breytti
því þó ekki að liðsmenn sveitarinnar
nutu veru sinnar á Íslandi til hins ítrasta.
Tom Verlaine, söngvari sveitarinnar, fór
fram á það við komuna að honum væri
bent á góða fornbókabúð. Það var auð-
sótt mál og Verlaine var
sendur í Bókavörðuna
til Braga Kristjónsson-
ar bóksala. Svo vel fór
á með söngvaranum
og Braga og hans fólki
að Verlaine eyddi heil-
um þremur klukku-
tímum í búðinni
og fór hreint ekki
tómhentur út.
Morgunþáttur-inn Capone fer aftur í loftið á X-FM
í fyrramálið. Eins og Fréttablaðið greindi
frá fyrr í sumar var umsjónarmönnum
þáttarins, þeim Andra Frey Viðarssyni
og Búa Bendtsen, sagt upp störfum
þrátt fyrir miklar vinsældir. Nú virðast
fullar sættir hafa náðst milli þeirra
og yfirmannsins Axels Axelssonar og
Capone-menn
setjast við
hljóð-
nemana
klukkan
níu í
fyrra-
mál-
ið.
- hdm
HRÓSIÐ
... fær Árni Johnsen fyrir að
stjórna Brekkusöng á Þjóðhátíð í
þrjá áratugi.
EINAR ÖRN
BENEDIKTSSON
��������
��� ��� ��� ��� ���
��� ��� ��� ��� ������
��� ��� �
�� �� �� �� �
�� �� �� �� �
��������
����������
�������������������
����������
��������������������������
�
��������
����������
�������������
����������������
��������������������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI