Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 08.08.2006, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 ���������� ����������������������������� LÆGRI VEXTIR LÆGRA LÁNTÖKUGJALD ������������������������������ ������������������������������ �������������� ������� ���������� ���� ������������ �������������� � Einn góðan óveðursdag fyrir skömmu var því slegið upp í fyrirsögn að stúlkubörn allt niður í sjö ára gömul væru með holda- far sitt á heilanum. Fram að því hefur slíkt þótt næstum eðlilegur hugsunarháttur kvenna almennt frá kynþroska en varla mikið yngri stúlkna. LÍTIL lífseig hugmynd lúrir í bak- þankanum um að hin útbreidda megrunarárátta kvenna gæti í heilbrigðara sólkerfi flokkast sem afleiðing andlegs ofbeldis. Sífellt er verið að berja því inn í hausinn á konum að þær séu ekki nógu mjóar og flottar. Fyrirmyndir um fullkominn líkama birtast í aug- lýsingum allra miðla og í öllum hreyfimyndum þar sem jafnvel örvæntingarfullar húsmæður eru hasarkroppar. Uss, það er bara krúttlegt að vera örvæntingarfull, svo lengi sem þú ert mjó. MIÐAÐ við að fyrirmyndirnar úr erlendum fjölmiðlum öðlast hið dýrlega útlit í gegnum ævi- langt hungurverkfall, skurð- aðgerðir og tæknibrellur er engin furða að dæmigerðri konu úr íslenskum raunveruleika skuli finnast hún koma illa út úr saman- burðinum. Jafnvel þótt hún for- gangsraði líkamsræktinni framar á listann, borði bara lífrænt og sleppi bæði kolvetnum og rauðu kjöti. Markmiðinu verður seint náð. Hún verður aldrei alveg nógu mjó. MEÐVITUND um ágæti líkama okkar, eins og þeir eru skapaðir hver með sínu móti, hlýtur að vera lykill að kvenfrelsi í einhverjum skilningi. Fram að fermingu og jafnvel lengur eru mæður sterk- ustu fyrirmyndir dætra sinna. Eilíf óánægja þeirra fyrrnefndu með holdafar sitt sendir þeim síðarnefndu kristalskýr skilaboð um leyfilega gagnrýni og sífellt niðurrif í eigin garð. EFTIR að hafa látið teyma okkur í gegnum hin ýmsu tímabil hlýtur röðin bráðum að koma að dálitlum sveigjanleika. Hafandi verið mjúkar og hlýlegar, næst straujað- ar, svo kvenlegar og þá drengja- legar, þykir nú best að kona sé eigi yfir þrítugu, beri stór kúlubrjóst en sé samt alvarlega vannærð. Hafi þrýstnar varir, rakar og hálf- opnar með æfðum stút, svipurinn lýsi losta og heimsku. Helmingur mannkyns er kvenkyns. Svo stórt hlutfall hlýtur að geta haft áhrif á þróun tískunnar. Ég treysti því að fljótlega verði móðins að vera aldraður, loðinn, lífrænt ræktaður og án gerviefna. Hold er mold
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.