Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 8

Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 8
8 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR VEISTU SVARIÐ? 1 Hvaða ákvæði í kjarasamnningum gætu brotið í bága við Mannrétt- indasáttmála Evrópu? 2 Hversu mörg flugslys eða alvarleg flugatvik komu upp á árinu 2004? 3 Hvaða þrír skemmtistaðir taka þátt í tilraunaverkefni lögreglunnar? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 58 BORUN Undirbúningur vegna djúp- borunar á Kröflusvæðinu stendur nú yfir. Á næstu vikum fer fram útboð á efni til borunarinnar. Sam- kvæmt Birni Stefánssyni, deildar- stjóra virkjanadeildar hjá Lands- virkjun, er vonast til að boranir geti hafist í lok næsta árs eða byrj- un ársins 2008. Holan er um fimm kílómetra djúp en hefðbundnar háhitaholur eru milli tveggja og þriggja kílómetra djúpar. Björn segir hugmyndina vera að sækja orkuríkari gufu sem væri undir meiri þrýstingi og hefði hærra hitastig en finnst í hefðbundnum borholum. „Undir- búningur vegna verkefnisins var hafinn árið 2000. Það er ekki víst að við finnum gufuna, en við von- umst til að það fari að skýrast með árangur um 2010.“ Hann segir umhverfisrask af völdum djúpborunarholu sam- bærilegt hefðbundnum holum en óvissa felist í því að efnasamsetn- ing gufunnar sé óþekkt. „Við þurf- um að vera viðbúnir því að geta dælt vökvanum niður aftur ef hann inniheldur til dæmis mikið af þungmálmum.“ Verkefnið er samvinnuverk- efni Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur, Orkuveitu Suður- nesja og Orkustofnunar fyrir hönd ríkisins. - sþs Undirbúningur vegna djúpborunar á Kröflusvæðinu stendur yfir: Vilja sækja orkuríkari gufu FRÁ BORUN Í BJARNARFLAGI Hugmyndin er að sækja orkuríkari gufu í borholur á Kröflusvæðinu en fundist hefur í hefð- bundnum borholum. MYND/GUNNAR HNEFILL ÖRLYGSSON LÖGREGLA Stjórn Félags frétta- manna vill minna yfirstjórn lög- gæslumála á að lögreglan stjórnar ekki fréttaflutningi fjölmiðla með aðgerðum sínum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu vegna atviks á Egilsstöðum í gær þar sem yfirlögregluþjónn stjak- aði við og hindraði myndatöku- mann á Fréttastofu Sjónvarpsins. Í yfirlýsingunni segir að óþol- andi sé þegar lögreglan taki sér vald sem hún hafi ekki og sýni starfi fjölmiðlafólks hroka. Stjórn félagsins telur lögreglumanninn sem um ræðir mann að meiri fyrir að hafa beðist afsökunar. - sþs Félag fréttamanna mótmælir: Óþolandi vald- beiting lögreglu VARNARMÁL Íslensk stjórnvöld hafa til skoðunar varnaráætlun sem Bandaríkjamenn hafa lagt til grundvallar í viðræðum um skip- an varnarmála á Íslandi. Geir H. Haarde forsætisráðherra, sem stýrir viðræðunum fyrir Íslands hönd, sagðist eiga von á því að samkomulag milli þjóðanna tveggja myndi nást fyrir septem- berlok, en þá er áætlað að varnar- liðið verði farið af landi brott. „Ég geri ráð fyrir því að fallist verði á varnaráætlunina, ef það næst samkomulag um málið í heild.“ Geir kynnti í gær fyrir for- mönnum stjórnarandstöðuflokk- anna, hvaða tillögur hefðu komið fram í varnarviðræðunum. „Þetta mál er í viðræðuferli. Í síðustu viku fóru fram viðræður þar sem meðal annars var farið yfir varn- aráætlun sem lögð hefur verið til grundvallar af hálfu Bandaríkja- manna. Einnig var rætt um önnur atriði sem lúta að viðskilnaði Bandaríkjamanna á Keflavíkur- flugvelli og hvernig gengið verður frá þeim málum.“ Össur Skarphéðinsson, þing- maður Samfylkingarinnar, sagðist í samtali við fréttastofu Ríkisút- varpsins hafa heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn hefðu boðið Íslendingum 36 milljónir dollara, eða 2,5 milljarð króna, fyrir að hafa umsjón með fasteignum tengdum Atlantshafsbandalaginu á Miðnesheiði. Geir segir þessar upplýsingar rangar. „Ég kannast ekki við þessar upplýsingar sem Össur kom fram með, eða þá fjár- hæð sem hann nefndi. Þessi orð Össurar komu okkur sem vinnum að þessum viðræðum í opna skjöldu og hann einn getur svarað fyrir það hvaðan hann fær þessar upplýsingar.“ Össur segist hafa traustar heim- ildir fyrir þessum upplýsingum og dregur í efa að boðleiðir innan ráðuneytis Geirs hafi náð til hans. „Ég dreg það ekki í efa, ef Geir segist ekki hafa heyrt af þessu til- boði, því ég þekki Geir ekki af öðru en að hann segi satt og rétt frá. Viðbrögð hans vekja hins vegar hjá mér spurningar um boðleiðir í utanríkisráðuneytinu, sem hann stýrði. Heimildir sem ég treysti, og ofbuðu þau vinnubrögð sem stjórnvöld hafa beitt í samninga- viðræðunum, greindu mér frá því að Bandaríkjamenn hefðu óform- lega fyrr á árinu, viðrað við Íslend- inga að þeir væru tilbúnir til þess að greiða Íslendingum 36 milljónir dollara fyrir að sjá um ákveðin verkefni sem litu að umsjón og viðhaldi á fasteignum Atlantshafs- bandalagsins. Hvernig sem því var komið á framfæri við íslensk stjórnvöld er óhjákvæmilegt annað en að formaður viðræðunefndar- innar hafi vitað af því.“ Össur segir útreikninga, sem að baki tilboðinu liggja, hafa verið afhenta utanríkisráðuneytinu fyrr á þessu ári. „Ég veit hins vegar að upphæð- in var niðurstaða útreikninga sem Bandaríkjamenn létu framkvæma, þar sem komist var að þeirri nið- urstöðu að þetta væri kostnaður- inn við þessi tilteknu verk. Frá sömu heimildum hef ég það, að blöð með þessum útreikningum hafi verið afhent utanríkisráðu- neytinu, ekki síðar en í maí eða júní á þessu ári. Ég hef nefnt þessa tölu við háttsetta embættismenn sem hafa kannast við þessa tölu.“ magnush@frettabladid.is Deila um tilboð til íslenskra stjórnvalda Bandaríkjamenn hafa lagt fram varnaráætlun sem ekki hefur enn náðst sam- komulag um. Geir H. Haarde og Össur Skarphéðinsson deila um hvort Banda- ríkjamenn hafi boðist til að greiða 2,5 milljarða fyrir umsjón með fasteignum. VARNARLIÐSMENN AÐ STÖRFUM Óvíst er enn hver niðurstaðan verður í varnarviðræðun- um milli Íslands og Bandaríkjanna. Til grundvallar liggur varnaráætlun sem lögð hefur verið fram af hálfu Bandaríkjamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA KÆRUMÁL Heilbrigðiseftirlit Austurlands brýtur gegn jafnræðis- reglu stjórnsýslulaga með því að krefja Impregilo um hærra tíma- gjald fyrir eftirlit með starfsemi fyrirtækisins, samkvæmt niður- stöðu úrskurðarnefndar sem starf- ar samkvæmt lögum um hollustu- hætti og mengunarvarnir. Impregilo sendi kæru til nefndarinnar á þeim grundvelli að fyrirtækinu væri mismunað með ólögmætum hætti með því að vera krafið um 30 prósent hærra tíma- gjald vegna eftirlits en þorra atvinnurekenda á svæðinu sé gert að greiða fyrir hliðstæða þjón- ustu. Þórarinn V. Þórarinsson, lög- maður Impregilo, segir úrskurð- inn afgerandi um að þetta hefði verið ólögmæt gjaldtaka og fund- að verði með heilbrigðiseftirlitinu á næstunni þar sem reynt verður að ná samkomulagi um hvernig endurgreiðslu verður háttað. Meðal raka heilbrigðisstofnun- arinnar fyrir hækkuninni er að kostnaður við eftirlitið hafi verið mun hærri en numið hafi inn- heimtum þjónustugjöldum, að sögn Helgu Hreinsdóttir, fram- kvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Austurlands. „Við höfum ekkert annað í huga en að fara réttar leið- ir en erum ósátt við þennan úrskurð. Það er nánast gefið í skyn að íbúar Austurlands eigi að bera 30 prósent af kostnaði við heil- brigðiseftirlit í stærstu fram- kvæmd Íslandssögunnar.“ - sdg Impregilo greiðir hærra gjald fyrir heilbrigðiseftirlit en aðrir atvinnurekendur: Brýtur gegn jafnræðisreglu FRAMKVÆMDIR IMPREGILO Impregilo telur sig eiga að fá nokkrar milljónir til baka.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.