Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
����������
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
33
62
07
/2
00
6
Viðskiptavinir í Og1 greiða ekkert fyrir takmarkalausa notkun milli
allra heimasíma innanlands.
Heimili sem eru með allt hjá Og Vodafone, GSM, Heimasíma og Internet geta skráð sig í Og1.
Auðvelt að skipta.
Það er ekkert mál að skipta um símafyrirtæki eða almennt að skrá sig í Og1. Hringdu núna í
1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is og skráðu þig og þína.
Mánaðargjald heimasíma er 1.390 kr.
Og Vodafone hefur leitt samkeppni á íslenska fjarskiptamarkaðnum og fært neytendum betri
þjónustu og lækkað verð.
Komdu í verslun Og Vodafone, hringdu í 1414 eða smelltu þér á www.ogvodafone.is fyrir nánari upplýsingar
og skráningu í Og1.
Ómanngleggni
Ég á það til að þekkja ekki í sjón fólk sem ég þekki. Ég er ákaf-
lega ómannglöggur. Stundum
heilsa ég ekki fólki sem þekkir
mig. Ég hef lent í ótal óþægilegum
atvikum út af þessari fötlun minni.
Ég hef átt langar samræður við
fólk sem ég vissi ekkert hvert var,
sagt því fréttir af mér og beðið að
heilsa. Fólk hefur jafnvel haldið
að ég sé svona merkilegur með
mig. Ég er það ekki.
ÉG HEF alltaf verið svona. En
eftir að ég varð frægur versnaði
þetta til muna. Það er nefnilega
þannig að það er ákveðin hefð
fyrir því á Íslandi að frægt fólk
heilsar frægu fólki, ekki vegna
þess að það þekkist, heldur vegna
þess að báðir eru frægir. Ómar
Ragnarsson var til dæmis fyrsti
frægi maðurinn til að heilsa mér á
götu. Hann hafði séð mig í sjón-
varpinu. Svo eru líka dæmi til þess
að fólk, sem ég þekki ekki, heilsi
mér af því að ég er ég. Það vinkar
mér úr bílum eða hrópar eitthvað
á eftir mér.
ÉG ÞEKKI ekki frægt fólk þannig
að oft hefur frægt fólk heilsað
mér í þeirri trú að ég vissi hver
það væri, sem ég hef oft ekki gert.
Ég fylgist ekki vel með. Þannig
hef ég stundum sært marga fræga
Íslendinga. Fólk hefur jafnvel
haldið að ég þættist vera frægari
en það og yfir það hafinn. En það
er ekki bara fræga fólkið sem
gerir þessi mistök. Það eru nefni-
lega margir eins og ég. Einu sinni
heilsaði mér maður í Kringlunni.
Ég heilsaði honum og svo stóðum
við saman í smá stund þar til við
áttuðum okkur á því að við þekkt-
ums ekki neitt. Hann hélt að hann
þekkti mig en hafði bara séð mig í
sjónvarpinu. Ég vissi ekkert hver
hann var en vildi bara ekki særa
hann.
ÞETTA HEFUR versnað mikið
eftir því sem ég kynnist fleira
fólki. Flestir ættingjar mínir eru
löngu orðnir vanir þessu. Og flest-
ir gamlir kunningjar virðast átta
sig á því að þetta eru ekki merki-
legheit heldur takmörkun mín.
ÉG BIÐ alla afsökunar sem ég hef
sært eða móðgað á þennan hátt.
Þetta eru mín mistök. Nú er ég
búinn að hitta svo mikið af fólki að
ég er byrjaður að biðja fólk um að
segja deili á sér ef ég þekki það
ekki. Ég hef ekki gert það hingað
til vegna þess að ég hef skammast
mín svo mikið fyrir þetta og ekki
viljað særa fólk. En það gengur
ekki lengur.