Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 74
10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR54
FÓTBOLTI Ítalskir fjölmiðlar sögðu í
gær að enska liðið Manchester
United ætluðu sér að gera risatil-
boð í brasilíska sóknarmanninn
Adriano sem arftaka Ruud van
Nistelrooy sem seldur var til Real
Madrid fyrir ekki alls löngu.
Adriano er 24 ára og spilar með
Ítalíumeisturum Inter. Forráða-
menn Manchester United eru vænt-
anlegir til Milan, samkvæmt fjöl-
miðlum á Ítalíu.
Talið er að Inter vilji halda í
Adriano en leikmaðurinn hefur þó
ekki sýnt sínar bestu hliðar undan-
farið ár. Hernan Crespo gekk til
liðs við félagið fyrr í vikunni og þá
er Inter víst að reyna að fá Zlatan
Ibrahimovic frá Juventus. Ef það
tekst aukast líkurnar á því að
félagið sé reiðubúið að selja
Adriano. - egm
Manchester United:
Með risatilboð
í Adriano?
ADRIANO Náði sér ekki á strik síðasta
tímabil. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Glenn Roeder, knatt-
spyrnustjóri Newcastle, er enn að
velta því fyrir sér hvort hann eigi
að leggja fram tíu milljónir punda
í sóknarmanninn Dirk Kuyt.
Roeder fylgdist með þessum 25
ára leikmanni þegar hann lék með
Feyenoord um síðustu helgi og lét
hafa eftir sér við enska fjölmiðla
að hann hefði verið hrifinn af
frammistöðu hans.
„Við erum að skoða sóknar-
menn um þessar mundir og hann
er einn af þeim sem til greina
koma. Við ætlum þó að skoða hann
aðeins betur,“ sagði Roeder en hár
verðmiði gerir það að verkum að
hann vill ekki ana út í neitt. Talið
er að Obafemi Martins hjá Inter
sé einnig undir smásjá hans.
- egm
Roeder skoðar markaðinn:
Dirk Kuyt enn
í myndinni
TIL NEWCASTLE? Dirk Kuyt er undir smásjá
Glenn Roeder. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Varnarmaðurinn John
Pantsil, landsliðsmaður Gana,
varð formlega leikmaður enska
liðsins West Ham í gær þegar
hann fékk atvinnuleyfi hjá félag-
inu. Þessi 25 ára leikmaður var til
reynslu hjá Hömrunum og heillaði
knattspyrnustjórann Alan Pardew.
Pantsil kemur frá Hapoel Tel Aviv
og er honum ætlað að fylla skarðið
sem Tomas Repka skildi eftir sig í
hægri bakverðinum. Hann sagði á
heimasíðu West Ham að það hefði
lengi verið draumur sinn að spila
á Englandi. - egm
Ganamaðurinn John Pantsil:
Kominn í raðir
West Ham
PANTSIL Nýjasti liðsmaður West Ham er hér
í leik. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI „Það er frábært fyrir
liðið að hafa fengið þessa tvo leik-
menn, ég er sannfærður um að
þeir munu báðir styrkja okkur
töluvert,“ sagði Iain Dowie, knatt-
spyrnustjóri úrvalsdeildarliðsins
Charlton, eftir að tveir nýjustu
leikmenn félagsins voru kynntir
til leiks. Það eru miðjumaðurinn
Amady Faye sem kemur frá New-
castle og varnarmaðurinn Djimi
Traore sem kemur frá Liverpool.
Graeme Souness keypti Faye
til Newcastle fyrir einu og hálfu
ári, en þessi 29 ára leikmaður var
ekki í áætlunum Glenn Roeder
sem nú stýrir liðinu. Traore er 26
ára og er landsliðsmaður frá Malí
en hann átti ekki fast sæti hjá
Liverpool. - egm
Iain Dowie hæstánægður:
Báðir munu
styrkja liðið
TRAORE TIL CHARLTON Hér má sjá Djimi
Traore í leik gegn Charlton á síðasta tíma-
bili. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Guðjón Valur Sigurðsson hefur
verið gerður að fyrirliða þýska
úrvalsdeildarliðsins Gummers-
bach, sem Alfreð Gíslason þjálfar.
Var þetta tilkynnt á heimasíðu
liðsins í gær. Auk Guðjóns Vals
leika tveir Íslendingar með liðinu,
þeir Róbert Gunnarsson og Sverre
Jakobsson sem í sumar gekk til
liðs við félagið frá Íslandsmeist-
araliði Fram. Guðjón Valur er
samningsbundinn Gummersbach
til loka tímabilsins árið 2009. - esá
Gummersbach:
Guðjón Valur
fyrirliði
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI:
1. FH 12 9 2 1 21-7 29
2. KEFLAVÍK 13 5 4 4 24-14 19
3. VALUR 12 5 4 3 20-13 19
4. FYLKIR 12 5 2 5 15-15 17
5. BREIÐABLIK 12 5 2 5 19-23 17
6. KR 13 5 2 6 14-25 17
7. VÍKINGUR 12 4 3 5 14-11 15
8. GRINDAVÍK 12 3 5 4 16-15 14
9. ÍA 12 4 0 8 15-21 12
10. ÍBV 12 3 2 7 11-25 11
MARKAHÆSTIR:
MAREL BALDVINSSON, BREIÐABLIKI 9
JÓHANN ÞÓRHALLSSON, GRINDAVÍK 8
STEFÁN ÖRN ARNARSON, KEFLAVÍK 6
GUÐMUNDUR STEINARSSON, KEFLAVÍK 6
BJÖRGÓLFUR TAKEFUSA, KR 6
GARÐAR GUNNLAUGSSON, VAL 5
TRYGGVI GUÐMUNDSSON, FH 5
SÆVAR ÞÓR GÍSLASON, FYLKI 5
CHRISTIAN CHRISTIANSEN, FYLKI 5
VIKTOR BJARKI ARNARSSON, VÍKINGI 5
KR-völlur, áhorf.: 1283
KR Keflavík
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–11 (3–8)
Varin skot Kristján 6 – Ómar 1
Horn 6–7
Aukaspyrnur fengnar 11–13
Rangstöður 5–1
KEFLAV. 4–3–3
Ómar 4
Guðjón Árni 5
Gustavsson 6
Hallgrímur 6
Milicevic 5
Jónas Guðni 7
Samuelsen 6
Hólmar Örn 8
Stefán Örn 4
(51. Þórarinn 7)
Magnús Sverrir 6
Guðmundur 7
*Maður leiksins
KR. 4–4–2
Kristján 6
Sigþór Júl. 7
Pauletic 4
Gunnlaugur 5
Vigfús Arnar 6
Skúli Jón 6
(84. Gunnar K. -)
Cizmek 5
Kristinn 6
Sigmundur 8*
Grétar Ólafur 7
Björgólfur 8
0-1 Guðmundur Steinarsson (11.)
1-1 Grétar Hjartarson (27.)
2-1 Björgólfur Takefusa (65.)
2-2 Þórarinn Kristjánsson (79.)
2-2
Garðar Örn Hinriksson (5)
FÓTBOLTI Garðar Gunnlaugsson
lék í gær sinn annan deildarleik
með sænska 1. deildarliðinu
Norrköping og tókst honum að
skora eina mark liðsins og tryggja
sínum mönnum þannig annað
stigið í leik gegn Jönköpings
Södra. Það var svo félagi hans og
annar Skagamaður, Stefán Þórð-
arson, sem lagði upp markið fyrir
Garðar. Norrköping er í fjórða
sæti sænsku 1. deildarinnar.
Garðar gekk til liðs við Norr-
köping í síðasta mánuði frá Val,
en hann skoraði í sumar fimm
mörk fyrir liðið í Landsbanka-
deildinni auk þess sem hann
skoraði tvö mörk í bikarkeppn-
inni og eitt gegn danska liðinu
Bröndby í Evrópukeppni félags-
liða í leik liðanna ytra.
Einn leikur fór fram í sænsku
úrvalsdeildinni í gær og var
Jóhann B. Guðmundsson í
byrjunarliði GAIS sem gerði 2-2
jafntefli við Häcken. Jóhann var
tekinn af velli á 66. mínútu en Ari
Freyr Skúlason, nýr liðsmaður
Häcken, var ekki í leikmanna-
hópi liðsins í gær. - esá
Íslensk samvinna í jöfnunarmarki Norrköping í gærkvöldi:
Stefán lagði upp fyrsta mark Garðars
FÓTBOLTI Fyrrum Evrópumeistarar
Liverpool lentu í talsverðum vand-
ræðum á heimavelli í gær er liðið
tók á móti ísraelska liðinu Macc-
abi Haifa. Ísraelsmennirnir voru
fyrri til að skora í leiknum eftir
slæm varnarmistök hjá Finnanum
Sami Hyypiä. Craig Bellamy náði
skömmu síðar að jafna metin fyrir
Liverpool í sínum fyrsta alvöru-
leik með liðinu og eftir langar og
þungar sóknarlotur í síðari hálf-
leik tókst Chile-manninum Mark
Gonzalez að tryggja þeim ensku
sigurinn með marki á 88. mínútu.
Þetta var einnig fyrsti stóri leikur
Gonzalez með liðinu. Brasilíumað-
urinn Gustavo Boccoli skoraði
mark Maccabi.
Liverpool-menn voru lengi í
gang en mark Ísraelsmannanna
kom eftir um hálftímaleik. Undir
lok hálfleiksins tóku heimamenn
völdin á vellinum en máttu sig svo
prísa sig sæla að hafa ekki lent
aftur marki undir undir miðbik
síðari hálfleiksins er Colautti átti
skalla rétt framhjá marki Liver-
pool.
Þeir ensku sóttu svo stíft undir
lok leiksins og kom markið loks í
blálokin. Niðurstaðan því 2-1 sigur
en lengi vel leit út fyrir að neyðar-
legt jafntefli yrði niðurstaðan á
Anfield.
Líklegt er að síðari leikur lið-
anna fari fram í Kænugarði í
Úkraínu eftir að forseti Dynamo
Kiev gaf óformlegri fyrirspurn
ísraelska liðsins jákvætt svar.
Knattspyrnusamband Evrópu
staðfesti fyrir skömmu að heima-
leikur Maccabi Haifa gæti ekki
farið fram í Ísrael vegna átakanna
í suðurhluta Líbanon. Margir
mótmæltu stríðinu fyrir utan
Anfield í Liverpool í gærkvöldi.
Fjölmargir leikir fóru fram í
forkeppni Meistaradeildarinnar í
gær og slapp pólska liðið Legia
Varsjá ágætlega frá viðureign
sinni gegn Shakhtar Donetsk í
Úkraínu. FH-banarnir töpuðu
leiknum, 1-0. Hamburger SV og
Osasuna gerðu markalaust jafn-
tefli í Þýskalandi og þá tapaði FC
Köbenhavn fyrir Ajax á heima-
velli, 2-1. AC Milan vann 1-0 sigur
á Rauðu stjörnunni frá Belgrad í
Serbíu og Hearts tapaði á heima-
velli, 2-1, fyrir AEK Aþenu. Ein
óvæntustu úrslit kvöldsins var
1-0 sigur liðs Salzburg frá Aust-
urríki á Valencia.
- esá
CRAIG BELLAMY Skoraði dýrmætt mark fyrir Liverpool í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
Þriðja umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í gær:
Nýju mennirnir björguðu Liverpool
FÓTBOLTI Þrettánda umferð Lands-
bankadeildarinnar hófst með
skemmtilegum leik KR og Kefla-
víkur í gær en hann endaði með
jafntefli, 2-2. Lykilmenn vantaði í
lið Keflavíkur og var Hallgrímur
Jónasson því kominn í miðvörðinn.
Hjá KR var Sigþór Júlíusson kom-
inn í byrjunarliðið en hann stóð sig
vel í bakverðinum. Bæði lið hefðu
líklega viljað fá öll stigin úr leikn-
um en þegar allt kemur til alls geta
þetta talist sanngjörn úrslit í kafla-
skiptum leik.
Fyrsta marktilraunin kom strax
á fyrstu mínútu en þá áttu KR-ingar
aukaspyrnu sem þeir útfærðu
skemmtilega og Björgólfur Take-
fusa skaut hárfínt framhjá mark-
stönginni. Það voru þó Keflvíking-
ar sem byrjuðu leikinn betur og
komust yfir á elleftu mínútu en þá
átti Jónas Guðni Sævarsson langa
sendingu fram, Dalibor Pauletic
gleymdi sér í vörninni og Guð-
mundur Steinarsson var kominn
einn á auðan sjó. Guðmundur gerði
allt rétt og skot hans hafnaði í blá-
horninu.
Næstu mínútur þar á eftir voru
eign Keflvíkinga og Jónas Guðni
átti hörkuskot skömmu eftir mark-
ið en Kristján Finnbogason náði að
verja í horn. Kristján var aftur á
ferðinni á tuttugustu mínútu en þá
varði hann skot Magnúsar Þor-
steinssonar í stöng. Gestirnir höfðu
yfirhöndina á miðjunni á upphafs-
kafla leiksins en þeir Mario Cizmek
og Kristinn Jóhannes Magnússon
náðu þó betur saman eftir því sem
á hálfleikinn leið og KR-ingum óx
ásmegin.
Skúli Jón Friðgeirsson sýndi í
nokkur skipti skemmtileg tilþrif
hjá KR í fyrri hálfleiknum og hann
skaut yfir úr mjög góðu færi á 25.
mínútu en fram að þeim tíma höfðu
KR-ingar verið heldur líflausir.
Grétar Hjartarson átti sendinguna
á Skúla en tveimur mínútum síðar
snerist dæmið við og Grétar náði
að skora með skalla eftir undirbún-
ing Skúla. Markið var langt frá því
að vera fallegt en telur eins og hin
en Grétar hefur farið illa með hin
ótrúlegustu færi í síðustu leikjum
og gat því farið að anda léttar eftir
að hafa séð þennan bolta í netinu.
Þegar um tíu mínútur voru liðn-
ar af seinni hálfleik féll Magnús
Þorsteinsson innan teigs og fannst
sterk lykt af vítaspyrnu en dómar-
inn Garðar Örn Hinriksson virtist
handviss og var ekki lengi að gefa
Magnúsi gult spjald fyrir leikara-
skap. KR komst svo yfir á 65. mín-
útu og ekki var það af verri gerð-
inni. Sigmundur Kristjánsson átti
frábæra fyrirgjöf og Björgólfur
var ákveðinn innan teigs og skall-
aði í markið.
Guðmundur Steinarsson átti
hörkuskot rétt framhjá og hinum
megin var Kristinn nálægt því að
skora en skallaði naumlega fram-
hjá. Það var svo bjargvætturinn
Þórarinn Brynjar Kristjánsson sem
jafnaði í 2-2 beint úr aukaspyrnu og
bjargaði stigi fyrir gestina en bolt-
inn sveif yfir varnarvegginn og í
nærhornið. Guðmundur Steinars-
son var nálægt því að tryggja gest-
unum öll stigin en Kristján varði
skot hans úr aukaspyrnu glæsilega
og úrslitin því 2-2.
„Það er allt í lagi að fá stig á KR-
vellinum en mér fannst þó að við
áttum að klára þetta. Maggi vildi fá
vítaspyrnu, var kominn framhjá
manninum þegar hann er rifinn
niður og fær gult spjald. Það er
náttúrlega fáránlegt,“ sagði Þórar-
inn Brynjar Kristjánsson Keflvík-
ingur eftir leik. Hann var þó þokka-
lega sáttur við stigið og sagðist ekki
muna eftir því hvernig væri að tapa
leik enda hefur Keflavík ekki tapað
síðan í sjöundu umferð. „Við byrj-
uðum mun betur í þessum leik,
erum með fljóta leikmenn og fáir
geta stöðvað okkur þegar við látum
boltann ganga. Við eigum ekki að
vera að þruma boltanum fram, það
hentar okkur ekki.“
elvargeir@frettabladid.is
GUÐMUNDUR STEINARSSON Í strangri gæslu KR-inga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Jöfn skipti í Frostaskjólinu
KR og Keflavík gerðu í gær 2-2 jafntefli í fyrsta leik 13. umferðar Landsbanka-
deildarkarla. Keflvíkingar voru ekki sáttir við dómgæsluna eftir leik.