Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 62
10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR42
Hollywood leitar oft ekki
langt yfir skammt þegar
kemur að hugmyndum fyrir
næstu kvikmynd. Stundum
er bara farið beint í imba-
kassann, náð í gamla sjón-
varpsþætti og þeir gæddir
nýju lífi á hvíta tjaldinu.
Nýjasta kvikmynd Michael Mann,
Miami Vice, er einmitt byggð á
einhverjum vinsælustu sjónvarps-
þáttum hins skrautlega níunda
áratugar. Þeir Don Johnson og
Philip Michael Thomas brunuðu
um á glæsikerrum og leystu fíkni-
efnamálin í Miami af stakri snilld
og fágun. Nú eru þeir Jamie Foxx
og Colin Farrell komnir í þetta
„vandasama“ hlutverk og ef
marka má orð gagnrýnenda hefur
Mann tekist að færa þessa „tíma-
lausu“ snilld uppá hvíta tjaldið.
Slíkt er þó alls ekki venjan.
Í undirbúningi
Í framleiðslu eru nú þrjár kvik-
myndir sem allar eru byggðar á
heimsþekktum sjónvarpsþáttum.
Matt Groening, skapari Simpson-
fjölskyldunnar, hefur gefið grænt
ljós á að gula fjölskyldan birtist
aðdáendum sínum í kvikmynda-
húsum. Á imdb.com kemur fram
að auk hinna fastráðnu leikara
sem skemmta íslenskum sjón-
varpsáhorfendum vikulega hafa
blaðakonan Erin Brockovich,
Minnie Driver og Albert Brooks
verið ráðin til verksins. Ekki er
vitað um hvað myndin fjallar en
ljóst er að flestar hinar þekktu
persónur sjónvarpsþáttanna koma
fyrir í myndinni. Efniviðurinn
sem er fyrir hendi hjá Groening
er vissulega safaríkur en spurn-
ingin hlýtur að vera hvort kvik-
myndahúsagestir þoli einn og hálf-
an tíma af Simpson-fjölskyldunni.
Jack Bauer og samstarfsmenn
hans hjá CTU verða væntanlega
einnig færðir upp á hvíta tjaldið
en 24 hefur um árabil verið einn
vinsælasti sjónvarpsþáttur heims.
Kiefer Sutherland er sjálfur fram-
leiðandi þáttanna og í viðtölum
hefur hann lýst því yfir að Bauer
sjálfur sé ekki aðalmálið heldur
fyrirkomulag þáttanna en þeir
gerast á 24 klukkustundum. Ef
marka má fyrstu fréttir af gerð
handritsins verður þessu fyrir-
komulagi hent út á hafsauga og
Bauer hafður miðpunktur alls.
Þriðja og væntanlega sú kvik-
mynd sem verður hvað erfiðust í
vinnslu er án nokkurs vafa Dallas.
Þættirnir spönnuðu þrettán ár í
lífi Ewing-fjölskyldunnar þar sem
atvik á borð við martröð Pamelu
og skotárásina á J.R. lifa enn í
fersku minni aðdáendanna sem
geta brúað bilið með endurútgáfu
þáttanna á DVD. Handritshöfund-
arnir standa því frammi fyrir
nokkuð erfiðu hlutskipti enda
fáheyrt að sápur séu færðar í
kvikmyndabúning. Talið er næsta
víst að John Travolta feti í fótspor
Larry Hagman en erfiðlega hefur
gengið að ráða í önnur hlutverk.
Meðalmyndirnar standa upp úr
Sjónvarpsþættirnir sem hafa hing-
að til ratað í kvikmyndahúsin
skríða oftar en ekki rétt yfir meðal-
mennskuna. Verst gekk með The
Saint en Roger Moore hafði náð
heimsfrægð með túlkun sinni á
Simon Templar. Val Kilmer var
valinn til að gera hlutverkinu skil
í samnefndri kvikmynd en sú náði
varla að narta í hæla sjónvarps-
þáttarins. Misjafnar skoðanir eru
á því hvernig Tom Cruise hafi tek-
ist til með því að færa Mission:
Impossible þættina úr
sjónvarpskassanum en flestir eru
sammála um að fyrsta myndin
hafi verið trú upphafi sínu enda
var sjálfur Jim Phelps svikarinn í
hópnum. Hinar tvær virka sem
einhvers konar lofræður á ágæti
Tom Cruise. Charlie’s Angels-
myndirnar tvær með þeim Camer-
on Diaz, Lucy Liu og Drew
Barrymore þóttu ekki heldur
merkilegur pappír en annar diskó-
þáttur, Starsky & Hutch, fékk
frekar fyndna útkomu með snill-
ingunum Owen Wilson og Ben
Stiller sem gerðu óspart grín að
þessum glysgjarna tíma.
Kevin Costner og Brian
DePalma tókst hins vegar óvenju
vel upp með kvikmyndina The
Untouchables enda var efniviður-
inn frekar einfaldur og hentaði vel
fyrir hvíta tjaldið. Sérsveit lög-
reglunnar í Chicaco eltist við Al
Capone og hafði sigur að lokum.
Sama reglan gilti fyrir The Fugitive
sem naut mikilla vinsælda á sjö-
unda áratugnum. Þar var læknir-
inn Richard Kimble grunaður um
morð á eiginkonu sinni, sleppur úr
gæsluvarðhaldi og eltist við ein-
henta manninn en er sjálfur hund-
eltur af lögreglunni. Leikstjórinn
Andrew Davis gerði engin mistök
þegar hann fékk þá Harrison Ford
og Tommy Lee Jones til að endur-
lífga persónurnar.
Listi þeirra sjónvarpsþátta sem
hafa verið fluttir yfir til drauma-
verksmiðjunnar er enn lengri en
eins og sjá má er það frekar undan-
tekningin en reglan að sjónvarps-
stjörnur gangi í endurnýjun líf-
daga á hvíta tjaldinu. - fgg
VIRKAR 24? Kiefer Sutherland hefur
lýst því yfir að það sé fyrirkomulag
þáttanna sem sé stjarna seríunnar en
í kvikmyndinni verður því væntanlega
hent út í hafsauga.
VINSÆLIR Á ÍSLANDI David Jansen þótti
stórkostlegur í hlutverki Richard Kimble.
Harrison Ford tók síðan við keflinu undir
stjórn Andrew Davis með góðum árangri.
STARSKY & HUTCH Fengu frekar fyndna útkomu þegar þeir Ben Stiller og Owen Wilson
gerðu stólpagrín að dískótímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
Eftirlætiskvikmynd: „Gone With the Wind, ekki
spurning, auðvitað eru margar tilkallaðar en ef
ég verð að nefna eina þá er það hún. Horfði
fyrst á hana tólf ára og hef séð hana ansi oft
síðan.”
Eftirlætisatriði: „Holly-
wood-endir á kvikmyndum
er eitthvað fyrir mig og eitt
eftirminnilegasta atriðið
er úr kvikmyndinni Big
Jake með John Wayne í
aðalhlutverki. Þar bjargar
hann sonarsyni sínum
úr höndum hrikalegra
mannræningja og þegar
þeir hittast í lokin eru það
þeirra fyrstu fundir. Wayne meiðist en sá litli
hjúkrar afa sínum. Atriði að mínu skapi.”
Uppáhaldsleikstjóri: „Ég fylgist voðalega lítið
með leikstjórum en myndir Quentin Tarantino
eru sérstakar og því nefni ég hann. Leikarar eru
mér meira virði.”
Mesta hetja hvíta tjaldsins: „Ég hef
alltaf verið rosalega veik fyrir John
Wayne en ein af hans bestu myndum
er Chisum. Að sjálfsöðu er það vestri
af bestu gerð og Wayne er mikil hetja
sem bjargar heilum bæ frá því að lenda í
klónum á svivirðilegum kapítalista.”
Versti skúrkurinn: „Onatopp í
Goldeneye og að sjálfsögðu Ernst
Stavro Blofeld sem birtist í nokkr-
um James Bond-myndum. Loksins
giftir Bond sig og þá kemur Blofeld
og skýtur hana.”
Hvaða persóna fer mest í taugarnar á þér?
„Týpur á hvíta tjaldinu fara sjaldan í taugarnar
á mér. Ég þoli hins vegar ekki Michael Mancini
í Melrose Place enda algjörlega siðlaust
kvikindi.”
Ef þú fengir að velja þér mynd, leik-
stjóra og mótleikara, um hvað yrði
hún og hverjir væru hinir heppnu?
„Söguþráðurinn yrði að sjálfsögðu sá
að við myndum bjarga heiminum og
forða honum frá hrikalegri
tekjuskiptingu. Össur Skarp-
héðinsson yrði leikstjóri
og Ingibjörg Sólrún léki
aðalhluverkið á móti mér.
Auðvitað fjórir tímar á
lengd með Hollywood-
endi.”
KVIKMYNDANJÖRÐURINN: KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR ÞINGMAÐUR
Veik fyrir Hollywood - endinum
JOHN WAYNE
Úr imbakassa í kvikmyndir
SIMPSON-FJÖLSKYLDAN Loksins, loksins
kemur hina gula fjölskylda frá Springfield í
kvikmyndahúsin eftir langa bið aðdáenda
sjónvarpsþáttanna.
Ættingjar þeirra sem létust í árás-
unum á Tvíburaturnanna eru æfir
yfir því hvernig staðið var að frum-
sýningu kvikmyndarinnar World
Trade Center eftir Oliver Stone en
Nicolas Cage leikur þar lögreglu-
mann sem var einn þeirra síðustu
sem björguðust úr rústunum.
Myndin var nýverið frumsýnd í
Bandaríkjunum og hefur fengið
misjafna dóma. Tíu prósent af
þeim ágóða sem kom inn í miðasöl-
una fyrstu frumsýningarhelgina
rann til góðgerðarmála en þetta
finnst ættingjunum vera of lítið.
Monika Iken missti eiginmann
sinn þennan örlagaríka dag og er í
forsvari fyrir góðgerðarsamtök
sem vilja byggja minnisgarð um þá
sem létust. Hún lýsti yfir miklum
vonbrigðum með að jafn litlu skyldi
varið til að halda í heiðri þeirra
sem dóu. „Ég vil gjarnan biðla til
þeirra sem að myndinni standa að
ef hún skilar miklum gróða þá leggi
þeir sitt af mörkum til þessa
garðs,“ sagði Iken.
Carie Lampack sagðist enn
fremur vera mjög vonsvikin yfir
því að hvorki Oliver Stone né dreif-
ingarfyrirtækið Paramount væru
tilbúin að sýna stuttmynd þar sem
fólk er hvatt til að hafa samband
við stjórnvöld og forvitnast hvað
hafi verið gert til að koma í veg
fyrir að eitthvað þessu líkt gerist
aftur. „Það besta sem Oliver Stone
eða Hollywood gætu gert væri að
koma í veg fyrir að 9/11 gerist
aftur,“ sagði Lampack en dóttir
hennar var farþegi í annarri flug-
vélinni sem flogið var á Tvíbura-
turnana.
Stone veldur deilum
Brenda: How do you go
from this tranquility to that violence?
Crockett: I usually take the Ferrari.
Don Johnson var með allt á hreinu þegar hann lék sólstrandargæj-
ann og leynilögreglumanninn Sonny Crockett í Miami Vice en þessi
prúðbúni harðjaxl gat sýnt á sér mjúkar og harðar hliðar á víxl án
þess að blikka auga.
Vandræðin hrannast upp hjá Mel
Gibson eftir að hann var handtek-
inn í Malibu. Ummæli hans um
gyðinga hafa valdið miklum titr-
ingi í kvikmyndaheiminum og nú
er svo komið að stjórnmálamenn
treysta sér ekki lengur að notast
við nafn leikarans. Tom
McClintock, sem sækist eftir kjöri
ríkisstjóra í Kaliforníu, hefur lýst
því yfir að hann muni ekki lengur
að notast við stuðningsbréf sem
Gibson skrifaði. Leikarinn hefur
lýst því yfir að McClintock berjist
fyrir hefbundnum bandarískum
gildum en Gibson er mikill and-
stæðingur núverandi ríkisstjóra,
Arnold Schwarzenegger.
Talsmaður stjórnmálamanns-
ins sagði þingmanninn vera í
öngum sínum yfir óförum Gibs-
ons. „McClintock sá fréttirnar og
ákvað að beina því til stuðnings-
manna sinna að nota ekki bréfið,“
sagði Stan Devereaux af þessu til-
efni en bréfið hefur verið sent til
fjögurra aðila í von um að þeir
myndu styrkja framboðið. Dever-
eaux bætti því við að framboðið
hefði ekki haft í hyggju að nota
bréfið meira áður en til handtöku
Mel Gibson kom.
Gibson bíður þess nú að koma
fyrir dómara og er reiknað með að
það gerist 28. september. Hann
verður væntanlega kærður fyrir
ölvunarakstur en sleppur við kæru
vegna hraðaksturs.
Enn syrtir í álinn
hjá Gibson
MEL GIBSON Hans er nú ekki lengur óskað í kosningabaráttu í Kaliforníu.
OLIVER STONE Er sakaður
um að vilja ekki gefa
meira en tíu prósent
af ágóða fyrstu frum-
sýningarhelgarinnar
til góðgerðarsam-
taka.
ALLT Í LJÓSBLÁU
Don Johson og
Philip Michael
Thomas voru
feykilega
vinsælir á níunda
áratugnum í sjón-
varpsþáttunum
Miami
bio@frettabladid.is