Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 34
[ ]
Jarðaber..
innhalda
meira magn
af C-vítamíni
en sítrus-
ávextir.
Rannsóknir
hafa sýnt að
C-vítamín
getur dregið
verulega úr
hættu á krabbameini, auk þess sem
það hjálpar líkamanum að vinna járn
úr fæðunni.
Okkur gengur misvel að finna beinu brautina,
hvort sem það er andlega eða líkamlega. Í dag
virðast þó töluvert margir leiða hugann að þessum
þáttum og gera sér grein fyrir mikilvægi þeirra.
Rétt hugarfar skiptir ekki síður máli en réttar
aðferðir, svo það er gott að minna sig á nokkur
grundvallaratriði vellíðunar til að halda sig við
efnið.
• ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT að hugsa um að auka við
hreyfingu og bæta matarval til skamms tíma.
Þessi líkami okkar er fyrir lífstíð, svo þú hefur
val um að gera það besta úr honum. Það getur
verið gott að hugsa bara um einn dag í
einu, en ekki halda eitt einasta
augnablik að einhvern tímann sértu
búin(n) að fylla kvótann af hreyf-
ingu og góðu fæðuvali. Allt
bendir til þess að þessir tveir
þættir séu þeir mikilvægustu
til að fyrirbyggja sjúk-
dóma og lifa löngu og
heilbrigðu lífi.
Með öðrum
orðum: Ef þú
kaupir þér kort í
líkamsrækt í
haust og ferð að
hugsa vel um
hvað þú borðar,
er ekki nóg að
hætta eftir þrjár
vikur af því þú
ert búin(n) að
vera svo dug-
leg(ur) þessar
þrjár vikur.
Líttu heldur á
það sem frábært
upphaf. Þú ert
sannarlega
komin af stað!
• DREKKTU VATN OG AFTUR VATN. Talaði ég
kannski um þetta í síðasta pistli? Og ég á örugg-
lega eftir að tala um það í næsta pistli líka og
næsta og næsta. Vatnið er undirstaða alls lífs og
stór hluti af vöðvafrumum og öðrum frumum
líkamans. Hafðu því vatnsbrúsann á borðinu
hjá þér í vinnunni, í bílnum og heima til að minna
sjálfan þig á að drekka vatn og verða aldrei
þyrst(ur).
• ÞETTA MEÐ REGLULEGU HREYFINGUNA vitum við
öll. En mundu að gera eitthvað sem þér finnst
skemmtilegt. Það verður að vera gaman, ef það
á að endast. Prófaðu jafnvel eitthvað sem þú
hefur aldrei prófað áður. Þá hentar líka mörg-
um að hreyfingin sé fjölbreytt. Þegar ég tala
um reglulega hreyfingu þá meina ég minnst
klukkustund af kröftugri hreyfingu þrisvar
sinnum í viku. Það er flott byrjun sem gott er að
auka í sex til sjö stundir á viku til að komast í
frábært form. Styrktaræfingar til að auka og
viðhalda vöðvum, styrkja bein og halda góðri
líkamlegri reisn og einnig krefjandi þolæfingar
sem fá þig til að blása úr nös svo ekki sé meira
sagt.
• AÐ LOKUM ER ÞAÐ EKKI SÍST fólkið í kringum
okkur og samskipti okkar við það sem hefur
mikil áhrif á líðan okkar frá degi til dags. Við
getum reyndar lítið gert í framkomu annarra,
en við höfum fulla stjórn á eigin framkomu og
berum sjálf ábyrgð á því hvernig við vinnum úr
okkar daglega amstri. Þetta þurfum við öll að
minna okkur á!
Þegar á heildina er litið er það hreyfing okkar,
fæðuval og samskipti okkar við umheiminn sem
hafa hvað mest áhrif á líðan okkar. Höldum okkur
við efnið og reynum að gera betur í dag en í gær.
Hafðu það sem allra best.
Kær kveðja, Borghildur
Nokkur grundvallaratriði
fyrir meiri vellíðan og hreysti
Heilbrigð sál
BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR
EINKAÞJÁLFARI OG B.A. Í SÁLFRÆÐI
Þegar gosþörfin lætur á sér kræla er mun betra
að drekka sódavatn en sykraða gosdrykki.
HIV herjar á
meltingarveg
STYRKING Á SLÍMHÚÐ
GRUNDVÖLLUR ÞESS AÐ
LOSNA VIÐ VEIRUNA.
HIV-veiran felur sig í þörmum
manna og skiptir sér í meltingar-
veginum og veldur ónæmiskerfinu
einna mestum skaða þar, að því er
niðurstöður nýrrar rannsókn Háskól-
ans í Kaliforníu benda til. Satya
Dandekar, sem fer fyrir rannsókn-
inni, segir þetta vera í fyrsta sinn
sem skýring finnst á því af hverju
lyfjablöndur sem HIV-smitað fólk
tekur inn virka ekki almennilega.
„Hin raunverulega barátta HIV-smit-
aðra við veiruna fer fram í melting-
arveginum strax og smit verður,”
segir í yfirlýsingu frá Dandekar. Því
þurfi að leggja áherslu á að styrkja
slímhúð í meltingarvegi, þar sem
veiran drepi flestar ónæmisfrumur.
Það sé lykilatriði í því að losna við
veiruna. (www.doktor.is)
heilsa }
������������
��������������������
��������������������������������
A
R
G
U
S
0
6
-0
3
5
0
�������������������� ������������������������� ��������
������������
���������������������������������
����������������������������
Rockadile AL 26
FAXAFENI 7 S: 5 200 200
MÁN - FÖS. KL. 9-18. LAU. 10-16
Full búð af góðum tilboðum
Útsalan hafin
Alvöru fjallahjól
17.34028.900
Frábært 21 gíra
kvenhjól á 40% afslætti