Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 54
10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Svifflugfélag Íslands heldur upp á sjö-
tugsafmælið í dag en það var stofnað
1936 af Agnari Kofoed Hansen sem var
þá flugmálaráðunautur Ríkisstjórnar-
innar. Sjötugsafmælinu verður fagnað
í aðstöðu félagsins á Sandskeiði í dag
og á laugardaginn verður flugsýning ef
veður leyfir. „Við erum með hundrað
félagsmenn, þar af um sextíu eða sjötíu
sem fljúga. Það er mjög algengt að ungt
fólk sem er með bakteríuna komi til
okkar, læri svifflug fjórtán ára og fari
svo í flugmanninn,“ segir Kristján
Sveinbjörnsson, formaður félagsins.
Svifflugfélagið á nú tvö flugskýli,
geymslu fyrir flugur, klúbbhús og í
flota félagsins eru tíu flugur. „Við köll-
um þær svifflugur, íslenskusérfræð-
ingur sem við ráðfærðum okkur við
mælti með því nafni,“ bætir Kristján
við. Stór hluti starfseminnar er kennsla
en hún fer fram í sjálfboðavinnu. Að
námskeiði loknu fá nemendur svif-
flugmannsréttindi hjá Flugmálastjórn.
„Annars er starfsemi félagsins vax-
andi, við keyptum okkur nýja svifflugu
í vor og síðan er áætlað samstarf við
Flugmálastjórn, en við gerðum sam-
komulag við Flugmálastjórn í sumar.
Svo ætluðum við í frekari uppbyggingu
á flugskýlum en það hefur ekki náð
fram að ganga enn,“ segir Kristján.
Svifflugfélag Íslands á sér merki-
lega sögu. „Þegar menn fóru fyrst að
reyna að fljúga á Íslandi var engin
þekking á landinu og allt gert af van-
efnum. En Agnar Kofoed, íslenskur
maður af dönskum ættum, sá að best
væri að byggja upp áhugafélög og
ódýrst væri að vera með svifflugfélög.
Félagið varð mjög öflugt og byrjað var
að smíða fyrstu fluguna 1931. Fyrsta
svifflugan hrapaði á ísilögðu Rauða-
vatni, en flugmaðurinn Bergur Gísla-
son lifði það af og lifir reyndar enn,“
segir Kristján. Árið 1938 komu til
landsins Þjóðverjar með nokkrar svif-
flugur sem Svifflugfélagið hugðist
kaupa. „Þegar þeir fóru ætlaði Svif-
flugfélagið að kaupa vélarnar en þá
skall stríðið á svo þær voru aldei borg-
aðar. En þessar flugur voru grunnurinn
að uppbyggingu félagsins,“ segir
Kristján.
En hvað er svona skemmtilegt við
svifflugið? „Það er bara svo reglulega
gaman að fljúga. Þetta er það sem menn
hefur dreymt um í árþúsundir,“ segir
Kristján Sveinbjörnsson að lokum.
Afmælisfagnaðurinn verður á Sand-
skeiði við Bláfjallaveg í dag kl. 20.00.
Flughátíðin hefst á laugardag kl. 13.00
en þá munu tæki félagsins vera til sýnis
og svifflugur munu fljúga um loftin.
Einnig verður sýnt listflug.
MERKISATBURÐIR
1792 Louis XVI Frakkakonungur
er handtekinn ásamt konu
sinni á meðan á frönsku
byltingunni stóð.
1821 Missouri verður 24. ríki
Bandaríkjanna.
1944 Bandarískar hersveitir sigra
síðustu hersveitir Japana.
1948 Falin myndavél er sýnd í
fyrsta sinn í sjónvarpi.
1984 Bjarni Friðriksson júdókappi
hlýtur bronsverðlaun á
Ólympíuleikunum í Los
Angeles í Bandaríkjunum.
2003 Hitamet er slegið í Bretlandi
þegar hitinn mælist 38,5
gráður í Kent.
2003 Yuri Ivanovich Malenchenko
verður fyrsti maðurinn til
þess að gifta sig í geimn-
um.
SVIFFLUGFÉLAGIÐ 70 ÁRA: AFMÆLI Á SANDSKEIÐI
Kenna flug í sjálfboðavinnu
Þann 29. júlí árið 1976 var skotið á þær Donnu
Lauria og Jody Valenti þar sem þær sátu í bíl í Bronx-
hverfinu í New York. Donna lést en morðið vakti ekki
mikla athygli enda eitt af tuttugu
þúsund morðum sem framin voru
í borginni. Í október og nóvember
sama ár voru tvær skothríðir í viðbót,
enginn lést en eitt fórnarlambanna
lamaðist. Í janúar árið eftir var skotið
á parið Christine Freund og John
Diel þar sem þau sátu í bíl sínum
og dó Freund af sárum sínum.
Lögreglunni var nú farið að gruna að skotárásirnar
tengdust og töldu þær beinast að ungum stúlkum
með sítt dökkt hár eða ungum pörum. Í mars 1977
var hin 21 árs gamla Virginia Voskerichian skotin til
bana í Queens-hverfinu í New York með sams konar
byssu og notuð hafði verið í fyrstu skotárásinni. Í
apríl fjölgaði fórnarlömbunum enn frekar þegar þau
Alexander Esau og Valentina Suriani voru skotin til
bana í Bronx. Morðinginn skyldi eftir sig bréf stílað á
stjórnanda lögreglurannsóknarinnar,
Joe Borelli, þar sem hann sagðist
vera sonur vampírunnar Sáms.
Sjötta fórnarlamb morðingjans
var Stacy Moskowitz sem var myrt í
lok júlí er hún sat í bíl með kærasta
sínum. Morðinginn, David Berkowitz,
hafði lagt bíl sínum fyrir framan
brunahana á meðan hann framdi
morðið og fengið sekt. Vitni sá hann rífa sektarmið-
ann og tilkynnti lögreglunni það en hún aðhafðist
ekkert fyrr en nokkrum dögum síðar. Þá fór hún að
heimili Davids og handtók hann og stuttu síðar játaði
hann á sig öll morðin sex ásamt fleiri skotárásum.
Hann var dæmdur í 365 ára fangelsisvist.
ÞETTA GERÐIST 10. ÁGÚST 1977
Sonur Sáms handtekinn
ANTONIO BANDERAS FÆDDIST
Á ÞESSUM DEGI ÁRIÐ 1960
„Sumum myndum vildi ég
helst gleyma en þrátt fyrir
það þá kenna þær manni
alltaf eitthvað.“
Antonio Banderas er spænskur leikari.
AFMÆLI
Siv Frið-
leifsdóttir
heilbrigðis-
ráðherra er
44 ára.
ÚTFARIR
14.00 Guðrún Benediktsdóttir
verður jarðsungin frá
Hvammstangakirkju.
15.00 Jón Aðalsteinn Jónsson
fyrrverandi orðabókarstjóri
verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Stefán Sigmundsson húsa-
smíðameistari frá Norðfirði,
Kleppsvegi 62, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Áskirkju.
KRISTJÁN SVEINBJÖRNSSON Formaður Svifflugfélagsins segir að félagið sé sífellt að verða öflugra.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Bjargar Ágústsdóttur
Espigerði 20, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar 14G á
Landspítalanum við Hringbraut fyrir einstaklega góða
umönnun og vinarhug.
Tryggvi Baldursson Guðrún Edda Pálsdóttir
Valgerður Baldursdóttir Lárus H. Blöndal
Stefán Baldursson Bára Baldursdóttir
Haraldur Baldursson Sigríður Amalía Þórðardóttir
Magnús Baldursson Guðný Jóna Einarsdóttir
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, bróðir og afi,
Valgeir Matthíasson
Vallarási 4, áður til heimilis í Tunguseli 10,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 29. júlí verður jarðsunginn
frá Seljakirkju föstudaginn 11. ágúst kl. 15.00.
Georg Alexander Valgeirsson Tinna Halldórsdóttir
Helena Dögg Valgeirsdóttir
Ramóna Lísa Valgeirsdóttir
Jóhanna Georgsdóttir
Elísabet Viðarsdóttir
systkini og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sæbjörn Jónsson
Laugarnesvegi 89, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi aðfaranótt
mánudagsins 7. ágúst sl. Jarðarförin auglýst síðar.
Valgerður Valtýsdóttir
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Magnús Gunnlaugsson
íþróttakennari, Vogatungu 28, Kópavogi
sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi
fimmtudagsins 3. ágúst verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju í Kópavogi föstudaginn 11. ágúst kl. 13.00.
G. Ríkey Einarsdóttir
Kristjana Ríkey Magnúsdóttir Sigurgeir Höskuldsson
Guðbjörg Magnúsdóttir Pétur Yngvi Yamagata
Halla Magnúsdóttir Hlífar S. Rúnarsson
Selma Líf, Erna Mist, Kári Steinn, Hildur, Ríkey, Katla og
Magnús Máni.
LEGSTEINAR
OG FYLGIHLUTIR
Í MIKLU ÚRVALI
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
Björns St. Hólmsteinssonar
frá Raufarhöfn, Grandavegi 47, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deilda V4 og V3A
á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund.
Jónína Ósk Pétursdóttir
Jóhanna Björnsdóttir
Pétur Björnsson Margrét Þorvaldsdóttir
Hólmsteinn Björnsson Þorgerður Ása Tryggvadóttir
Guðrún R. Björnsdóttir
Lilja V. Björnsdóttir Jón Ómar Finnsson
Birna Björnsdóttir Ríkharður Reynisson
og barnabörn.
90 ára afmæli
90 ára er í dag 10. ágúst
Unnur Halldórsdóttir
frá Kambi,
Sóleyjargötu 6, Akranesi.
Af því tilefni býður hún ættingjum
vinum og samferðafólki
að þiggja kaffi í Jónsbúð, Akranesi
laugardaginn 12. ágúst kl. 15.00.
40 ára afmæli
Hulda Guðrún Geirsdóttir
söngkona og kennari
er fertug í dag.
Afmælið er haldið í
Classic Rock Ármúla,
annað kvöld kl. 20.00.
Vinir og vandamenn
velkomnir.
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn hér að ofan má senda á
netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 550 5000.