Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 12
12 10. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
JERÚSALEM Íslenskur ríkisborgari af
palestínskum ættum var handtek-
inn í Jerúsalem fyrir rúmri viku
þar sem hann tók þátt í mótmælum
við bandarísku ræðismannsskrif-
stofuna. Maðurinn, Qussay Odeh,
segir lögreglumenn hafa barið hann
ítrekað ásamt því að hafa notað
táragas til að yfirbuga hann. Eftir
það hafi hann þurft að sitja í stofu-
fangelsi í fimm daga.
„Við vorum milli þrjátíu og
fjörutíu manns þarna fyrir utan
bandarísku ræðismannsskrifstof-
una í Jerúsalem. Þarna voru jafnt
útlendingar, Ísraelar og Palestínu-
menn að mótmæla stríðinu í Líban-
on og Palestínu,“ segir Qussay. „Ég
var rétt nýkominn á staðinn þegar
lögreglusveit kemur og byrjar að
lemja fólk og sprauta táragasi. Þeir
handtóku mig ásamt fimm öðrum
sem voru viðstaddir mótmælin.“
Hann segir þeim sem handteknir
voru hafa verið haldið í fimm
klukkustundir á lögreglustöð áður
en þeim var sleppt. Þá hafi fimm
daga stofufangelsi tekið við. „Ég er
aumur í baki, hálsi og höndunum
eftir þetta. Þessi mótmæli voru
friðsamleg á allan hátt, við stóðum
þarna með spjöld að mótmæla stríð-
inu.“
Qussay segist hafa fengið ábend-
ingar frá fólki um að kæra ekki, það
hefði ekkert upp á sig. „Ég ætlaði
að kæra þetta en mér hefur verið
bent á að sleppa því vegna þess að
það gerist ekki neitt. Ég fór á
sjúkrahús daginn eftir og fékk vott-
orð, en ég er efins um að ég kæri.
Ég ætla að minnsta kosti að bíða og
sjá hvort lögreglan ætli að gera eitt-
hvað meira úr þessu máli,“ segir
hann.
„Ég kom um mánaðamótin til
Palestínu til að heimsækja fjöl-
skyldu, vini og ættingja. Þetta
kemur ekki til með að stytta heim-
sóknina, ég læt svona ekkert stöðva
mig,“ segir Qussay, sem hefur verið
búsettur á Íslandi í sjö ár og varð
nýlega íslenskur ríkisborgari.
salvar@frettabladid.is
Íslendingur segir lögreglu
í Ísrael hafa misþyrmt sér
Qussay Odeh, Íslendingur af palestínskum ættum, var handtekinn þar sem hann var við mótmæli í
Jerúsalem. Hann segir lögreglu hafa misþyrmt sér með barsmíðum og táragasi að ástæðulausu.
HANDTEKINN Lögreglumenn yfirbuga Qussay við mótmælin. Hann segist aumur í baki,
hálsi og höndum eftir barsmíðarnar en ætlar líklegast ekki að kæra þar sem það sé til-
gangslaust. MYND/YOUSEF INGI TAMIMI
EITUREFNASLYS Tveir voru fluttir á
slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi eftir að eiturgufur mynduð-
ust í nýbyggingu Ikea í Garðabæ í
gær. Að sögn slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins mun hafa verið
unnið með akrýlgrunna og þeim
blandað í röngum hlutföllum með
fyrrgreindum afleiðingum.
Slökkviliðið sendi dælubíl,
neyðarbíl og tvo sjúkrabíla á stað-
inn klukkan tíu í gærmorgun og
vann dælubíllinn að því að loft-
ræsta húsið fram til klukkan eitt.
Vinna var stöðvuð á meðan.
Eitrun mannanna var minni-
háttar og voru þeir útskrifaðir af
slysadeild skömmu eftir hádegi.
- sh
Loftræsta þurfti nýbyggingu:
Eiturefni sendu
tvo á slysadeild
IKEA Í GARÐABÆ Vinna var stöðvuð á
svæðinu á meðan húsið var loftræst.
DÓMSMÁL Valur Sigurðsson, 25 ára,
var í Héraðsdómi Suðurlands í gær
dæmdur í tólf mánaða fangelsi, þar
af níu skilorðsbundið, fyrir stuld á
þremur bifreiðum.
Hinn 3. nóvember árið 2005 stal
maðurinn Nissan Patrol jeppabif-
reið í Reykjanesbæ. Maðurinn fjar-
lægði af henni skráningar- og verk-
smiðjunúmer og setti í staðinn
númer af Nissan Patrol bifreið
sömu árgerðar, sem hann hafði til
afnota. Stolnu bifreiðina nýtti hann
svo til einkanota og lét meðal ann-
ars skoða hana hjá bifreiðaskoðun
sem jeppann sem hann hafði haft til
umráða. Maðurinn lét síðan breyta
stolnu bifreiðinni á ýmsa vegu svo
hún líktist sem mest Nissan-jeppan-
um sem hann átti.
Mánuði seinna stal maðurinn svo
annarri Nissan Patrol bifreið í
Reykjavík. Bifreiðinni ók maðurinn
að Rauðavatni út í stórgrýti með
þeim afleiðingum að hún skemmd-
ist. Þar reif hann innan úr henni öll
sæti og hurðarspjöld ásamt sér-
smíðuðum framstuðara og álkassa
aftan á bifreiðinni. Hugðist hinn
dæmdi nýta sér hlutina til að gera
hina stolnu bifreiðina enn líkari
jeppanum sem hann hafði átt.
Maðurinn var einnig dæmdur
fyrir stuld á Hyundai-fólksbifreið
við Reykjavíkurflugvöll í byrjun
nóvember árið 2005, sem hann nýtti
sér til einkanota fram til 6. janúar
árið 2006.
Í ofanálag var maðurinn dæmd-
ur fyrir að nota litaða vélaolíu á
stolna jeppann sem hann breytti.
- æþe
Maður dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands fyrir stuld á þremur bifreiðum:
Nýtti þrjá til að búa til einn
NISSAN PATROL Maðurinn stal tveimur
Patrol-jeppum og notaði númer af þeim
þriðja til að geta verið á einum.
SÍMAHLERANIR Ragnar Aðalsteins-
son hæstaréttarlögmaður sótti á
þriðjudag formlega um aðgang að
gögnum um símahleranir í kalda
stríðinu, sem nýlega voru flutt úr
dómsmálaráðuneytinu í Þjóðskjala-
safn. Ráðuneytið sendi frá sér gögn-
in nokkrum dögum áður en fyrri
beiðni Ragnars var formlega hafn-
að, á þeim forsendum að þau væru
ekki í ráðuneytinu lengur.
Ragnar segir að lögum sam-
kvæmt hefði átt að tilkynna þeim
sem hleraðir voru að það hefði verið
gert. „Sumt fólk var hlerað ítrekað,
en aldrei var gerð frekari lögreglu-
rannsókn eða ákæra lögð fram,“
segir Ragnar. - sgj
Gögn um símahleranir:
Ragnar sækir
um aðgang
ÞURRKAR Í KÍNA Þessi bóndi er einn
hinna 2,39 milljón manna sem þjást nú
vegna þurrka í Kína. Samkvæmt Xinhua-
fréttastofunni hafa þurrkarnir áhrif á nær
1,1 milljón hektara lands. FRÉTTABLAÐIÐ/AP