Fréttablaðið - 10.08.2006, Side 32
[ ]
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Stórar töskur eru enn mjög vinsælar, enda eru þær flottar á
öxlinni og mjög hentugar fyrir þá sem vilja vera við öllu búnir.
Heimsástand og hitastig
Ágústmánuður er einn einkennilegasti tími ársins í París. Þegar borg-
in tæmist og borgarbúar flytja sig suður á bóginn eða enn lengra því
Parísarbúar verða alltaf að gera allt á sama tíma. Þeir fara í vinnuna
á sama tíma á morgnana og sitja fastir í umferðarhnútum. Þeir fara
út úr borginni og sitja í umferðarhnútum um helgar. Svo til að breyta
ekki út af venjunni er setið í bílunum í umferðarhnútum milli St.
Tropez og baðstrandanna í suðurhluta landsins. Mörg minni fyrir-
tæki eru hreinlega lokuð í ágúst vegna sumarfría.
Á laugardag lauk útsölum formlega ef frá eru taldir nokkrir sumar-
leyfisstaðir sem mega halda útsölur út ágústmánuð. Eftir útsölulok
er ólöglegt að nota orðið útsala fram að vetrarútsölum í janúar. Versl-
unareigendur pakka niður því sem eftir er, til að draga fram og blanda
saman við nýrri vörur á næstu útsölum því á réttu verði finnur hver
flík kaupanda. Sumir finna leið framhjá lögunum og þá heitir það
ekki lengur útsala heldur tilboð og tilboð eru leyfileg allt árið um
kring. Reyndar er til athugunar í viðskiptaráðuneytinu að breyta
lagaramma útsalanna því þær eru ekki það sem þær voru, einmitt
vegna þess að sumir kaupmenn stunda tilboð meira eða minna allt
árið. Fyrsta greining markaðsfræðinga á útsölunum er einmitt sú að
50-70 prósenta afsláttur dugi á stundum ekki til að freista kaupenda.
Það þarf sömuleiðis ekki að koma á óvart að loftkældar búðir nutu
mestra vinsælda, enda hitabylgja í París á útsölutímabilinu og ólíft í
ókældum verslunum.
Þrátt fyrir að gínurnar hafi verið í mánuð í ullarkápum með loðhúfur
og trefla er rólegt yfir vötnum í tískuhúsunum. Það eru aðallega
útlendingar sem standa undir veltunni í ágúst og þá sérstaklega við-
skiptavinir frá Sádi-Arabíu, Sameinuðu furstadæmunum og fleiri
slíkum löndum. En þetta árið virðast þessir viðskiptavinir ekki vera
mjög kaupglaðir og velta vöngum yfir hverri handtösku sem keypt er
á 1500-2000 evrur (venjulega kaupa frúrnar nokkrar í einu án þess að
hugsa sig tvisvar um). Líbanar sem venjulega eru á ferðinni sjást af
skiljanlegum ástæðum ekki þetta árið og líklega er bið á að þeir láti
sjá sig eins og ástandið er þar í landi. Reyndar hef ég heyrt þá skýr-
ingu að stríðið í Líbanon og Palestínu valdi því hversu lítið Arabarnir
kaupa þetta árið, þeir hafi einfaldlega ekki samvisku til þess meðan
frændur þeirra eru strádrepnir. Bandríkjamenn eyða sömuleiðis
minna en undanfarin ár, en af allt annarri ástæðu, evran er einfald-
lega allt of sterk miðað við dollara. Heimsástandið hefur því mikil
áhrif á efnahagslegt hitastig tískuhúsanna.
bergthor.bjarnason@wanadoo.fr
Nú er ilmvatn-
ið Hypnose
frá Lancôme
fáanlegt í
léttari útgáfu
með ferskum
ilmtónum.
Ilmurinn
einkennist af ilm
ástríðublóms,
sólblóms, vanillu
og vetiver sem gerir
ilminn mjúkan en
jafnframt léttan.
Umbúðirnar eru
afskaplega þokka-
fullar og á þeim er
ákveðið lúxusyfir-
bragð. -lkg
Léttara Hypnose
LANCÔME BÝÐUR UPP Á NÝJA ÚTGÁFU
AF HINU VINSÆLA ILMVATNI HYPNOSE.
Glasið er einstak-
lega fallegt.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bítladóttirin Stella McCartney
er hugsanlega á leið frá Chloe
tískuvöruhúsinu.
Tískuhönnuðurinn Stella
McCartney virðist vera gífurlega
eftirsótt meðal stærstu tískuhúsa
heims ef marka má frétt af heima-
síðu Vogue. Samningur McCartn-
ey við Chloe rennur út í næsta
mánuði og hafa miklar vangavelt-
ur verið í gangi um framtíð henn-
ar.
Margir hafa spáð því að hún
eigi að fylla upp í skarð Alexand-
ers McQueen hjá Givenchy en
aðrir segja að nú sé loksins kom-
inn verðugur arftakai Karls Lag-
erfeld hjá Chanel. Einnig hafa
verið uppi sögusagnir um að
McCartney muni jafnvel semja
við Gucci eða hinn áhugaverða
Pierre Cardin.
Forsvarsmenn Chloe þvertaka
hins vegar fyrir að McCartney sé
að leið burt úr fyrirtækinu. „Við
höfum ekki heyrt neitt um það að
hún sé á leiðinni annað, og ekki
heldur að hún sé að fara að stofna
sitt eigið tískuhús. En við getum
sagt ykkur eitt; Stella mun aldrei
starfa hjá Gucci, því hún myndi
aldrei vinna með leður.“ - sha
Stella að flytja sig
um set?
Stella McCartney er án efa einn af stærstu
tískufatahönnuðum heims um þessar
mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Blóma- og ávaxtailmur
PROMESSE FÆST NÚ LÍKA SEM BAÐLÍNA.
Nýi blóma- og ávaxtailmurinn Promesse frá Cacharel er ákaf-
lega ferskur sumarilmur.
Ilmurinn er blanda af sólberjum, tangarínum, bergamó,
orkídeum, jasmíni, hvítum sedrusviði og musk sem gefa léttan
ilm en ekki of yfirþyrmandi.
Hægt er að fá húðmjólk, sturtusápu og svitalyktareyði í lín-
unni auk ilmvatns.
Promesse húðmjólk FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM.
Þú verður að eignast
skóverslun, Rauðarárstíg 14, 101 Reykjavík. trippen.is
F j a r ð a r g ö t u 1 3 - 1 5 • S í m i 5 5 5 - 4 4 2 0
Síðustu dagar
útsölunnar
enn meiri verðlækkun.
Nýt
t ko
rtat
íma
bi l
MJÓDDINNI S: 557 1291
GLÆSIBÆ S: 553 7060
BORGARNESI S: 437 1240
GÆ
ÐA
SKÓ
R
SÍÐUSTUDAGARÚTSÖLUNNARSÍÐUSTUDAGARÚTSÖLUNNARSÍÐUSTUDAGARÚTSÖLUNNARSÍÐUSTUDAGARÚTSÖLUNNAR
Flottir
leðurjakkar
á góðu verði
Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is
Nú er hægt að gera enn betri kaup
(st. 38-60)
LOKA ÚTSALA
70% afsláttur af öllum
útsöluvörum
Hlíðarsmára 11 • Kóp • S: 517 6460
Opið mán. - fös. 11-18, lau. 11-15 • www.belladonna.is