Fréttablaðið - 10.08.2006, Síða 36
[ ]Einn kosturinn við það að farið er að dimma aftur er að nú er hægt að kveikja á kertum á kvöldin og hafa það huggulegt.
Sumri hallar og flestar garðplöntur eru að ljúka sumarvext-
inum og byrjaðar að búa sig undir veturinn. Fjölærar jurtir
þroska sérstök vetrarbrum við rótarhálsinn og eru tilbúnar
að fella allt sitt skart ofanjarðar um leið og haustveður
með frosti og kulda verða ríkjandi. Þessi brum verða síðan
upphaf nýs vaxtarskeiðs á komandi sumri. Trjáplönturnar
hafa líka lokið sér af að mestu. Einmitt núna og nokkuð fram
í september leggja þær áherslu á að búa sig sem best undir
veturinn. Meðal annars með því að setja kraft í rótarvöxtinn.
Og akkúrat þetta gerir haustgróðursetningu trjáplantna mjög
fýsilega og tryggir að þær taki flutningnum vel og spjari sig
með besta móti á væntanlegum framtíðastað.
Vor eða haust?
Lengi vel var hefðin sú, að hér á Íslandi ættu menn fyrst og
fremst að gróðursetja trjáplöntur á vorin. Sennilega vegna
þess að eðlilegast þótti að allt tæki betur við sér í gróandinni
með hækkandi sól. Og enn er vorgróðursetning trjáplantna
algengari hér á landi en haustgróðursetning. Þessu er
tímabært að breyta. Og fyrir því eru margar ástæður, bæði
líffræðilegar og veðurfarslegar. Líffræðilega eru trjáplöntur
betur búnar undir haustgróðursetningu því að þá er rótar-
vöxturinn kröftugastur ¿ og plönturnar þurfa ekki samtímis
að streitast af laufgun, ljóstillífun og limvexti. Vorgróður-
setning býður upp á alla þessa þætti og þar að auki þurfa
plönturnar að slást við vorhret, vinda og oftar en ekki þurrk.
Álagið á plönturnar verður mikið, þannig að hætta er á að
ekki fari eins og til er ætlast. Og fyrir ræktunarfólk hefur
haustgróðursetningin þá kosti að tímaramminn er lengri
þegar engin aðkallandi vorverk kalla á á sama tíma. Haust-
gróðursetningu er hægt að gera frá miðjum ágúst og fram
eftir öllu hausti svo lengi sem klaki er ekki kominn í jörð.
Bakkar, pottar og hnausplöntur
Úrvalið í garðplöntustöðvunum er gott um þessar mundir.
Þar bunga út beð og svigna söluborð af trjáplöntum sem
þurfa að komast í jörð fyrir veturinn. Og svona síðla sumars
er oftast hægt að komast að góðu samkomulagi um verð!
Það kostar nefnilega töluverða fyrirhöfn og fjármuni fyrir
garðplöntuframleiðendur að ganga frá plöntunum með
viðeigandi vetrarumbúnaði á haustin. Þar að auki reynir
veturinn mikið á plöntur sem geymdar eru útivið í allskonar
ílátum. Á veturna líður þeim betur án ílátanna í beðum ¿ eða
sem best er ¿ komnar á framtíðarstað í sumarbústaðarlandi
eða skrúðgarði. Það er því upplagt að kippa með sér nokkr-
um plöntum í fjölpottabökkum, pottum eða með hnaus til
að setja niður næst þegar farið er í sumarbústaðinn. Það er
ekki eftir neinu að bíða!
Kaffærið aldrei rótarhálsinn
Þegar bakkaplöntur eru gróðursettar skiptir máli að rót-
artappinn fari allur ofan í moldina. Skógræktarfólk notar
sértstaka „plöntustafi“ eða „geispur“ til að gróðursetja
bakkaplönturnar hratt og í stórum stíl. En það kostar nokkra
æfingu að beita þessum verkfærum svo að vel til takist.
„Almennir“ sumarbústaðaeigendur ná oftast mun betri
árangri með því að nota stunguskóflu við verkið. Stinga upp
góðan hnaus með skóflunni, losa úr honum moldina og
setja grastorfuna til hliðar. Blanda svo moldinni í holunni
saman við sveppamassa, þurrkað hænsnadrit, gamalt tað
eða e-ð því um líkt og stinga síðan rótartappanum tryggilega
í holuna og stíga lauslega að og vökva ef nokkur kostur er á
því. Til að hindra skemmdir vegna holklaka er gott að leggja
hellublað, samanbrotið dagblað hulið með möl eða sandi,
steinullarkraga eða eitthvað þessháttar yfir moldina kring um
plönturnar.
Þegar hnaus- og pottaplöntur eru gróðursettar er í raun farið
alveg eins að. Holan þarf að sjálfsögðu að vera það stór að
rúmt sé um ræturnar og meira þarf af lífræna góðmetinu.
Það er ekki ráðlegt að setja tilbúinn áburð í holurnar, en
í lokin má sáldra honum ofan á moldina í kring. Og eitt
verður að benda á vegna þess að annað hefur verið kennt
á undanförnum árum: Það á að gróðursetja allar trjáplöntur
þannig að rótarhálsinn sé ávallt við yfirborð moldarinnar. Ef
sett er dýpra, eins og áður var kennt með aspir og víðiteg-
undir, er hætta á að toppsprotinn missi leiðtogakraftinn
þannig að hliðargreinarnar neðan við hann fari að togast á
um forystuna. Við það verður ekki eðlileg krónumyndun í
trénu og vaxtarlag þess verður runnkennt og tuskulegt.
Varist hringrót
Og eitt enn: Þegar trjáplöntur hafa vaxið lengi í pottum er
hætta á að ræturnar fari að vaxa í hring og trén fái svokall-
aða „hringrót“. Hringrótin heldur áfram að vaxa í hringi og
trén fá ekki næga fótfestu og velta ef eitthvað reynir á þegar
þau eru orðin það stálpuð að þau byrja að taka á sig vind. Til
að koma í veg fyrir þetta er nauðsynlegt að hafa við höndina
beittan hníf eða klippur og gera þrjá til fjóra rótarskurði
langsum eftir rótahnausnum áður en honum er komið fyrir í
holunni. Frá þessum „sárum“ vaxa svo nýjar rætur á eðlileg-
an hátt út til hliðanna og plönturnar geta staðið fastar á sínu
hvað sem á dynur í veðurhamnum.
Haustgróðursetningar - alltaf betri
Í GARÐINUM HEIMA
HAFSTEINN HAFLIÐASON SKRIFAR UM
ALLAN GRÓÐUR HEIMILANNA
Undanfarin misseri hefur
verið vinsælt að nýjar
vörur séu hannaðar í
gamaldags stíl. Hægt er
að innrétta heimilið með
húsgögnum og tækjum
sem hafa gamaldags
útlit en eru þó glæný og
endingargóð eftir því.
Bush-útvörpin eru
klárlega hluti af þessu
æði. Þau eru eins og
útvörpin voru í gamla
daga enda er um gamla
hönnun að ræða. Útvörp-
in komu fyrst fram á
sjónarsviðið á sjötta og
sjöunda áratugnum og eru
enn í dag framleidd í sömu mynd.
Bush-útvörpin fást í ýmsum útgáf-
um og eru meðal annars til sölu í
Húsgagnahöllinni.
sígild hönnun }
Bush lætur í sér heyra
Bush-útvörpin eru gamaldags,
töff og skemmtileg.
Hönnunin er hálfrar aldar gömul.