Fréttablaðið - 10.08.2006, Blaðsíða 70
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
Embætti forseta Bandaríkjanna
er án nokkurs vafa eitt það valda-
mesta í heimi og af þeim sökum er
fjölmörgum í nöp við þann sem
sinnir því hlutverki hverju sinni
enda hafa Bandaríkin verið ýmist
tákn frelsis eða heimsvaldastefnu
í heimssögunni. Öryggisráðstaf-
anir í kringum ferðir forsetans
eru þær mestu í heiminum og
hann má varla færa sig um set án
þess að það sé skipulagt í þaula af
þrautþjálfuðum leyniþjónustu-
mönnum. Tryggð við embættið og
ríkið er einn helsti máttarstólpi
CIA enda ætti svikari auðvelt með
að færa hvers kyns óþjóðalýð líf
forsetans á silfurfati.
Í The Sentinel er þessi
umdeilda stofnun (sem CIA vissu-
lega er) í forgrunni. Aðalpersón-
an, Pete Garrison, er reynslubolti
sem hikar ekki við að beygja
reglurnar til að vernda þá sem
landinu stjórna. Þrátt fyrir að
njóta virðingar meðal samstarfs-
manna sinna hefur honum ekki
tekist að feta sig upp metorða-
stigann. Garrison gegnir því hlut-
verki að gæta forsetafrúarinnar,
Söruh Ballentine, og virðist hafa
tekið hlutverk sitt fullbókstaf-
lega því þau tvö eiga í leynilegu
ástarsambandi. Þegar gamall
vinur Garrisons er drepinn kvikn-
ar grunur um að eitthvað sé ekki
með felldu innan CIA og gamall
nemi Garrisons, David Breckin-
ridge, er fenginn til að rannsaka
málið. Garrison og Breckinridge
hafa eldað grátt silfur saman
eftir að sá síðastnefndi sakaði
lærimeistara sinn um að halda
við eiginkonu sína. Þegar Breckin-
ridge hefur rannsókn sína berast
böndin að Garrison og allt bendir
til þess að hann sé höfuðpaurinn
á bak við morðtilraun á forseta
Bandaríkjanna. Breckinridge
fær því þarna kærkomið tæki-
færi til að klekkja á fjandmanni
sínum.
Óneitanlega hlýtur að vera
erfitt fyrir kvikmyndagerðar-
mann að búa til eitthvað nýtt í
kringum hina formföstu leyni-
þjónustu Bandaríkjanna, leyndin
í kringum hana er enda sterkasta
vopn CIA. The Sentinel er heldur
ekkert að rembast við að feta
ótroðnar slóðir heldur reynir að
nýta sér allt það góða sem hefur
verið gert. Garrison á auðvelt
með að vinna hug og hjörtu áhorf-
andans með herkænsku sinni en
hlutverkið er klæðskerasniðið
fyrir Michael Douglas enda hefur
hann leikið hina rosknu týpu
oftar en einu sinni. Arftaki hans á
hvíta tjaldinu, Kiefer Sutherland,
er einnig í kunnuglegu hlutverki
sem reglubókarmaðurinn David
Breckinridge. Sutherland er ein-
faldlega það mikill gæðaleikari
að honum getur ekki brugðist
bogalistin. Eva Longoria lætur
hins vegar lítið fyrir sér fara
enda er hlutverk hennar aðallega
að spranga um í níðþröngri
svartri dragt og hlusta á við-
reynslusetningar frá samstarfs-
félögum sínum.
The Sentinel byrjar frekar
hægt en vinnur vel á. Leikstjór-
inn Clark Johnson er duglegur að
blanda fréttamyndum og grafísk-
um útfærslum af morðhótunum
við kvikmyndina sem heppnast í
flestum tilvikum ágætlega og
tónlist Chris Beck skapar rétta
andrúmsloftið. Kvikmyndin er
langt frá því að vera söguleg í
flokki leyniþjónustumynda en
tekst vel upp með að halda áhorf-
andanum við efnið og sér til þess
að enginn fer úthvíldur út úr
kvikmyndahúsinu.
Freyr Gígja Gunnarsson
Ekkert sögulegt afrek
THE SENTINEL
LEIKSTJÓRI: CLARKE JOHNSON
AÐALHLUTVERK: KIEFER SUTHERLAND,
MICHAEL DOUGLAS OG EVA LONGORIA
Niðurstaða: The Sentinel er ágætt dæmi um
það þegar tveir leikarar fá hlutverk sem þeir
kunna upp á hár og skila því af sér eins og að
drekka vatn. Kvikmyndin fer vart í sögubæk-
urnar en tekst að halda áhorfandanum við
efnið lengst af.
����������������������� ������������������������������ �����
�������������������������� ���
�����������
���������������
�� ��
���� � ��
��������������������
�
�
�
�
�
�
�
��
��
��
��
��
�
�
�
�
�
�
�
����������������������� ������������������������������ �����
���������������������� ��
����������������������������
������������� ������������
������������������������
����������������������� �������
�������������������������������
������������ ���������������
��������������
��� ������
������������
�� ������������������������
����������������������
���������������� �����������
������������������������
����������������������������
���������������������������
�������������� �����
������������������������
����������
������������
�������������������������� ���
Benny Crespo‘s Gang, Wulfgang,
Helgi Valur og Atómstöðin koma
fram á tónleikaröð Reykjavík
Grapevine og Smekkleysu í dag.
Tónleikaröðin hefur verið í gangi í
allt sumar þar sem margar af betri
hljómsveitum landsins hafa troðið
upp. Senn fer að líða að lokum tón-
leikaraðarinnar og eru einungis
fernir tónleikar eftir. Helgi Valur
treður upp í Smekkleysu/Gallerí
Humar eða frægð á Klapparstíg 27
klukkan sautján og kostar ekkert
inn. Seinni tónleikarnir með sveit-
unum fjórum eru svo haldnir á Café
Amsterdam í Hafnarstræti 5 klukk-
an níu. Aðeins kostar fimm hundr-
uð krónur inn á seinni tónleikana.
Líður að lokum
BENNY CRESPO‘S GANG Ein fjögurra hljómsveita sem troða upp í kvöld.
Leikarinn og hjartaknúsarinn
David Hasselhoff er að leita að
eiginkonu um þessar mundir
en hann er vandlátur. „Konan
verður að vera frægari en
ég.“ Um daginn hitti
Hasselhoff bresku leik-
konuna Kate Beckin-
sale á frumsýningu
og reyndi hann af
öllum mætti að heilla
hana upp úr skónum.
Hann mun hafa hvíslað í
eyra hennar: „Ég gef þér
allt sem ég á.“ Beckinsale
hló að viðreynslutaktík
gömlu Baywatch-stjörnunnar en
Hasselhoff stendur í þeirri trú
að leikkonan fræga hafi verið
mjög spennt yfir að hitta hann.
Hasselhoff er nýskilinn við
eiginkonu sína Pamelu Bach
og hefur ítrekað verið tek-
inn fyrir ölvun á almanna-
færi síðan skilnaðurinn
gekk í gegn.
Leitar að ástinni
DAVID HASSELHOFF Gamla
Baywatch-stjarnan reyndi
við bresku leikkonuna Kate
Beckinsale á dögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS
MIAMI VICE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6
SILENT HILL kl. 10 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 4 og 8
STICK IT kl. 8 og 10.20
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6 og 8
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 5.50, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL kl. 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
STORMBREAKER kl. 6
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
SÍÐUSTU SÝNING
AR
H.J.MBL Ó.T. Rás 2