Fréttablaðið - 10.08.2006, Page 73
FIMMTUDAGUR 10. ágúst 2006 53
FÓTBOLTI „Það var ótrúlega mikill
missir fyrir Arsenal þegar Patrick
Vieira var seldur til Juventus. Það
yrði svipað ef Ashley Cole færi,“
sagði franski sóknarmaðurinn
Thierry Henry í gær en hann
hefur miklar áhyggjur af því að
liði missi Cole. „Að sjálfsögðu
vilja allir hérna að hann verði
áfram. Hann er klárlega einn besti
vinstri bakvörður í heiminum og
hans yrði sárt saknað.“
Cole ferðaðist ekki með Arsenal
í Evrópuleikinn gegn Dinamo Zag-
reb á þriðjudagskvöld en enska
liðið vann þar öruggan 3-0 sigur.
Það þýðir að hann er enn löglegur
með einhverju öðru liði í Evrópu-
keppni á þessu tímabili og sölu-
verðmæti hans er því enn mjög
mikið. Englandsmeistarar Chel-
sea hafa verið á höttunum eftir
Cole í langan tíma og er talið lík-
legast að hann klæðist bláa bún-
ingnum á komandi tímabili.
„Ég veit ekkert um það hvort
hann sé á leið til Chelsea en það
yrði frekar asnalegt að láta svona
sterkan leikmann til liðs sem við
erum að kljást við. Það er verið að
vinna í að koma Arsenal á sama
stall og Chelsea og það yrði klár-
lega afturför ef við létum Cole af
hendi til liðsins,“ sagði Henry í við-
tali við enska blaðið The Sun í gær.
Arsenal á í vandræðum í vörninni
því Gael Clichy og Philippe Sender-
os eru meiddir. - egm
Sóknarmaðurinn Thierry Henry lýsir yfir áhyggjum sínum yfir hugsanlegu brotthvarfi Ashley Cole:
Yrði mikið áfall fyrir Arsenal að missa Cole
YRÐI SÁRT SAKNAÐ Ashley Cole situr hér fyrir í lottóauglýsingu á Englandi.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Meiðsli miðjumannsins
Joe Cole hjá Chelsea eru ekki eins
alvarleg og óttast var í fyrstu og
ætti hann að verða tilbúinn aftur í
slaginn undir lok mánaðarins. Cole
meiddist á hægra hné í æfinga-
ferð ensku meistaranna um Banda-
ríkin. Talið var í fyrstu að hann
hefði skaddað liðbönd í hné það
illa að hann gæti ekki leikið í sex
vikur.
„Hann verkjar enn í hnéð en
bati hans er mjög hraður,“ sagði
Steve Clarke, sem er í þjálfaraliði
Chelsea. Það er ljóst að Cole getur
ekki leikið vináttulandsleik með
enska landsliðinu gegn Grikklandi
hinn 16. ágúst. - egm
Meiðsli Joe Cole hjá Chelsea:
Tilbúinn í lok
mánaðarins
GÓÐ TÍÐINDI Það gleður stuðningsmenn
Chelsea að Cole verður til í slaginn fyrr en
talið var. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Jose Antonio Reyes, leik-
maður Arsenal, vill fá félagaskipti
yfir til Real Madrid sem fyrst.
Viðræður milli spænska stórliðs-
ins og Arsenal standa nú yfir en
Reyes, sem er 22 ára, vill komast
heim til Spánar. „Ég og fjölskylda
mín erum nokkuð hrædd um að
eitthvað fari úrskeiðis. Ég vil að
gengið verði frá málum sem
fyrst,“ sagði Reyes.
Leikmaðurinn kom ekki við
sögu þegar Arsenal vann Dinamo
Zagreb 3-0 í forkeppni Meistara-
deildarinnar á þriðjudaginn og gaf
það byr undir báða vængi að hann
sé á leið til Madrídinga. Reyes er
ánægður hjá Arsenal en er þó með
mikla heimþrá. - egm
Jose Antonio Reyes:
Vill sem fyrst
til Real Madrid
VILL HEIM Reyes vill fara til Real Madrid
sem fyrst. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Hollendingurinn Co Adri-
aanse sagði í gær starfi sínu lausu
sem þjálfari portúgalska liðsins
FC Porto eftir deilur við stjórnar-
menn félagsins. Adriaanse er 59
ára og var áður þjálfari Ajax og
AZ Alkmaar áður en hann tók við
Porto í fyrra. Undir stjórn hans
vann félagið bæði portúgalska
meistaratitilinn og bikarinn en
hann var aðeins hálfnaður með
samning sinn. Adriaanse er fjórði
þjálfarinn sem hrökklast úr starfi
þjálfara Porto síðan Jose Mour-
inho réði sig til Chelsea fyrir
tveimur árum.
- egm
Co Adriaanse hjá Porto:
Hætti óvænt
með liðið
CO ADRIAANSE Er hættur með Porto.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
������������
������������������
�����������
������������
���������������������������������������
�������������������������
����������������
����������
���������������
����������������
��������������
�����������������
�������������������
������������������
Laugavegi & Kringlunni • Sími: 551 70 60
www.brim.is